Dagur - 29.08.1990, Page 9
OSSr Íííugs .65 'iugebuíHvdiM - RUöACi -- s
Miðvikudagur 29. ágúst 1990 - DAGUR - 9
A-'
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Fimmtudagur 30. ágúst
17.50 Syrpan (19).
18.20 Ungmennafélagið (19).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismærin (144).
19.20 Benny Hill.
19.50 Dick Tracy.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Skuggsjá.
Kvikmyndaþáttur í umsjón Hilmars Odds-
sonar.
20.50 Matlock (2).
Bandarískur sakamálamyndaflokkur.
21.35 íþróttasyrpa.
22.00 Sjö bræður (4).
(Seitsemán veljestá.)
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Sjónvarpið
Föstudagur 31. ágúst
17.50 Fjörkálfar (19).
(Alvin and the Chipmunks.)
18.20 Hraðboðar (2).
(Streetwise.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.20 Leyniskjöl Piglets.
19.50 Dick Tracy.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Eddie Skoller.
Gestir hans að þessu sinni eru dúettinn
Dolhe de Lux og söngvarinn Loa
Falkman.
21.35 Mannaveiðar.
(The Deadly Recruits.)
Bresk spennumynd, sú þriðja sem Sjón-
varpið sýnir með söguhetjunni dr. David
Audley. Að þessu sinni rannsakar hann
dularfullt hvarf tveggja námsmanna.
Aðalhlutverk: Terence Stamp og Carmen
du Sautoy.
23.10 Gangbryggjan.
(Boardwalk)
Bandarísk mynd frá árinu 1979.
í myndinni segir frá samheldnum eldri
hjónum og baráttu þeirra við glæpalýð
sem ógnar varnarlausu fólki í gamla
hverfinu þeirra.
Aðalhlutverk: Ruth Gordon, Lee Stras-
berg og Janet Leigh.
00.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Laugardagur 1. september
14.00 íþróttaþátturinn.
í þættinum verður bein útsending frá
fyrstu deild karla á íslandsmótinu í knatt-
spyrnu og einnig frá Evrópumeistaramót-
inu í frjálsum íþróttum í Split í Júgóslavíu.
18.00 Skytturnar þrjár (20).
18.25 Ævintýraheimur prúðuleikaranna
(6).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Ævintýraheimur prúðuleikaranna
framhald.
19.30 Hringsjá.
20.10 Fólkið í landinu.
Lifir og hrærist í jarðhita.
Sigrún Stefánsdóttir ræðir við Ingvar Birgi
Friðleifsson jarðfræðing og forstöðumann
Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna.
20.30 Lottó.
20.40 Ökuþór (3).
(Home James.)
21.10 Leiðin til frama.
(How to Succeed in Business Without
Really.)
Bandarísk gamanmynd frá árinu 1967.
Metnaðargjarn gluggaþvottamaður beitir
ýmsum brögðum til aðkoam sér áfram í
lífinu.
Aðalhlutverk: Robert Morse, Michele Lee
og Rydy Vallee.
Myndin var áður sýnd 14. ágúst 1976.
23.10 Börn segja ekki frá.
(Kids Don’t Tell.)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1985.
Þar segir frá manni sem vinnur við gerð
heimildamyndar um kynferðislega mis-
notkun barna en samband hans við fjöl-
skyldu sína og skoðanir hans á málefninu
breytast meðan á því stendur.
Aðalhlutverk: Michael Ontkean, JoBeth
Williams og Leo Rossi.
00.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 2. september
16.35 Óskar Gíslason ljósmyndari.
Óskar Gíslason var einn af brautryðjend-
unum í íslenskri kvikmyndagerð en hann
lést nýlega. Árið 1976 var gerð heimilda-
mynd um Óskar og er það fyrri hluti
hennar sem nú verður endursýndur.
17.40 Sunnudagshugvekja.
Dýralæknar mótmæla
bráðabirgðalögumun
„Aðalfundur Dýralæknafélags
íslands haldinn í Stykkishólmi
25. ágúst 1990mótmælirharðlega
Ný lög fyrir
fiðlu og píanó
- gefin út
Nýlega eru út komin fyrir fiðlu og
píanó TVÖ LÖG eftir Hallgrím
Helgason: í lunda landi (Prófast-
ur dansar) og Vinar minni
(Elegia).
Lögin eru tileinkuð Bprge
Hilfred, konsertmeistara við
Sönderjydsk Symfoniorkester í
Sönderborg; en hann frumflutti
þau, ásamt höfundi, árið 1950 í
svissneska ríkisútvarpinu (Ber-
omúnster, Studio Zúrich). Síðar
hefir hann spilað þau á konsert-
um.
Fiðlufingrasetning og strok-
háttur er eftir kanadíska fiðlu-
leikarann dr. Howard Leyton-
Brown, sem einnig hefir flutt
lögin, bæði á konsertum og í
útvarpi.
Aðalútsalan er hjá forlaginu
Örn & Örlygur, Síðumúla 11,
108 Reykjavík.
Leikklúbburinn Saga:
þeim gerræðislegu vinnubrögð-
um ríkisstjórnarinnar, að setja
bráðabirgðalög á eigin samning
við BHMR og þvert ofan í niður-
stöður Félagsdóms,“ segir í
ályktun aðalfundar Dýralækna-
félags íslands, sem haldinn var sl.
laugardag.
í ályktuninni segir ennfremur:
„Bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar lýsa fyrirlitningu á menntun
og störfum háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna.
Jafnframt er hér um að ræða
lítilsvirðingu á dómskerfinu og
lýðræðislegum leikreglum þjóð-
félagsins.
Dýralæknar í ríkisþjónustu
áskilja sér allan rétt, til að beita
löglegum aðferðum til að ná fram
þeim kjörum, sem þeir telja að
hæfi þeim mikilvægu störfum sem
þeir gegna í þjóðfélaginu."
Gerum ekki margt í einu
Akstur krefst fullkominnar
einbeitingar!
RÁÐ
17.50 Felix og vinir hans (3).
17.55 Rökkursögur (1).
(Skymningssagor)
18.20 Ungmennafélagið (19).
í Surtshelli.
Umsjón Valgeir Guðjónsson.
18.45 Felix og vinir hans (4).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Vistaskipti (13).
19.30 Kastljós.
20.30 Reykjavíkurhöfn.
Ný heimildamynd þar sem rakin er fjöl-
skrúðug saga þessarar langstærstu vöru-
flutningahafnar landsins.
21.30 Á fertugsaldri (12).
22.15 Leiksoppur örlaganna.
(Master of the Marionettes.)
Nýlegt breskt sjónvarpsleikrit. Vegfar-
andi kemur til hjálpar manni sem orðið
hefur fyrir líkamsárás og bjargar lífi hans.
Við rannsókn snúast málin hins vegar
þannig að bjargvætturinn er grunaður um
að hafa framið ódæðið og þarf að sanna
sakleysi sitt.
Aðalhlutverk: Kenneth Cranham, Kenneth
Colley, Carol Drinkwater og John
Duttine.
23.30 Listaalmanakið.
(Konstalmanackan 1990.)
23.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Fimmtudagur 30. ágúst
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Morgunstund með Erlu.
19.19 19.19.
20.30 Sport.
21.25 Aftur til Eden.
(Return to Eden.)
22.15 Quadrophenia.#
(Quadrophenia).
Kvikmynd þessi er byggð á samnefndri
hljómplötu hljómsveitarinnar The Who.
Samt er ekki hægt að segja að um eigin-
lega tónlistarmynd sé að ræða því að
söguþráðurinn um baráttu tveggja hópa
unglinga, svokallaðra Moddara og Rokk-
ara hefur að miklu leyti yfirhöndina. Það
er óneitanlega kraftur í þessari mynd sem
og í tónlistinni.
Bönnuð börnum.
00.05 Réttur fólksins.
(Right of the People).
Bandarískur saksóknari leggur sig allan
fram í baráttu fyrir nýrri löggjöf um skot-
vopn eftir að eiginkona hans og dóttir eru
myrtar í fólskulegri skotárás.
Aðalhlutverk: Michael Ontkean, Jane
Kaczmarek og Billy Dee Williams.
Bönnuð börnum.
01.40 Dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 31. ágúst
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Emelía.
17.35 Jakari.
17.40 Zorro.
18.05 Hendersonkrakkarnir.
18.30 Bylmingur.
19.19 19.19
20.30 Ferðast um tímann.
(Quantum Leap.)
21.20 Sumarleyfið mikla.#
(The Great outdoors).
Sumarleyfi John Candy og fjölskyldu fer
heldur betur út um þúfur þegar mágur
hans, leikinn af Dan Aykroyd, skýtur upp
kollinum ásamt konu sinni. Þau eru held-
ur betur óþolandi enda borgarbörn hin
verstu og grobbhænsn.
Aðalhlutverk: Dan Aykroyd, John Candy
anna. Þær leggja á ráðin um að ræna
23.50 í ljósaskiptunum.
(Twilight Zone).
Magnaður þáttur.
23.15 Sniglarnir snúa aftur.#
(Return of the Rebels).
Lögregluyfirvöld standa ráðþrota gegn
ribbaldalýð sem lagtf hefur undir sig
tjaldstæði í einkaeign. Eigandi tjald-
stæðisins deyr þó ekki ráðalaus því hann
fær í lið með sér mótorhjólariddara sem
reynast honum betri en engir.
Aðalhlutverk: Barbara Eden, Patrick
Swayze og Don Murray.
00.50 Jógúrt og félagar.
(Spaceballs the Movie).
Frábær gamanmynd úr smiðju Mel
Brooks þar sem gert er góðlátlegt grín að
geimmyndum. Stjörnustríðsþrenning
George Lucas er miskunnarlaust tætt í
sundur lið fyrir lið í meðförum háðfugls-
ins. Þetta er mynd sem enginn aðdáandi
góðra ærslaleikja ætti að láta fram hjá sér
fara.
Aðalhlutverk: John Candy, Mel Brooks
og Rick Moranis auk þes sem Joan Rivers
ljáir vélkvendi rödd sína.
02.25 Dagskrárlok.
AKUREYRARB/ER
Starf ritara
við Tónlistarskóla Akureyrar
Laus er til umsóknar hálf staða ritara við Tón-
listarskóla Akureyrar.
Umsóknarfrestur er til 7. september n.k.
Nánari upplýsingar í Tónlistarskólanum í síma
21788, hjá skólafulltrúa í síma 27245 og hjá
starfsmannadeild í síma 21000.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannadeild.
Starfsmannastjóri.
Óskum eftir að ráða
starfsfólk
í verksmiðju okkar.
Nánari uppl. á staðnum.
ISPAN HF.
Norðurgötu 55
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Sjúkraliðar
Viljum ráða sjúkraliða í afleysingar og fastar stöður í
Seli, sem er hjúkrunardeild fyrir aldraða. í Seli er
einnig veitt þjónusta á sviði dagvistunar og hvíldar-
innlagna. Á deildinni er:
- Skipulögð fræðsla í umönnun og hjúkrun aldr-
aðra.
- Verkleg tilsögn sjúkraliðanema og nema í hjúkr-
unarfræðum, í hjúkrun aldraðra.
Nánari upplýsingar gefa Ólína Torfadóttir, hjúkrun-
arforstjóri í síma 96-22100 - 270 og Antonía Lýðs-.
dóttir, deildarstjóri í síma 96-22100 - 291.
it
Maðurinn minn og faðir,
JÓHANN BERGMANN BRYNJÓLFSSON,
lést 26. ágúst s.l. aö Dvalarheimilinu Hlíð.
Ester Jónsdóttir Thorlasíus,
Guðrún Jóhannsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR HELGASON,
f.v. rafmagnseftirlitsmaður,
Brekkugötu 39, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 31. ágúst
kl. 13.30.
Gréta Sigurðardóttir, Aðalgeir Aðalsteinsson,
Svanbjörn Sigurðsson, Margareta Sigurðsson
og barnabörn.
Aðalfimdur
Aðalfundur Leikklúbbsins Sögu
verður haldinn í Dynheimum
fimmtudaginn 30. ágúst næst-
komandi kl. 20.00. Þá verður
kosin ný stjórn leikklúbbsins og
rætt um starfsemi hans á kom-
andi vetri.
Leikklúbburinn Saga er ætlað-
ur unglingum á aldrinum 13-19
ára. Við hvetjum gamla félaga og
annað ungt leiklistaráhugafólk til
að mæta.
Stjórn Leikklúbbsins Sögu
Hvammshlíðarskóli
Vistunarfjölskylda
óskast
fyrir 13 ára dreng úr Svarfaðardal sem stundar
nám í Hvammshlíðarskóla á Akureyri.
Um er að ræða vistun frá mánudegi til föstudags
skólaárið 1990-1991.
Nánari uppl. veitir Halldóra Haraldsdóttir skólastjóri í
síma 25469.
Útför eiginmanns míns, sonar, föður, tengdaföður og afa,
AÐALBJARNAR GUNNLAUGSSONAR,
kennara,
Lundi, Öxarfirði,
fer fram frá Skinnastaðarkirkju laugardaginn 1. september kl.
14.00.
Erla Óskarsdóttir,
Guðbjörg Magnúsdóttir,
Steinunn Aðalbjarnardóttir, Hannes Garðarsson,
Gunnlaugur Aðalbjarnarson,
Huld Aðalbjarnardóttir, Jóhann R. Pálsson,
Óskar Aðalbjarnarson,
Þröstur Aðalbjarnarson,
Auður Aðalbjarnardóttir,
og Aðalbjörn Hannesson.