Dagur - 18.08.1990, Page 6

Dagur - 18.08.1990, Page 6
6 - DAGUR - Laugardagur 18. ágúst 1990 matarkrókur Hallfreður Örgumleiðason: Gestrisni Eldað með „varía- sjómim“ og slaufum - Práinn Karlsson býður upp á sjávarfang í ofni Pað er leikarinn Práinn Karlsson sem er í matar- króknum að þessu sinni. Réttinn, sem Práinn býður lesendum upp á, kallar hann sjávarfang í ofni og segir að þótt kjötið sé gott sé fiskurinn betri. „Pessi réttur hefur þann kost að ekki þarfað þvælast með grömm en þau eru eitur í mínum beinum. Pað má prjóna þetta af fingrum fram eða eins og konan sagði: „allt má vera rúmt tœpt.“ Pað má elda þetta með „varía- sjónum“ og slaufum." Þráinn segist matreiða tölu- vert. Hann fór á sínum tíma til sjós sem kokkur en kunni þá ekki einu sinni að elda hafra- graut að eigin sögn. „Móðir mín gaf mér þá Jónínubók sem er örugglega besta matreiðslubók sem hefur verið skrifuð. í henni er lagður grunnur að allri matargerð, a.m.k. minni eigin,“ segir hann. En víkjum þá að sjávarfang- inu. Þráinn notast gjarnan við eftirfarandi hráefni: 2 meðalstór ýsuflök. Lúða og skötuselur til helminga á móti ýsunni (skötusel er oft erfitt að fá en notast má við eitthvað annað). 1 bréf eða pakkning af hörpu- diski. Slatti af rœkjum. 2 gul epli. 2 meðalstórir laukar auk gras- lauks og púrrulauks ef til eru. 1 peli rjómi. Steinselja, blandað fiskkrydd, salt og pipar. Aðferð: Fiskurinn skorinn úr roðinu og beinin fjarlægð. Skorinn í 2- 3 cm bita. Eplin skorin í litla bita (u.þ.b. lxl cm), laukurinn saxaður smátt og graslaukurinn og púrran sömuleiðis. Þráinn notar leirpott en einnig má notast við eldfast mót eða fat. Potturinn er smurður að innan með smjörlíki eða matarolíu og fisknum raðað í hann þannig að fyrst kemur ýsan, þá lúðan og loks skötusel- urinn. Kryddað er yfir hvert lag, lauk og eplum stráð yfir og síðan koll af kolli þar til allt er komið í pottinn. Hörpudiskur, rækjur og rjómi bíða. Þegar í pottinn er komið er lokið sett á og honum stungið í heitan ofn. Þar er þetta látið malla við 180 gráður meðan kartöflurnar sjóða (suðutími og hitastig getur verið breytilegt). Meðan fiskurinn bakast og kartöflurnar sjóða er tilvalið að laga salat sem er nauðsynlegt að hafa með. í það má t.d. nota: 'ó-l kínakál. V2-I epli. V2-I paprikku (litur eftir smekk). 'A eða kvartdós ananashringir 4- safinn úr dósinni. Lítill ostbiti (u.þ.b. 100-150 g). V2 meðalstór gúrka. 1-2 tómatar. Smávegis af lauk-graslauk- púrrulauk. Þetta er skorið í smábita eða sneiðar og kryddað með sítrónusafa eða pipar. Þá er ein matskeið af matarolíu sett útí og öllu hrært saman. Salatskál- ina má svo skreyta með kiwi- sneiðum, vínberjum eða hverju sem hentar. Þegar fiskurinn hefur verið nægan tíma í ofninum er hörpu- diski og rækjum stráð yfir, rjómanum hellt útá og stein- selju sáldrað yfir. Loks er pott- inum stungið augnablik í ofninn aftur. Á eftir er gott að fá sér þykka sneið af hunangsmelónu með þeyttum rjóma og sultuslettu (hindberja- sólberja- eða rabb- arbarasultu). Máltíðinni lýkur svo með bolla af sterku og góðu kaffi. Þráinn segir að fiskur sé ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá sér enda sé hann alæta á mat. „En fiskur er afskaplega góður matur og hann má matreiða á óteljandi vegu.“ Þráinn hefur skorað á Hann- es Örn Blandon, prest í Grund- arþingum, sem tók því ljúflega og mætir til leiks að hálfum mánuði liðnum. JHB Góðan daginn, gestrisna þjóð. í sumar höfum við enn fengið staðfestingu á þeim tvískinn- ungi sem er einn ríkasti þáttur- inn í fari okkar. Hér á ég sér- staklega við móttöku ferða- manna. Annars vegar viljum við bjóða alla velkomna og flagga gestrisni okkar en hins vegar erum við sólgnir í allt það fé sem ferðamenn kunna að hafa handbært. Þessi ólíku viðhorf hafa oft mikla tog- streitu í för með sér og það er ljóst að full þörf er á samræm- ingu. Eða hvaða vit er t.d. í því að okra á óætu skyndifæði en leyfa ókeypis aðgang að náttúruperlum sem allir eru komnir til að sjá? Eða að leyfa ítölskum sjóliðum að svala þörfum sínum án endurgjalds? Margir hafa risið upp og gagnrýnt íslenskt kvenfólk fyr- ir lauslæti en ég vil frekar kalla þetta skipulagsleysi. Allir vita að karlmenn þurfa útrás, ekki síst þeir sem sigla um höfin blá langtímum saman. íslenskar hetjur hafsins sigla út og koma við á sérstökum stofnunum í Þýskalandi og Hollandi þar sem þeir létta á spennunni og þurfa að borga ríflega fyrir greiðann. Þetta er ekki gest- risni heldur viðskipti. ísland er hins vegar einstök paradís í augum erlendra skipshafna. Sjóliðarnir þurfa ekki einu sinni að leita að kvenfólkinu, hvað þá að borga fyrir stund- argamanið, þeir fá allt upp í hendurnar. Ég hef haft lúmskt gaman af því að fylgjast með lesenda- bréfum dagblaðanna eftir heim- sókn ítölsku sjóliðanna. Karl- menn eru sárir og afbrýðisamir og siðprútt fólk talar um „ástandið“ endurvakið. Konur sem komnar eru af léttasta skeiði fá glýju í augun og tala um fallegu og kurteisu dátana, saklausar augnagotur, pör að leiðast, feimnislegar snertingar í Hljómskálagarðinum. Þvílíkt bull. Ég hef sjálfur búið í Reykjavík og orðið vitni að komu erlends herskips. Það sem dátarnir og stúlkurnar greiðviknu aðhöfðust átti ekkert skylt við sakleysi og mér eru minnisstæðar lýsingar félaga míns sem keyrði strætis- vagn á ástandinu sem skapað- ist á Hlemmi að kvöldlagi. Þar var ekki verið að fela neitt. Nei, við vitum alveg hvað íslenskar stúlkur bjóða þessum ferðalöngum en mér finnst sjálfsagt að virkja krafta þeirra í þágu þjóðarinnar. Ríkisrekin stofnun sem kæmi til móts við þarfir þjáðra karlmanna væri af hinu góða. Það á ekki að líð- ast að dátarnir skilji ekkert eft- ir sig nema einstaka króga, kynsjúkdóma og lesendabréf. Við verðum líka að láta við- skiptasjónarmiðin ráða í ferða- þjónustunni því þótt íslensku stúlkurnar séu þekktar um all- an heim þá skila þær engu í kassann. Víkjum að öðru dæmi. Ég heimsótti nokkra vinsæla ferðamannastaði í sumarleyfi mínu, svo sem Dimmuborgir, Ásbyrgi, Hljóðakletta og Dettifoss. Hvarvetna ruddust túristarnir hver um annan þveran og hrifust af náttúrunni skipulags- og endurgjaldslaust. Það er eitthvað bogið við þetta. Sumar perlur eru illar farnar af átroðningi. Aðgangur er takmarkaður og menn reyna að væia peninga út úr ríkinu til að lagfæra skemmdirnar. Á sama tíma ráfa ferðalangar um þessar perlur án þess að þurfa að greiða aðgangseyri. Þetta er fráleitt og ég krefst gjaldtöku. Ég er aðeins að tala um sann- gjarnt gjald á haus sem rennur í rekstur viðkomandi náttúru- perlu. Hausarnir eru margir og gjaldið þarf því ekki að vera hátt. Lítum t.d. á Hljóðakletta, fremur afskekkta paradís. Það mætti lagfæra veginn þangað, merkja gönguleiðir betur, koma upp greiðasölu, vera með leiðsögn og þjóðlegar uppákomur, selja minjagripi og að sjálfsögðu þyrftu allir að greiða aðgangseyri við hliðið. Þannig er þessu háttað á ferða- mannastöðum í öðrum löndum. Ráðstafanir af þessu tagi þyrfti að gera víða um land. Þetta er spurning um að sam- ræma gestrisni og gjaldtöku og byggja upp skynsamlega ferða- þjónustu. Við megum ekki láta nauðga okkur endalaust. Rís- um upp og reynum að ráða yfir eigin landi. ísland er þrátt fyrir allt sjálfstætt ríki. og gjaldtaka

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.