Dagur


Dagur - 18.08.1990, Qupperneq 3

Dagur - 18.08.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 18. ágúst 1990 - DAGUR - 3 fréttir F Áætlað er að nýta Bakkahlíð 39 fyrir gamalt fólk sem er nokkuð sjálfbjarga, en vantar húsnæði eða félagsskap. Bakkahlíð 39 á Akureyri sem sambýli aldraðra: Góð og þörf viðbót segir Björn Þórleifsson, deildarstjóri öldrunarmála Mynd: Golli Nýverið keypti Akureyrarbær einbýlishúsið Bakkahlíð 39 á Akureyri með 85% láni frá Húsnæðisstofnun. Að sögn Björns Þorleifssonar, deildar- stjóra öldrunarmála á Akur- eyri, fékk Akureyrarbær tíu lánsloforð á þessu ári vegna félagslegra íbúða og hyggst nýta sér tvær heimildir til kaupa á tveimur einbýlishús- um, sem verða nýtt fyrir sam- býli aldraðra. „Fyrri heimildin var nýtt til kaupa á Bakkahlíð 39 og þessa dagana eru byggingafræðingar Akureyrarbæjar að gera úttekt á öðru húsi, sem þykir heppilegt til þessara nota. í Bakkahlíðinni er rými fyrir átta aldraða, en húsið verður afhent 1. september og þá hefjumst við handa við að útbúa húsið þannig að það geti gegnt sínu hlutverki. Við höfum aug- lýst eftir forstöðumanni fyrir sambýlið að Bakkahlíð 39 og umsóknarfresturinn rennur út í dag. Félagsmálaráð heldur fund í dag og þar ræðst hvenær starfsem- in hefst, hvort það verður í haust eða um áramót. Þetta form öldrunarþjónustu er nýtt á Akureyri, en í Kópavogi er komin reynsla á þessa skipan mála og eins má segja að þessi þjónusta sé svipuð þeirri sem veitt er úti á landsbyggðinni á smærri stöðum samanber á Þórshöfn. Sambýli aldraðra í Bakkahlíð 39 verður fyrir gamalt fólk sem er nokkuð sjálfbjarga en vantar húsnæði eða félagsskap, því víða er gamalt fólk eitt í hús- eignum sínum og líður vegna einsemdar. Þetta er góð og þörf viðbót við þá þjónustu sem veitt er öldruðum og okkur til ráðu- neytis um þessi mál er þjónustu- hópur aldraðra sem er mjög ráð- gefandi," sagði Björn Þórleifs- son, deildarstjóri öldrunarmála. ój Húsavík: Byggt villt og galið í sumar Heilmikið er um að vera í byggingaframkvæmdum á Húsavík í sumar, að sögn Pálma Þorsteinssonar, bygg- ingafulltrúa. Fimm einbýlishús eru í smíðum og framkvæmdir að hefjast við það sjötta. Tvö raðhús eru í smíðum, fram- kvæmdir að hefjast við það þriðja og sótt hefur verið um lóðir fyrir tvær raðhúsalengjur við Stekkjarholt, auk þess sem bygging 12 íbúða fjölbýlishúss hefur verið boðin út. Hitaveita Akureyrar: í Gerðahverfi I þarf helst að klárast fyrir haustið Lagt Þessa dagana eru starfsmenn Hitaveitu Akureyrar að hefja framkvæmdir við hitaveitulögn í nýjasta íbúðahverfi Akureyr- arbæjar, Giljahverfi I. „Menn eru allt í einu farnir að byggja hver um annan þveran,“ sagði Franz Árnason, vatns- og hitaveitustjóri. „Við vorum farn- ir að sjá fram á að við þyrftum ekki að vinna nema mjög tak- markað í hitaveitulögnum í Giljahverfi I á þessu ári, en ég fæ ekki séð annað en við verðum fyrir haustið að ljúka við lagnir í hverfið. Við höfum svo sem ekkert á móti því,“ sagði Franz. Hann sagði að í raun væri um að ræða tiltölulega fáar heimtaugar OKUM eins og menni Aktu eins og þú vilt að aorir aki! «iæ FEROAR því í þessum fyrsta áfanga væri eingöngu fjölbýlis- og raðhús. óþh Af öðrum framkvæmdum má nefna að unnið er við innréttingu kennslustofa í íþróttahúsinu, hafnar eru framkvæmdir við við- byggingu grunnskólans, inni- vinna við heilsugæslustöðina stendur yfir, verið er að byggja Brekkuhvamm, en þar eru fjórar búseturéttaríbúðir fyrir aldraða, nýlega var byrjað á byggingu sjóminjasafns við Safnahúsið og verið er að ljúka við buslulaug við sundlaugina. Bygging nýs Shellskála stendur yfir og fyrr í sumar var Essoskálinn stækkað- ur. Auk þessa standa fyrirtæki og einstaklingar fyrir ýmsum minni breytingum og framkvæmdum á húsnæði sínu. IM Hugmyndasamkeppni Atvinnumála- nefndar Akureyrarbæjar í vetur: „Framkvæmdafólkid vantar“ - segir Þorleifur Þór Jónsson „Þaö er lítisvirðing við skatt- greiðendur og eins verðlauna- hafa að Atvinnumálanefnd hefur ekkert aðhafst annað en að velja bestu hugmyndirnar og veita síðan verölaunin,“ sagði viðmælandi Dags, er hann var að kvarta vegna úrvinnslu Atvinnumálanefndar á verðlaunahugmyndunum um ný atvinnutækifæri á Eyja- fjarðarsvæðinu. Þrenn verðlaun voru veitt vegna hugmynda um rekstur buxnaverksmiðju, gerð minja- gripa og málmsteypu smærri hluta. Að sögn Þorleifs Þórs Jónssonar hjá Iðnþróunarfélag- inu hefur verið unnið að málum þessum. Sigurður P. Sigmunds- son tók að sér hugmyndina um buxnaverksmiðjuna, Steinþór Ólafsson málmsteypuna og hann minjagripahugmyndina. „Er að mér snýr, þá er hug- myndin til staðar og raunveru- lega fullmótuð. Það sem vantar er framkvæmdaaðili, frumkvöð- ull, til að taka málið að sér. Ég ætla að vona að þessi sem kvartar gangi ekki með þá grillu í höfð- inu, að við starfsmenn Iðnþróun- arfélagsins séum hér að störfum við að reka fyrirtæki úti í bæ, eða munum reka þau fyrirtæki sem væntanlega yrðu stofnuð um hug- myndirnar. Aðstandendur sam- keppninar höfðu vonast til, að þeir sem áttu verðlaunahug- myndirnar tækju þær að sér, en svo reyndist ekki vera, þeir höfðu ekki bolmagn til þess. Það sem er meinið er að menn eru almennt kvartandi yfir að ekkert sé gert, en eru síðan mjög tregir til að taka áhættu sem alltaf fylgir nýsköpun. Ég auglýsti eftir hug- myndum af minjagripum, fékk 10-15 hugmyndir og fáar voru hæfar til fjöldaframleiðslu. Nokkrar eru stórsnjallar, fram- kvæmdafólkið vantar. Því er spurt. Hvar eru frumkvöðlarnir, fólk athafna og frumkvæðis? Verlaunahafarnir fengu verð- launin til að auðvelda þeim að koma málum lengra en það brást. Þessi er staðan í minjagripamál- inu og svipaða sögu er að segja um málmsteypuhugmyndina," sagði Þorleifur Þór. Að sögn Sigurðar P. Sig- mundssonar, þá fór fyrstu verð- launahafinn Erlingur Aðalsteins- son, klæðskeri og verslunareig- andi, til Þýskalands til viðræðna um buxnaverksmiðjuna og nú er beðið eftir nánari upplýsingum erlendis frá. ój Tilboð óskast í þessi ökutæki, sem skemmst hafa í umferðar- óhöppum. Peugeot 309 GTi........ árg. 1989 Subaru Elo de luxe .... árg. 1988 Subaru 1800 GL 4WD .... árg. 1987 MMC Tredia 4WD ........ árg. 1986 Toyota Corolla GT..... árg. 1985 Ford Escort 1300 LX.... árg. 1984 Mazda E 1600 pick up .. árg. 1981 BMW 518 ............... árg. 1980 Kawasaki ZX-10 bifhj... árg. 1988 Kawasaki GPX 550 bifhj.. árg. 1985 Ökutæki þessi verða til sýnis í Tjónaskoðunar- stöð VÍS að Furuvöllum 11, Akureyri, mánud. 20. og þriðjud. 21. þ.m. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00 þriðjud. 21. VAiRYGGINGAFFMG WÍIf ÍSLANDS HF Svæðisskrifstofa Akureyri. Dags. SVARSEÐILL Beiðni um millifærslu áskriftargjalds □ Er áskrifandi □ Nýr áskrifandi Undirritaður óskar þess að áskriftargjald Dags verði framvegis skuldfært mánaðarlega á greiðslukort mitt. Kortnr. Gildir út: Nafnnr.: ASKRIFANDI: HEIMILI:____ PÓSTNR.-STAÐURl SIMI: Strandgötu 31 Sími 96-24222 UNDIRSKRIFT.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.