Dagur


Dagur - 17.07.1990, Qupperneq 5

Dagur - 17.07.1990, Qupperneq 5
Þriðjudagur 17. júlí 1990 - DAGUR - 5 Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur Búnaðarfélags íslands, gerir upp umdeilda forskoðun ráðu- nautanna í vor og Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði. Um háværar gagnrýnisraddir á störf ráðunautanna segir Kristinn: „Þeir sem hæst höíðu í óánægjunm voru í svipuðum sporum og fallkandidatar í skóla“ Það hefur vart farið framhjá nokkrum manni að mikil og oft á tíðum snörp umræða varð um for- skoðun hrossaræktarráðunauta Búnaðarfélags íslands fyrir Landsmót hestamanna á Vind- heimamelum í Skagafirði. Menn létu margir hverjir þung orð falla í garð ráðunautanna Þor- kels Bjarnasonar og Kristins Hugasonar og töldu suma dóma þeirra orka tvímælis. Að afloknu Landsmóti hefur ekki borið eins mikið á þessum háværu gagnrýnisröddum og almennt virðast menn vera á þeirri skoðun að á Lands- móti hafi sjaldan verið fegurri og betri fákar. Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur, er ekki í vafa um að aldrei hafí verið saman komnir jafn margir framúrskarandi hestar á svo stóru móti hérlendis. Kristinn er í viðtali í dag. Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur. „Já, ég held ég megi segja að við hrossaræktarráðunautar séum mjög ánægðir með okkar hlut að málinu,“ sagði Kristinn, þegar hann var inntur eftir því hvernig honum hafi fundist til takast á Vindheimamelum. „Því er ekki að leyna að okkur kom ákaflega á óvart hversu mikill hiti og læti voru í mönnum meðan á forskoðun fyrir Landsmótið stóð. Við töldum okkur vinna í einu og öllu í samræmi við samþykkt Hrossaræktarnefndar, sem gekk út á að leitast við að teygja á ein- kunnakvarðanum til beggja átta þannig að betur yrði gefið fyrir það sem vel væri gert en lakara fyrir hitt. Hugsunin á bak við þetta var að góðu hrossin greind- ust betur frá hinum lakari. Önnur breyting sem gekk í gildi í vor við samþykkt Hrossa- ræktarnefndar var sú að breytt var vægjum á nokkrum eiginleik- um. Vægi á hálsi, herðum og bógum var aukið um 2, en lækk- að að sama skapi á samræmi. Einnig var breytt vægjum á fóta- einkunnunum, lækkað um 2 á réttleika en hækkað um 1 á fóta- gerð og 1 á hófum. Á árinu 1986 gekk í gildi hækkað vægi á tölti, vægið var hækkað úr 10 í 20 og heildarvægi kosta varð þá 70 en var áður 60. Núna var vægi á eigin- leikanum fegurð í reið aukið um 2 en lækkað á geðslagi að sama skapi. Þannig var heildarsumma vægja ekki breytt og bygging og hæfileikar vega jafnt sem fyrr. Ætlunin er að þessar breyting- ar verði til þess að aukin áhersla verði lögð á þá þætti er helst marka myndugleik og þokka hestsins. Einnig að meiri athygli verði beint að þeim þáttum í fótabyggingu hestins er helst ráða endingunni. Nú þarf ekki skemur en 5 til að festa fáist og árangur- inn komi í ljós. Eftir þann tíma er hægt að framkvæma tölfræði- legt uppgjör á gögnunum og meta árangurinn. Þessi breyting á eflaust þátt í því að margur á erfitt með að bera dóma ársins saman við fyrri ár og hefur áhrif á uppgjör og afkvæmadóma. Við afkvæma- dómana þarf vitaskuld að gera dóminn allan upp með núgild- andi vægjum, að öðrum kosti eru hrossin ekki samanburðarhæf. Fram skal tekið að við endur- reikning eldri dóma vegna afkvæmasýninga virðist algeng- ara að hrossin hækki fremur en lækki. Fyrirfram gat enginn séð hvernig teygja á einkunnakvarð- anum kæmi í smáatriðum út, því hér var um að ræða það mikla breytingu á vinnubrögðum lið- inna áratuga við dóma. Það var orðið löngu ljóst að nauðsynlega þurftu að koma til breytingar. Miðlægni einkunna var orðin svo alvarleg að hún kom í veg fyrir að dómarnir væru nægilega upplýs- andi fyrir ræktendur, auk þess sem að dómi kynbótafræðinga og margra annarra nýttist tölvuupp- gjörið ekki sem skyldi. Mér hefur verið bent á úr röðum hesta- manna að þessa áherslubreytingu hafi þurft að kynna fyrirfram bet- ur fyrir fólki og hvernig hún myndi koma út. Undir þetta sjónarmið má taka, en því verður ekki á móti mælt að við hrossa- ræktarráðunautarnir höfum verið mjög störfum hlaðnir allt frá því í vetur og því ekki haft líkt því eins mikinn tíma til fundarhalda og æskilegast hefði verið.“ Tekist hefur að auka dreif- ingu eiginleikanna verulega Kristinn sagði langt síðan að menn hafi byrjað að ræða um að einkunnir væru of miðlægar, t.d. hafi dr. Þorvaldur Árnason, sem mikið hafi unnið að þessum málum, fyrir löngu vakið máls á því. „Einkunnirnar lágu flestar á bilinu 7, 7,5, 8, 8,5. Hestur sem fékk 7 gat af þeim sökum verið mjög lélegur. Hestur sem fékk 8,5 gat að sama skapi verið afburða góður. Af þessu leiddi að skilin milli góðra hesta og þeirra lakari voru ekki nægilega skörp,“ sagði Kristinn. Tölfræðilegar niðurstöður dómanna í vor liggja nú fyrir og segir Kristinn að tölfræðingar telji tvímælalaust að þeim Þor- keli hafi tekist vel með breytingu á einkunnagjöfinni í átt til normaldreifingar. „Tölfræðingur Búnaðarfélags íslands lagði í það mikla vinnu með mér að aflok- inni forskoðun að ganga frá töl- fræðilegum gögnum um hana fyr- ir Landsmótið. Vegna mikils óþols ákveðinna manna innan Hrossaræktarnefndarinnar að fá gögnin í hendur höfðum við tæpast verkfrið. En þessar niður- stöður gera það að verkum að við berum engan kvíðboga fyrir framhaldinu. Útkoman er eins jákvæð og til er hægt að ætlast í fyrsta áfanga. Okkur hefur tekist að auka dreifingu eiginleikanna stórlega. Sem dæmi má nefna að dreifing á samræmi hefur aukist um allt að 60% frá árinu 1989, dreifing á fótagerð um 40%, rétt- leika og hófa um 30%, baki og lend um 40%, hálsi, herðum og bógum um 35%, höfði um 31%, tölti um 27%, brokki um 7%, skeiði um 10%, stökki um 35%, vilja um 21%, geðslagi um 16% og fegurð í reið um 29%. Á þessu sést að dreifingin hefur aukist umtalsvert á flestöllum eigin- leikunum. Dreifing á skeiði og brokki hefur aukist hvað minnst, sem kemur til af því að áður var dreifingin á skeiðinu mikil. Það var í raun eini eiginleikinn sem var með viðunandi dreifingu. Það gerði það og að verkum að skeið vóg ákaflega þungt inn í kynbóta- einkunnina. Hvað brokkið varð- ar höfðum við hrossaræktarráðu- nautar fullan hug á því í vor að dæma það á dómkvarðanum öll- um, en vegna sérstöðu gangteg- undarinnar að hafa heimild til að gefa góða einkunn þó brokkið væri einungis sýnt í taumi ef það væri gert vel. Þetta heimilaði Hrossaræktarnefndin ekki, en samþykkt var að hafa þá reglu áfram í gildi að gefa 7,5 fyrir brokk ef hrossið rétt tæpti á gangtegundinni. Þessi mál á svo öll að skoða þegar heildarsamn- ing stigakvarðans fer fram í haust. Þrátt fyrir þetta tókst okk- ur að auka dreifingu á brokki um 7%. Með því að aðrir eiginleikar en skeið dreifast betur en áður á ein- kunnaskalann vega þeir þyngra en áður og um leið verður kyn- bótaeinkunnin enn notadrýgra tæki en áður.“ Verkið tókst vel í fyrsta áfanga „Menn hafa talað um að dreifing- in hafi verið aukin niður á við, en ekki til beggja átta. Það er fjarri öllum sannleika. Dreifingin er víðast hvar skekkt upp á við, m.ö.o. er meiri þungi í kúrfunum ofanverðum en neðanverðum. Samt sem áður lít ég svo á að við séum alls ekki búnir að finna hinn eina rétta tón í þessu starfi. Nú er framundan að skoða ná- kvæmlega fyrirliggj andi gögn um forskoðunina og Landsmótið og það sem kemur til með að gerast á síðsumarsýningum. í framhaldi af því þurfum við að semja stig- unarkvarða til að vinna eftir. En umfram allt verðum við að halda því striki að hafa dreifingu í ein- kunnunum. Ég er síður en svo upptekinn af þeirri skoðun að allt hafi heppn- ast í fyrstu tilraun. Það væri hinn mesti barnaskapur að halda því fram. Það er álíka vitlaust að segja að allt hafi heppnast eins og að halda því fram að allt hafi ver- ið unnið af illvilja og bágindum, eins og sumir í hrossaræktar- nefndinni hafa haldið fram og fengið ýmsa menn til að skrifa upp á. Okkur tókst þetta verk eins vel og til er hægt að ætlast í fyrsta áfanga. Síðan er að halda hiklaust áfram á þessari braut og fá þannig út stigunarkvarða sem hægt er að miða við. Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að á Landsmótinu á Vind- heimamelum urðum við varir við góðar undirtektir áhorfenda við sýningunum. Margir komu að máli við okkur á mótstað og kváðust vera hrifnir af þessari nýju stefnu í dómum. Þeir sem tjáðu hug sinn í þessa veru vilja framvindu í hestamennskunni. Þetta voru m.a. fagmennirnir í hestamennskunni, mennirnir sem best hafa unnið að því að kynna íslenska hestinn innanlands sem utan.“ Gríðarlega mörg hross léleg Kristinn lagði, þegar hér var komið við sögu í viðtalinu, þunga áherslu á orð sín. Hann svaraði þeirri spurningu afdráttarlaust játandi hvort hann teldi að þeir menn sem hæst hefðu gagnrýnt störf hrossaræktarráðunautanna fyrir Landsmótið hefðu almennt lent undir í dómum. „Þeir sem hæst höfðu í óánægjunni voru í svipuðum sporum og fallkandi- datar í skóla,“ sagði Kristinn. „Ég held að æði margur maður- inn hafi ekki áttað sig á því að dreifing einkunna er ekki það sama og að hliðra einkunna- kvarðanum upp á við. Ég sagði margoft að meðaltalið ætti að haldast nokkuð óbreytt. Þó hef ég alltaf verið þeirrar skoðunar að fleiri hross mættu fara í fyrstu verðlaun og það gerðist í ár, mun fleiri hross fóru í fyrstu verðlaun en undanfarin ár. En það sem gerir það að verkum að meðaltöl- in koma svona út er að í vor feng- um við gríðarlega mikið af lökum hrossum til dóms. Hrossafjöldinn sem kom til sýninga í ár var mun meiri en gerst hefur áður. Heild- arfjöldi hrossa sem einhver dóm- ur var lagður á var um 1200. í raun og veru læðist að manni sá grunur að stofninn sé kannski ekki með þá stöðu í dag að hann ráði við meira en um 800 hross. Þorkell Bjarnason hefur bent á það í blaðaviðtali að hann telji að um fjórðungur hrossanna hafi verið hreint rusl og ég get ekki annað en tekið heilshugar undir þau orð.“ En hvaða skýring er þá tiltæk á öllu „ruslinu“? „Ég held að meg- in skýringin sé sú að fyrir nokkr- um árum, þegar tók að bera á samdrætti í hinum hefðbundnu búgreinum, fóru margir að leggja meiri áherslu á hrossaræktina, jafnvel sem kjötframleiðslugrein. Fljótlega eftir þetta varð hrun á kjötmarkaðinum. Bæði var það að hrossakjötsverðið var spennt upp og hitt það að matarskattur- inn lagðist á hækkað verð af full- um þunga, þannig að hrossakjöt- ið varð ekki samkeppnishæft í verði við annað kjöt. Þetta er ein af skýringum á dótinu í vor. Þeg- ar kjötmarkaðurinn hrundi færðu menn sig yfir á lífhrossamarkað- inn og hryssum, sem sumum hverjum stendur engin ræktun að baki, var haldið undir hesta sem kannski voru álitnir hinir mestu

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.