Dagur - 20.09.1990, Síða 4

Dagur - 20.09.1990, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 20. september 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (fþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASlMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Fjarvinnslustofiir - atvinna á landsbyggðinni Fyrir nokkru undirritaði viðskiptaráðherra samning við fjarvinnslustofuna Orðtak hf. á Hvammstanga um tölvu- skráningu Hlutafélagaskrár. Tölvuskráningin er fyrsta stóra verkefnið sem Orðtak hf. fær til að leysa af hendi en ýmis smærri verkefni hafa verið unnin hjá stofunni frá því hún tók til starfa á síðastliðnum vetri. Fjarvinnslustofur eru vinnustaðir sem byggjast á tölvunotkun og tengingu í gegnum gagnanet við aðrar stofnanir og fyrirtæki. Á þann hátt geta starfsmenn fjarvinnslustofa unnið að margvíslegum verkefnum þótt þeir séu staðsettir víðs- fjarri þeim sem unnið er fyrir. Meðal verkefna sem henta fjarvinnslustofum er hvers- konar bókhaldsvinna, skráning upplýsinga, þýðingar og útgáfustarfsemi svo eitthvað sé nefnt. Steingrímur Stein- þórsson, framkvæmdastjóri Orðtaks, sagði í blaðaviðtali eftir að samningar höfðu tekist um tölvuskráningu Hluta- félagaskrárinnar að þeir hyggðust taka að sér margvísleg verkefni í framtíðinni. Hann nefndi meðal annars útgáfu fréttabréfa, kynningarbæklinga og þýðingar. Þá gat hann einnig um að ætlunin væri að koma af stað námskeiðs- haldi fyrir starfsfólk og hluthafa Orðtaks. Á þeim nám- skeiðum yrði til að byrja með farið yfir ýmiss konar grunn- atriði varðandi tölvutækni svo sem stýrikerfi og einstak- an hugbúnað. Starfsemi fjarvinnslustofa krefst í mörgum tilfellum þekkingar og starfsþjálfunar sem ekki er að nægilega miklu leyti fyrir hendi í mörgum byggðarlögum. Einkum á sviði tölvuvinnslu. Breytingar á atvinnuháttum krefjast ætíð nýrrar kunnáttu og verkþjálfunar. íslendingar eru að öllu jöfnu námfúsir og víða leynist fólk sem skort hefur tækifæri til að afla sér þekkingar. Námskeið og önnur kennslustarfsemi er því nauðsynleg. Aðstaða til slíkra hluta er einnig fyrir hendi í mörgum glæsilegum skóla- byggingum á landsbyggðinni. Þrátt fyrir kennslustarf- semi þarf ekki að búast við að sú sérhæfing sem nauðsyn- leg er í einstökum tilvikum, verði til staðar í öllum byggð- arlögum. Kristján Björnsson, prestur og stjórnarformaður Orðtaks, sagði í samtali við leiðarahöfund á síðastliðnum vetri að þeir myndu ekki hika við að sækja sérfræðiþekk- ingu út fyrir byggðarlagið ef þess þyrfti með. Með tilkomu þeirrar tækni sem fjarvinnslustofur byggj- ast á, opnast möguleikar til nýrra atvinnutækifæra á landsbyggðinni. Fólk þarf ekki að vera staðsett nálægt verkkaupanda sínum eða vinnuveitanda. Vinnutími get- ur einnig verið að nokkru frjáls innan ákveðins skilatíma viðkomandi verkefna. Á þann hátt er oft unnt að tengja verkefni hjá fjarvinnslustofum við önnur möguleg störf í heimabyggð. Fjarvinnslustofur geta því skapað fólki möguleika til að búa þar sem það kýs. Þær geta auðveld- að fólki að nýta eignir og aðstöðu, sem það hefur komið sér upp og er ekki tilbúið til að yfirgefa þótt á móti blási í atvinnumálum. Steingrímur Steinþórsson sagði í fyrr- greindu blaðaviðtah að miðað við þær viðtökur sem stofn- un fyrirtækisins hafi fengið hjá íbúum í Vestur-Húna- vatnssýslu, megi álykta að þeir telji fjarvinnslustofuna góðan kost í atvinnumálum. Fjarvinnslustofur eru atvinnustarfsemi sem vert er að gefa gaum að á lands- byggðinni á næstunni. ÞI. á verðbréfamarkaði Hlutabréf 2. grein: Hlutabréf og skattlagning í fyrri grein fjallaði ég um nokkur atriði sem kaupendur hlutabréfa gætu haft til hliðsjónar við ákvörðun um hvaða hlutabréf þeir ættu að kaupa. f þessari grein er fjallað um þau skattalegu atriði sem snerta hlutabréfakaup. Þá sérstaklega þau lög sem sett voru á Alþingi í maí sl., en þau gera hlutabréfakaup enn álitlegri kost en áður. Hlutabréfakaup veita skattfrádrátt Þeir sem keyptu hlutabréf á síð- asta ári gátu fengið skattfrádrátt vegna kaupanna upp að vissu rnarki. Þannig gat einstaklingur dregið kaupverð hlutabréfa, allt að 115.000 kr. (hjón um 230.000) frá tekjuskatts- og útsvarsstofni og lækkað þar með skattana um 43.400 (hjón 86.800). Þessi skatt- frádráttur er bundinn því skilyrði, að hlutafélagið hafi fengið stað- festingu ríkisskattstjóra á árinu 1989. Öll hlutafélög sem skráð eru á verðbréfamarkaði í dag, hafa fengið þessa staðfestingu. Ef viðkomandi hefur selt hlutabréf síðastliðin fimm ár, þá fær hann Jón Hallur Pétursson skrifar. skattfrádrátt einungis vegna þeirrar upphæðar sem er hærri en söluvero seldra bréfa. Kaupverð hlutabréfa umfram 115 þús. kr. (230 þús. fyrir hjón) getur nýst á næstu árum. Hver hámarksupp- hæðin verður sem veitir skattfrá- drátt fyrir þetta ár er ekki vitað enn, en ætla má að hún hækki nokkuð. Þetta ákvæði tryggir kaupendum hlutabréfa strax nokkuð örugga ávöxtun af hluta- bréfakaupum. Eignaskattur Öll hlutabréf eru undanþegin eignaskatti upp að vissu marki. enda sé hlutabréfaeignin hærri en skuldir. Þannig geta hlutabréf verið eignaskattsfrjáls upp að 1.080 þús. fyrir einstakling og 2.160.000 fyrir hjón. Hlutabréf eru talin til eignar á nafnvirði nema sýnt sé fram á að raunvirði þeirra sé lægra. Nafnverð þeirra hlutabréfa sem eru á markaði í nokkra daga er yfirleitt mun lægra en markaðsverð þeirra. Ardur Fenginn arður, vegna ársins 1989, af hlutabréfaeign er undan- þeginn tekjuskatti upp að vissu marki. Þannig cr fenginn arður upp að kr. 115 þús. hjá einstakl- ingi (230 þús. hjá hjónum) eða innan við 10% af nafnvirði hluta- bréfa undanþeginn tekjuskatti, hvort sem lægra reynist. í maí sl. var þetta mark hækkað úr 10% í 15%, sem auðveldar fyrirtækjum að greiða eigendum sínum hærri arð en ella. Söluhagnaður Söluhagnaður vegna hlutabréfa sem keypt voru á síðasta ári eða fyrr er skattskyldur. Söluhagnað- ur er reiknaður sem mismunur á kaup- og söluverði hlutabréf- anna. Kaupverðið getur verið reiknað með tvennum hætti, eftir því hvað hentar skattgreiðandan- um betur; a) samanlögðu nafnverði hlutabréfanna og þeirra jöfn- unarhlutabréfa sem eigandinn fékk úthlutað eða heimilt hefði verið að úthluta. b) Upphaflegt kaupverð hlutabréfanna fram- reiknað með verðbreytingar- stuðli skattalaga frá kaupdegi til söludags. Frá söluhagnaði má draga sölutap. í maí sl. var samþykkt á Alþingi að söluhagnaður af hlutabréfum fyrir upphæð allt að 300 þús. kr. verði ekki skatt- skyldur eftir 4 ára eignarhalds- tíma. Þetta á þó einungis við um þá sem kaupa hlutabréf á þessu ári eða síðar. Þannig kemur þetta atriði fyrst til framkvæmda 1994. Aö lokum Af þessu má sjá að með skatt- afslætti vegna hlutabréfakaupa og öðrum skattaívilnunum vegna tekna af hlutabréfaeign vilja stjórnvöld stuðla að því að almenningur í landinu leggi ein- hvern hluta af sparnaði sínum í kaup á hlutabréfum. Þó hefðu síðustu breytingar á lögum um meðferð söluhagnaðar af hluta- bréfum mátt ganga nokkuð lengra. Ný tækni hjá VISA íslandi: Samskíptabúnaður tengdur vegna viðskipta með erlend- um kortum hér á landi Fyrir helgina var tengdur hjá VISA íslandi, samskiptabún- aður sem gerir kaupmönnum kleift að leita beint frá búðar- borði, úttektarheimilda með sjálfvirkum hætti vegna við- skipta með erlendum Visa- kortum hérlendis. Enda þátt tölvuboð séu send um gervihnött til London og það- an út um heim og til baka aftur, er svartíminn einungis 6-7 sekúnd- ur, aðeins einni sekúndu lakari en hér heima. Hin nýja þjónustutækni kemur þeim kaupmönnum og þjónustu- stöðum til góða sem hafa „Posum“ yfir að ráða, þ.e. sjálf- virkum afgreiðslutækjum fyrir greiðslukort, litlum tölvutengd- um útstöðvum sem koma í stað handþrykkivéla. í þeim hópi eru m.a. Fríhöfnin á Keflavíkurflug- velli, ýmsar tísku- og minjagripa- verslanir og veitingastaðir þar sem erlendir ferðamenn eru tíðir gestir. Alls hafa verið sett upp og tengd um 150 tæki þessarar gerðar, þar á meðal í ýmsum stórmörkuðum eins og Hagkaupi og Fjarðarkaupi. Mjög góð reynsla er af þessu kerfi, sem flutti í sl. mánuði hátt í 100 þús- und færslur, sem eru um 10% af þeim greiðslukortanótum sem til verða á mánuði hverjum hér á landi og ella hefði þurft að hand- skrifa og handskrá. Vöruskiptin verða auk þess mun þjálli og öruggari. Fullt samkomulag er á milli kortafyrirtækjanna hér á landi um samnýtingu þessara tækja og búnaðar, bæði þeim og kaup- mönnum til hagsbóta.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.