Dagur - 17.07.1990, Qupperneq 11
hér & þor
Þriðjudagur 17. júií 1990 - DAGUR - 11
i
l
Heimsins mesti uppfinningamaður:
Fær sínar bestu hugmyndir
á kafi í vatni
- fann m.a. upp tölvuúrin og tölvudiskana
Það hefur stundum verið sagt um
heimsins mestu snillinga að þeir
séu um leið heimsins mestu
furðufuglar. Ekki er vitað hvort
Japaninn Yoshiro NakaMats sé
heimsins mesti furðufugl en hann
er a.m.k. einn af heimsins mestu
uppfinningamönnum. Meðal
uppfinninga sem má eigna hon-
um eru tölvudiskar og tölvuúr,
hvorki meira né minna. En Yos-
hiro kemst nálægt því að teljast
furðufugl því hann fær allar sínar
bestu hugmyndir á kafi í vatni!
Á meðfylgjandi mynd sést hvar
Yoshiro er staddur á botni sund-
laugar einnar að skrifa niður hug-
myndir sínar á sérstakan vatns-
heldan pappír með vatnsheldum
penna, sem hann auðvitað fann
upp sjálfur! Yoshiro segist ná að
halda niðri í sér andanum í ótrú-
lega langan tíma, um 5 mínútur í
einu, og það 61 árs að aldri.
Yoshiro segist vera með 2360
hugmyndir í einu í huganum,
sem telst vera tvöfalt meira en
mest lét hjá Thomas Edison.
Yoshiro sefur í fjóra tíma á nótt-
unni í sérstökum stól sem sendir
innrauða rafsegulgeisla í gegnum
heilann á honum. Yoshiro segist
aldrei skokka því það hristi of
mikið upp í heilasellunum!
Yoshiro fékk sína fyrstu hug-
mynd aðeins 5 ára gamall og
þrem árum síðar kom fyrsta upp-
finningin hans á markað, sérstak-
ur hitari sem er enn notaður á
japönskum heimilum í dag. Með-
al nýrra uppfinninga sem Yoshiro
er að þróa í dag er ræktun hrís-
grjóna í vatni og nýtt ódýrt og
ómengað eldsneyti.
En hvernig mat borða svona
„sjéní“? Jú, Yoshiro borðar ein-
göngu mat sem er hollur heilan-
um, s.s. eins og fiskur, grænmeti,
baunagras, hveitikorn og sjávar-
gróður eins og þang og þari.
Hér sést Yoshiro NakaMats á kafi í
vatni að skrifa niður góða hugmynd.
rekstur skólans sem Jón gengur í,
auk kennarans sem kennir hon-
um. Jón er tólf ára gamall og
nemandi í miðskólanum á eyj-
unni Cuttyhunk, sem tilheyrir
fylkinu Massachusetts í Banda-
ríkjunum.
Strákurinn er eina barnið í eyj-
unni, en honum leiðist ekki í
skólanum, því kennarinn heldur
honum stíft að náminu og í
frímínútum leikur hann sér við
hundinn Kimbal sem er eini vin-
urinn, en hundurinn liggur alltaf
hjá honum í skólastofunni.
Kennari Jóns Páls er há-
menntaður og sér til þess að hann
hefur öll bestu kennslugögn og
tæki. í skólanum er tölva, sjón-
varp og ný smásjá. Þegar mið-
skólanum lýkur fer Jón til fasta-
landsins í skóla og honum er það
tilhlökkunarefni að fá að
umgangast önnur ungmenni, en
trúlega er hann vel undirbúinn
fyrir námið á fastalandinu.
Skólayfirvöld á eyjunni Cutty-
hunk verja fimmtíu þúsund
dollurum á ári til að mennta
Jón Pál Hunter, en hann er eini
nemandinn í skólanum á eyjunni,
en íbúar hennar eru aðeinsfimm-
tíu.
Þrír skólanefndarmenn, sjá um
Jón Páll og hundurinn Kimbal.
Ég og huiidurinn
erum saman í skóla
. ottablóm
Jlómapottar - áburður - mutu ug
margt íleira til blómaræktunar.
Akureyri
og 24830
Til viðskiptamanna!
Vegna sumarleyfa verður skrifstofan
lokuð til 1. ágúst.
Fasteiganasalan verður þó opin á venjulegum tíma frá
kl. 14.00-18.30.
Vinsamlegast athugið breitt símanúmer
Fasteignasölunnar
® 11500
Málflutningsstofa
Benedikts Ólafssonar.
c^::-.;r.5orar'.7
Frá menntamálaráðuneytinu
Auglýsing
um styrkveitingu
úr Þróunarsjóði leikskóla
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í
leikskólum/dagheimilum/skóladagheimilum. Með þró-
unarverkefnum er átt viö nýungar, tilraunir og nýbreytni
í uppeldisstarfi. Um styrk geta sótt sveitarstjórnir/for-
stöðumenn/fóstruhópar/einstakar tóstrur. Saekja má
um styrkt til nýrra verkefna og verkefna, sem þegar eru
hafin. Umsókn fóstru skal fylgja umsögn viðkomandi
rekstraraðila.
Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu
fyrir 15. október 1990 á þar til gerðum eyðublöðum
sem liggja frami í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
L
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Vegslóðar vegna 132 kV Blöndulínu
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í veg-
slóðagerð vegna byggingar 132 kV Blöndulínu í
samræmi við útboðsgögn BLL-10.
Helstu magntölur:
Um 27.000 m3 aðflutt malarfylling.
5000 m síudúkur.
Um 40 ræsi.
Verklok eru 8. október 1990.
Útboðsgögn verða afhent frá og með mánudeginum
16. júlí 1990 á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík,
geng óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 2.000.-
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa-
leitisbraut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en þriðju-
daginn 7. ágúst 1990 fyrir 14.00 en tilboðin verða
opnuð þar þann dag kl. 14.15 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Reykjavík 12. júlí 1990.
LANDSVIRKJUN