Dagur - 17.07.1990, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 17. júlí 1990 - DAGUR - 15
íþróttir
i
Hörpudeildin:
Þórsarar komnir
í botnsætið
- eftir 3:0 tap í Garðabænum
Þórsarar voru lánlausir gegn
Stjörnumönnum í Garðabæn-
um í gærkvöld og töpuðu með
þremur mörkum gegn engu.
Eftir dapran og leiðinlegan
fyrri hálfleik komst Þór meira
inn í leikinn í þeim síðari en
voru leikmenn óheppnir, mis-
notuðu m.a. vítaspyrnu og glöt-
uðu mörgum marktækifærum.
í fyrri hálfleik gerðist ekkert
markvert fyrr en á 16. mínútu
þegar Stjörnumenn áttu fallegan
samleikskafla upp eftir vallar-
helmingi Þórs sem endaði með
því að Ingólfur Ingólfsson fékk
boltann í vítateignum og skoraði
örugglega fram hjá Friðriki í
markinu. Siguróli Kristjánsson
fékk helstu færi Þórsara í fyrri
hálfleik en misnotaði þau bæði.
Staðan því 1:0 í hálfleik og á
55. mínútu bættu heimamenn við
öðru marki. Þá fékk Lárus
Guðmundsson stungusendingu
inn á vallarhelming Þórs, lék einn
Hörpudeild
Úrslit í 10. umferð:
ÍA-Valur 2:3
Víkingur-KR 1:1
Fram-IBV 3:4
Stjarnan-Þói 3:0
KA-FH 4:0
Valur 10 7-1-2 18:10 22
KR 10 6-1-3 15:10 19
ÍBV 10 5-3-2 16:17 18
Fram 10 5-1-4 20:10 16
Víkingur 10 3-5-2 11:10 14
Stjarnan 10 4-2-4 14:15 14
FH 10 4-0-6 14:17 12
KA 10 3-1-6 12:14 10
ÍA 10 2-2-6 12:19 8
Þór 10 2-2-6 6:15 8
upp völlinn og inn í teiginn og
skaut óverjandi skoti í netið.
Fjórum mínútum síðar bjargaði
Sigurður Lárusson á marklínu
Þórs eftir þunga sókn Stjörnunn-
ar.
Á 71. mínútu misnotaði Júlíus
Tryggvason vítaspyrnu fyrir Þór
eftir að Bjarni Sveinbjörnsson
var felldur. Jón Otti Jónsson
varði spyrnu Júlíusar glæsilega.
Tíu mínútum síðar var Bjarni
felldur gróflega í teig en ekkert
dæmt að þessu sinni. Upp frá
því fór dómari leiksins endanlega
að missa tökin á leiknum. Á 85.
mínútu fékk Sigurður Lárusson
að sjá rauða spjaldið eftir að hafa
fengið það gula rétt áður, þegar
hann átti saklaus orðaskipti við
dómarann.
Tveim mínútum síðar skoraði
Stjarnan þriðja markið þegar
Sveinbjörn Hákonarson vann
boltann eftir markspyrnu frá Þór
og skoraði örugglega af vítateig.
Bjarni Sveinbjörnsson og Nói
Björnsson voru bestu menn Þórs
og í jöfnu liði heimamanna stóð
Jón Otti markvörður upp úr.
Lið Víkings: Friðrik Friðriksson,
Sigurður Lárusson, Lárus Orri Sigurðs-
son, Nói Björnsson, Siguróli Kristjáns-
son, Þórir Áskelsson (Axel Vatnsdal á
70. mín), Þorsteinn Jónsson, Júlíus
Tryggvason, Árni Þór Árnason, Sævar
Árnason og Bjarni Sveinbjörnsson.
Lið Stjörnunnar: Jón Otti Jónsson,
Heiniir Erlingsson, Birgir Sigfússon,
Bjarni Bencdiktsson, Sveinbjörn Hákon-
arson, Lárus Guðmundsson, Ingólfur
Ingólfsson, Árni Sveinsson, Ragnar
Gíslason, Valdimar Kristófersson og
Valgeir Baldursson.
Gul spjöld: Árni Þór Árnason og
Friðrik Friðriksson Þór.
Rautt spjald: Sigurður Lárusson Þór.
Dómari: Ólafur Lárusson og var
afspyrnu slakur.
Línuverðir: Sveinn Sveinsson og
Sigurður Friðjónsson.
HB/-bjb
Kjartan Einarsson fór hamförum gegn FH-ingum í gær og skoraði þrennu.
Mynd: KL
Hörpudeildin:
Leikgleðin gerði gæfiuniuiiim
- þegar KA-menn burstuðu FH 4:0 - Kjartan með þrennu
KA-menn vöknuðu heldur
hressilega til lífsins er þeir
mættu FH-ingum í 10. umferð
Hörpudeildarinnar á Akureyr-
arvelli í gærkvöld. Það er
skemmst frá því að segja að
íslandsmeistararnir tóku
afspyrnuslaka FH-inga í
hreinræktaða kennslustund,
skoruðu fjögur mörk án þess
að gestirnir næðu að svara fyrir
sig.
KA-ntenn fengu óskabyrjun
þegar þeir náðu forystunni strax
Opna Mitsubishi golfmótið:
Kristján lék á parinu
Galantinn gekk ekki út
Kristján Gylfason náði þeim
frábæra árangri á opna Mitsu-
bishi golfmótinu á Jaðarsvelli
um helgina að leika 36 holur á
pari vallarins, 142 höggum.
Hefur ekki áður náðst slíkur
árangur í jafn stóru móti á Jað-
arsvelli og er Ijóst að Kristján
er til alls líklegur á komandi
Landsmóti. Mitsubishi golf-
mótið tókst í alla staði mjög
vel og alls lauk 121 kylfíngur
keppni, þar af voru 36 kylfíng-
ar aðkomnir.
Höldur sf. gaf öll verðlaun á
mótið og meðal 10 aukaverð-
launa var glæsileg Mitsubishi
Galant bifreið fyrir að fara holu í
höggi, en engum kylfingi tókst að
ná draumahögginu.
Verðlaunahafar mótsins ásamt Skúla Ágústssyni hjá Höldi sf.
Keppni um 2. og 3. sæti í karla-
flokki var hörð og þurfti bráða-
bana um bronsið á milli Þórleifs
Karlssonar og Björgvins Þor-
steinssonar. Þórleifur hafði betur
eftir 2 tilraunir á 18. holunni.
Kristján var hins vegar öruggur
með gullið og lækkaði hann í for-
gjöf eftir mótið úr 3,6 í 2,9.
Úrslit mótsins:
Karlar án forgjafar:
Kristján Gylfason GA
Sverrir Þorvaldsson GA
Þórleifur Karlsson GA
Björgvin Þorsteinsson GA
Karlar með forgjöf:
Ólafur Sæmundsson GA
Sigurður St. Haraldsson GA
högg
142
148
149
149
högg
130
131
Kristján Gylfason GA 134
Konur með forgjöf: högg
Halla Arnardóttir GA 131
Sigríður B. Ólafsdóttir GH 138
Kristín Pétursdóttir 147
Unglingar með forgjöf: högg
Birgir Haraldsson GA 129
Sveinn Bjarnason GH 140
Davíð Jónsson GS 141
Unglingar án forgjafar: högg
Davíð Jónsson GS 161
Sveinn Bjarnason GH 172
Björn Gíslason GA 174
-bjb
á 3. mínútu. Jón Grétar lék þá
upp hægri vænginn og sendi fyrir,
Þórður hoppaði skemmtilega yfir
boltann og Kjartan beið í teign-
um og skoraði með skoti frá víta-
teigspunktinum.
Á 16. mínútu bættu þeir öðru
marki við og aftur voru Jón Grét-
ar og Kjartan á ferðinni. Gauti
Laxdal sendi langa sendingu upp
í vinstra hornið á Jón órétar.
Hann lék inn í teiginn við enda-
línuna og renndi út í teiginn þar
sem Kjartan kom á ferðinni og
hamraði í markið.
Seinni hálfleikur var aðeins sex
mínútna gamall þegar KA-menn
bættu þriðja markinu við. Bjarni
Jónsson átti þá þrumuskot að
FH-markinu sem Halldór varði
en hélt ekki. Boltinn barst út til
Þórðar sem var í dauðafæri en
hitti ekki boltann sem var sendur
inn í teiginn og þar skallaði
Kjartan hátt upp í loftið og bolt-
inn datt niður aftan við Halldór
sem stóð of framarlega. Er óhætt
að skrifa þetta mark algerlega á
hann.
Fjórða markið kom svo á 86.
mínútu og nú var komið að Árna
Hermannssyni. Hann skoraði
með þrumuskoti úr miðjum víta-
teignum eftir að Þórður lagði
boltann skemmtilega fyrir hann.
Á 90. mínútu var Kjartan rif-
inn niður í vítateig FH og víta-
spyrna var dæmd. Hún kom í
hlut Heimis Guðjónssonar en
Halldór varði með tilþrifum slaka
spyrnu hans.
Eins og fyrr segir voru yfir-
burðir KA-manna algerir. Liðið
lék sinn langbesta leik í sumar og
virðist sem einhver hugarfars-
breyting hafi orðið hjá leikmönn-
um þess. Liðið var jafnt og flestir
léku vel en þó er ekki sanngjarnt
annað en að nefna Jón Grétar
Jónsson sem átti stórleik og var
besti maður vallarins.
FH-liðið var ótrúlega slakt og
hefur örugglega ekki leikið verr í
sumar. Ólafur Kristjánsson átti
þokkalegan leik og Andri átti
ágæta spretti en aðrir náðu sér
ekki á strik.
Lið KA: Haukur Bragason, Halldór
Halldórsson, Halldór Kristinsson,
Steingrímur Birgisson (Árni Hermanns-
son á 75. mínútu), Bjarni Jónsson,
Heimir Guðjónsson, Hafsteinn Jakobs-
son, Gauti Laxdal, Jón Grétar Jónsson,
Þórður Guðjónsson og Kjartan Einars-
son.
Lið FH: Halldór Halldórsson, Birgir
Skúlason, Andri Marteinsson, Guð-
mundur Hilmarsson, Bjöm Jónsson (Jón
Þór Brandsson á 30. mínútu), Guðmund-
ur Valur Sigurðsson, Magnús Pálsson
(Hallsteinn Arnarson á 62. mínútu), Þór-
hallur Pálsson, Hörður Magnússon,
Pálmi Jónsson og Ólafur Kristjánsson.
Gul spjöld: Árni Hermannsson, KA,
og Birgir Skúlason, FH.
Dómari: Ari Þórðarson - Sæmilegur.
Línuverðir: Eyjólfur Ólafsson og Þor-
steinn Ámason.
1. deild kvenna:
Þór vann KR
- og KA gerði jafntefli
Kvennalið KA og Þórs fengu
KR-stúlkur í heimsókn um
helgina til keppni í 1. deild.
Agætis árangur náðist í þess-
um leikjum, Þór vann 3:1 og
KA gerði jafntefli 1:1.
Eftir 3 tapleiki í röð fengu KA-
stúlkur sín fyrstu stig í 1. deild-
inni í sumar. Leikurinn gegn KR
var sá. besti í sumar hjá KA og
eru stelpurnar óðum að ná sér á
strik. Mark KR gerði Guðný
Guðnadóttir í fyrri hálfleik eftir
mistök í vörn KA og besti maður
KA, Hjördís Úlfarsdóttir, jafn-
aði leikinn í seinni hálfleik með
þrumuskoti úr aukaspyrnu af 25
metra færi.
Þórs-stúlkur léku gegn KR í
sterkum vindi og náðu að skora
tvö mörk í fyrri hálfleik. Það
gerðu Harpa Frímannsdóttir og
Ellen Óskarsdóttir. KR minnk-
aði muninn í seinni hálfleik með
marki Helenar Ólafsdóttur en
Ellen bætti þriðja markinu við
fyrir Þór þegar 10 mínútur voru
eftir af leiknum.
KA á leik í kvöld á heimavelli
gegn Breiðabliki kl. 20. -bjb