Dagur - 29.08.1990, Síða 5
lesendahornið
Miðvikudagur 29. ágúst 1990 - DAGUR - 5
Innlegg í jafnréttisumræðuna í framhaldi af
lesendabréfi PEL 9. ágúst sl:
Er þetta nú allt jafnréttið?
Ég spyr eins og PEL (höfundur
„Jafnrétti hvað?“, sem birtist í
Degi 9. ágúst í lesendahorninu).
Ég þakka þér PEL, fyrir þín
skrif, því þetta ýtti við mér. Þú
og mjög margir aðrir halda að
jafnrétti kynjanna sé staðreynd í
dag á árinu 1990.
Ég er bara ekki sammála þér.
Þú nefndir jafnréttisnefndir,
jafnréttisfulltrúa (sem enginn er
til) og jafnréttislög máli þínu til
stuðnings. Þú talar einnig um
öfgar kvenna og nefnir Kvenna-
lista og Kvennahlaup sem dæmi.
Þín skoðun er sjálfsagt ein
skýringin á því hvers vegna
Kvennalistinn hlaut ekki betri
kosningu við síðustu sveitar-
stjórnarkosningar, fólk heldur að
jafnréttinu sé náð með lögum,
ráðum og nefndum, en það er
bara ekki svo. Ég er sammála þér
í því að nú beri svo furðulega við
að hver einasti maður í jafnréttis-
nefnd er kona, fyrir utan einn
karl sem er varamaður. Þannig
var síðasta jafnréttisnefnd
einnig. Hvers vegna skyldu karl-
menn ekki vera í jafnréttisnefnd,
ekkert gaman?; engin völd?; eða
finnst þeim þessi nefnd kannski
óþarfi?
PEL, þér þykir tiltökumál að
jafnréttisnefnd sé hrein kvenna-
nefnd, en hvað finnst þér þá um
hreinu karlanefndirnar: Bygg-
inganefnd (konur hafa auðvitað
ekkert vit á byggingum); hafnar-
stjórn (konur bera að sjálfsögðu
ekkert skynbragð á hafnarmál);
íþrótta- og tómstundaráð (konur
hafa auðvitað aldrei stundað
íþróttir og hafa sjálfsagt engan
tíma i tómstundir); stjórn veitu-
stofnana (konur hættu að sjálf-
sögðu að hafa vit á vatni þegar
þær hættu að bera það heim). Já
PEL, þetta er staðreynd, hvað
finnst þér nú um þessar nefndir?
í mörgum nefndum situr bara ein
kona, eins og t.d. í atvinnumála-
nefnd, kjarasamninganefnd
(konur eru þó Vi félaga í STAK),
skipulagsnefnd, almannavarna-
nefnd o.s.frv.
Enn þann dag í dag gerist það
að konur eru reknar úr vinnu
þegar þær koma úr barneignar-
fríi. Vel þekkt og virt fyrirtæki
hefur komist upp mcð það að
víkja konum úr stjórnunarstörf-
um þegar þær koma úr barn-
eignarfríi, sama hversu lengi og
vel þær hafa unnið, allt upp í 8
ár. Þeir karlar sem leystu þær af
sitja áfram í þeirra stöðu. Þeim
er sagt að það séu breyttar
aðstæður hjá þeim og því ekki
treystandi fyrir svona ábyrgðar-
miídum störfum, þeim er síðan
boðið lægra stöðugildi. Ef þær
afþakka, þá eru þær einfaldlega
reknar. Auðvitað er engin skýr-
ing gefin í uppsagnarbréfinu því
samkvæmt Préssunni nýlega
þurfa vinnuveitendur (að undan-
skildu ríkinu) ekki að gefa upp
ástæður uppsagnar. Er þetta nú
allt jafnréttið PEL? Ég skora á
alla, jafnt konur sem karla að
þegja ekki yfir misrétti sem þið
vitið um. Starfskonur Kvennalist-
ans í Reykjavík eru tilbúnar að
taka við ábendingum og koma
þeim áfram til hóps kvenna sem
er r-eiðubúinn að styðja fólk í
þeirra baráttu gegn misrétti.
Sigurborg Daðadóttir,
kvennalistakona.
Jafnrétti ekki bara fyrir konur:
Vildi ekki karlmann í vinnu
Karlavinur hringdi og sagði
sögu af heimsókn sinni og vin-
konu sinnar á barnaheimili eitt á
Akureyri vegna auglýsingar um
að þar væru tvær lausar stöður.
„Við fórum til þess að sækja um
aðra þessa stöðu, ekki fyrir okk-
ur sjálfar heldur fyrir manninn
hennar. Konan sem tók á móti
okkur tók vel í þetta og sagði
góðar líkur á að starfið fengist,
þangað til hún heyrði að við vor-
um ekki að sækja um heldur væri
„hætta á“ að hún fengi karlmann
í starfið. Þá skyndilega var hún
búin að ráða í aðra stöðuna og
var að fara að hringja út af hinni.
Þetta finnst mér ansi gróft því þó
að mér finnist kvennabaráttan
hafa átt fullan rétt á sér, þá finnst
mér að alveg eins og við réðumst
inn í karlaheiminn þá eigi karl-
arnir að fá að ráðast inn í
kvennaheiminn. Maður konunn-
ar er öryrki og má ekki vinna erf-
ið störf en um líkamlega erfið
störf er ekki að ræða á barna-
heimilum, það veit ég af eigin
reynslu. Konan sem við ræddum
við vissi auk þess ekkert af þess-
ari fötlun fyrr en eftir að hún
hafði breytt um afstöðu. Hún
klykkti svo út með því að segja
að hún hefði aldrei á sínum
tuttugu ára starfsferli ráðið
karlmann í vinnu. Mér finnst rétt
að fólk viti af því að svona dæmi
finnast líka,“ sagði konan.
Leiðin Mývatnsveit - Egilsstaðir:
Hvergi hægt að fá morgunkaffi
Vegfarandi hringdi
„Ég lýsi furðu minni á því að ekki
skuli vera hægt að fá sér kaffi-
sopa á allri leiðinni Mývatnssveit-
Egilsstaðir.
Ég lagði af stað um kl. átta frá
Reynihlíð áleiðis til Egilsstaða og
hafði hug á því að fá mér morg-
unkaffi. Það kom hins vcgar í Ijós
að allar dyr á algengum áfanga-
stað á leiðinni, Grímsstöðum á
Fjöllum, voru læstar.
Að fara þessa leið er eins og
hverfa hundrað ár aftur í tímann
og því full ástæða til að bæta úr
þessu ástandi."
m
FISKVINNSLUDEILDIN
DALVÍK
Sjávarútvegsdeildin
á Dalvík/V.M.A.
STELPU R-strákar!
Langar ykkur ekki til að verða verkstjórar eða
jafnvel frystihússtjórar?
Fyrsta skrefið í þá átt er nám hjá okkur.
Getum enn bætt við nemum í fiskvinnsludeild.
Ódýr heimavist á staðnum.
Uppl. í síma 61380, 61083 og á kvöldin í síma
61085.
AKUREYRARBÆR
Mánudaginn 3. september n.k. hefst sala á
skuldabréfum fyrir Akureyrarbæ.
Bréfin endurgreiðast með einni at'borgun eftir
4, 5, 6 eða 7 ár.
Þau eru í 100 þús. kr. einingum og eru seld
miðað við 7,5% ársávöxtun.
Sölugengi veröbréfa þann 29. ágúst
Einingabréf 1 5.059,-
Einingabréf 2 ............ 2.752,-
Einingabréf 3 ............ 3.333,-
Skammtímabréf ............ 1,707-
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Simi 96-24700
Gódar veislur
enda vel!
Eftir einn -ei aki neinn
u
UMFERÐAR
RÁÐ