Dagur - 25.07.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 25. júlí 1990
Húsnæðismál stúdenta á Akureyri:
Enn eru nokkrir á götunni
Enn vantar nokkra stúdenta
húsnæði sem ætla að stunda
nám við Háskólann á Akureyri
næsta haust. Hjá Húsnæðis-
miðlun námsmanna liggja fyrir
fyrirspurnir frá 13 aðilum um
húsnæði, aðallega nýnemum.
Mest er eftirspurn eftir 2 her-
bergja íbúðum eða einstakl-
ingsíbúðum, en framboðið er
minnst af slíku húsnæði á
Akureyri.
Edda Kristjánsdóttir hjá Hús-
næðismiðluninni sagði að stórar
íbúðir, 3-5 herbergja, væru mikið
í boði, en það hentaði náms-
mönnum ekki eins vel. Þeir stúd-
entar sem eru mest í vandræðum
með að útvega sér húsnæði koma
langt að og hafa ekki aðstöðu til
að leita fyrir sér í bænum í
sumar. Þeir koma m.a. frá
Reykjavík, ísafirði, Akranesi,
Höfn í Hornafirði og víðar.
Stúdentagarðarnir voru fljótir
að fyllast í sumar og það eru þeir
sem fengu synjun þar sem eru
nú á höttunum eftir leiguhús-
næði. Edda átti von á að tækist
að útvega öllum þeim húsnæði
sem leita eftir herbergi, en erfitt
yrði að útvega 2 herbergja íbúð-
ir. -bjb
Á VERÐBRÉFA-
MARKAÐNUM
25. JÚLÍ '90
Eigendur hlutabréfa
Nú er góð eftirspurn eftir hlutabréfum.
Hlutabréf í eftirtöldum fyrirtækjum seljast
með skömmum fyrirvara.
Skeljungur h.f., Olíufélagið h.f.,
Eimskipafélag íslands h.f.,
Flugleiðir h.f., Skagstrendingur h.f.
og Útgerðarfélag Akureyringa h.f.
Sölugengi veröbréfa þann 25. júlí.
Einingabréf 1 5.003,-
Einingabréf 2 2.726,-
Einingabréf 3 3.292,-
Skammtímabréf 1 ,691
éélKAUPÞING
NÖRÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
Hjóladagur íjölskyldunnar:
Ágóðinn rann til Bamadeildar F.S.A.
Hjóladagur fjölskyldunnar var
haldinn sl. sunnudag. Hug-
myndina að þessum degi á
Antonio Mellado eigandi
skemmtistaðarins Bleika
fQsins, og skipulagði hann
þennan hjóladag sjálfur.
Hjólaður var 4 km. langur
hringur sem hófst og endaði hjá
Bleika fílnum í göngugötunni, og
voru seld sérstök merki eða núm-
er hverjum þátttakanda sem jafn-
framt gilti sem happdrætti, og var
vinningurinn reiðhjól. 129 númer
voru skráð, og þar af var einn
þátttakandinn hundur.
Agóði af þessu átaki var um 33
þúsund krónur sem rann óskiptur
til styrktar Barnadeild Fjórð-
ungssjúkrahúsins, en þessari fjár-
hæð hefur ekki verið ráðstafað
sérstaklega.
Geir Friðgeirsson læknir tekur við framlagi vegna hjóladagsins.
Sumartilbod
-III
madiona
III Glerárgötu 26 • Sími 21300
Fram ad verslunamanmhelgi bjóðum við eimtaklega góð kjör á:
Sjónvörpum
Videotœkjum
Videotökuvélum
Láttu drauminn
rœtast í dag
Takið ejtir!
Ekkert út,
kaupverð greiðist
á allt að
18 mánuðum
NORDMENDE-PHILIPS- SANYO-JVC-PIONEER - AKAI- ORION-FUNAI