Dagur - 03.07.1990, Qupperneq 7
Þriðjudagur 3. júlí 1990 - DAGUR - 7
Þórsarar unnu sanngjarnan
sigur á KA-mönnum þegar lið-
in mættust á Akureyrarvelli í
1. deildinni í gærkvöld. Sterk-
ur norðanvindur setti mark sitt
á leikinn og lá meira á Þórsur-
um í fyrri hálfleik þegar KA
menn höfðu vindinn í bakið en
í þeim síðari snerist dæmið við
og Þórsarar skoruðu tvö mörk
og tryggðu sér sigur.
Pressa KA á Þórsvörnina var
oft þung í fyrri hálfleik en Þórsar-
ar <komust í nokkrar hættulegar
skyndisóknir og áttu furðulega
au(ðvelt með að finna göt á KA-
yqfninni. Þórir Áskelsson átti
Íy,'j>tfi færið inni á markteig KA
^ýhitti ekki boltann.
.: A.17. mínútu átti Örn Viðar
höxkuskot að Þórsmarkinu en
Friðrik sýndi hvað í honum býr
og varði í horn. Næsta færi létu
KÁ-menn sér ekki úr greipum
renna. Pórður lék af miklum
þrafti upp vinstri kantinn og gaf
inn á Jón Grétar í teignum sem
gaf sér góðan tíma meðal varn-
^rmanna Pórs og sendi auðveld-
lega yfir Friðrik markvörð. Við
þetta mark lifnaði yfir leiknum
qg en á 38. mínútu urðu KA-
fjjqnn fyrir skakkafalli þegar
Qjpiarr lenti í miklu samstuði við
lypka Kostic og varð að yfirgefa
#W>nn.
,§tuttu síðar fékk Bjarni Svein-
björnsson gullið færi þegar hann
komst einn inn fyrir KA-vörnina
en, Haukur lokaði hann vel af og
sjcot Bjarna fór yfir markið.
Stax á fyrstu mínútu síðari
hálfleiks kom jöfnunarmarkið.
Ólafur Þorbergsson, sem kom
inná rétt fyrir hálfleik, fékk þá
gott næði fyrir framan KA-vörn-
ina við vítateigslínu, lék með-
fram veggnum, fann glufu og lét
fast skot vaða á markið, óverj-
andi fyrir Hauk.
Segja má að við þetta hafi
hlaupið mikill baráttuandi í Þórs-
Sagt eftir
leikinn
Siguróli Kristjánsson Þór:
„Þetta var frábært. Leikurinn
var í heild góður og fullt af
marktækifærum. Við spiluð-
um upp á að sigra KA-menn,
við vissum að við gætum það.
Baráttan skilaði þessu númer
eitt, tvö og þrjú. Með góðri
baráttu náum við góðu spili,
en þegar baráttan er ekki til
staðar náum við engu spili.“
Bjarni Jónsson KA
„Það er lítið um þetta að
segja. Við fengum færi í síðari
hálfleik til þess að gera út um
leikinn, en það tókst ekki.
Okkur hefur ekki enn tekist
að sigra Þór í fyrstu deild, en
ég vona að það sé engin grýla
á okkur.“
____________________________
Eitt af hættulegum skyndi-
upphlaupum KA kom á 34. mín-
útu þegar Þórður Guðjónsson
skaut naumlega framhjá eftir
kapphlaup við Nóa Björnsson.
Á 35. mínútu fóru hlutirnir að
gerast. Hlynur Birgisson átti stór-
leik á þessum lokamínútum og
byggði upp tvær frábærar sóknir
frá hægri vængnum. I fyrra skipt-
ið lagði hann upp glæsilegt þrí-
hyrningsspil og komst upp að
markteigshorninu, renndi inn á
Árna Þór sem tókst á ótrúlegan
hátt að skjóta í slána. Fjórum
mínútum síðar kom svo sigur-
markið. Enn var Hlynur á ferð-
inni á hægri vængnum og gaf frá-
bæra sendingu á Bjarna sem
komst einn á móti Hauk í mark-
inu og renndi boltanum í netið.
Þetta mark virtist slá íslands-
meistarana út af laginu og lengra
komust þeir ekki gegn Þórsurun-
um og norðanáttinni.
Baráttugleðin skóp þennan sig-
ur Þórs fyrst og fremst. KA-liðið
- þegar Þórsarar skelltu íslandsmeisturum KA
ara. Þeir voru mun ákveðnari í
alla bolta og fundvísir á göt í KA-
vörninni en þessi þunga sókn
kostaði líka að KA náði hættu-
legum hraðaupphlaupum.
Á 21. mínútu skapaðist stór-
hætta við KA-markið þegar
Kostic renndi boltanum inn fyrir
vörnina þar sem Júlíus var örfá-
um tommum frá því að koma
tánni í boltann.
Haukur mátti hafa sig allan við
að verja skot frá Kostic eftir
aukaspyrnu á 33. mín og bjargaði
þar meistaralega.
Árni Þór Árnason og Steingrímur Birgisson kljást um boltann í leiknum í gær. Oft á tíðum mæddi mikið á Stein-
grími og félögum í KA-vörninni í síðari hálfleik þegar sóknir Þórs tóku að þyngjast. Mynd:KL
veiktist mikið við að missa Orm-
arr útaf en samt sem áður virtust
göt í vörninni allan leikinn og
miðjumennirnir áttu allir slæman
dag. Haukur var góður í markinu
og Jón Grétar í framlínunni en í
Þórsliðinu stendur Sigurður Lár-
usson uppúr. Hlynur átti líka
góðan leik í síðari hálfleik. JÓH
DóniíiráAri Þórðarson
Gult spjald:
Örn Viöar Arnarson og Árni Þór Árna-
son.
Leikmenn Þórs:
Friðrik Friðriksson. Siguróli Kristjáns-
son, Nói Björnsson, Luka Kostic, Þor-
steinn Jónsson, Sigurður Lárusson, Árni
Þór Árnason, Biarni Sveinbjörnsson,
Þórir Áskelsson (Olafur Þorbergsson 42.
mín.), Hlynur Birgisson, Júlíus Tryggva-
son.
Leikntenn KA:
Haukur Bragason, Gauti Laxdal, Heimir
Guðjónsson, Jón Grétar Jónsson (Árni
Hermannsson 84. mín.), Örn Viðar Arn-
arson. Steingrí'mur Birgisson, Bjarni
Jónsson, Ormarr Örlygsson (Arnar
Bjarnason 43. mín.) Þórður Guðjónsson.
Halldór Halldórsson, Hafsteinn Jakobs-
son.
Tommamótið í Eyjum:
Þórsarar sigruðu í
úrslitaleik B-liða
Tommamótiö í knattspyrnu fór
fram í Yestmannaeyjum um
hclgina. Piltarnir í Þór á Akur-
eyri gerðu góöa ferð til Eyja og
sigruöu þeir í flokki B-liða.
Þeir mættu Fram í úrslitum og
unnu 6:4 eftir spennandi víta-
spyrnukeppni. Staðan eftir
venjulegan leiktíma var 2:2.
Mörk Þórs í leiknum skoruðu
þeir Andri Albertsson og Þórður
Halldórsson.
Fylkismenn urðu Tomma-
meistarar í flokki A-liða. Þeir
sigruðu Stjörnuna í úrslitaleikn-
um 4:0. Fylkismenn sigruðu í öll-
um leikjum sínum utan einum
þar sem liðið gerði jafntefli.
í undanúrslitunum í flokki A-
liða töpuðu Þórsarar 0:2 fyrir
Stjörnunni og gerðu 1:1 jafntefli
við Fram. KA tapaði 3:4 fyrir Þór
Vestmannaeyjum en sigraði
Reyni 3:0. Völsungar mættu
UMFA í undanúrslitum A-liða
og gerðu 2:2 jafntefli en liðið tap-
aði síðan 2:3 fyrir KR.
í úrslitum í flokki B-liða sigr-
uðu Þórsarar Val 3:2 og gerðu
síðan 2:2 jafntefli við Fram í úr-
slitaleiknum og unnu síðan i víta-
spyrnukeppni eins og áður segir.
KA gerði 0:0 jafntefli við UMFA
og annað 0:0 jafntefli við Stjörn-
una. JÓH
Hörpudeild
Úrslit í gærkvöld:
IBV-Víkingur 2:2
FH-Valur 0:1
KR-ÍA 2:0
Þór-KA 2:1
Valur 8 6-1-1 14: 6 19
KR 8 5-0-3 13: 9 15
Frani 7 4-1-2 14: 3 13
ÍBV 8 4-2-2 11:13 14
Víkingur 8 3-3-2 10: 9 12
FH 8 3-0-5 11:11 9
ÍA 8 2-2-4 8:13 8
KA 8 2-1-5 8:13 7
Stjarnan 7 2-1-4 7:13 7
Þór 8 2-1-5 6:12 7
Markahæstir:
Guðmundur Steinsson, Fram 6
Sigurjón Kristjánsson, Val 5
Hörður Magnússon, FH 4
Pálmi Jónsson, FH 3
Antony Karl Gregory, Val 3
Árni Sveinsson, Stjörnunni 3
Goran Micie, Víkingi 4
Hlynur Stefánsson, IBV 4
Ríkharður Daðason, Fram 3
Orrnarr Örlygsson, KA 3
Ragnar Margeirsson, KR 3
Pétur Pétursson, KR 3
Kampakátir Þórsarar við heimkomuna til Akureyrar í gær. Mynd:KL