Dagur


Dagur - 03.07.1990, Qupperneq 16

Dagur - 03.07.1990, Qupperneq 16
Akureyri, þriðjudagur 3. júlí 1990 Kodak Express Gæóaframkollun ★ Tryggðu f ilmunni þinni jbesta cPeáíomyndir' . Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Norðurland: Glímt við þjóðvegbin Umferð á Norðurlandi virðist hafa verið með minnsta móti um síðustu helgi miðað við árstíma og að sögn lögreglunn- ar á Húsavík var óvenju lítið um að vera í kringum vinsæla ferðamannastaði á Norð- austurlandi. Nokkuð var þó um skakkaföll á þjóðvegum. Bifreið lenti út af veginum inn af Almenningum í Skagafjarðar- sýslu og skemmdist nokkuð en ekki urðu slys á fólki. Fólk sem var á leið frá Akur- eyri til Austfjarða sl. föstudag sá þrjá bíla utan vegar á leiðinni þannig að einhverjir hafa lent í erfiðleikum í glímunni við þjóð- veginn þrátt fyrir litla umferð. Að öðru leyti er lítið um tíð- indi af norðlenskum þjóðvegum enda umferðin öllu meiri í blíð- unni á sunnanverðu landinu. SS Staðsetning álvers við Eyjafjörð: Árskógsströnd er eiiuiig valkostur - segir Sigurður P. Sigmundsson „Við erum einungis að koma Arskógsströnd á framfæri sem Fjör í Ólafsfirði: Brottfluttir íbúar settu svip á bæinn Það var sannarlega glatt á hjalia í Ólafsflrði um helgina. Félagar í Ólafsfirðingafélaginu í Reykjavík streymdu á æsku- slóðirnar á laugardaginn og skemmtu sér fram eftir nóttu á heilmiklum dansleik. Að sögn lögregluþjóns í Ólafs- firði setti þessi hópur mikinn svip á bæinn. Á sunnudaginn héldu brottfluttu Ólafsfirðingarnir út í Múlagöngin og kynntu sér þessa byltingu í samgöngum. Álfar og huldufólk létu ekki á sér kræla en ýmis óhöpp sem orðið hafa hjá verktökum við vinnu í göngunum hafa sumir rakið til þessara þjóðsagnapersóna. Siglfirðingar skemmtu sér líka vel um helgina. Sálin hans Jóns míns var með dansleik fyrir 16 ára og eldri og voru um 200 manns á ballinu, sem þykir mikið. Að sögn lögreglu fór allt vel fram. SS valkosti í stöðunni en Dysnes er enn sem komið er sá staður sem við tcljum vænlegastan undir álver við Eyjafjörð,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri Iðnþróun- arfélags Eyjafjarðar í samtali við Dag, vegna fréttar í gær, um að við stækkun landssvæð- is undir álver í Dysnesi væri kostnaðurinn við jarðvegs- skipti þar mun hærri en ráð væri fyrir gert og og munaði þar allt að hálfum milljarði. „Erlendu aðilarnir gætu sett Dysnessvæðið fyrir sig af ein- hverjum ástæðum, t.d. mengun eða kostnað við jarðvegsskipti og því er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa annan möguleika að bjóða hér í Eyjafirði." Það er þó ljóst að bygging hafnar í Dysnesi yrði ódýrari en á Árskógsströnd og sagði Sigurður það ekki hægt að miða eingöngu við jarðvegsskiptin. „Þó svo að jarðvegsskiptin í Dysnesi yrðu allt að 1 milljarði dýrari þar en á Keilisnesi, getur líkað komið út úr dæminu að bygging hafnar í Keilisnesi yrði allt að 1 milljarði dýrari en í Dysnesi, svo dæmi sé tekið,“ sagði Sigurður ennfrem- ur. -KK Séð yfir þjónustusvæðið á Vindheimamelum. Veitingaskáli er til hægri á myndinni og salerni til vinstri. Mynd: sbg Landsmót hestamanna: Hestamannaveislan hefst í dag - 40 ár síðan það fyrsta var haldið Ellefta Landsmót hestamanna hefst í dag á Vindheimamelum í Skagafirði. Fjörutíu ár eru liðin frá því að það fyrsta var haldið og verður þetta lands- mót cflaust það veglegasta sem um getur. Svæðið var opnað sl. föstudag eins og áætlað var, en sala á aðgöngumiðum hófst ekki fyrr en á laugardagsmorgun vegna seink- unar í gerð armbanda. Strax fór að tínast fólk á staðinn og um hádegi í gær voru komnir rúm- lega 600 manns. Öll keppnishross ættu nú að vera komin á svæðið, því að keppni hefst í dag klukkan 13.00 með dómum kynbóta- hrossa (afkv. hr.), reiknað er með að því verði lokið um 18.00. Formleg mótssetning er ekki fyrr en á laugardaginn, en þá fara að hefjast úrslitakeppnir og verða þá trúlega flestir mættir sem ætla sér að koma. Eins og fram hefur komið mun Yfírálag á háspernmlínu við Sigöldu olli rafinagnsleysi á Akureyri Rafmagn fór af Akureyri í rúmlega hálfa klukkustund í gærmorgun. Orsökin var yfir- álag á háspennulínu milli Búr- fells og Sigöldu, sem varð það mikið að línan sló út. Þegar háspennulínan milli þessara tveggja virkjana sló út hafði það bein áhrif inn á Byggðalínuna. Venja er að telja upphafspunkt Byggðalínunnar vera tengistöðina á Brennimel í Hvalfirði. Þaðan liggur lína til Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, en Byggðalína yfir Skarðsheiði. Lína liggur einnig frá Geithálsi í Brennimel, þannig að þar er hringtenging. Á Brennimel er spennu breytt úr 220 kV í 130 kV, og spennunni á Byggðalínunni er því að hluta til stjórnað þaðan. Hrauneyjarfossvirkjun er tengd við Sigöldu og Brennimel. Sigalda tengist Búrfellsvirkjun með Byggðalínu. Verið var að vinna við háspennulínu milli Hrauneyjarfossvirkjunar og Brennimels, en viðgerðin orsak- aði þá yfirálag á háspennulínu milli Búrfells og Sigöldu og línan datt út vegna yfirálags. Þetta olli mikilli spennusveiflu á Byggðalínunni, og Laxárvirkj- un losnaði t.d. úr sambandi við hana. Spennir í aðveitustöð 1, Rangárvöllum, sló einnig út þannig að rafmagnslaust varð á Akureyri. „Stóriðjuálagið leysir út á undirtíðni, þannig að stærstu útleysingarnar voru ÍSAL, Járn- blendiverksmiðjan og Hafnar- fjörður ásamt Akureyri," segir Birgir Guðmannsson, stöðvar- stjóri í hinni nýju stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg í Reykjavík. Birgir segir að í þessu tilviki hafi kostir þess að hafa yfirsýn yfir allt landið úr einni stjórnstöð komið greinilega í Ijós í tímasparnaði. EHB forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, koma á Landsmótið á sunnudaginn og þá mun hún m.a. planta tré í miðju skeifulaga beðs sem fulltrúar hestamannafélag- anna planta þá um leið trjám í. Þessi skeifa er í afgirtum skógar- reit sem hlotið hefur nafnið Hóf- tunga og er búið að planta í reit- inn ríflega 3000 plöntum. í hæl skeifunnar hefur verið komið fyr- ir stuðlabergssúlu sem sunn- lensku hestamannafélögin gáfu. Hún er um 160 sm á hæð og veg- ur um 600 kg. Á súlunni eru tvær plötur og á þeirri sem fram snýr stendur: Hóftunga vígð af forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur á Landsmóti L.H. 8.júlí 1990. Á hinni plötunni stendur: „Steinn þessi er gjöf frá sunn- lensku hestamannafélögunum". Aðrir sem lagt hafa hönd að verki við þennan skógarlund eru: Kaupfélag Skagfirðinga, Sam- band íslenskra samvinnufélaga, Sauðárkrókskaupstaður, Skóg- ræktarfélag íslands, Skógræktar- sjóður Skagfirðinga, Bekaert International Trade, Belgíu. Ekki er hægt að segja annað en að þjónusta og aðbúnaður fyrir mótsgesti sé öll hin besta. Stórt tjald er undir verslun, banka o.fl. á svæðinu sjálfu. í Varmahlíð og á Sauðárkróki er einnig mikill viðbúnaður og verða bensínsölur og sjoppur opnar jafnvel allan sólarhringinn þegar líða tekur á vikuna. Skipulagning á tjaldstæðum er mjög góð. Fjölskyldu- og almenningstjaldstæði eru vel aðskilin og síðan er sérsvæði fyrir þá sem koma með hjólhýsi og tjaldvagna. Búið er að rykbinda alla vegi á svæðinu og setja upp leiðbeiningar svo að fólk rati á rétta staði án mikilla vandræða. Barnagæsla er meira að segja á svæðinu og er hún opin frá 10.00 til 18.00. Aldurstakmörk eru 2-6 ára og hámarksgæslutími tvær klukkustundir í senn. Sl. laugardagskvöld var nýja brúin yfir Svartá opnuð formlega og er öllum framkvæmdum við hana nú lokið svo að fólk getur keyrt inn á og út af svæðinu eftir tveimur leiðum. Á morgun halda áfram dómar á kynbótahrossum og verður B- flokkur gæðinga (stóðh. hryssur) þá dæmdur frá klukkan 9.00 til 19.30. SBG Myndbandaleigur og , HM: Útlán í lágmarki Það hefur sennilega ekki farið framhjá mörgum að Heims- meistarakeppnin í knattspyrnu stendur yfir þessa dagana. Sjónvarpið hefur sýnt um 30 leiki í beinni útsendingu, knattspymufíklum til óbland- innar ánægju en auðvitað eru Iíka margir sem hafa næsta lít- inn áhuga á tuðrusparki. Dagur fór á stúfana og forvitn- aðist um það hjá nokkrum mynd- bandaleigum á Akureyri hvort merkja mætti einhverja upp- eða niðursveiflu í útlánum á meðan útsendingar stæðu yfir. Yfirleitt voru svörin á þá leið að útlán á myndböndum væru í lágmarki þegar leikirnir stæðu yfir en að þeim loknum lifnuðu viðskiptin á ný. Þó sögðu starfsmenn á nokkr- um leigum að þeir gætu ekki merkt neinar breytingar á útlán- um á útsendingartíma leikja frá heimsmeistarakeppninni. Það virðist því svo vera, að knattspyrnuútsendingarnar njóti töluverðra vinsælda meðal Akur- eyringa sem og annarra lands- manna, þó að flokkur hinna sem engan áhuga hafa á knattspyrnu eigi líka nokkurs fylgis að fagna -vs

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.