Dagur


Dagur - 17.07.1990, Qupperneq 2

Dagur - 17.07.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 17. júlí 1990 Hús Söltunarfélags Dalvíkur stendur við Hafnarbraut gegnt veitingastaðnum Sæluhúsinu. Myndir: kl Söltunarfélag Dalvíkur hf.: Allt að 80 tonna rækju- löndun í viku hverri Á fyrstu 6 mánuðum þessa árs hefur Söltunarfélag Dalvíkur h.f. tekið á móti 882,5 tonnum af rækju til vinnslu, en á sama tíma á síðasta ári var verk- smiðjan aðeins búin að fá 208,2 tonn. Á öllu árinu 1989 fékk verk- smiðjan til vinnslu rúm 680 tonn, svo ljóst er að verulegar breyting- ar hafa orðið á. Á fyrstu þremur mánuðum ársins 1989 tók verk- smiðjan ekki á móti neinu hrá- efni, en á þessu ári hefur verið stöðug vinna, en unnið er allan sólarhringinn og eru um 17 á hverri vakt. 60 til 80 tonn berast verksmiðj- unni nú á viku hverri, en sjö bát- ar lönduðu rækjuafla til vinnslu þar í síðustu viku; heimabátarnir Otur, Haraldur og Stefán Rögn- valdsson, svo og Pórður Jónas- Þær höfðu í mörgu að snúast konurnar hjá Söltunarfélagi Dalvíkur þegar Ijósmyndari Dags leit þar við á dögunum. son, Heiðrún, Þorsteinn og Guð- mundur Ólafur. Nokkuð hefur gengið á kvóta þessara báta svo búast má við að dragi úr löndun- um hjá þeim, en verksmiðjan á óunna frosna rækju sem hún hef- ur keypt af verksmiðjuskipum á undaförnum mánuðum. Vinna hefst væntanlega við hana þegar ófrosið hráefni þrýtur, en nýlega var keypt til verksmiðjunnar uppþýðingartæki sem flýtir mjög allri meðferð á henni, en rækja þarf þó að vera í ísvatni eina nótt áður en hægt er að vinna hana. GG Húsbréfakerfið: Greiðslubyrði í flestum til- fellum lægri en í gamla kerfínu Kartöflugarðar víðast hvar skraufaþurrir: „Þó ekki ástæða til verulegrar svartsýni enn“ - segir Sveinberg Laxdal „Eg hcld að það sé enginn vafi að svona langvarandi þurrkur og kuldi háir kart- öflusprettunni á allra þurr- ustu svæðum. Ef hins vegar síðari hluti sumarsins verður hagstæður og ekki koma næt- urfrost getur vel ræst úr þessu og því er ekki ástæða til að vera með of mikla svartsýni enn,“ sagði Sveinberg Laxdal, kartöflubóndi á Túnsbergi, um stöðuna hjá kartöfluræktendum. Kartöflugarðar á Eyjafjarð- arsvæðinu eru orðnir mjög þurrir eftir langvarandi þurrka og vantar vætu sárlega. Vorið var gott og gátu bændur unnið garða sína nokkuð snemma og sett niður. f>ví var staðan góð hjá bændum í upphafi sumars en þessi óhagstæða veðrátta hefur verulega spillt fyrir og dregið úr líkum á góðri upp- skeru. Sveinberg segir að víst sé all- ur sprettutíminn viðkvæmur en ekki síst fyrri hluti sumarsins. „En þetta kuldakast hér að undanförnu er óvenju langt miðað við þennan landshluta og árstíma. Kartöfluræktin er hins vegar svo mikil happdrættis- grein að á fáum dögum getur dæmið snúist við,“ sagði Svein- berg. JÓH Háskólanefnd HA: Kennarar fá fulltrúa Samkvæmt upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu höfðu um síðustu mánaðamót borist 1203 umsóknir í húsbréfakerf- inu, 345 íbúðir höfðu verið seldar í kerfinu og fasteigna- veðbréfum fyrir um 800 millj- ónir króna hafði verið skipt fyrir húsbréf. Allt bendir til að um 25% af umsóknum í hús- bréfakerfinu leiði af sér íbúð- arkaup, en aðrir eru að fá greiðslugetu sína metna. Vilhjálmur Jónsson minka- skytta á Sílalæk hefur það sem af er árinu veitt 225 dýr og sl. fimmtudagskvöld kom hann úr 4 daga túr með 24 minka. Vil- hjálmur er með einn aðstoð- armann með sér og fimm sér- þjálfaða hunda. Svæðið sem þeir þurfa að sjá um er stórt, nær frá Ljósavatnsskarði að Ármannsá, rétt austan Raufar- hafnar. Vilhjálmur sagðist haida að hann væri búinn að ná fleiri minkum núna en á sama tíma í fyrra, en erfitt væri að bera það saman vegna stærra svæðis sem hann sæi um. í fyrra fór hann t.d. ekki á varpsvæðin á Melrakka- sléttu en í vetur náði hann þar á milli 60 og 70 dýrum. „Annars finnst mér vera heldur minna um minkinn núna, en þetta er mis- munandi eftir árum,“ sagði Vil- Afföll í húsbréfakerfinu eru um 9,6% sem er svipað eða minna en ávallt hefur tíðkast af útborgun í lánakerfinu frá 1986. Greiðslubyrði er í flestum til- fellum lægri í húsbréfakerfinu en í gamla kerfinu. Tekið er dæmi urn kaup á íbúð sem kostar 7 milljónir króna, eigið fé kaup- anda er 2 milljónir. Mánaðarleg greiðslubyrði 1.-5. ár er 39.000 kr. í húsbréfakerfinu, 55.000 kr. í lánakerfinu frá 1986 ef um er að hjálmur. Vilhjálmur er á launum við minkaveiðarnar frá hreppunum á svæðinu, að undanskildum Kelduneshreppi. Hrepparnir fá sfðan endurgreitt frá embætti veiðistjóra. Vilhjálmur er á föstu kaupi, auk þess sem 930 krónur fást aukalega fyrir hvert veitt dýr. Það er aðallega villtur minkur sem Vilhjálmur veiðir en hann sagði að eitthvað væri um mink sem sloppið hefur nýlega úr minkabúum á svæðinu. Vilhjálm- ur hefur verið lengi við minka- veiðarnar og sagðist hann hafa tekið eftir breyttri hegðan minks- ins síðustu misseri. „Minkurinn virðist ekki vera eins háður vötn- um og var, ég næ honum oft langt frá vötnum. T.d. náði ég minka- greni nýlega í skógi norðan við Tungunúp í Öxarfirði, sem er langt frá vatni,“ sagði Vilhjálm- ur. -bjb ræða fyrstu íbúð en 68.000 kr. ef viðkomandi hefur átt íbúð fyrir. Á móti þessari greiðslubyrði koma vaxtabætur. Ef íbúðarkaupandinn hefur ekki lánsloforð frá Húsnæðis- stofnun, en hefur fest kaup á íbúð og fengi lánsloforð strax, til afgreiðslu eftir eitt ár, yrði greiðslubyrðin yfir 100 þúsund krónur á mánuði hvort sem við- komandi er í forgangs- eða víkj- andi hópi. Komið hefur í ljós að með hús- bréfakerfinu eykst ráðstöfunarfé banka og lífeyrissjóða, því hús- bréf eru mikið notuð til að greiða óhagstæð áhvílandi lán. Úti- standandi skammtímalán í bönk- um til íbúðarkaupenda eru um 10 milljarðar króna og lán lífeyris- sjóða til sjóðsfélaga sinna sem að mestu eru til húsnæðismála eru um 27 milljarðar. Til að fræðast um húsbréfa- kerfið er tilvalið að sjá kynning- armynd sem gerð var um breyt- ingarnar á húsnæðiskerfinu. Myndbandið má t.a.m. fá hjá fasteignasölum og þar getur fólk líka fengið upplýsingar um hús- bréfakerfið og helstu atriði sem tengjast fasteignaviðskiptum. SS Nú þegar hefur verið óskað eftir því að bændur í Þistilfírði selji 1950 líflömb í Eyjafjörð, Skagafjörð og Húnavatnssýsl- ur í haust. Þetta er óvenjumik- il lífíambasala sem helgast að mestu af því að bændur á þess- um svæðum eru að taka fé á ný Kennarar við Háskólann á Akureyri hafa nú í fyrsta sinn fengið fulltrúa í háskólanefnd. Sá er ívar Jónsson, félagshag- fræðingur. Á fundi lausráðinna kennara eftir niðurskurð vegna riðu- veiki. Lömbin verða seld frá bæjum í Svalbarðshreppi og Sauðanes- hreppi í Þistilfirði. Sauðfjárveiki- varnir vísa bændum sem kaupa vilja lömb til lífs á þetta svæði og er það því talið tryggast með til- liti til sjúkdóma. við Háskólann á Akureyri sl. fimmtudag var ívar Jónsson kjör- inn fulltrúi í háskólanefndina. Það var félag starfsfólks við Háskólann á Akureyri sem boð- aði til fundarins. SS Stór hluti af þessu fé fer í Svarfaðardal og dreifist þar á marga bæi. Þar eru margir bænd- ur að taka fé á ný eftir tveggja ára fjárleysi en nokkrir bændur sem áður höfðu skorið niður fengu lömb til lífs síðastliðið haust. Þá voru 300 lömb fengin úr Þistil- firði. JÓH Vilhjálmur minkaskytta á Sílalæk: Búínn að ná 225 dýrum á árinu Þistilfjörður: Mikil líflambasala í haust

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.