Dagur - 20.09.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 20. september 1990
öllum
verslunum
Vömbílstjórafélagið Valur gagnrýnir vidskipti
bæjaryfirvalda og bæjarfyrirtækja við félagsmenn
- málefni bílstjóranna eru til sérstakrar athugunar hjá Akureyrarbæ
AKUREYRI
-JT.' - Skipagötu 12
Akureyri - Simi 21464
Kotttið við og cjerið ykkur dagamun
Bæjarráð Akureyrar bókaði 6.
þ.m. erindi frá Vörubílstjóra-
félaginu Val, en í bréfi til
bæjarytirvalda segja bílstjór-
arnir að ekki verði lengur hjá
því kumist að Ieita til þeirra
vegna erfiðleika í atvinnumál-
um. Talað er um að jafnvel um
hásumarið sé lítið að gera hjá
vörubílstjórunum, auk þess
sem viðskipti Akureyrarbæjar
við félag þeirra eru gagnrýnd.
Bæjarverkfræðingi hefur verið
falið að gera bæjarráði nánari
grein fyrir vörubifreiðanotkun
bæjarins og hvernig staðið er að
vali á þjónustuaðilum, eins og
segir í bókuninni. Sigurður J.
Sigurðsson, formaður bæjarráðs,
sagði á fundi í bæjarstjórn á
þriðjudag að þegar bæjarverk-
fræðingur myndi ljúka skoðun
þessara mála yrðu teknar upp
viðræður við fulltrúa vörubifreiða-
stjóranna.
Víkingur Guðmundsson, for-
maður Vals, skrifaði til bæjaryfir-
valda 24. ágúst: „Ekki verður
lengur hjá því koniist að leita til
bæjaryfirvalda vegna ástands í
atvinnumálum vörubílstjóra hér
á Akureyri og nágrenni. Nú er
svo ástatt að um hásumarið er
mikið atvinnuleysi hjá þeim og
virðist lítið framundan. Pegar svo
er komið leita menn orsaka og
reyna að gera sér grein fyrir
ástæðum.
Fjöldi atvinnubifreiðastjóra
hér er nokkuð í svipuðu hlutfalli
við t.d. Reykjavík og heildar-
fjöldinn hér svipaður og á
Dalvík.
Á Dalvík er næg atvinna fyrir
vörubíla núna og þeir stunda
vinnu hér á Akureyri að staðaldri
í þjónustu við skipafélögin með
aðstöðu hjá þeim. Dalvíkurbær
rekur ekki vörubíla og bæjaryfir-
völd gæta þess vel að bílar þaðan
flytji vörur að og frá þeirra bæ.
Þeir segja að það skifti höfuðmáli
að halda atvinnunni í bænum.
Bflstjórar á Akureyri eiga
enga vöru
Sama gildir um Þingeyinga. Bíl-
stjórar þaðan segja óhikað: „Við
eigum þessa vöru,“ þegar þeir
sækja vörur og flytja vörur til og
frá Akureyri. En bílstjórar á
Akureyri eiga enga vöru. Þeir
eiga enga malbikunarstöð og
ekkert malbik og þeir eiga ekkert
útgerðarfélag og engan fisk eða
þorskhausa. Akureyrarbær á
þetta og það hefur reynst auðvelt
fyrir aðkomubíla að fá flutning-
ana.
Starfsmenn Vegagerðar ríkis-
ins hafa haft orð á því við bíl-
stjóra hér að sveitarfélögin hér í
kring liggi á þeim að láta sína bíl-
stjóra hafa einhverja vinnu utan
útboða, en það hafi aldrei heyrsl
orö frá Akureyrarbæ í þá veru.
Vörubílstjórar á Akureyri óttast
mjög að það sama verði uppi á
teningnum ef álver verði reist við
Eyjafjörð, að aðkomubílar muni
hirða þá vinnu sem skapast,
vegna jress að þeir sem um fjalla
beri ekki hag þeirra fyrir brjósti.
Akureyrarbær rekur fjölda
vörubíla og er þannig í samkeppni
við atvinnubíla. Það er umdeilt
hvort það sé rétt bæði af hag-
kvæmniástæðum og vegna sam-
keppni um atvinnu. Má í því
Víkingur Guðmundsson varar við lélegu atvinnuástandi meðal bifreiðastjóra
á Akureyri og skorar á bæjaryfirvöld að gera úrbætur fyrir sitt leyti.
sambandi nefna flutning á efni til
malbikunar fyrir ríkið og ein-
staklinga. ^Bæjarstarfsmenn hafa
ekki viljað' skifta sér af flutningi á
malbiki úr bænum lengra til, þótt
þeir sjái um útlögn á því. En fyrir
2 tyúklmgabitar m/frönsíum sósn, saíati og gosgíasi fir. 599.-
OstSorgan m/frönskum, sósu, grctnmeú og gosgíasi kr. 499.-
Píta m/nautabuffi, frönskum og gosgíasi kr. 499.-
Djúpsteiktur fskur, Oríy, m/frönskum, sósu, safaú og gosgtasi kr. 515.-
FjöCsfay(dupafrkar.
3ja manna kr. 1.7004ra manna kr. 2.2005 manna kr. 2.800.
lVz fítri gos fytgir með. Hver skammtur! 2 kjúkíingabitar, franskar, sósa og saíat.
ATH! Öff böm innart 6 dra afdurs meðforetdmmfáfrían mat ef borðað er á staónum.
Böm jrd 6-10 dra borga Vz verð.
Vinsamtegast biðjið um tiíóoð tiC þess aðforðast misskiCning.
Flugmálastjórn, Hafnarsjóð o.fl.
geta þeir séð um allt. Vörubíl-
stjórum finnst að bærinn geti séð
um allt verkið og ráðið til þess þá
sem til þess þarf og tekið helming
af bílunum hér og hinn helming-
inn úr byggðarlagi kaupanda.
Nú fréttist af endurnýjun bíla-
flota bæjar- og Útgerðarfélags og
vörubílstjórar horfa fram á
algjört atvinnuhrun hjá sér.
Bæjaryfirvöld verða að taka
ákvörðun um hvort þeir vilji að
svo verði. Ef svo er ekki þurfa
þeir að veita vörubílstjórum sín-
um hliðstæðan stuðning og önnur
sveitarfélög gera. Það er betra
fyrir bæjarfélag að hafa vörubíl-
stjóra sem geta greitt gjöldin sín
en vörubílstjóra á atvinnuleysis-
bótum.“
Víkingur Guðmundsson tekur
fram, til að fyrirbyggja misskiln-
ing, að ekki sé verið að halla á
Dalvíkinga fyrir hvernig þeir
standi að þessum málum í sínum
heimabæ. Þvert á móti sé þar
skynsamlega staðið að hlutunum,
enda sjáist dæmi um að fyrirtæki
flytji frá Akureyri til Dalvíkur
þar sem þau sjái sér hag í því á
ýmsan hátt. EHB
iJUMFERÐAR
Allir þurfa að nota
ENDURSKINSMERKI!