Dagur - 10.08.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 10. ágúst 1990
ri
spurning vikunnar
i
Ef þú þyrftir að flytja
búferlum frá Akureyri,
hvar mundir þú vilja búa?
Unnur Sigursveinsdóttir:
[ Reykjavík, því það er næsta
stig fyrir ofan, bæði atvinnulega
og menningarlega.
Karl Haraldsson:
Ætli það sé ekki Kópavogur, nei
annars ég mundi flytja rétt út
fyrir bæinn og búa í Glæsibæj-
arhreppi. Það væri alveg ágætt.
Helgi Ásgrímsson, býr á
Dalvík:
Ég mundi vilja búa á Bolungar-
vík, ég hef komið þangað og
finnst það mjög fallegur staður.
Sigurður Brynjólfsson:
í Reykjavík, fyrst og fremst
vegna þess að þar er meiri
atvinnu að hafa.
Sigrún Valtýsdóttir:
Ja, ég er eiginlega ekki viss um
það, líklega einhvers staðar er-
lendis og þá væntanlega í Evr-
ópu.
Vinur minn Búbbi.
Sérhver hundtir er spegill
húsbóndans og hehnllisins
Stöðugt fjölgar hundum á íslandi
og þá sérstaklega í bæjum og
þéttbýlisstöðum. Að fólk skuli
kjósa að halda hund er ekkert
undrunarefni, því sé hundurinn
vel vaninn og hans vel gætt, þá er
vart nokkuð skemmtilegra, því
hundurinn er besti vinur manns-
ins og endurgeldur með ýmsu
móti allt það sem honum er gert
gott. Lengst af var ræktun hunda
lítið sinnt hér í landi, en nú á
seinni árum hefur færst í vöxt að
hin ýmsu hundakyn séu ræktuð
með natni og nákvæmni. Allar
menningarþjóðir hafa kunnað að
meta sálfræðileg gildi hundsins
og lagt rækt við uppeldi hans og
tamningu, því að sálarlíf hunds-
ins er á þann veg háttað að tamn-
ingin veitir honum öryggi og vel-
líðan og eykur að sama skapi
ánægju mannsins af sambúðinni.
Sérhver sem ætlar að eignast
hund ætti að hugleiða frumskil-
yrði þau sem verða að vera fyrir
hendi, ef viðkomandi ætlar sér að
Árvökul er Spíra.
írskur seti:
Fjölskyldu- og veiðihundur