Dagur - 05.07.1990, Síða 3
Fimmtudagur 5. júlí 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Degi hefur borist mynd sem
tekin var á Akureyri árið 1941:
Þekkir einhver þessa ungu drengi?
Nýlega barst Degi bréfstúf-
ur frá enskum manni að
nafni A. M. Beardshaw en
hann starfaði sem hermaður
í konunglega breska hernum
í seinni heimsstyrjöldinni og
dvaldi m.a. á Akureyri árið
1941.
Með bréfinu fylgdi mynd
seni Beardshaw tók af ungum
drengjum á Akureyri á því
herrans ári 1941. í bréfinu seg-
ir hann m.a. að drengirnir á
myndinni séu í kringum
sextugsaldurinn í dag og ef
einhver þeirra þekki sig á
myndinni og langi til að eign-
ast eintak af henni, geti við-
komandi haft samband við sig
til Englands.
Við látum myndina að sjálf-
sögðu fylgja hér með og þeir
sem áhuga hafa á því að eign-
ast eintak af henni, geta fengið
heimilsfang A. M. Beardshaw
á ritstjórn Dags. -KK
Kópasker:
Bág staða sveitar-
sjóos vegna gjald-
rota fyrirtækja
Sláttur er almennt ekki hafinn
í Öxarfirði þar sem spretta hef-
ur verið mjög hæg í þessari
kulda- og vætutíð sem verið
hefur að undanförnu. Bændur
sem gegnið hafa í kríuvarp að
undanförnu hafa orðið varir
við mjög mikinn ungadauða
sem þeir rekja til tíðarfarsins.
Að sögn oddvita Presthóla-
hrepps verða nánast engar fram-
kvæmdir á vegum hreppsins í
sumar vegna bágrar fjárhags-
stöðu, og orsakanna er fyrst og
fremst að leita til þess að Prest-
hólahreppur hefur farið mjög illa
út úr þeim gjaldþrotum sem
verið hafa í hreppnum, t.d. hjá
Fiskeldistöðinni Árlaxi hf. og
Kaupfélagi Norður-Þingeyinga,
en sýslumaðurinn á Húsavík Iýsti
Kaupfélagið formlega gjaldþrota
nýverið.
Frá sl. hausti hefur Kaupfélag
Pingeyinga á Húsavík rekið
verslun á Kópaskeri í verslunar-
húsnæði Kaupfélags Norður-
Þingeyinga, en ekki er vitað enn
hvað það verður lengi.
Seljalax hf., sem er eign
heimamanna í hreppunum þrem-
ur við Öxarfjörð, hefur boðið í
þrotabú Árlax h.f., en Árlax hf.
var slegið Fiskveiðasjóði og
Byggðastofnun á sínum tíma.
Landsmót skáta við Úlfljótsvatn:
1600 sólbrenndir skátar án sólarolíu!
- Klakkur frá Akureyri vann til tjaldbúðarverðlauna
„Landsmótiö hefur gengiö Þrauta- og metaland, auk þess landinu,"
mjög vel, hér eru allir sól- sem buslugangur á vatninu heill- taldi að
og hressir,“ sagði ar í sólskininu.
brenndir og hressir,“
Ingibjörg Jónsdóttir, blaða-
fulltrúi Landsmóts skáta, þeg-
ar Dagur sló á þráðinn til Úlf-
Ijótsvatns. Veðrið hefur leikið
við skátana og sagðist Ingi-
björg helst vilja láta skrúfa fyr-
ir sólina í smá tíma svo skáta-
andlitin geti jafnað sig.
Þeir fjölmörgu skátar sem nú
eru á Ulfljótsvatni hafa örugg-
lega lært eitt af dvölinni, að mæta
næst með meira af sólarolíu ef
veðrið verður eins og það hefur
verið.
Dagskrá mótsins hefur gengið
snurðulaust fyrir sig og allt geng-
ið upp. Vinsælasta mótssvæðið er
Verðlaun eru veitt daglega fyr-
ir hvaða svæði er fallegast og sl.
þriðjudag fékk Skátafélagið
Klakkur frá Akureyri þau eftir-
sóttu verðlaun, sem ganga undir
nafninu tjaldbúðaverðlaun. Á
laugardaginn verða síðan veitt
stærstu verðlaunin, til handa
þeim skátaflokki sem hefur stað-
ið sig best á landsmótinu.
Að sögn Ingibjargar hefur
aðsókn í fjölskyldubúðirnar farið
fram úr björtustu vonum og spil-
ar rjómablíðan þar inn í. „Það
liggur við að hér bætist við fjöl-
skyldubúðirnar á hverjum
klukkutíma, hvaðanæva að af
sagði Ingibjörg, og
1500-1600 skátar
væru
um
almennum búðum, auk
sístækkandi fjölskyldubúða. -bjb
Einnig hefur verið viðruð sú hug-
mynd meðal heimamanna að
koma á fót tilraunaeldi á bleikju
á vegurn ríkisins í núverand
seiðaeldisstöð Árlax hf.
Kelduhverfi með svipuðu snið
og tilraunaeldi ríkisins á laxi
Kollafirði, en halda áfram mat-
fiskeldi (laxeldi) í aðstöðu Árlax
hf. á Kópaskeri. GG
Melrakki:
Greiðslustöðvun
útrunnin
Um mánaðamótin rann út
framlenging greiðslustöðvunar
hjá fóðurstöðinni Melrakka á
Sauðárkróki. Ekki er vitað
hvað verður gert næst í málum
hjá fyrirtækinu, en óformlegar
viðræður um nauðungarsamn-
inga við lánadrottna eru enn í
gangi.
Þessir samningar fela í sér að
Melrakki greiði 22% skulda
sinna og var það lögmaður Mel-
rakka sem lagði þá fyrir lána-
drottnana.
Þegar Dagur hafði samband
við Árna Guðmundsson, stjórn-
arformann hjá Melrakka, vildi
hann ekki staðfesta neitt nema
það að samningarnir væru enn í
gangi, eftir væri að halda aðal-
fund, en eftir hann kæmi eitthvað
í ljós.
Að sögn Árna verður aðal-
fundurinn á næstunni, en þessa
dagana stendur yfir Landsmót
hestamanna á Vindheimamelum
og er því nóg að gera hjá mörg-
um hluthöfum fyrirtækisins í
sambandi við það. SBG
Salernismál á Akureyri:
Könnun reið klósettinu
að í liIIu
Umræður um salernismál hafa
verið býsna heitar á Akureyri
að undanförnu. Vegna fréttar
af þvagláti fólks í Miðbænum
síðla kvölds og að næturlagi er
rétt að taka það fram að
almenningssalernin undir
Þjóðgarðarnir í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum:
Vendeg fjölgun gistinátta
ferðamanna frá því í fyrra
í júnímánuði varð veruleg
fjölgun gistinátta ferðamanna í
þjóðgörðunum, í Skaftafelli
46% og í Jökulsárgljúfrum
84%, frá því í fyrra en þá var
aðsókn raunar með minna
móti. Fjölgun í Skaftafelli mið-
að við júnímánuð undan-
farinna ára er um 10% en í
júnímánuði 1987 voru tæplega
9% fleiri gistinætur í Jökuls:
árgljúfrum en nú í sumar. I
Skaftafelli fjölgaði íslending-
um meira en útlendum
gestum.
Tjaldsvæði þjóðgarðanna
komu vel undan vetri, segir í
fréttatilkynningu Náttúru-
verndarráðs en veðrátta seinni
hluta júní hefur verið gróðri
óhagstæð, þurrkur í Skaftafelli
en kuldi í Jökulsárglúfrum.
Tjaldsvæðið í Vesturdal í Jökuls-
árgljúfrum fór mjög illa í flóði
vorið 1989 en er nú óðum að ná
sér og verður leyft að tjalda á
hluta þess í sumar en ákveðnum
svæðum verður að hlífa svo þau
grói upp. Ferðamenn eru beðnir
að hafa í huga að ef til viil er ekki
alltaf pláss fyrir alla sem vilja af
þessum sökum en nóg pláss er í
Ásbyrgi.
Tjaldsvæði í þjóðgörðunum
eru gististaðir og þar gilda opin-
berar reglur sem kveða svo á um
að þau eiga að vera lokuð frá kl.
23.00 að kveldi til 08.00 að
morgni og á enginn kröfu á
aðgangi að þeim utan þess. Erfitt
er að neita fólki sem komið er
langt að, um að fá að tjalda þó
komið sé fram á lokunartíma.
Ferðamenn eru hvattir til þess að
koma fyrir kl. 23.00 því annars
geta þeir valdið öðrum óþarfa
ónæði. Náttúrverndarráð leggur
áherslu á að milli kl. 23.00 og
07.00 sé kyrrð á tjaldsvæðunum.
Náttúruverndarráð vill undir-
strika enn frekar að tjaldsvæði
þjóðgarðanna eru ekki sam-
komustaðir til skemmtanahalds
um nætur, heldur gististaðir
þeirra sem vilja nóta náttúru
landsins að degi og friðsældar að
kvöldi og nóttu. Allir þeir sem
eru tilbúnir að virða þessar reglur
eru velkomnir á tjaldsvæði þjóð-
garðanna.
kirkjutröppunum voru ekki
opin á þeim tíma þannig að hér
er ekki nýtt ástand á ferðinni.
Samkvæmt upplýsingum sem
okkur bárust voru almenningssal-
ernin aðeins opin frá kl. 10-12 og
14-16 undir það síðasta. Könnun
var gerð á notkun þeirra í eina
viku og niðurstöðurnar voru þær
að meðalaðsókn var fjórir karl-
menn á klukkutíma en engin
kona. í ljósi þessa var ákveðið að
loka snyrtingunni, en þar að auki
þótti hún lítt aðlaðandi.
í Umferðarmiðstöðinni í Hafn-
arstræti er opin snyrting fyrir
almenning til klukkan 22 virka
daga og fram að kvöldmat um
helgar. Þangað geta ferðamenn
leitað og fólk sem er á ferð í Mið-
bænum fram að þeim tíma.
Þeirri hugmynd hefur verið
komið á framfæri að setja upp á
Akureyri sjálfvirk almenningssal-
erni, en þau þekkjast víða er-
lendis. Þá borgar maður bara
eins og í hvern annan sjálfsala og
þetta undratæki hreinsar sig sjálft
að lokinni notkun. SS
Sundlaugin í Glerárhverfi:
Ljóskúplar skemmdust
Fyrir nokkru tóku gestir sund-
laugarinnar í Glerárhverfi á
Akureyri eftir því aö Ijós þau í
sundlaugarbotninum sem lýsa
vatnið upp, voru slökkt í ein-
hverja daga. Ástæöan er sú að
skipta þurfti um kúpla á Ijós-
unum en því verki er nú lokið
og laugin fagurlega upplýst að
nýju.
Að sögn Eiríks Kristvinssonar
hjá Rafmar hf., sem sá um upp-
setningu ljósanna, er skýringin sú
að fyrir misgáning hafi ljósin ver-
ið tendruð áður en vatn var sett í
laugina og kúplarnir því ofhitn-
að. Vatnið í lauginni hefði átt að
virka sem kælikerfi en það var
ekki til staðar og kúplarnir því
skemmst. Nýja kúpla þurfti að fá
frá útlöndum og þess vegna hafi
liðið einhver tími áður en hægt
var að kveikja á ljósunum aftur.
„Þetta var bara eðlilegt óhapp,
sennilega hefur einhver bara rek-
ið sig í takkann. Þetta er ósköp
lítið mál, nema hvað kúplarnir
voru ekki til í landinu og tíma tók
að fá þá að utan,“ sagði Eiríkur.
-vs