Dagur - 10.08.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 10. ágúst 1990
1
fréttir
„Mikið „asskoli" er nú ísinn góður maður.“
Mynd: Golli
Löggæsla á hálendisvegum:
Er lítil sem engin
í-
Löggæsla á hálendi íslands,
þ.e. lögreglumenn frá Umferð-
ardeild lögreglunnar í Reykja-
vík hafa ekki verið á hálend-
isvegunum í sumar, en fyrir
þremur árum var svo, að sögn
Asgeirs Guðmundssonar, lög-
reglumanns í Reykjavík.
„Lögreglan hefur ekki sent lög-
reglumenn á bifreiðum til eftirlits
á hálendinu, en lögreglumenn
fóru inn á hálendið til eftirlits í
þyrlu um hvítasunnuna og um
síðustu helgi, Verslunarmanna-
helgina, enda er umferðin mest
um þessar helgar. Hér áður, er
við höfðum tvo eða fleiri bíla á
hálendisvegunum, þá höfðum við
mikið að gera, en trúlega lagðist
þetta af vegna þess að fjármagn
vantar," sagði Ásgeir lögreglu-
maður úr Reykjavík. ój
Akureyri:
Nóg að gera hjá
hópferðarbflstjórum
Yfir sumarið er háannatími
hópferðabílstjóra. Ferða-
mannastraumurinn er í há-
marki og nóg að gera við að
flytja ferðamenn þvers og
kruss um landið. Samkvæmt
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
AkureyrarvöDnr verður tillminn
- en ýmsar lagfæringar þarf að gera
Knattspyrnufélag Akureyrar
tekur þátt í Evrópukeppninni í
knattspyrnu í fyrsta skipti í
haust, eins og íþróttaáhuga-
menn vita flestir. Fram helir
komið í fjölmiðlum að ýmsar
lagfæringar þurfi að gera á
Akureyrarvelli til að hann telj-
ist löglegur.
Andstæðingar KA eru frá
Búlgaríu og fer fyrri leikur lið-
anna fram á Akureyri þann 19.
sept. nk. Enn hefur ekkert bólað
á fyrirhuguðum framkvæmdum á
vellinum en að sögn Einars
Jóhannssonar, hjá byggingadeild
Akureyrarbæjar, þarf ekkert að
örvænta, framkvæmdunum verð-
ur lokið fyrir tilskyldan tíma.
Ur er að ræða að byggja yfir
stéttina frá vallarhúsi að sjálfum
vellinum en það er sú leið sem
leikmenn og dómarar þurfa að
ganga til og frá búningsherbergj-
um. Hingað til hafa áhorfendur
átt auðvelt með að skeyta skapi
sínu á leikmönnum eða dómur-
Sauðárkrókur:
100% aukning hjá Áningu
í móttöku hópa
um, ef þeim sýnist svo, þar sem
áhorfendastúkan er nánast ofan í
þessari gangstétt. Einnig þarf að
reisa girðingu frá norðurenda
stúkunnar út að hliði, til að varna
áhorfendum að komast að hliðar-
línunni.
Að sögn Einars verður farið í
þessar framkvæmdir fljótlega en
um þessar mundir eru margir
starfsmenn Akureyrarbæjar í
sumarfríi og engin tök á að byrja
strax. En allt ætti að vera orðið
klárt fyrir Evrópuleikinn. -vs
upplýsingum blaðsins hefur
verið nóg að gera á þessum
vettvangi í sumar.
Á Akureyri eru Sérleyfisbílar
Akureyrar stærstir í sniðum en
einnig eru nokkrir smærri aðilar á
eigin vegum sem sjá um fólks-
flutninga. Einn þeirra er Þórodd-
ur Gunnþórsson og sagði hann að
ágætlega hafi gengið hjá sér í
sumar og nokkuð gott að gera.
Hann er með tvo bíla, 40 og 15
manna og ekur að mestu leyti
sjálfur, nerna hvað hann fær
mann á annan bílinn ef mikið er
að gera.
Þóroddur er einnig með sendi-
bíl á Sendibílastöðinni og þar eru
einnig þrír bílstjórar sem eru
með 17 manna hópferðabíla.
Gott samstarf er á milli þessara
bílstjóra og Sérleyfisbíla Akur-
eyrar og hlaupa þeir undir bagga
hjá Sérleyfisbílunum þegar á þarf
að halda, t.d. við komu skemmti-
ferðaskipa. Einnig hefur það
gerst, að Sérleyfisbílarnir fá
verkefni hjá smærri aðilunum ef
þau eru of stór í sniðum fyrir þá.
-vs
Fíluferð hjá slökkviliðinu:
Ristað brauð í FSA
setti allt af stað
Leiðrétting:
Bjöm Kjartansson
8. hæsti á
Ólafsfirði
Á skrá yfir 10 hæstu skattgreið-
endur á Ólafsfirði 1990 sem birt
var í Degi sl. föstudag féll út nafn
Björns Kjartanssonar Hlíðarvegi
52 sem samkvæmt álagningarskrá
er með alls 1.474.815,- í gjöld og
er því 8. hæsti gjaldandinn á
Ólafsfirði í ár. Þetta leiðréttist
hér með.
Sumariö hjá Hótel Áningu
hefur verið gott að sögn Jóns
Gauta Jónssonar, hótelstjóra.
Uppundir 100% aukning er frá
síðasta sumri í því að hópar
komi þar við, en Jón Gauti
segir að lausaumferð mætti
vera meiri. Um þessa helgi
verður mikil tónlistaruppá-
koma hjá Áningu þar sem tíu
landskunnir spilarar skemmta.
í sumar hefur hótelið boðið
upp á lifandi tónlist á nær hverju
kvöldi og að sögn hafa gestir
kunnað vel að meta það, en
minna hefur verið um að bæjar-
búar komi og hlýði á. Koníaks-
stofa var opnuð í sumar á hótel-
inu og hefur það fallið í góðan
jarðveg hjá gestunum að geta
sest niður við arineld á kvöldin.
Nú um helgina verður lífleg
tónlist á hótelinu þar sem Björn
R. Einársson, Jónas Dagbjarts-
son og fleiri munu leika af fingr-
um fram jafnt úti sem inni ef veð-
ur leyfir.
„Bæjarbúar hafa nýtt sér þess-
ar uppákomur okkar og aðstöðu
til að fara út að borða hér heldur
lítið, en vonandi verður einhver
aukning á því núna í ágúst þegar
flestir eru búnir í sumarfríum,"
sagði Jón Gauti, en hótelið endar
starfsárið á því að hýsa fjórð-
ungsþing Norðlendinga í lok
þessa mánaðar. Eftir mánaðar-
mótin fyllist síðan húsnæðið að
nýju af nemendum FÁS. SBG
Slökkviiiðið á Akureyri var
kallað að Fjórðungssjúkrahús-
inu um hádegisbilið í gær, þar
sem brunakerfið fór í gang.
Þegar nánar var að gáð kom í
Ijós að ristað brauð kom öllum
látunum af stað, en um engan
eld var að ræða.
Starfsmenn sjúkrahússins voru
að fá sér ristað brauð í kjallaran-
um, en gleymdu sér um stund.
Brauðið brann og reykurinn
sem myndaðist var nógu mikill til
að koma beintengdu brunakerfi
til slökkvistöðvarinnar í gang.
Að sögn varðstjóra í slökkvi-
liðinu eru 48 kerfi í bænum tengd
á slökkvistöðina og þarf minnsta
tilefni til að setja allt í gang.
Akureyringar eru því hvattir til
að fara að öllu með gát, sér í lagi
þegar brauðið er í ristinni. -bjb
Bílasala • Bílaskipti
Honda Civic 4x4 árg. ’87, ekin
61 þ. Verð 750.000. 11 þ. Verð 450.000.
Toyota Camry GLI árg. ’87,
ekin 61 þ. Verð 1.100.000. þ. Verð 1.300.000.
ekin 53 þ. Verð 690.000.
Toyota Carina árg. ’88, ekin MMC Galant EXE árg. ’87, ekin
39 þ. Verð 850.000.___________45 þ. Verð 850.000. 84 þ. Verð
ekin 53
Vegna mikillar sölu
vantar bíla
á staðinn.
aítASALINN
fflöldursf.
BÍIASAIA
500, ekin við Hvannavelii.
Símar 24119 og 24170.