Dagur - 20.09.1990, Qupperneq 5
Fimmtudagur 20. september 1990 - DAGUR - 5
fréttir
Vöruþróun í fyrirtækjum:
„Verkefnið mun skila öflugu
atvinnulífi á landsbyggðinni“
- segir í bréfi Ingvars Kristinssonar, forstöðumanns
Rekstrartæknisviðs Iðntæknistofnunar fslands
Tillögur liggja fyrir, hjá Iðn-
þróunarielagi Eyjafjarðar hf.
frá Iðntæknistofnun íslands,
hvernig vinna megi að vöru-
þróun í fyrirtækjum á lands-
byggðinni. „Þetta verkefni er
tilkomið að frumkvæði iðnað-
arráðgjafanna. Eilífðarverk-
efni þeirra er að leita leiða til
eflingar atvinnulífs á sínum
svæðum og er vöruþróun ein
leið af mörgum að því marki.
Að styrkja þau fyrirtæki sem
fyrir eru, þannig að þau skili
hagnaði, mun skila öflugu
atvinnulífi á landsbyggðinni,
þegar til lengri tíma er litið,“
segir í bréfi Ingvars Kristins-
sonar, forstöðumanns Rekstr-
artæknisviðs hjá Iðntækni-
stofnun Islands.
Að sögn Þorleifs Þórs Jónsson-
ar hjá Iðnþróunarfélagi Eyja-
fjarðar hf. er verið að athuga
þrjú fyrirtæki sem hugsanlega
þátttakendur í þessu vöruþróun-
arverkefni, en það eru fyrirtækin
Sjöfn, Kjötiðnaðarstöð KEA og
Linda hf. á Akureyri en fleiri
gætu bæst í hópinn.
lðntæknistofnun hefur á
undanförnum árum unnið að
vöruþróunarverkefnum í mörg-
um fyrirtækjum, bæði úti á lands-
byggðinni og á höfuðborgarsvæð-
inu. Við þau verkefni hefur Iðn-
tæknistofnun útfært vinnuaðferð-
ir, sem skila árangri. Það er sú
Vísitala
byggingarkostnaðar:
Hækkaði
um 0,2%
milli mánaða
Hagstofan hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan scptembcr
1990. Reyndist hún vera 172,5
stig eða 0,2% hærri en í ágúst
(júní 1987 = 100).
Þessi vísitala gildir fyrir októ-
ber 1990. Samsvarandi vísitala
miðuð við eldri grunn (desember
1982 = 100) er 552 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað unt 12,2%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 0,4% og samsvarar það 1,7%
árshækkun.
Húsaleiga
óbreytt
fram að
áramótum
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði, sem sam-
kvæmt samningum fylgir vísi-
tölu húsnæðiskostnaðar eða
breytingum meðallauna, skal
vera óbreytt fram að áramót-
um.
Þetta þýðir að leiga í október,
nóvember og desember, skal
vera óbreytt frá því sem hún er í
september 1990.
vinnuaðferð sem ætlunin er að
beita í þessu samvinnuverkefni
iðnráðgjafanna og Iðntækni-
stofnunar. Þátttökufyrirtækin
þurfa að standast þær kröfur sern
Iðnlánasjóður gerir um láns-
hæfni.
I greinargerð Iðntæknistofnun-
ar sern ber yfirskriftina Vöru-
þróun, Iðnráðgjafar-Iðntækni-
stofnun stendur:,, Verkefnið: Að
aðstoða fyrirtæki á landsbyggð-
inni til þess að vinna markvisst og
skipulega að vöruþróun. Notaðar
verða þær vinnuaðferðir sern Iön-
tæknistofnun hefur útfært í sam-
bærilegum verkefnum, undanfar-
in ár. Markmiðið: Að hvert þátt-
tökufyrirtæki skili út á markað
nýrri eða endurbættri vöru innan
tveggja ára. Varan verður að
standast arðsemiskröfur fyrir-
tækisins. Framkvæmd: Verkefnið
er samstarfsverkefni iðnráðgjafa
og Iðntæknistofnunar. Á hverju
iðnráðgjafasvæði verða valin 2-3
fyrirtæki til þátttöku í verkefn-
inu. Þátttakendur í hverju verk-
efni fyrir sig verða 2-5 starfsmenn
fyrirtækisins, iðnráðgjafinn og
ráðgjafi frá Iðntæknistofnun,
sem verður verkefnisstjóri."
Nú þegar er verið að athuga
þrjú fyrirtæki á Akureyri, sem
áður er greint frá, og unnið verð-
ur út frá fimm nteginþrepum sem
cru: Undirbúningur, markaðs-
forsendur, þróun-frumgerða-
smíð, aðlögun framleiðslu og
márkaðssetning, en hversu
umfangsmikil þau verða, ræðst af
hverju verkcfni fyrir sig.
Meginhluti verkefnisins verður
unninn af starfsmönnum fyrir-
tækisins sjálfs, en verkefnisstjórn
verður í höndum Iöntæknistofn-
unar, sem einnig mun bera fjár-
hagslega ábyrgð á verkefninu. ój
TAKIÐ EFTIR
Fraiiskar kartöflur 750 gr 164 kr.
Pepsí í IV2 lítri 151 kr.
Pepsí í 2ja lítra 169 kr.
Hjörta, nýru, liíiir og
súpukjöt af irýslátruðu.
Kjörbud KEA
Brekkuaötu 1
HLUTABREFAUTBOÐ
Útgefandi:
Sæplast hf.
Nafnvirði hlutabréfa: 6.000.000 krónur.
Upphafssölugengi: 6,8.
Fyrsti söludagur:
Aðalsöluaðilar:
Upplýsingar:
Umsjón með útboði:
20. september 1990.
Kaupþing hf.,
Kringlunni 5,103 Reykjavík,
sími (91)68 90 80.
Kaupþing Norðurlands hf.,
Ráðhústorgi 1,600 Akureyri,
sími (96) 2 47 00.
Utboðslýsing liggur frammi
hjá aðalsöluaðilum.
KAUPÞING HF
I .öfl'ilt leriíbréfafynrtœki