Dagur - 17.07.1990, Side 9

Dagur - 17.07.1990, Side 9
Þriðjudagur 17. júlí 1990 - DAGUR - 9 Krístján Yngvason. „Þetta situr svolítið ímérennþá“ - sagði Kristján Yngvason eftir að hann hafði keppt í kókdrykkju „Mér og mínu fólki hefur gengið ágætlega. Veðrið hefur sett strik í mótið en þetta hefur rúllað ágætlega þrátt fyrir það og baráttan er hörð,“ sagði Kristján Yngvason, fyrrum formaður HSÞ og núverandi stjórnarmaður í UMFÍ. HSÞ mætti til leiks með 170 kepp- endur og 30-40 aðstoðarmenn. „Ég held ég megi segja að árangurinn hafi verið í samræmi við væntingar. Við erum að berj- ast við að ná 3. sætinu í stiga- keppninni og erum enn vongóð um að það takist. En það kemur í ljós í kvöld,“ sagði Kristján. Þess má geta að viðtalið var tekið á sunnudeginum þegar úrslit lágu ekki fyrir en eins og fram kemur á öðrum stað í blaðinu reyndist HSÞ-fólkið ekki hafa náð þessu markmiði. „Þetta er búið að vera ljóm- andi gaman. Ég kom hingað á mánudaginn og er því búinn að vera hér í heila viku. Það hefur ekkert veitt af því, við byrjuðum á að koma upp aðstöðu fyrir okk- ar fólk og skipuleggja okkar starf.“ Krist ján keppti sjálfur í tveim- ur greinum á mótinu, glímu og starfshlaupi. Glíman var að hefj- ast þegar Dagur ræddi við hann en starfshlaupinu var nýlokið. Það samanstóð af ýmsum grein- um sem sjást ógjarnan á öðrum íþróttamótum, t.d. hjólböru- akstri, kókdrykkju, spýtnasögun, boltakasti o. fl. Æfði Kristján sérstaklega fyrir þessa grein? „Nei, það er erfitt þar sem maður veit ekki hvað á að gera fyrr en maður mætir í hlaupið. Ég veit nú ekki hvernig gekk þar sem það er ekki búið að dæma í þessu en ég komst í gegn.“ - Hvernig var að keppa í kók- drykkju? „Það var bölvað. Ekki síst þar sem það var svona rétt fyrir glím- una. Þetta situr svolítið í mér ennþá.“ Kristján er enginn nýgræðing- ur þegar Landsmót UMFÍ eru annars vegar. Hann hefur mætt á öll Landsmót frá árinu 1961 þeg- ar það fór fram á Laugum, alls 9 talsins. „Ég á alveg örugglega eft- ir að mæta á fleiri Landsmót og hugsanlega sem keppandi. Það er alltaf jafn gaman að þessu,“ sagði Kristján Yngvason. Ásta Ásmundsdóttir: 99 Ekki eins erfltt ogég Ein kona tók þátt í þríþrautar- keppninni, Asta Ásmunds- dóttir frá Akureyri. „Þetta var ekki eins erfítt og ég hélt. Ég bjóst við að hjólreiðarnar yrðu mjög erfíðar á móti rokinu en þetta var skárra en ég átti von á,“ sagði hún eftir verðlauna- afhendinguna. „Ég hef nú ekki stundað þetta mikið. Ég fór í þetta í fyrsta sinn fyrir hálfum mánuði með öðrum sem voru að æfa sig fyrir keppn- ina. Annars hleyp ég dálítið mik- ið og svo keppti ég einu sinni á skíðum. Það kom mér til góða þegar ég fór að hjóla. Hlaupin eru sennilega erfiðasti hlutinn af þessu því að maður er svo stífur þegar maður kemur af hjólinu,“ sagði Ásta Ásmundsdóttir. Ásta Ásmundsdóttir. Heildarstigakeppnin: Glæsilegur sigur UMSK - UMSE í þriðja sætinu Ungmennasamband Kjalar- nesþings vann glæsilegan sigur á heimavelli sínum í heildar- stigakeppni félaganna. Kjal- I nesingarnir hlutu 333 stig, 53 stigum meira en Héraðssam- bandið Skarphéðinn sem varð í | öðru sæti. UMSE kom svo á óvart með því að næla í þriðja sætið með 212 stig. Að öðru leyti varð röð félag- anna þessi: María Ingimundardóttir: „Stolt yflr pömuikökubakstrimim11 María Ingimundardóttir er þjálfari hjá USAH og hún keppti einnig í boðhlaupi. „Okkur hefur ekki bara gengið vel heldur ótrúlega vel. Við náðum t.d. öðru og þriðja sæti í pönnukökubakstrinum og ég er sérstaklega stolt yfír því. Það eru mjög góðir pönnu- kökubakarar heima,“ sagði hún. „Þrátt fyrir litríkt veður hefur þetta verið stórkostlega gaman. Ég er Reykvíkingur að uppruna og hef því ekki tekið þátt í Landsmóti áður. Það fylgir þessu sérstök stemmning og það er mjög skemmtilegur andi í okk- ar hópi. Við erum með 130 manna lið hér og það er mikil samstaða meðal manna,“ sagði María Ingimundardóttir. María Ingimundardóttir. 4. UMSB 209 5. HSÞ 205 6. UÍA 199 7. UMFK 198 8. USAH 176 9. USVH 159 10. HSH 158 11. HSB 142 12. UMSS 120 13. UDN 115 14. UFA 106 15. UMFN 95 16. USÚ 83 17. UMFÓ 56 18. HVÍ 55 19. UMFG 51 20. HSS 48 21. UNÞ 47 22. USVS 46 23. UV 43 24. UGS 42 25. HHF 36 26. UMFF 35 27. UÍÓ 29 28. UMFD 28 29. UMFÞ 6 „Verður að teljast gott mót“ - segir Sigurður P. Sigmundsson, formaður UFA „Við erum að taka þátt í Landsmóti í fyrsta sinn enda félagið ekki nema tveggja ára. Ólafur Björnsson: „Erfitt að skipta yfir í hlaupið „Ég er nokkuð jafn í þessum greinum. Ég stunda enga þeirra reglulega en æfí hins vegar skíðagöngu og hleyp mikið á sumrjn,“ sagði Ólafs- fírðingurinn Ólafur Björnsson sem sigraði í þríþrautarkeppn- inni. Keppni í þeirri grein fór í nú í fyrsta sinn fram á Lands- móti en hún samanstendur af hlaupum, sundi og hjólreiðum. Keppendur syntu 750 m, hlupu 6 km og hjóluðu 20 km. „Þetta er nokkuð erfitt og maður þarf að vera í góðri alhliða þjálfun. Hjólreiðarnar voru mjög erfiðar um tíma vegna vindsins og svo var mjög erfitt að skipta yfir í hlaupið. Maður notar aðra vöðva og var allur stífur. Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek þátt í Landsmóti og þetta er búið að vera fínt - það er helst vindur- inn sem angrar mann,“ sagði Ól- afur Björnsson. Jlafur Björnsson. Ég hef enn ekki séð lokatöl- urnar en mér sýnist við vera um miðjan hóp af u.þ.b. 30 ungmennafélögum og sam- böndum og það er vel viðun- andi,“ sagði Sigurður P. Sig- mundsson, formaður Ung- mennafélags Akureyrar. Sigurður keppti sjálfur í 5000 m hlaupi og hafnaði þar í öðru sæti. „Ég var nokkuð sáttur við þetta. Ég stefndi að því að vera með í baráttunni. Ég vissi að það yrði mjög erfitt að vinna þetta en gerði heiðarlega tilraun. Ég fór full fljótt af stað í restina, hefði átt að spara mig aðeins betur. Ég held þó að ég hefði aldrei haft þetta en ég hefði átt að komast nær fyrsta manni. Ég hljóp á 15:16.25 og er því enn að þoka Akureyrarmetinu niður." Aðspurður hvernig honum fyndist mótið í heild sinni kom Sigurður fyrst að veðrinu og þá einkum rokinu. „Það hefur auð- vitað sett sitt mark á mótið. Það var vægast sagt ofboðslegt á laug- ardeginum og einnig mjög mikið á föstudeginum. Fimmtudagur- inn og sunnudagurinn voru hins vegar góðir. Þetta hefur m.a. haft í för með sér að áhorfendur skiptu kannski ekki þúsundum eins og vonast hafði verið eftir. Skipulagningin sýnist mér vera mjög góð og það hefur greinilega verið vandað til undirbúningsins. Þegar á heildina er litið verður þetta að teljast gott mót.“ Þrátt fyrir að Sigurður hafi keppt í frjálsum íþróttum um árabil var hann að taka þátt í Landsmóti í fyrsta sinn. Skýring- in er sú að hann hefur lengst af keppt fyrir FH sem ekki hefur þátttökurétt á mótinu. „Sumir eru búnir að hlaupa á svo mörg- um Landsmótum að þau eru komin á annan tug. Einn hlaup- ari í 5000 m hlaupinu hljóp fyrst fyrir 25 árum og það verður erfitt fyrir mig að jafna það. Ég yrði sennilega orðinn heldur hrörleg- ur.“ - Nokkru fyrir Landsmót birt- ist í tímaritinu Skinfaxa spá Sigurðar um úrslit á Landsmót- inu. Hvernig skyldi hafa tekist til? Sigurður P. Sigmundsson. „Ég er aðeins farinn að skoða þetta. Þetta hefur gengið nokkuð vel upp í hlaupunum og ég spáði t.d. rétt fyrir um fyrstu þrjú sætin í 1500 m karla og kvenna. Annað hefur gengið lakar enda ekki gott að átta sig á þessu öllu. Ég hafði t.d. ekki hugmynd um að sú kona sem ég spáði sigri í kúluvarpinu er að eiga barn um þessar mundir og tók því eðlilega ekki þátt. Það er því að ýmsu að hyggja þegar maður gerir spá af þessu tagi. En það er gaman að þessu.“ - Hefur verið eitthvað um úr- slit sem segja má að séu mjög óvænt? „Já, sumt hefur komið mér á óvart. í frjálsu íþróttunum hefur t.d. Snæfellingurinn Hörður Gunnarsson vakið nokkra at- hygli. Hann vann bæði 100 og 200 m hlaupið en þetta er strákur sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í vetur. Mér fannst líka mjög óvænt hvað Þórdís Gísladóttir, HSK, var sterk í langstökkinu. 'Hún var einnig mjög sterk í fleiri greinum og er augljóslega í góðu formi um þessar mundir. Ef maður tekur hins vegar norðanfólkið sérstaklega fyrir held ég að það hafi ekki komið sérstaklega mikið á óvart nema Sunna Gestsdóttir, USAH, sem stóð sig mjög vel í spretthlaupun- um. Mér sýnist í augnablikinu að Norðlendingarnir hafi staðið sig nokkurn veginn í samræmi við væntingar,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson að lokum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.