Dagur - 03.07.1990, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 3. júlí 1990 - DAGUR - 11
hér & þor
Sérstakt brúðkaup í Víðimýrarkirkju:
Brúðarbílinn að
hætti A1 Capone!
- 60 ára gamall Ford A
Vegfarendur sem leið áttu um
nágrenni Varmahlíðar einn
seinni part dags eigi alls fyrir
löngu rak í rogastans. Ástæðan
fyrir því að þá rak í rogastans var
sú að þeir mættu skrautlegri og
glæsilegri bifreið, fremsta í flokki
margra bíla. Þar var á ferð 60 ára
gamall bíll af gerðinni Ford A,
nýuppgerður af Birni Sverrissyni,
eldvarnaeftirlitsmanni á Sauðár-
króki. Fordinn var í hlutverki
brúðarbíls á leið frá Víðimýrar-
kirkju með brúðhjónin Sigur-
björn Björnsson og Hallfríði
Báru Jónsdóttur, en Sigurbjörn
er einmitt sonur Björns.
Það var óneitanlega stíll yfir
Fordinum þegar hann ók frá
Víðimýrarkirkju með brúðhjónin
innanborðs. Brúðkaupsgestir
fylgdust vel með þegar Fordinn
ók úr hlaði og hrukku sumir í kút
þegar skemmtilega óvenjulegt
flaut barst frá bílnum í kveðju-
skyni.
Veður var gott til að gifta sig
þennan dag, hæfileg gjóla með
sólarglömpum sem dreifðust um
byggðir Skagafjarðar. Það var sr.
Hjálmar Jónsson sem gaf brúð-
hjónin saman í þessu sérstaka
brúðkaupi, því það er ekki á
hverjum degi sem hjón eru púss-
uð saman í Víðimýrarkirkju og
ekið þaðan í glæsilegum brúðar-
bíl á borð við 60 ára gamlan
Ford.
Björn eyddi hvorki meira né
minna en 2016 vinnustundum í
að gera Fordinn upp á síðustu 2-3
árum. Haft var á orði í brúð-
kaupsveislunni að brúðkaupið
hafi ekki farið fram fyrr en bíll-
inn kláraðist hjá Birni!
Lagt af stað frá kirkjunni og Fordinn fagurlega skreyttur.
Ferðinni iokið frá kirkjunni og brúðkaupsveislan eftir. Lengst til hægri við
brúðarbílinn eru brúðhjónin, Hallfríður Bára Jónsdóttir og Sigurbjörn
Björnsson. Lengst til vinstri er Árni, litli bróðir Báru, þá ökumaður brúðar-
bílsins og bróðir brúðgumans, Sverrir Björn, og loks brúðarmærin, Sigur-
laug, systir Báru. Myndjr bjb
Grænlensk náttúra
varðveitti múmíumar
frá Qilakitsoq í
Árið 1972 fundu tveir Grænlend- -
ingar, Hans og Jokum Grönvold
frá þorpinu Uummannaq á vest-
urströnd Grænlands, múmíur
eða líkamsleifar fólks sem greini-
lega hafði dáið fyrir nokkrum
öldum.
Bræðurnir höfðu verið á
rjúpnaveiðum nærri þorpinu
Qilakitsoq sem fyrir alllöngu var
komið í eyði, er þeir komu auga
á einkennilega uppröðun á stein-
um á jörðinni. Eftir að hafa velt
nokkrum steinanna fundu þeir
lík nokkurra Inuit-eskimóa sem
geymst höfðu nærri óskemmd
öldum saman.
Vegna mikils frosts og lítils
raka höfðu líkin geymst eins vel
eins og þau hefðu verið smurð,
og þess vegna litu þau út eins og
múmíur.
Fundurinn var tilkynntur græn-
lenskum yfirvöldum, en þaö var
ekki fyrr en árið 1977 að nýráð-
inn forstjóri Þjóðminjasafns
Grænlands sá myndir sem þeir
Grönvold bræður höfðu tekið, að
áhugi vaknaði og múmíurnar
voru fluttar frá Qilakitsoq til
Kaupmannahafnar til rannsókn-
ar. Svo vel hafði grænlensk nátt-
úra varðveitt þessa 500 ára gömlu
500 ár
eskimóa, að í maga einnar kon-
unnar fundust matarleifar.
Þær rannsóknir sýndu að mat-
arvenjur eskimóa hafa lítið
breyst gegnum tíðina, því síðasta
máltíð eskimóakonunnar saman-
stóð af selspiki, hreindýrakjöti,
heimskautahéra og litlu einu af
rjúpnakjöti.
Ein múmían varð nærri útund-
an í fyrstu þar sem talið var af
hún væri brúða, en við nánari
rannsókn kom í ljós að fyrir um
500 árum, eða kringum 1475 dó
þessi 6 mánaða gamli Inuit-
eskimói og var jarðsettur með
þremur konum, hvert líkið upp
af öðru en drengurinn þó efst.
En úr hverju dóu eskimóarnir?
Engin merki eru um það að þeir
hafi látist af mannavöldum, en
vísindamenn telja líklegt að dán-
arorsök sé drukknun eða að þeir
hafi frosið(í hel, en það á þó að-
eins við um konurnar. Líkur eru
leiddar að því að móðir barnsins
sé ein hinna fullorðnu, og dreng-
urinn hafi verið lagður hjá henni
látinni og þannig mætt sínu skapa-
dægri.
Orlofsferð
Iðju
Hin árlega sumarferð Iðju, félags verksmiðju-
fólks, verður dagana 24. til 29. júlí n.k.
Farið verður frá Alþýðuhúsinu við Skipagötu 14, kl.
9.00 árdegis, þriðjudaginn 24. júlí.
Dvalist verður á sumarhóteli að Varmalandi í Borg-
arfirði og farnar þaðan dagsferðir um nágrennið, svo
sem í Surtshelli, á Þingvöll, til Reykjavíkur og víðar.
Komið heim að kvöldi sunnudags 29. júlí.
Þátttaka tilkynnist skrifstofunni í síma 23621, fyrir
16. júlí. Verð með öllu kr. 18.000,-.
Ferðanefnd.
STOFMJtNADEILD
LANDBÚNADARINS
Laugavegi 120,105 Reykjavík
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1991
þurfa að berast Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir
15. september næstkomandi.
Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á
árinu 1991 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31.
desember n.k.
Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk.
Umsóknareyðublöð fást hjá Stofnlánadeild landbún-
aðarins, Búnaðarsamböndum og útibúum Búnaðar-
banka íslands, en í þeim kemurfram hvað fylgja þarf
með umsókn. Eyðublöðin ber að fylla greinilega út.
Það skal tekið fram, að það veitir engan forgang til lána
þó framkvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deild-
inni liggur fyrir.
Sérstök athygli er vakin á því, að Stofnlánadeild
landbúnaðarins er óheimilt lögum samkvæmt að
fara á eftir öðrum veðhöfum, en opinberum sjóðum.
Lántakendum er sérstaklega bent á að tryggja sér
veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá Lífeyris-
sjóðum öðrum en Lífeyrissjóði bænda og öðrum
þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð.
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS.
Vinningstölur laugardaginn
30. júní ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 3 665.958.-
Z. 4af5^i 2 173.515.-
3. 4af 5 155 3.862.-
4. 3af 5 4.098 340.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.336.834.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002