Dagur - 10.08.1990, Síða 3

Dagur - 10.08.1990, Síða 3
Föstudagur 10. ágúst 1990 - DAGUR - 3 fréttir Fararstjórarnir fjórir. Frá vinstri: Ted Hendle, Nicola Robinson, Paul Lawrance og Phil Walters. Mynd: et Háskólinn á Akureyri: Þrjár nýjar lektors- stöður auglýstar Háskólinn á Akureyri hefur auglýst lausar til umsóknar þrjár lektorsstöður við skólann fyrir haustið. Um er að ræða nýjar stöður. Stöðurnar sem eru lausar eru lektor í hjúkrunarfræði við heil- brigðisdeild, lektor í lífefna- og örverufræði við sjávarútvegsdeild og lektor í iðnrekstrarfræði við rekstrardeild. Þessar stöður hafa verið auglýstar áður en ekki verið ráðið í þær. Háskólinn auglýsir einnig stöðu tölvunarfræðings eða kerf- isfræðings lausa til umsóknar. Á sínum tíma fékk skólinn að ráða tölvunarfræðing í hlutastarf, sem einnig gegndi kennslu, en nú hef- ur þeirri stöðu verið breytt í heila stöðu. Tölvunar- eða kerfisfræð- ingur mun hafa það með höndum að koma upp tölvukerfi við skól- ann og einnig tölvukerfi sjávarút- vegsdeildar við Glerárgötu. -bjb Héraðshælið á Blönduósi: „Þokkalegt ástand“ - nýtt nafn um áramótin Á Homstrandir með 36 breska unglinga Þau sátu við Jökulsá á Fjöllum og drukku kaffið sitt. Aftan í bílnum var þessi fína kerra með tólf kajökum. Ekki alveg fráleitt að ætla sem svo að hér væru á ferð erlendir ævintýra- menn sem væru að fá sér síð- asta kaffisopann fyrir siglingu niður fljótið. Útlendingar voru þetta og ævintýrafólk ef til vill líka. En í Jökulsá ætluðu þau ekki að leggja og þótti raunar mikið til um þær fréttir að niður þetta fljót hefðu menn siglt á kajökum. „Við ætlum að láta okkur nægja að sigla svolítið við strendur landsins,“ sögðu þau. Hér voru á ferð fjórir breskir kennarar, nýkomnir til landsins með Norrænu. Kennararnir eyða sumarfríi sínu í þágu verkefnis sem ber heitið „Sandwell youth expedition 1990.“ Um er að ræða tveggja vikna dvöl 36 breskra ungmenna á aldrinum 15-20 ára, á Hornströndum. Hópinn áttu fararstjórarnir einmitt að hitta á Bolungarvík og þaðan var ferð- inni heitið á Strandirnar, á hjól- um og fótgangandi. Leiðangrar á borð við þennan hafa verið farnir á vegum Sand- well-hópsins í áratugi en þetta er sá stærsti. Þátttakendur hafa verið valdir úr stórum hópi umsækj- enda og áður en lagt var upp í íslandsferðina höfðu þau farið í 2-3 styttri útilegur til undirbún- ings. Að leiðangrinum loknum munu fararstjórarnir skrifa nákvæmar skýrslur sem síðan eiga að nýtast öðrum sams konar leiðöngrum sem farnir verða. ET Þjóðarflokkurinn: Býður fram í öllum kjördæmum við næstu alþingiskosmngar í gær boðaði Þjóðarflokkurinn til blaðaniannafundar á Akur- eyri, þar sem kunngert var framboð flokksins í öllum kjördæmum til alþingiskosn- inganna á næsta ári. Undir- búningur framboðsins hefst af fullum krafti nú á haustdögum. Ákvörðun um framboð var tekin á kjördæmisþingi Norður- lands eystra sem haldið var á Húsavík fyrir skömmu, þar sem stjórn flokksins var einnig samankomin. Framboðsmálin eru lengst komin í Norðurlands- kjördæmi eystra, m.a. verður opnuð kosningaskrifstofa á Akureyri í næsta mánuði, en önnur kjördæmi fara væntanlega af stað fljótlega og gengið verður frá framboðslistum eins fljótt og hægt er. Öðru hvoru hafa heyrst raddir þess efnis að ýmsir smærri flokkar, s.s. Þjóðarflokkurinn, Borgaraflokkurinn og Samtök jafnréttis og félagshyggju, ætluðu að standa að sameiginlegu fram- boði í kosningunum. Að sögn Árna Steinars Jóhannssonar, eins af talsmönnum Þjóðarflokksins, verður Þjóðarflokkurinn ekki í samstarfi við neina aðra aðila í komandi kosningum. Öllum sem aðhyllast stefnu flokksins sé hins vegar frjálst að starfa með hon- um en grundvöllur til samstarfs við aðra flokka sé ákaflega rýr. Þjóðarflokkurinn bauð fram í nokkrum kjördæmum við síðustu alþingiskosningar en náði ekki manni inn, þrátt fyrir talsvert fylgi. Árni Steinar segir að hefði flokkurinn boðið fram í öllum kjördæmum þá, þá hefði hann náð inn manni, jafnvel tveimur en kosningalögin séu þannig að það hefði ekki tekist. Að sögn Árna Steinars hafði framboðið samt sem áður mikil áhrif, þar sem aðrir flokkar hefðu lagt mun meiri áherslu á byggðamálin en áður en þau voru og eru grunnur- inn að stefnuskrá Þjóðarflokks- ins. Álagður tekjuskattur fyrir- tækja nemur 3,800 m.kr. á öllu landinu á þessu ári, en var var 3,700 m.kr. á árinu 1989 sem er aðeins 3% hækkun. Ef tekið er tillit til launa- og verðlags- þróunar hefur tekjuskatts- álagning fyrirtækja þannig lækkað um 10 - 15% að raun- gildi frá fyrra ári. Þessar áætlanir ber þó að taka með miklum fyrirvara, því um 45% af heildarálagningu tekju- skattsins á þessu ári eru áætlanir, en var um 40% 1989. Án áætlana lækkar álagning tekjuskattsins um fimmtung að raungildi frá árinu 1989, og í ljósi þess má gera ráð fyrir að endanleg álagning verði nokkru lægri en þessar töl- ur gefa til kynna. Álagning eingarskatts og eign- arskattsauka á fyrirtæki nemur um 1.205 m.kr. á þessu ári, sem er um 16% hækkun milli ára. Skattur á skrifstofu- og verslun- arhúsnæði hækkar hins vegar nokkuð minna, eða rúmlega Eins og kunnugt er, bauð Þjóðarflokkurinn fram til bæjar- stjórnarkosninganna á Akureyri sl. vor, án þess að ná inn manni. Frá þeim vettvangi er það að frétta, að stofnað verður bæjar- málafélag í september sem veita á bæjarstjórn aðhald á ýmsan hátt, m.a. með blaðaútgáfu. -vs 10%. Því veldur lítil hækkun fasteignaverðs vegna aukins framboðs á slíku húsnæði. Þau fyrirtæki sem greiða hæst- an tekjuskatt á Norðurlandi eystra eru: Útgerðarfélag Norð- ur-Þingeyinga á Þórshöfn með 62,5 m.kr.; Álafoss h.f. á Akur- eyri með 50 m.kr.; Manville h.f. á Húsavík með 37,7 m.kr.; Hreifi h.f. Húsavík með 25 m.kr. og Ellefu gosdósir eða -flöskur á mann. Þetta var „uppskeran“ á mótssvæðinu í Húnaveri um verslunarmannahelgina en þar sá blakfólk úr KA um að halda svæðinu hreinu. í umræðum um Húnavershá- tíðina hefur þess víða verið getið að svæðið hat'i verið snyrtilegt alla helgina og ólíkt hafi verið um að litast frá því um verslunar- „Þó að við séum undirmann- aðir með hjúkrunarfræðinga, þá er ástandið þokkalegt mið- að við undanfarin ár. Það hef- ur gengið heldur betur að manna sumarafleysingar núna en í fyrra og útlitið er bjartara með veturinn en áður,“ segir Bolli Ólafsson framkvæmda- stjóri Héraðshælisins á Blönduósi. Frá og með næstu áramótum hefur verið ákveðið að breyta nafni Héraðshælisins í Héraðs- sjúkrahúsið á Blönduósi og var það eitt af verkum síðustu sjúkrahússtjórnar. Bolli segir að von sé á því að einn til tveir hjúkrunarfræðingar frá Svíþjóð komi til starfa á sjúkrahúsinu eftir áramót, en hingað til liafa hjúkrunarfræðing- arnir verið innlendir. Tveir sjúkraþjálfar frá Hollandi eru nú á förum til síns heima og vonast er til að aðrir landar þeirra komi í staðinn. Það er þó ekki líklegt þar sem framboð á sjúkraþjálfum í Hollandi fer óðum minnkandi að sögn Bolla. í sumar var tekinn í notkun lampi fyrir soriasissjúklinga sem ýmis félagasamtök í sýslunni gáfu sjúkrahúsinu og verður hann formlega afhentur á næstunni. Vinnu við nýbyggingu sjúkra- hússins hefur verið haldið áfram í sumar og að sögn Bolla er nú ver- Sparisjóður Ólafsfjarðar með 7 m.kr. Hæstan eignarskatt greiða: Kaupfélag Eyfirðinga, 11.8 m.kr.; Kaupfélag Þingeyinga 2,1 m.kr.; Súlur h.f. Akureyri 1,9 m.kr.; Útgerðarfélag Akureyr- inga h.f. 1,9 m.kr. og Kaffi- brennsla Akureyrar h.f. 1,3 m.kr. GG mannahelgina fyrir ári síðan þeg- ar allt „flaut“ í rusli. Blakdeild KA gerði samning við framkvæmdaaðila hátíðarinn- ar, Stuðmenn, um að deildin sæi um alla ruslhreinsun á svæðinu um helgina. Deildin fær í sinn hlut skilagjald af alls um 34 þús- und dósum og flöskum, sem skil- ar þeim um 170 þúsund krónunr í kassann. Til viðbótar kernur svo fast umsamið gjald fyrir tínslu ið koma fyrir eldvarnaviðvör- unarbúnaði sem beðið hafði ver- ið eftir fjárveitingu til lengi. Von- ir standa til að hægt verði að taka neðstu hæð nýbyggingarinnar í notkun að ári liðnu. SBG Hofsós: „Öllum líður vel í blíðunni“ - segir Jón sveitarstjóri „Hér er hið rólegasta mannlíf og allt gengur sinn vanagang í blíðunni,“ segir Jón Guð- mundsson, sveitarstjóri í Hofs- hreppi, um lífið á Hofsósi þessa dagana. Að hans sögn er eina atvinnuleysið hjá þeim konum sem starfa á sauma- stofu staðarins, en hún er ekki starfrækt eins og er vegna verkefnaskorts. Nú standa einnig yfir endur- bætur á kirkjunni á Hofsósi, en hún hefur aldrei verið múruð að utan frá því hún var byggð. Bætt verður úr því auk þess sem hún fær í alla staði andlitlyftingu bæði að innan sem utan. Hjá frystihúsinu gengur vel meðan nóg hráefni fæst að sögn framkvæmdastjóra þess og er þar unnið af krafti um þcssar mundir. Jón Guðmundsson tók við af Birni Níelssyni fyrir um mánuði síðan og segir að sér líki þetta ágætlega. Ekki var þó um stóla- skipti að ræða að sögn Jóns, því að hann kom nreð sinn eigin stól með sér sökum þess hve hinn var hrekkjóttur og gat aldrei ákveðið hvort hann ætti að vera í efstu eða neðstu stöðu. Saumastofan er sú eina á land- inu sem hefur saumað íslenska fánann um árabil auk annars saumaskapar. Nú er ástandið samt orðið þannig, að sögn fólks, að ódýrari fánar eru fluttir inn og er það m.a. ástæðan fyrir því að saumastofan á Hofsósi er stopp núna. SBG annars rusls á svæðinu og nernur sú upphæð öðru eins. Að sögn Gunnars Garðarsson- ar gjaldkera blakdeildar KA, sem sá um skipulag ruslhirðing- arinnar, voru það alls um 35 manns sem við hana störfuðu. Tínt var frá klukkan sex á morgn- ana til klukkan tvö um nóttina. Tíu manns voru á vakt á hverjum tíma og var á tveggja tíma fresti farið um allt svæðið. ET Tekjuskattur fyrirtækja 10-15% lægri miiii ára að raungildi Blakmenn í rusli í Húnaveri: Ellefu „goseiningar“ á hvem gest

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.