Dagur - 29.08.1990, Qupperneq 3
frétfir
Miðvikudagur 29. ágúst 1990 - DAGUR - 3
1
r-
50 manna fundur stendur yfir á Akureyri:
Fulltrúar Norðurlandanna
funda um íþróttamálefni
Fuiltrúar norrænna ráðuneyta,
íþróttasambanda og sveitar-
stjórna halda regluiega með
sér fundi þar sem fjallað er um
þau málefni íþrótta á Norður-
löndunum, sem efst eru á
baugi hverju sinni. Slíkur
fundur stendur nú yfir á Hótel
KEA á Akureyri; hófst 27.
ágúst og lýkur 30. ágúst, og
sækja hann um 50 manns.
Fundurinn á Akureyri er tví-
skiptur þar sem fyrst er rætt um
málefni eins og stuðning Norður-
landaráðs við íþróttir. afstöðu
Norðurlanda til alþjóðlegs sam-
starfs í íþróttum og samstarf um
þessi mál innan Evrópuráðsins og
UNESCO. Á fundinum verður
sérstaklega rætt um afstöðu
Norðurlanda til væntanlcgra
afskipta Evrópuhandalagsins af
íþróttum en gera má ráð fyrir
verulegum umsvifum og fjár-
magni úr þeirri átt.
Á seinni liluta fundarins verð-
ur bygging íþróttamannvirkja á
dagskrá og gera fundarmenn þar
grein fvrir ýmsum nýjustu fram-
kvæmdum á því sviði og skvra frá
reynslu sinni af hyggingu og
rekstri mannvirkjanna.
Fundinum á Akureyri Iýkur
sem fyrr segir á föstudag en dag-
inn eftir vcröur hoðaö til kynn-
ingarfundar í Reykjavík um
byggingu íþróttamannvirkja. Þar
mun einnig verða gerö grein fyrir
n i ö u rs t öð u m A k u re y ra rf u n d a r-
ins og rætt sérstaklega um efni
eins og gervigrasvelli og gólf í
íþnittahúsum. BB.
Aðalfundur Landssamtaka sauðQárbænda:
Lífleg umræða um nýjan búvörusamning:
Opnað verði fyrir tilfærslu
með framleiðslurétt
þegar jafnvægi hefur náðst
Aðalfundur Landssambands
sauðfjárbænda lagði áherslu á
að reynt verði að tryggja sauð-
fjárbændum sem besta afkomu-
möguleika. Fundurinn lagði
einnig áherslu á að opnað
verði fyrir tilfærslu með fram-
leiðslurétt þegar jafnvægi næð-
ist í framleiðslu og sölu kinda-
kjöts. Þetta kemur fram í áliti
nefndar sem fjallaði um gerð
nýs búvörusamnings.
í fyrstu grein ályktunar aðal-
fundarins um búvörusamning
segir að reynt verði að tryggja
sem best afkomumöguleika sauð-
fjárbænda en stuðla jafnframt að
lækkuðum framleiðslukostnaði
og aukinni hagkvæmni. Þá segir
að opna verði fyrir tilfærslu á
framleiðslurétti þegar jafnvægi
hefur náðst í sölu og framleiðslu.
Niðurgreiðslur komi á fram-
leiðslustig og verði greiddar
bændum sem hluti afurðaverðs
og leiði til þess að neytendur geti
fengið afurðir á lágu verði frá
afurðastöð frá og með sláturtíð.
í ályktuninni segir einnig að
verði um markaðstengdan bú-
vörusamning að ræða sé mikil-
vægt að tryggilega verði frá því
gengið að samkeppnisstöðu
greinarinnar verði ekki spillt.
Lágmarkstími slíks samnings
verði fjögur ár og magnsamning-
ur miðist við sölu meðaltals
tveggja undangenginna ára ásamt
eðlilegum birgðum og útflutningi
með 4% útflutningsbótarétti.
Þá segir að verði nauðsynlegt
að skerða framleiðslurétt skuli
það að mestu leyti verða gert
með uppkaupum eða leigu fram-
leiðsluréttar. Óvirkur fram-
leiðsluréttur geti verið áfram á
jörðum, frystur enda þiggi fram-
leiðslurétthafinn engar greiðslur
fyrir rétt sinn.
Landssamband sauöfjárbænda
telur gagngera endurskoðun á
rekstri sláturhúsa nauðsyn-
lega. Einnig er talin þörf á að
bæta og auka verkkunnáttu
þeirra sem starfa við slátrun
sauðfjár.
í ályktun frá aðalfundi Lands-
sambands sauðtjárbænda segir að
þess sé farið á leit við land-
búnaðarráðherra að hann beiti
Lífeyrissjóður bænda verði
verði efldur og þeim gefinn kost-
ur á sómasamlegum lífeyri fyrr
en nú er gegn frystingu eöa sölu
framleiðsluréttar. Jarðasjóöur
verði einnig efldur svo hægt verði
að kaupa upp jarðir scm falla úr
ábúð vegna framleiðslusamdrátt-
ar og ekki seljast á almennum
markaði.
Að lokum segir í ályktuninni
aö birgðastaða í upphafi nýs
samnings verði núll. ÞI.
sér fyrir gagngerri endurskoðun á
rekstri sláturhúsa. í því sambandi
sé ekki óeðlilegt að nefnd sú cr
skipuð var við gerð síðustu kjara-
samninga og ætlað er að vinna að
tillögum um hagræðingu í land-
búnaði verði falið þetta verk. I>á
hvetur aðalfundurinn einnig til
þess aö verkkunnátta þess fólks
sem vinnur í sláturhúsum verði
bætt með námskeiðshaldi og auk-
inni fræðslu. " 1>I.
Endurskoðun á rekstri sláturhúsa:
Verkkunnátta fólks
er vinnur við
slátrun verði aukin
Aðalfundur Stéttarsambands bænda
hefst í dag að Reykjum í Hrútafirði:
Búvörusamningur aöalmál
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda hefst í dag að Reykjum
í Hrútafirði og mun hann
standa fram á föstudagskvöld.
Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa má búast við að hug-
myndir um nýjan búvörusamn-
ing verði ofarlega á baugi á
fundinum.
Aðalfundurinn verður settur
kl. 13 og hálfri stundu siðar hel'st
skýrsla Hauks Halldórssonar.
formanns Stéttarsambandsins.
Því næst stígur Steingrímur J.
Sigfússon, landbúnaðarráðherra
í pontu en að hans ræðu lokinni
flytja gestir ávörp.
Síðari hluta dags veröa birtir
reikningar Stéttarsambandsins og
Bændahallarinnar og tlutt grein-
argerð um störf Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins.
Morgundagurinn veröur að
mestu helgaöur nefndastörfum
en síðdegis hefst afgreiösla mála
úr nefndum. JÓH
Akureyrarmót í sjóstangveiði um næstu helgi:
Tæplega 60 bleyta færin
Skráningu í Akureyrarmótið í
sjóstangveiði lauk uin helgina,
en inótið hefst nk. föstudag.
Alls bárust um 58 skráningar
og er það eitthvað minni þátt-
taka en undanfarin ár. Hugs-
anleg skýring á því er sú að
meira framboð er orðið af
sjóstangveiðimótum uin þessar
mundir en verið hefur og stuttur
tími á milli móta.
Um helmingur keppenda er frá
Akureyri en einnig mæta sveitir
frá Siglufirði. Hauganesi. Vest-
mannaeyjum, Reykjavík. Kefla-
vík og ísafirði. Frá flestum þess-
um stöðum koma karla- og
kvennasvcitir en óvenju fáir
keppendur eru frá Reykjavík.
Akureyrarmótið verður sett
nk. fimmtudagskvöld á Hótel
KEA en síðan hefst veiðin árla á
föstudagsmorgni og lýkur á laug-
ardag. Lagt veröur upp frá Dal-
víkurhöfn. Mótinu verður slitið á
Hótel KEA að kveldi laugardags-
ins. -bjb
Skrifstofiitækni
★ Morgumiúni ★ Eftirmiðdagsnám ★ Kvöldnám
Aixkin menntun, betrl
a. tviiiiTuiTi öi» ul e ikai~
Grciðslukjör við allra hœfi.
Innritun og upplýsingar í _
síma 27899. JJjSjjJ ^
Töivufræðslan Akureyri h£
Glcrárgölu 34, IV. hœð. Sími 878!)!).
AKUREYRARB/íR
FRA GRUNNSKOLUM
AKUREYRAR
Kennarafundir verða í öllum grunnskólum bæjar-
ins mánudaginn 3. september n.k. kl. 10. f.h.
Nemendur skulu koma í skólana miðvikudaginn
5. september.
í Gagnfræðaskóla Akureyrar komi nemendur
sem hér segir:
8. bekkur (13 ára nemendur) kl. 13.00
9. bekkur (14 ára nemendur) kl. 14.30
10. bekkur (15 ára nemendur) kl. 16.00
í öðrum skólum komi nemendur sem hér segir:
8.-10. bekkur (13-15 ára nemendur) kl. 09.00
5,- 7. bekkur (10-12 ára nemendur) kl. 11.00
2,- 4. bekkur ( 7- 9 ára nemendur) kl. 13.00
Skólahverfin verða óbreytt miðað við sl.
skólaár.
Kennsla í 1. bekk (6 ára nemendur) hefst föstu-
daginn 7. september, en áður munu viðkomandi
kennarar hafa samband við heimiii þeirra barna
sem eiga að fara í 1. bekk og boða þau og
aðstandendur þeirra til viðtals í skólunum.
Innritun þeirra barna sem flutt hafa í bæinn, eða
milli skólasvæða í sumar, fer fram í skólunum
fimmtudaginn 30. ágúst kl. 09.00-12.00.
Á sama tíma skal ganga frá innritun eða staðfest-
ingu á óskum um gæslu 6-7 ára barna næsta
skólaár.
Skólastjórarnir.