Dagur - 10.08.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. ágúst 1990 - DAGUR - 7
eignast hund. Að vera hundeig-
andi krefst mikillar ábyrgðar og
til að byrja með mikillar þolin-
mæði. Mjög oft verðum við vör
hunda sem eru illa siðaðir og
stundum hættulegra hunda, en
við skulum hafa það hugfast að
oftast eru þessir gallar húsbónd-
anum að kenna en ekki hundin-
um. Hundurinn er spegill eigand-
ans. Margir eru andsnúnir því að
halda hund í bæjum og borgum
og háværar raddir heyrast á
stundum í blöðum gegn hunda-
haldi borgarbúa sem oft eiga við
rök að styðjast. Mitt álit er engu
að síður, að hundar eiga fullan
rétt á sér í þéttbýlisstöðunum svo
lengi sem farið er að settum regl-
um um hundahald. Það er út-
breiddur misskilningur að hund-
unum leiðist í bæjunum. Hundin-
um leiðist hvergi þar sem hann
fær umönnun og rétt atlæti,
hundurinn er vinur mannsins og
maðurinn ætti að vera vinur hans
og láta alla fordóma lönd og leið
og dæma ekki að óathuguðu
máli.
Vissulega eru til mörg hunda-
kyn á íslandi, en því miður hefur
gengið illa að hreinrækta þau.
Þetta stafar m.a. af alltof ströng-
um og stirfnum reglum um inn-
flutning á hundum, sem stendur í
vegi fyrir því að hægt sé að
hreinrækta og endurreisa stofn-
ana. Brýnt hagsmunamál hér á
landi er því að úr þessu verði
bætt, komið verði á fót klúbbum
og hreinræktun og leyfi verði
veitt fyrir innflutningi á kynbóta-
hundum. Nokkur vissa er fengin
fyrir því að svo verði nú þegar
einangrunaraðstaða fyrir hunda
verður tekin í notkun í Hrísey.
Þegar þessi aðstaða kemst í gagn-
ið ættu íslenskir áhugamenn og
vinir hundsins að taka sig saman
um að standa rétt að málum og
nýta sér rétt samtök, Hundarækt-
arfélag íslands, því margt þarf að
varast og vanda þarf val sérhvers
hunds til kynbóta. Eitt rangt
skref í ræktunarmálum getur
valdið miklum skaða, sem seint
fæst bætt.
Eitt er það hundakyn sem mér
hefur lengi verið hugleikið og
sem ég þekkti ekki lengst af, en
það er Séferinn. Séferinn er sér-
stakur hundur um margt, en að
mínu mati jafnast enginn hundur
á við hann og nú hef ég mikinn og
góðan samanburð, því að í 45 ár
hef ég verið hundeigandi og man
ekki eftir mér hundlausum.
Margur segir: Séferinn er grimm-
ur varðhundur, sem hvergi á rétt
nema til sérstakra verkefna og
Hér að framan höfum við rætt
um Séferinn með öllum þeim
kostum sem hann prýða. Val á
hundi fer eftir smekk hvers og
eins og þá er farið eftir þeim eig-
inleikum sem hvert hundakyn er
gætt. Tíska ræður í þessum efn-
um sem og í svo mörgu. írski seti
er mjög vinsæll hér á landi og
þessi tegund hefur verið í tísku
nú síðari ár, en því miður gætir
töluverðrar úrkynjunar í íslenska
stofninum þó svo að hægt sé að
ná mjög góðum einstaklingum.
Besti eiginleiki þessa kyns er
blíðlyndi og þeir eru sérlega fal-
legir. írski seti er góður tjölskyldu-
hundur og afbragðs veiðihundur,
enda er margur eigandinn forfall-
inn byssumaður og nýtir sér þessa
sérstæðu eiginleika. Ókostirnir
við kynið eru þeir helstir að það
getur helst aldrei verið kyrrt og
þarfnast því mikillar hreyfingar.
Ef írski seti er mikið innilokaður
þá verður hann taugaóstyrkur og
vesæll. Mjög athyglivert er að
írskir setar stofna oft til vináttu
við hesta og þetta hef ég reynt á
mínum hestamannsferli.
Uppruni og saga þessa kyns er
mjög sérstök. Upphaflegt stofn-
kyn hans er írski Vatnaspanjóli,
en hann var fenginn fram á 19.
öld með flókinni víxlræktun. Eitt
Farin verður
dagsferð
í Mývatnssveit
þriðjudaginn 14. ágúst kl. 10.
Ferð ásamt kaffihlaðborði kr. 1.500.
Tekið á móti pöntunum í síma 23595 á milli kl.
2-4 á föstudaginn 10. þ.m.
Ferðanefndin.
Búbbi, ársgamall Séfer.
hann ætti hvergi að vera nema í
búrum eða girðingum. Þetta er
ekki rétt og eru fordómar, því
Séferinn er hinn besti hundur og
á hinn fyllsta rétt hvar sem er.
Þeir eiginleikar sem eru hvað
ríkastir í fari hans eru. Þeir eru
frábærlega skynsamir, hægt er að
treysta þeim og þeir eru frábærir
þjónustuhundar og húsbónda-
hollir, en þess ber að gæta að þeir
eru ekkert leikfang og þurfa að
hafa verk að vinna með tilgangi.
Séferinn er nú talinn útbreidd-
asti og vinsælasti hundur heims.
Aðalsmerki hundsins eru gáfurn-
ar, en af því leiðir að hægt 'er að
kenna honum svo til hvað sem er.
Vinnugleðin er einstök og því
þarf hann helst alltaf að fá eitt-
hvert verkefni við að glíma og
jafnframt þarf að gera honum
ljóst, að verkið hefur tilgang.
Dæmi um slík verkefni eru leit að
týndum mönnum eða vísa blind-
um til vegar. Ef Séferinn hinsveg-
ar fær ekki verkefni við sitt hæfi,
ef menn ætla að gera hann að
gæludýri liggjandi á mottu, fer
honum að leiðast og þá getur
hann orðið firtinn og fúll. Já, Séf-
erinn er hundur athafna og því
skyldi eigandi hans vera gæddur
sömu eiginleikum dugnaðar og
útiveru.
Séferinn er svo líkur úlfi að
útliti, að margir ímynda sér, að
hann sé nýsloppinn út úr úlfa-
stóði. Það er hinn mesti misskiln-
ingur því þessi tegund hefur verið
ræktuð svo árþúsundum skiptir,
en hann kemur fyrst fram á
hundasýningu 1882 í Hannover.
Þegar við veljum okkur hvolp
af Séferkyni er margs að gæta því
við erum að leita að góðum
hundi, sem er vel samræmdur að
líkamslögun. Því er best að leita
til kunnáttumanns sem gjörþekk-
er sérstakt við írska seta, að hann
er rummungsþjófur, grípur fal-
lega hluti og ber þá heim til sín.
Þegar þið ætlið að velja ykkur
hund af þessu kyni þá leitið þið
eftir einstaklingi sem er síkvikur
og góðlegur. Feldurinn á að vera
kastaníurauður en leyfilegt er að
hvítar stjörnur sjáist á brjósti og
enni, en séu svartir flekkir í feld-
inum þá er það talið óæskilegt,
enda er slíkum einstaklingum
oftast lógað. Höfuðið skal vera
langt og mjóslegið, en ekki
snjáldurslegt. Kollurinn hvelfdur
og greinileg hnakkakúla og
brúnavik. Trýnið allhátt og frek-
ar þverskorið. Snoppan dökk-
rauð, brún eða svört. Skottið á
að vera meðallangt, loðið og
mjótt í endann og loppurnar
smáar.
Nú höfum við rætt um þær tvær
hundategundir sem mér eru hvað
efstar í huga. Séferinn með reisn
sína og göfgi og írska seta með
fegurð sína og síkvika fas. Auð-
vitað er til fjöldi tegunda sem er
vert að skoða þegar hundur er
valinn. Ég vil hér sérstaklega
nefna Gullinsæki, sem er sérstak-
lega skynsamur og jafnlyndur
fjölskylduhundur og sérlega
meðfærilegur. Sjálfur á ég og hef
átt slíkan hund í 12 ár, en um það
síðar. ój
Myndir: ój
ir allt er lýtur að kyninu og fá
leiðsögn hans. Fullvaxinn Séfer
má hvorki vera þungur og
klunnalegur né mjósleginn. Sér-
staklega ber að varast Mjóhunds-
lögun. Höfuðið verður að vera
langt og mjóslegið, breiðast yfir
eyrun og injókkar að trýninu.
Kollurinn aðeins hvelfdur og
grunnt brúnavik. Trýnið langt,
hátt og hvasst. Snoppan svört.
Já það er margs að gæta þegar
hundur er valinn og þá sérstak-
lega Séfer, en eitt vil ég ráðleggja
ölium sem ætla að fá sér hund.
Hugleiddu hvort þú ert þannig í
stakk búinn að þú sért hæfur
hundeigandi, því hundi hendir
maður ekki frá sér eða lógar þeg-
ar nýjabrumið er farið af, heldur
eigið þið samleið þar til annar
fellur frá og sjálfsagt er að nýta
sér hlýðninámskeið og alla þá
fræðslu sem í boði er. Sérhver
verður að vera vökull fyrir sálar-
og líkamsástandi hundsins og
leita til dýralænis ef bjátar á. Oft
er svo að eigendur trassa að hafa
samband við dýralækni fyrr en í
óefni er komið, það má ekki
henda. Munið að sérhver hundur
er spegill húsbóndans og heimil-
isins. ój
Sundlaugin
Syðra-Laugalandi
Frá og með föstudeginum 10. ágúst verður sund-
laugin lokuð.
Konutímar verða þó áfram á mánudagskvöldum frá
kl. 20.30 til kl. 21.30.
Með þökk fyrir viðskiptin í sumar.
Sundlaugarverðir.
TarotspiC
— kanniu að íesa úr þeim?
Hugrœfaarfiúsið býður vandað námskeið í Tarot íestri
á Áfaireyri.
Engin gmnnþckking nauðsyníeg.
Kennt verður hcígina 8. og 9. septcmhcr.
Þátttakemfur hafi með sér spií og skriffœri.
Kennari: Christopher Marshalí jrá Mysteries í London.
Kennt verður á ensku en tidkað effir þörfum.
Skrárting á Snyrtistofu Nötuiu, Strandgötu 23
aíía íaugardaga frá kí. 11-14 tiC 25. ágúst.
Staðfestingargjald.
r
sur
með rækjum
Ljúffengu rækjupylsumarfást
í næstu matvöruverslun
Gómsætar é grillið eða pönnuna
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA