Dagur - 17.07.1990, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 17. júlí 1990
íþróttir
Leiðinlegt að Einar
skyldi ekki mæta“
- sagði Sigurður Matthíasson
eftir sigur í spjótkasti karla
Sigurður Matthíasson, spjót-
kastarinn sterki úr UMSE,
sigraði í spjótkasti karla á
Landsmótinu. Hann hafði þar
gríðarlega yfirburði, kastaði
nærri tíu metrum lengra en
næsti maður. Það vakti þó
athygli að Einar Vilhjálmsson
mætti ekki til leiks og mun
skýringin vera sú að hann vildi
einbeita sér að boðskeppninni
sem fram fór á sunnudeginum.
„Það var leiðinlegt að Einar
skyldi ekki mæta. Spennan
datt niður við það,“ sagði
Sigurður eftir keppnina.
„Ég er svo sem ekkert sérlega
ánægður með köstin í dag. Þrátt
fyrir að það sé gott að kasta í
hliðarvindi þá var vindurinn ekki
alveg nógu skemmtilegur í dag -
hann var svolítið mikið á hlið.
Svo kasta ég bara illa tæknilega
séð um þessar mundir. Ég og
Guðmundur Karlsson, sem þjálf-
ar mig núna, erum að vinna í
því,“ sagði Sigurður.
Næsta verkefni er Evrópumót-
ið og Sigurður sagðist stefna að
verðlaunasæti þar. „Það eru því
miður ekki góðar líkur á að það
takist miðað við hvernig ég hef
kastað upp á síðkastið. En ég
geri mitt besta og yrði óneitan-
lega mjög ánægður ef ég kæmist á
verðlaunapallinn. Sfðan er geysi-
lega sterkt mót í Japan sem ég fer
senniiega á ef ég kemst inn en
annars eru ekki fleiri mót á þessu
ári sem ég keppi á,“ sagði Sigurð-
ur Matthíasson.
„Besti tími miim í ár“
- sagði Gunnlaugur Skúlason
eftir góðan sigur í 5000 m hlaupinu
„Eg gef verið jákvæður. Þetta
er besti tími minn í ár en ég
hljóp aðeins í þessari einu
grein,“ sagði Gunnlaugur
Gunnlaugur Skúlason.
Skúlason úr UMSS sem sigraði
í 5000 m hlaupi á tímanum
15:01.72.
Gunnlaugur hefur keppt mikið
á árinu og unnið mikið af mótum.
Hann sagðist vera ánægður með
þann árangur en sagði jafnframt
tímana í þessum hlaupum ekki
hafa verið nægilega góða.
Gunnlaugur var að keppa á
sínu þriðja Landsmóti. „Þetta er
búið að vera ágætt mót og þetta
er t.d. besti árangur sem ég hef
náð á Landsmóti. Stemmningin
hefur þó verið meiri áður, sér-
staklega á mótinu á Húsavík.
Framundan er svo Bikar-
keppnin eftir hálfan mánuð og
þar keppi ég í nokkrum greinum.
Ég ætla mér að berjast vel þar.“
- Ertu búinn að taka frá sæti?
„Já, bara fyrsta sætið. Það er
ágætt,“ sagði Gunnlaugur Skúla-
son.
Birgitta Guðjónsdóttir:
„Erfltt að halda á sér hita“
„Mér hefur gengið ágætlega í
dag en ekki nógu vel í gær,“
sagði Birgitta Guðjónsdóttir,
UMSE, þegar Dagur ræddi við
hana á laugardeginum. Hún
keppti í þremur aðalgreinum,
kúluvarpi, spjótkasti og lang-
stökki, auk tveggja boðhlaupa.
„Þetta hefur bara gengið agæt-
lega hjá mér miðað við æfing-
ar. Ég hef dregið úr þeim og
æft mun minna síðastliðin tvö
ár en áður. Ég hef náð settum
markmiðum og rúmlega það.
Ég átti t.d. ekki von á að verða
Aðalsteinn Bernharðsson.
„í gær átti ég möguleika á öðru
sæti í spjótkastinu en gerði öll
köstin ógild. Vindurinn var óhag-
stæður, mér finnst persónulega
betra að kasta á móti honum en
eftir atkvæðagreiðslu var ákveðið
að kasta undan honum. Síðan
lenti ég í mikilli keppni við Þór-
í öðru sæti í 200 m hlaupinu en
ég reiknaði frekar með því í
400 metrunum og það gekk,“
sagði „gamla“ kempan úr
UMSE, Aðalsteinn Bern-
harðsson.
Aðalsteinn sagði þetta vera
sjötta Landsmótið sem hann
keppti á og sennilega það síðasta.
„Það er að verða kominn tími til
að draga sig í hlé. Ég er búinn að
keppa í 15 ár og þetta er alltaf
jafn skemmtilegt. Það er óneitan-
lega erfitt að hætta en það verður
auðvitað að koma að því og ég
held að þetta ár sé heppilegt til
þess.
Það er mjög sérstakt að vera á
landsmóti. Þetta er eina frjáls-
íþróttamótið hér þar sem næst
upp svona góð stemmning enda
áhorfendur aldrei jafn margir.
Það hefur aldrei komið til greina
að missa af þessu og maður kem-
ur áfram á Landsmót þótt maður
sé hættur að keppa,“ sagði Aðal-
steinn Bernharðsson.
dísi Gísladóttur í langstökkinu.
Hún sigraði en ég stökk 5.67 og
var mjög ánægð með það. Minn
besti árangur er 5.74 síðan 1985.“
Birgitta sagðist vera nokkuð
ánægð með mótið. „Veðrið hefði
auðvitað mátt vera betra. Það var
kalt í gær og erfitt að halda á sér
hita. Svo gerir vindurinn manrii
erfitt fyrir en þetta er búið að
vera gaman," sagði Birgitta Guð-
jónsdóttir.
Birgitta Guðjónsdóttir.
Síðasta mót Aðalsteins
- er að verða kominn tími
til að draga sig í hlé
Stangarstökk:
Kristján sigraði eftir
stórskeirantilega keppni
- bætti Landsmótsmetið um 50 cm
„Ég get verið ánægöur með
þetta. Ég held að þetta séu
verstu veðurfarslegu aðstæður
sem ég hef stokkið við og hef
þó verið í þessu í tíu ár,“ sagði
Kristján Gissurarson sem sigr-
aði í stangarstökki eftir harða
og skemmtilega keppni við
Gísla Sigurðsson úr UMSS.
Gísli átti gamla Landsmóts-
metið, sem var 4.30 m, en
segja má að það hafí kolfallið,
Kristján stökk 4.80 m og Gísli
varð í öðru sæti, stökk 4.60 m.
„Þetta var mjög skemmtileg
keppni og mér finnst árangurinn
ótrúlega góður. Það er ekki oft
sem svona margir íslendingar
fara yfir 4.40 m eins og gerðist
hér í dag. Gísli var í mjög góðu
formi í dag en vegna stökkstílsins
kom vindurinn sér verr fyrir hann
en mig. Þá var stemmningin í
stúkunni frábær og mjög gaman
að stökkva fyrir framan svona
góða áhorfendur."
Kristján er 37 ára gamall en
hefur þó aldrei keppt á Lands-
móti áður. „Þetta er búið að vera
mjög gaman og það er ekki oft
sem gefst kostur á að taka þátt í
svona skemmtilegu móti hér
innanlands. Núna er ég búinn að
prófa þetta og það er aldrei að
vita hvað maður gerir í framtíð-
inni. Kannski stekkur maður á
Laugarvatni ef heilsan verður í
lagi,“ sagði Kristján Gissurarson.
Gísli Sigurðsson sagði að vind-
urinn hefði verið sér erfiður en
komið betur út fyrir Kristján þar
sem hann héldi neðar á stönginni.
Aðspurður um gamla Lands-
mótsmetið sagði hann: „Ég setti
það fyrir tíu árum þegar ég var
ungur og hress. Nú er ég bara
hress.“
I Kristján Gissurarson í háloftunum.