Dagur - 03.07.1990, Side 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 3. júlí 1990
Nýir möguleikar í orkufrekum iðnaði á íslandi
- Fyrirlestur Braga Árnasonar, prófessors, Raunvísindastofnun Háskólans, haldinn á Akureyri 6. júní sl.
„Ástæðan fyrir því að ég er mætt-
ur hér er sú, að ég var beðinn að
koma og gera grein fyrir áform-
um sem nú eru uppi í Evrópu umi
stórfellda orkuflutninga þangað,
jafnvel frá fjarlægum heimsálf-
um, og að ræða þann möguleika
hvort íslendingar gætu orðið
samkeppnisfærir orkuseljendur,
ef til slíkra flutninga kæmi. Þá á
ég ekki við flutning á olíu, heldur
annarri orku svo sem vatnsorku,
sólarorku og jafnvel jarðhita,
sem breytt yrði á staðnum í þann-
ig form, að unnt sé að flytja hana
í tankskipum um langan veg,
þangað sem hún yrði síðan notuð
í margvíslegum orkukerfum við-
komandi landa.
Pótt slíkir orkuflutningar séu
ekki enn orðin staðreynd og
reyndar enn óvíst hvenær af þeim
verður og á það vil ég leggja
áherslu, þá eru nú ýmis teikn á
lofti, sem benda til að slíkt gæti
orðið í allra næstu framtíð, jafn-
vel eftir tvö til þrjú ár. Og það er
mitt álit að íslendingar eigi að
fylgjast grannt með því, sem nú er
að gerast í þessum málum, því
þarna gæti verið á ferðinni nýr
möguleiki á íslenskri stóriðju,
sem kynni að verða vel sam-
keppnisfær við stóriðju eins og
álvinnslu og gæti jafnvel haft
ýmsa kosti umfram hana.
En áður en ég kem að efninu,
þá langar mig til að eyða nokkr-
um orðum í að skýra frá því,
hvers vegna ég er hér og er að
fást við þessa hluti.
Rannsóknir á íslenskum
orkulindum
Allt frá því ég réðist til Háskóla
íslands 1962 hafa undirstöðu-
rannsóknir á íslenskum orkulind-
um verið verulegur hluti af starfi
mínu. Þótt rannsóknir á vatns-
orku hafi verið nokkur hluti af
þessu starfi, þá hafa jarðhita-
rannsóknir þó vegið þar mun
meira. í stuttu máli má segja að
jarðhitarannsóknir hafi leitt til
þess, að nú liggur fyrir allgóð
mynd af uppruna og eðli flestra
jarðhitakerfa landsins, auk
rennslisleiða og rennslishraða
vatnsins um berggrunninn.
Þaö segir sig sjálft að þegar
verið er að fást við rannsóknir
sem þessar og maður uppgötvar
hve gífurlegt magn við íslending-
ar eigum af ónýttri orku, ef við
mælum það á íslenska mæli-
kvarða, þá verður ekki hjá því
komist að fara að velta því fyrir
sér hvort ekki sé unnt á einn eða
annan hátt að nýta hluta af þess-
ari orku í stað þeirrar orku, sem
flutt er til landsins sem eldsneyti.
En þegar ég fór í alvöru að velta
þessu fyrir mér einhvern tíma í
byrjun áttunda áratugarins, var
tæpur helmingur af allri orku-
notkun íslendinga innflutt elds-
neyti, þrátt fyrir það að við höfð-
um þá aðeins virkjað um 10% af
því vatnsafli og um 5% af þeirri
varmaorku sem talið er tæknilega
hagkvæmt að virkja í landinu. Og
enn er orkuinnflutningurinn um
þriðji hlutinn af heildarorkunotk-
un landsmanna.
Pessar vangaveltur mínar
leiddu til þess að á árunum 1978-
1980 skrifaði ég nokkrar skýrslur,
þar sem viðhorfunum í þessum
málum er lýst eins og þau voru þá
og jafnframt gerð grein fyrir
aðferðum, sem þá voru þekktar
til að koma orku helstu frum-
orkulinda jarðarinnar í þannig
form, að hægt sé að flytja orkuna
milli heimshluta og nýta hana á
stöðum þar sem nú eru notuð kol
og olía. En með frumorkulind-
um á ég hér einkum við orkulind-
ir eins og vatnsafl, sólarorku,
jarðhita og jafnvel orku í glóandi
hraunkviku.
Skýrslum fálega tekið
Þá var í skýrslunum einnig fjallað
um það, hvernig íslendingar gætu
í framtíðinni nýtt vatnsafl og
jarðhita til að framleiða elds-
neyti, sem kæmi í stað olíu, sem
nú þarf að flytja til landsins.
Reyndar var þessuin skýrslum
tekið heldur fálega á þeim tíma.
Menn töldu þetta aðeins fjarlæga
drauma. Því það er nú svo að
stjórnmálamenn virðast almennt
hafa lítinn áhuga á að hugsa lengra
fram í tímann en svo sem eitt
eða í mesta lagi tvö kjörtímabil.
Þetta gildir þó sem betur fer ekki
um alla stjórnmálamenn og ég vil
gjarnan geta þess að Stefán Val-
geirsson hefur fylgst með fram-
vindu þessara mála af miklum
áhuga allan síðasta áratug eða
nánar tiltekið frá því að ég skrif-
aði grein um þessi mál í Morgun-
blaðið í árslok 1977. En það er
einmitt fyrst og fremst vegna
hinna jákvæðu viðhorfa hans til
þessara mála, sem ég féllst á að
koma hér í kvöld.
Ég held að þessar tíu ára
skýrslur mínar séu í fullu gildi
enn í dag, svo langt sem þær ná
og reyndar Morgunblaðsgreinin
einnig. En síðan hefur komið
fram ný tækni á ýmsum sviðum
og við stöndum nú án efa talsvert
nær því að geta nýtt vatnsorku til
að framleiða eldsneyti, sem flytja
má milla landa.
Framtíðarsýn
Ég hefi vitað af því í nokkur ár,
að Þjóðverjar hafa varið umtals-
verðu fjármagni í að rannsaka
þann möguleika að kaupa orku í
öðrum heimshlutum, aðra en
olíu, og breyta henni í þannig
form að hægt sé að flytja hana til
Evrópu til notkunar í hinum
margvíslegu orkukerfum, sem
þar eru fyrir. Meginástæða þess-
ara rannsókna er sú, að orkusér-
fræðingar í löndum Efnahags-
bandalagsins telja næsta einsýnt,
að tilbúið eldsneyti muni verða
verulegur hluti þeirrar orku, sem
notuð verði í löndum Evrópu í
byrjun næstu aldar. Þar kemur
einkum til eftirfarandi:
1. Minnkandi olíuforði jarðar.
2. Aukin orkunotkun í heim-
inum, eða tvöföldun á næstu 50
árum.
3. Aukin vinnsla sólar- og
vatnsorku, sem breyta verður í
eldsneyti, þannig að hægt sé að
flytja orkuna milli fjarlægra
staða.
4. Nauðsyn þess að draga úr
vaxandi kolsýrumengun and-
rúmsloftsins sem verður vegna
bruna eldsneytis, sem inniheldur
kolefni.
Yetni sem elds-
neytistegund
Pað er einkum vegna þess síðast-
nefnda, þ.e. nauðsyn þess að
draga úr vaxandi kolsýrumengun
andrúmsloftsins, sem menn virð-
ast nú almennt hallast að þeirri
skoðun að sú eldsneytistegund,
sem endanlega verði fyrir valinu
sé hreint vetni, en ekki eldsneyt-
istegundir, sem innihalda
kolefni, eins og t.d. metanól
vegna þess að þær munu halda
áfram að auka kolsýrumagn and-
rúmsloftsins. En þegar vetni
brennur myndast einungis vatn.
Þó kemur einnig til að rann-
sóknir síðustu tveggja áratuga
hafa leitt til þess, að tækni til að
framleiða, meðhöndla og nota
vetni sem eldsneyti hefur fleygt
mjög fram, þannig að nú er eick-
ert því til fyrirstöðu að hefja
notkun slíks eldsneytis í miklu
magni. Næsta skrefið í áttina að
notkun vetnis sem framtíðar-
Fyrri hluti
eldsneytis fyrir jarðarbúa er því
það, að mati sérfræðinga á þessu
sviði, að hefja tilraunanotkun
þess í nokkrum mæli.
Sameiginlegt
rannsóknarverkefni
Og það er vegna þess, sem all-
mörg þýsk stórfyrirtæki, nokkrir
þýskir háskólar og einn háskóli í
Sviss ákváðu árið 1986, að leggja
í sameiginlegt rannsóknarverk-
efni þar sem stefnt skyldi að því,
og ef skynsamlegt sýndist, að
gera tilraun þar sem verulegt
magn vetnis yrði framleitt úr
vatni með hjálp raforku í annarri
heimsálfu og flutt þaðan með
tankskipum til Evrópu, til notk-
unar í hinum margvíslegu orku-
kerfum einnar stórborgar í
Pýskalandi. Þarna eru ekki á
ferðinni neinar byrjendur á þessu
sviði. Ég get nefnt sem dæmi að
auk háskólanna taka t.d. þátt í
þessu stórfyrirtæki eins og
Höchst-Uhde, Daimler-Benz,
Ruhrgas, Linde, Messerschmiat-
Bölkow-Blohm. En þetta eru allt
risar í þýskum iðnaði hver á sínu
sviði.
Pessar rannsóknir eru gerðar í
samvinnu við Efnahagsbandalag
Evrópu og þeim er stjórnað af
fyrirtæki sem heitir Dechema, en
það eru samtök þýskra rann-
sóknastofnana á sviði efnafræði,
efnatækni og líftækni.
Verkefnið felst nánar tiltekið í
eftirfarandi:
1. Að kaupa 100 megavött af
raforku í Québec í Kanada og
nota hana þar til að framleiða
vetni með rafgreiningu.
2. Að flytja vetnið til Ham-
borgar í Þýskalandi, annaðhvort
sem hreint vetni eða bundið í
efnasamböndum.
3. í Hamborg yrði vetninu
skipað á land og það notað í
orkukerfum borgarinnar á eftir-
farandi hátt:
a) Blandað kolagasi eða jarðgasi
og notað til húsahitunar, en við
það mundi draga verulega úr loft-
mengun í borginni.
b) Til að framleiða raforku í
gufuaflstöðvum, sem nú nota
kol.
c) Til að framleiða raforku í
efnarafölum (fuel cells), en þá
yrði orkunýting um tvöfalt betri
en í gufuaflstöðvum.
d) Sem eldsneyti á strætisvagna
borgarinnar, alls um 900 vagna.
Það má geta þess hér til gam-
ans að í Appollogeimförunum,
sem Bandaríkjamenn sendu til
tunglsins á sínum tíma sáu efna-
rafalar fyrir aliri raforku sem not-
uð var í geimförunum. Og þeir
gerðu meira því vatnið sem
myndaðist við bruna eldsneytis-
ins í þeim var drykkjarvatn geim-
faranna.
í upphafi var ákveðið að á öll-
um stigum verkefnisins yrði ein-
ungis gert ráð fyrir að notuð yrði
tækni, sem þegar er vel þekkt.
Þannig var til dæmis gert ráð fyrir
að framleiða vetnið eingöngu
með einhverri af þeim rafgrein-
ingaraðferðum, sem nú eru not-
aðar í heiminum til að framleiða
vetni í miklu magni, en ekki með
nýrri rafgreiningaraðferðum,
sem enn hafa aðeins verið notað-
ar til að framleiða vetni í litlu
magni, enda þótt allt bendi til að
með þessum nýrri aðferðum geti
framleiðslukostnaðurinn lækkað
verulega frá því sem nú er vegna
þess að orkunýtnin er miklu
betri.
Þá var ákveðið að skipta rann-
sóknarverkefninu í þrjá hluta og
var jafnframt ákveðið að ákvörð-
un um að hætta eða halda áfram
við verkefnið skyldi tekin í lok
hvers hluta.
Fyrsti hlutinn hófst í ársbyrjun
1986 og honum lauk í árslok
1987. Hann fólst f forvali á heppi-
legustu aðferðum og tækni til að
framkvæma tilraunina og frum-
kostnaðaráætlun.
Hluti tvö hófst svo árið 1988 og
honum lýkur á þessu ári. Hann
felst í nákvæmri athugun á hverj-
um einstökum lið verkefnisins
svo og nákvæmri kostnaðaráætl-
un.
Að loknum hluta tvö verður
tekin ákvörðun um, hvort ráðist
verður í hluta þrjú, sem er þá að
hrinda verkefninu í framkvæmd,
byggja verksmiðjur, flutnings-
tæki, eldsneytisgeyma og gera
nauðsynlegar breytingar á orku-
kerfum Hamborgar.
Skýrsla Þjóðverjanna
í skýrslu Þjóðverjanna um fyrsta
hluta verkefnisins kemur fram,
að megintilgangur þess sé ekki
endilega sá, að það skili fyrst í
stað hagnaði, heldur fyrst og
fremst sá, að afla nægilega stað-
góðrar þekkingar og reynslu,
þannig að lönd Efnahagsbanda-
lagsins geti áfallalítið aðlagað sig
þeim breytingum á orkubúskap
Evrópu, sem sérfræðingar telja
líklegt að verði á næstunni. Til
þess sé nauðsynlegt að fara út í
svo umfangsmikla tilraun. En
jafnvel þótt ekki fari allt eftir sem
ætlað er nú, virðast menn telja að
áhætta við að hrinda verkinu í
framkvæmd sé lítil, því iðnaður
Evrópu muni í framtíðinni hafa
þörf fyrir allt vetni sem hér er
gert ráð fyrir að framleiða og
jafnvel miklu meira.
Þá kemur fram í skýrslu Þjóð-
verjanna að meginástæðan fyrir
því að Kanada er valið sem orku-
söluland er sú að Kanadamenn
bjóði 100 megavött af mjög
ódýrri raforku. En þetta orku-
verð, sem er 18 U.S. mills/kvst til
ársins 1995 en 36 U.S. mills/kvst
eftir það mundi nú varla teljast
mjög lágt verð á íslandi. (Eining-
in U.S. mill, sem er einn þúsund-
asti úr Bandaríkjadal, er mikið
notuð í umræðum um orkufrekan
iðnað). Þá kemur einnig fram að
ef unnt væri að fá keypta raforku
nær Evrópu, þannig að ekki
þyrfti að flytja vetnið um jafn-
langan veg og hér er gert ráð
fyrir, mundi flutnings- og
geymslukostnaður vetnisins
lækka umtalsvert og þá jafnframt
heildarkostnaðurinn við öflun
eldsneytisins.
Hvergi minnst á ísland
Ég verð að segja alveg eins og er,
að ég hrökk talsvert við þegar ég
las skýrslu Þjóðverjanna, því mér
hafði satt að segja alls ekki verið
Ijóst áður, hversu langt verkefnið
er í raun komið. Það verður ekki
annað séð af þeim upplýsingum,
sem ég hefi nú, en að tekin verði
um það ákvörðun þegar á næsta
ári hvort hafist verður handa um
að hrinda verkefninu í
framkvæmd.
Þá kom það mér einnig mjög á
óvart að í skýrslunum var hvergi
minnst á ísland sem hugsanlegt
orkusöluland. Þar er getið um
það að í framtíðinni megi fá
mikla orku frá Brasilíu, en þar er
líklega mest óvirkjað vatnsafl til í
heiminum á einum stað. Þá er
einnig minnst á Grænland sem
land þar sem megi hugsanlega fá
mikla orku. En að á íslandi sé til
mikil óvirkjuð orka virðast Þjóð-
verjar hins vegar ekki hafa
minnstu hugmynd um.
Raforkuverð hér á landi
fyllilega samkeppnisfært
Það varð því úr að ég skrifaði
prófessor Kreysa, sem stjórnar
verkefninu, til að benda honum á
að á íslandi sé umtalsvert magn
af ónýttri vatnsorku og því hugs-
anlegt að þeir Efnahagsbanda-
lagsmenn gætu sparað sér sporin
yfir lækinn til að sækja vatnið. í
bréfinu benti ég meðal annars á
eftirfarandi:
Að íslendingar ættu um það bil
3500 megavött í vatnsafli, sem
talið væri mjög hagkvæmt að
virkja. Þar af væru um það bil
3000 megavött enn óvirkjuð, en
það svarar til um það bil tíunda
hluta óvirkjaðs vatnsafls í
Kanada. Ég get bætt því hér við,
að auk vatnsaflsins þá eigum við
jarðhitann, en orka hans er lík-
lega allt að fjórum sinnum meiri.
Jarðhitinn gæti því staðið undir
umtalsverðri viðbótarraforku-
framleiðslu, það er talað um 1500
megavött. Við ættum ef til vill
frekar að tala um 4500 megavött
af ónýttri raforku á íslandi frekar
en 3000 megavött. Þá benti ég á
að flutningaleiðin frá íslandi til
meginlands Evrópu væri aðeins
um það bil einn þriðji af flutn-
ingaleiðinni frá Kanada. Að
vetnisframleiðsla væri vel þekkt-
ur iðnaður á íslandi, þar sem
vetni hefði verið framleitt í nærri
40 ár í Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi, þótt magnið sem þar
er framleitt sé ekki nema um
tíundi hluti af því magni, sem
gert er ráð fyrir að framleiða í til-
raunaverkefni Þjóðverjanna. En
af því má marka hversu stórt
þetta tilraunaverkefni er í raun
og veru. Við erum sem sagt að
tala hér um verksmiðju, sem
hvað varðar orkunotkun er jafn-
stór álverinu í Straumsvík. Loks
benti ég á, að samkvæmt athug-
unum, sem gerðar hafa verið á
framleiðslukostnaði þeirra 3000
megavatta sem enn er talið
tæknilega mjög hagkvæmt að
virkja á íslandi, gæti ég ekki séð
annað en raforkuverð á íslandi sé
fyllilega samkeppnisfært við raf-
orkuverð í Kanada.
Bragi Árnason
Með leyfi Braga Árnasonar
prófessors óskuðu Samtök
jafnréttis og félagshyggju eftir
að Dagur birti þennan fyrir-
lestur þar sem þau telja að
hann eigi brýnt erindi til
almennings. Ritstjóri