Dagur - 17.07.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 17. júlí 1990
Þeir sem hæst höfðu...
sóma undaneldishestar, en
reyndust síðan ekki vera það.
Mörg þessara hrossa lentu í úr-
kasti í vor.“
Himinhrópandi óraunsæi
„Síðan bar mikið á því að menn
höfðu alltof litla kunnáttu til að
bera á því um hvað hrossarækt
snýst. Hrossin komu illa undir
búin, vansæl og illa á sig komin
og skörtuðu ekki því sem þau
höfðu af að taka í byggingunni.
Oft á tíðum var tamningin ekki
upp á marga fiska og reið-
mennskan ákaflega döpur.
Hreint út sagt eru alltof margir
sem alls ekki eru með á nótun-
um. Þeir átta sig ekki á því hve
hrossaræktin er sérhæfð búgrein.
Hestamennska er raunverulega
það sem tekur ár og áratugi að
nema. Oft á tíðum fannst okkur
Þorkeli að við rækjumst á alveg
himinhrópandi óraunsæi. Menn
gerðu sér ekki grein fyrir hvað
þeir höfðu í höndunum."
Kristinn sagði að umræðan í
kjölfar forskoðunar fyrir Lands-
mótið hafi verið óvenjulega
óvægin. „Það kom mér stórkost-
lega á óvart hvað menn gátu haft
hátt með litlum rökum. En þetta
átti sér vissulega skýringu. í
hrossaræktarnefndinni eru menn
sem töldu sig vera þess umkomna
að gerast boðberar þessarar
óánægju og mögnuðu hana upp,“
sagði Kristinn. Hann sagði að í
allri þessari orrahríð, eins og
hann kallar það, hafi aldrei
hvarflað að sér að þeir Þorkell
væru á rangri braut í dómunum.
„Nei. Við Þorkell Bjarnason,
sem ég met mikils, vorum algjör-
lega samtaka í þessu starfi. Mað-
ur er fyrir löngu hættur að hlusta
á þá menn þar sem röddin skelfur
af reiði og adrenalínið kemur í
veg fyrir alla rökhugsun. Manni
var snemma kennt að reiðin væri
andstaða vitsins.
Gagnrýni manna beindist fyrst
og fremst að lágu tölunum og
almennt eignuðu menn mér þær.
Vitaskuld er það fjarri öllum
sannleika að ég hafi öllu ráðið í
einkunnagjöfinni og hlálegt að
halda því fram þegar þrír menn
áttu í hlut. Mér finnst í raun að
þeir sem héldu þessu fram hafi
þannig lýst algjöru vantrausti á
störf Þorkels Bjarnasonar. Við
Þorkell höfum glögg verkaskipti.
Hann er formaður dómnefndar
þegar við vinnum saman en ég er
hins vegar verkstjóri við úrvinnsl-
una. Ég vona svo sannarlega að
við eigum eftir að starfa saman í
mörg ár, enda hef ég aldrei heyrt
annað á Þorkeli en að hann ætli
að halda áfram þar til hann hættir
samkvæmt sínum starfsaldri.
í lokaorðum sínum á Lands-
mótinu fyrir okkar hönd kom
fram hjá Þorkeli að vart væri
vinnandi við þetta við þær kring-
umaðstæður sem okkur hafa ver-
ið skapaðar í vor. Við erum ekk-
ert komnir til með að segja að
þær verði til eilífðar. Traust okk-
ar á hestafólki almennt er það
mikið að við teljum að öldur
muni lægja.“
Ekki allt sem sýndist
í Hvannarmálinu
í hvassri umræðu fyrir Landsmót-
ið bar mikið á svokölluðu Hvann-
armáli og það var haft til marks
um að þeir Þorkell og Kristinn
hefðu misstigið sig rækilega í
dómum í forskoðuninni og mikils
ósamræmis gætti í dómum þeirra.
Kristinn sagði að ekki væri allt
sem sýndist í því máli. „Þarna
kom sama hryssan í þrígang fyrir
dóm. Hún kom fyrst fram á
námskeiði, sem við Þorkell tók-
um að okkur að kenna á á
Hvanneyri í vor. Aðstæður þarna
á Hvanneyri voru allar slæmar,
t.d. húsakostur, og þá var hesta-
kosturinn mjög takmarkaður. Ég
dreg ekki dul á það að við gerð-
um mistök í dómi á námskeiðinu
á þessari umdeildu meri. í dómn-
um á henni vorum við að reyna
að draga fram eitthvað jákvætt
og fá þannig æskilega dreifingu í
einkunnagjöf á þennan hóp
hesta. Við seildumst til að gefa
merinni þónokkuð mikið meira
en við hefðum gefið henni ella.
Þessi dómur var í sjálfu sér alveg
ósamanburðarhæfur við úrtöku-
dómana í vor og £ raun og veru
vil ég segja það að sá kennari sem
stóð fyrir námskeiðinu á Hvann-
eyri hefur rofið trúnað með því
að flíka þessum tölum.
Hryssan kom síðan í forskoð-
un og þar kom hún mun lakara
Vinningstölur laugardaginn
14. júlí ’90
VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 ! o 4.897.374.-
o Z. 4af5^p 7 70.996.-
3. 4af 5 127 6.750.-
4. 3af5 4.751 421.-
Heildarvinningsupphæö þessa viku:
8.251.767.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
fyrir en á Hvanneyri og þar að
auki höfum við líklega dæmt
hana nokkuð hart. Við vorum
sannast sagna ekkert að spekúl-
era í hvort hún hefði verið notuð
á námskeiðinu á Hvanneyri. Við
vissum hreinlega ekki til þess að
dómur hennar á Hvanneyri hafi
verið skrifaður niður, hvað þá að
hann hafi verið geymdur.
Eftir dóm hryssunnar í for-
skoðun var haft samband við
okkur Þorkel og við tókum málið
upp og ræddum það. í framhaldi
af því ákváðum við að boða eig-
anda hryssunnar með hana norð-
ur í V-Húnavatnssýslu þar sem
við myndum grandskoða hana.
Við yfirfórum byggingu hryss-
unnar mjög nákvæmlega og
hækkuðum einkunn hennar örlít-
ið. Hins vegar sannfærðumst við
um það að dómur á héraðssýn-
ingunni hafði verið nokkuð
réttur, en kannski ívið harður.
Að sama skapi hefur dómurinn á
Hvanneyri verið óraunhæfur.
Ef litið er á þetta mál í heild
sinni finnst okkur það hafa verið
blásið óþarflega upp. Hitt er svo
annað mál og augljóst að þegar
um huglægt mat er að ræða er
mannlegt að gera skekkjur og í
tölfræðilegu uppgjöri er beinlínis
gert ráð fyrir að áicveðnar margar
tölur geti verið skekktar. Ég full-
yrði að dómar okkar hafi verið
innan eðlilegra skekkjumarka."
*
Arangur góðrar ræktunar
að koma í Ijós
Kynbótahross og gæðingar hafa
aldrei verið betri en einmitt nú,
að mati Kristins. „Ég held að það
sé engin spurning. Breiddin er
meiri en áður. Ávöxtur starfa
margra góðra ræktunarmanna er
að koma í ljós. Nú eru margir
orðnir gjaldgengir til æðstu
viðurkenninga. Hestamennskan
er orðin mikil og reiðkúnstin á
svo háu stigi. Þetta allt leggur
ræktunarstarfinu lið.“
Kristinn hugsaði sig lengi um
þegar hann var beðinn að svara
þeirra spurningu hvað honum
hefði komið mest á óvart á nýaf-
stöðnu landsmóti. Eftir góða
umhugsun sagðist hann verða að
nefna glæsilega og einkar athygl-
isverða frammistöðu afkvæma
Þokka frá Garði. Þessi hestur
hafi vaxið ótrúlega á undraskjót-
um tíma. Þó hafi farið að örla á
hreyfingu á stöðu hans í tölvunni
góðu ári áður en hann hafi orðið
á hvers manns vörum.
Kristinn sagði erfitt að segja til
um hvort miklar breytingar hafi
orðið á stöðu hrossaræktarinnar í
einstaka landshlutum. Þó mætti
fullyrða að Austurland væri að
dragast aftur úr. Úrtaka hefði
komið þar illa út og sömuleiðis
fjórðungsmótið á liðnu ári.
„Annað sýnist mér vera svo til
óbreytt og í góðum farvegi. Skag-
firðingar standa sem fyrr glæsi-
lega að sinni hrossarækt. Þar eins
og víðast annars staðar er breidd-
in orðin meiri en áður. Útkoman
víða annars staðar var vel viðun-
andi.
Á Austurlandi, eins og víðast
annars staðar, þarf að gera átak í
leiðbeiningaþjónustunni. Hrossa-
ræktarráðunautar þurfa í ríkara
mæli að hafa tækifæri til að fara
út á meðal ræktunarmannanna
og áhugafólks og kynna störf
okkar og stefnu og hlusta á hvað
fólk hefur fram að færa.“ óþh
Kynbótadómar árið 1990 - dreifing og meðaltöl
(Tölulegar niðurstöður forskoðunar Þorkels Bjarnasonar og Kristins Hugasonar sl. vor. Tölurnar vísa til
fjölda hrossa. Innan sviga eru til samanburðar tölur frá dómsárinu 1989.)
Byggmgíirdómar
Einkunn Höfuð Háls, herðar og bógur Bak/lend Samræmi Fótagangur Réttleiki Hófar
5,0 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
5,5 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
6,0 0 (0) 0 (0) 2 (0) 16 (0) 4 (0) 11 (1) 1 (0)
6,5 40 (6) 9 (0) 44 (4) 113 (2) 62 (5) 83 (36) 46 (4)
7,0 196 (93) 62 (13) 227 (76) 307 (117) 272 (76) 257 (130) 165 (111)
7,5 409 (405) 292 (305) 365 (380) 417 (539) 396 (430) 384 (427) 350 (366)
8,0 409 (411) 564 (541) 387 (416) 249 (283) 314 (363) 337 (327) 397 (387)
8,5 105 (54) 211 (103) 122 (91) 66 (28) 104 (88) 91 (47) 177 (93)
9,0 14 (0) 31 (7) 25 (2) 5 (0) 20 (6) 10 (1) 35 (8)
9,5 0 (0) 4 (0) 1 (0) 0 (0) 1 (0) 0 (0) 2 (0)
10,0 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Samtals 1173 (969) 1173 (969) 1173 (969) 1173 (969) 1173 (969) 1173 (969) 1173 (969)
Meðaltal 7,66 7,93 7,67 7,42 7,58 7,54 7,76
Hæfíleikadómar
Einkunn Tölt Brokk Skeið Stökk Vilji Geðslag Fegurð í rcið
5,0 4 (0) 0 (0) 256 (267) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
5,5 20 (6) 0 (0) 148 (102) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
6,0 64 (35) 0 (0) 129 (116) 12 (4) 2 (0) 0 (2) 2 (0)
6,5 120 (64) 0 (0) 156 (122) 58 (12) 35 (9) 15 (5) 30 (10)
7,0 208 (174) 72 (74) 107 (105) 186 (110) 111 (79) 87 (43) 205 (107)
7,5 229 (248) 540 (416) 102 (80) 254 (311) 297 (254) 342 (330) 334 (397)
8,0 268 (235) 298 (293) 81 (57) 328 (336) 413 (425) 507 (443) 344 (299)
8,5 118 (49) 121 (77) 54 (16) 177 (87) 173 (90) 99 (42) 120 (50)
9,0 18 (3) 18 (4) 16 (1) 33 (6) 17 (7) 0 (1) 15 (3)
9,5 1 (2) 1 (1) 1 (0) 2 (0) 2 (2) 0 (0) 0 (0)
10,0 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Samtals 1050 (866) 1050 (866) 1050 (866) 1050 (866) 1950 (866) 1050 (866) 1050 (866)
Meðaltal 7,42 7,75 6,34 7,71 7,80 7,78 7,67
kvikmyndarýni
Jl Umsjón: Jón Hjaltason
Hrottinn
Borgarbíó sýnir: í húmi nætur (Night
Game).
Leikstjóri: Peter Masterson.
Aðalhlutverk: Roy Scheider.
Epic Productions 1989.
Enn einu sinni er Roy Scheider
kominn í hlutverk löggæslu-
mannsins. Hver man ekki eftir
honum í French Connection og
The Seven Ups. Þá voru þær
heldur ekki af verri endandum
ófreskjumyndirnar, Jaws, númer
1 og 2 en þar lék Scheider strand-
gæslumanninn. Það virðist þó
vera liðin tíð að Scheider birtist
okkur í gæða-spennumyndum; /
húmi nætur er ágætt dæmi þar
um. Hún segir frá lögreglu-
manninum Mike Seaver (Scheid-
er) sem ekki aðeins á við vanda-
mál að etja í einkalífinu heldur
einnig í starfinu. Hann hyggst
ganga að eiga sér miklu yngri
konu en verðandi tengdamóðir
hans er ekki ýkja hrifin af manns-
efni dóttur sinnar. í starfinu
glímir Seaver við hrottalegan
kvennamorðingja og á að auki í
stríð við spilltan vinnufélaga.
Þrátt fyrir að Scheider sé á
heimaslóðum í gervi lögreglu-
mannsins virkar hann ekki ýkja
sannfærandi sem Mike Seaver
enda er Seaver ósköp barnalegur
í aðra röndina. Og einhvern veg-
inn verður bíómyndin aldrei
verulega spennandi. Klaufalega
morðtilraunin undir lok myndar-
innar gerir ekki annað en að
undirstrika að hér er á ferðinni
miður góð spennumynd.
Roy Scheider (í hlutverki Mike
Seaver) á hækjum sínum yllr fyrsta
fórnarlambinu og veltir fyrir sér
sönnunargagni.