Dagur - 11.08.1990, Side 11

Dagur - 11.08.1990, Side 11
efst í hugo Framleiðsla á fiskafurðum í fullum gangi, en á veiðum og vinnslu sjávar- afla veltur lífsafkoma íslendinga. Skipta þarf þjóðarkökunni sem rettlátast milli allra Það sem er efst í huga mín- um þessa dagana og senni- lega flestra Islendinga eru bráðabirgðalögin, sem sett voru á BHMR-fólk. Deilur um kaup og kjör á íslandi eru ekkert nýtt fyrir- bæri. Margoft á undanförn- um árum og áratugum hefur ríkisvaldið gripið inn í slíkar deilur með bráðabirgðalög- um og þó miklu oftar með gengisfellingum. Okkur ís- lendingum hefur gengið ákaflega illa að læra að skilja það, að það er kaupmáttur- inn sem skiptir mestu máli þegar samið er um kaup og kjör en ekki háar prósentu- tölur sem alltaf hafa leitt til gengisfellinga og kjara- skerðinga, ekki síst fyrir þá sem minnst bera úr býtum í þjóðfélaginu. Með svokail- aðri „þjóðarsátt" í febrúar sl. var farið inn á nýjar brautir í kjarabaráttu hér á landi. Samið var um mjög litlar þrósentuhækkanir á laun en reynt að auka kaupmátt með minnkandi verðbólgu, lækk- un vaxta og sem mestum stöðugleika á gengi islensku krónunnar og hækkunum á vöru og þjónustu haldið í lágmarki. Allir lægst launuðu þegnar þjóðfélagsins gerðu kjarasamninga á þessum nótum. Flestir voru sammála um, eftir nokkurra mánaða reynslu af þessari leið, að hún væri vænlegri til árang- urs en gamla gengisfellinga- leiðin. Vextir lækkuðu, verð- bætur lækkuðu, gengið hélst stöðugt og hagur fólks batn- aði og einnig fyrirtækja, sem mörg hver voru komin á von- arvöl að miklu leyti vegna vaxta og verðbóta af láns- fjármagni en eigið fé í íslenskum fyrirtækjum hefur alla tíð verið of lítið. Þess vegna kom 4,5% samnings- bundin kauphækkun há- skólamanna eins og skratt- inn úr sauðarleggnum. Samningurinn við háskóla- menn var gerður árið 1989 og þá var verðbólga 20-25% hér á landi og „þjóðarsáttin" ekki í sjónmáli þegar sá samningur var gerður. Það er alltaf neyðarbrauð að þurfa að hrófla við kjara- samningum en nauðsyn brýtur iög. Stjórnvöld stóðu frammi fyrir þeirri staðreynd að „þjóðarsáttin" og þar með allar forsendur í kjarasamn- ingum þeirra lægst launuðu rynnu út í sandinn og ný víxl- hækkun hæfist í þjóðfélag- inu, sem leiddi til nýrrár og enn einnar kollsteypu í efna- hagsmálum þjóðarinnar, þar sem þeir lægst launuðu færu enn einu sinni halloka vegna prósentuhækkana. Við erum rík þjóð íslendingar og okkur verður að takast á næstunni að skipta þjóðarkökunni sem réttlátast milli allra. Það eru allir sammála um það aö lægstu taxtalaun sem greidd eru hér á landi eru til skammar. Það þarf því að ná þjóðarsátt um skiptingu allra launa í landinu milli stétta og starfshópa, hvort sem menn eru verkamenn, iðnaðar- menn, menntamenn eða stjórnendur. Það verður eng- in þjóðarsátt nema allir íslendingar á vinnumarkað- inum nái samkomulagi um skynsamlega skiptingu á þeim hluta þjóðarkökunnar sem fer í laun. Er ekki mál til komið að forystumenn launa- manna í landinu setjist niður og nái samkomulagi um þessa skiptingu launa? Svavar Ottesen. Laugardagur 11. ágúst 1990 - DAGUR - 11 ' dagskró fjölmiðlo Sjónvarpið Laugardagur 11. ágúst 16.00 íþróttaþátturinn. 18.00 Skytturnar þrjár (17). 18.25 Ævintýraheimur prúðuleikaranna (3). (The Jim Henson Hour.) 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Ævintýraheimur prúðuleikaranna framhald. 19.30 Hringsjá. 20.10 Fólkið í landinu. Efnispiltur í sókn og vörn. Illugi Jökulsson ræðir við Helga Áss Grét- arsson skákmeistara. 20.30 Lottó. 20.35 Hjónalíf (13). (A Fine Romance.) Lokaþáttur. 21.00 Múraramorðin. (Inspector Morse - The Masonic Myster- ies.) Ný bresk mynd um Morse lögreglufull- trúa í Oxford og Lewis aðstoðarmann hans. Hinn tónelski Morse er að æfa Töfra- flautuna ásamt kórfélögum sínum. Ein kvennanna í kórnum er myrt og böndin berast að Morse sjálfum. Aðalhlutverk: John Thaw og Kevin Whately. 22.50 Ást og ógnir. (Haunted Honeymoon.) Bandarísk gamanmynd frá árinu 1986 um heldur misheppnaða nótt sem tilvonandi hjón eiga saman í gömlu og dularfullu húsi. Aðalhlutverk: Gene Wilder, Gilda Radner og Dom DeLuise. 00.15 Útvarpsfréttir i dagskrárlok. Sjónvarpið Sunnudagur 12. ágúst 16.00 Evrópuleikar fatlaðra - Setningarat- höfn. Dagana 14.-24. júlí voru Evrópuleikar fatl- aðra haldnir í Assen í HoUandi. Átta íslenskir íþróttamenn tóku þátt í leikun- um og unnu tU nítján verðlauna. 17.40 Sunnudagshugvekja. 17.50 Pókó (6). 18.05 Útilegan (2). (To telt tett i tett.) 18.25 Ungmennafélagið (17). í sjávarháska. Eggert og Málfríður taka þátt í æfingu Slysavarnafélagsins á Eyrarbakka. Umsjón Valgeir Guðjónsson. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Vistaskipti (10). 19.30 Kastljós. 20.30 Á fertugsaldri (9). 21.15 Sumarsmellir. Sýnd verða ný myndbönd með lögum sem íslenskar hljómsveitir eru að senda frá sér þessa dagana. 21.40 Á flótta. (Jumping the Queue.) Bresk sjónvarpsmynd í tveimur hlutum. í myndinni segir frá lífsleiðri ekkju og kynnum hennar af ungum manni sem er á flótta undan lögreglunni. Aðahlutverk: Sheila Hancock og David ThrelfaU. 22.50 Áslaug, einhverf stúlka. í þættinum er fjaUað um einhverfu og sér- staklega greint frá lífi unglingsstúUui sem á við þessa fötlun að striða. Hún tjáir sig með mjög sérstökum og athyglisverð- um teikningum. 23.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarpið Mánudagur 13. ágúst 17.50 Tumi. (Dommel.) 18.20 Litlu prúðuleikararnir. (Muppet Babies.) 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Yngismær (136). 19.20 Við feðginin (4). 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Ljóðið mitt (11). Að þessu sinni velur sér ljóð Rósa lngólfs- dóttir auglýsingateiknari. 20.40 Ofurskyn (5). (Supersense.) Á sunnudagskvöldið kl. 21.20 hefst um um einræðisherrann ítalska, George C. Scott. ingja. Að venju glímir hann við dularfullt morðmál og berast böndin að honum sjálfum að þessu sinni. 21.10 A flótta. (Jumping the Queue.) Seinni hluti. 22.30 Neil Young á tónleikum. Bandaríski tónlistarmaðurinn Neil Young á tónleikum í New York í september 1989. Hann flytur bæði ný lög og gömul, m.a. After the Gold Rush og This Note’s For You. 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. Stöð 2 Laugardagur 11. ágúst 09.00 Morgunstund með Erlu. 10.30 Júlli og töfraljósid. 10.40 Perla. 11.05 Stjörnusveitin. 11.30 Tinna. 12.00 Dýrarikið. (Wild Kingdom.) 12.30 Eðaltónar. 13.00 Lagt í’ann. 13.30 Forbodin ást. (Tanamera.) 14.30 Veröld - Sagan í sjónvarpi. (Th*e World - A Television History.) 15.00 Skær ljós borgarinnar. (Bright Lights, Big City.) Aðalhlutverk: Michael J. Fox, Kiefer Sutherland, Phoebe Cates og Swoosie Kurtz. 17.00 Glys. (Gloss.) 18.00 Popp og kók. 18.30 Bilaíþróttir. 19.19 19.19. 20.00 Séra Dowling. (Father Dowling.) 20.50 Kvikmynd vikunnar. Bylt fyrir bord. (Overboard.) Hjónakornin Kurt Russel og Goldie Hawn leika hér saman í laufléttri gamanmynd um forríka frekju sem fellur útbyrðis á lystisnekkju sinni. Hún rankar við sér á sjúkrahúsi og þjáist af minnisleysi. Eigin- maður hennar hefur lítinn áhuga á því að nálgast hana og smiður nokkur, sem hún er nýbúin að reka úr þjónustu sinni, sér sér leik á borði og heldur því fram að hún sé eiginkona hans og móðir barna hans, sem eru síst til fyrirmyndar. Eitthvað gengur henni brösuglega að aðlagast nýju lífi og ekki bætir úr skák þegar ljóst er að þau fella hugi saman, hún og smið- urinn. Aðalhlutverk: Goldie Hawn, Kurt Russel, Roddy McDowall og Katherine Helmond. 22.40 Byssurnar frá Navarone.# (The Guns of Navarone.) Myndin fjallar um árás nokkurra breskra hermanna á vigbúna eyju undan strönd- um Grikklands. Þjóðverjar hafa risafall- stykki á eyjunni og nota þau til að gera usla á siglingaleiðum bandamanna. Aðalhlutverk: Gregory Peck, David Niven, Anthony Quinn, Irene Papas, Richard Harris o.fl. Bönnuð bömum. 01.10 Hættuleg fegurð. (Fatal Beauty.) Hættuleg fegurð eða Fatal Beauty er illa blandað kókaín sem kemst á markaðinn i Los Angeles. Aðaihlutverk: Whoopi Goldberg og Sam Eiliott. Stranglega bönnuð börnum. 01.55 Pink Floyd í Pompeii. Mynd sem tekin var á hljómleikum hljóm- sveitarinnar í Pompeii snemma á áttunda áratugnum. Mörg laganna, sem flutt eru, þykja með betri og þyngri verkum sveit- arinnar enda er Syd Barrett ennþá með i för. Rétt þykir að benda á að tónleikar þessir voru haldnir fyrir útgáfu „léttari” verka þeirra eins og Dark Side of the Moon og The Wall sem eru söluhæstu verk þeirra. 02.50 Dagskrárlok. Stöð 2 Sunnudagur 12. ágúst 09.00 í Bangsalandi. 09.20 Popparnir. 09.30 Tao Tao. 09.55 Vélmennin. 10.05 Krakkasport. 10.20 Þrumukettirnir. 10.45 Töfraferðin. 11.10 Draugabanar. 11.35 Lassý. 12.00 Popp og kók. 12.30 Björtu hliðarnar. 13.00 Ógætni. (Indiscreet.) Bráðskemmtileg og rómantísk mynd um ástarsamband leikkonu nokkurrar og háttsetts sendifulltrúa Bandaríkjastjóm- ar. Hann kemur ekki fram af fullum heið- arleik í sambandi þeirra og það gæti reynst honum dýrkeypt. 15.00 Listamannaskálinn. (Southbank Show.) Christopher Hampton. 16.00 íþróttir. 19.19 19.19. 20.00 í fréttum er þetta helst. (Capital News.) 20.50 Björtu hliðarnar. 21.20 Mussolini. Mjög vönduð framhaldsmynd um þennan ítalska einræðisherra. 23.00 Brúður mafíunnar. (Blood Vows.) Ung kona telur sig hafa himin höndum tekið þegar hún kynnist ungum og mynd- arlegum manni. Þau fella hugi saman og fyrr en varir em þau gengin í það heilaga. En þegar brúðurin fer að grennslast fyrir um lifibrauð gumans kemur ýmisleg gruggugt í ljós. Aðalhlutverk: Melissa Gilbert, Joe Penny og Eileen Brennan. Bönnuð börnum. 00.30 Dagskrárlok. Stöð 2 á Stöö 2 framhaldsmynd í sex þátt- Mussolini. Meö hlutverk hans fer Mánudagur 13. ágúst 16.45 Nágrannar. (Neighbours.) 17.30 Kátur og hjólakrílin. 17.40 Hetjur himingeimsins. 18.05 Steini og Oili. 18.30 Kjallarinn. 19.19 19.19. 20.30 Dallas. 21.20 Opni glugginn. 21.35 Töfrar. (Secret Cabaret.) 22.00 Mussolini. Annar þáttur. 22.55 Fjalakötturinn. í sálarfylgsnum.#. (Eaux Profondes.) Eiginmaður Mélanie virðist umburðar- lyndur á yfirborðinu. Hann leyfir henni góðlátlega að daðra við aðra karlmenn en í hvert sinn sem einhver alvara virðist fylgja hverfur maðurinn. Eiginmaðurinn er grunaður en aldrei tekst að sanna neitt á hann. Mélanie gmnar þó að ekki sé allt með felldu í sálarfylgsnum hans og reynir að komast að hinu sanna. Aðalhlutverk: Jean-Loius Trintignant og Isabelle Huppert. 00.25 Dagskrálok.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.