Dagur - 20.09.1990, Side 7

Dagur - 20.09.1990, Side 7
Fimmtudagur 20. september 1990 - DAGUR - 7 Fjölbreytt starf Kórs Akureyrarkirkju í vetur Kór Akureyrarkirkju, undir stjórn Björns Steinars Sól- bergssonar organista Akureyr- arkirkju, er nú að hefja vetrar- starfíð. Viðfangsefni kórsins í vetur verða mörg og fjölbreytt að efni og umfangi. Auk hefð- bundins starfs við kirkjuna syngur kórinn við vígslu safn- aðarheimilis og á 50 ára afmæli kirkjunnar í nóvember. Að venju syngur kórinn tónlist tengda jólum í desember, en stærsta verkefnið í vetur verða tónleikar á kirkjulistaviku í lok apríl. Akureyrarkirkja stendur á tímamótum á þessu ári. Pann 17. nóvember nk. verður hún 50 ára og þessara tímamóta verður minnst þann dag og sunnudaginn 18. nóvember. Laugardaginn 17. nóvember verður formleg vígsla safnaðarheimilisins, en óhætt er að segja að það gjörbreyti safn- aðarstarfi við kirkjuna. Safnaðar- heimilið er ekki síst kærkomið fyrir Kór Akureyrarkirkju, því með tilkomu þess flytjast æfingar kórsins í sal í vesturhluta hússins. Salur þessi er sérstaklega hann- aður með hljómburð í huga og án efa á hann eftir að verða miðstöð tónlistarflutnings á Akureyri um ókomna tíma. Við vígslu safnað- arheimilisins mun Kór Akureyr- arkirkju flytja fjölbreytta tónlist. Flutt verða sígaunaljóð eftir Johannes Brahms og þjóðlaga- útsetningar eftir Jón Ásgeirsson og Hafliða Hallgrímsson. Sunnudaginn 18. nóvember verður sérstök afmælishátíðar- messa í Akureyrarkirkju. Jón Hlöðver Áskelsson hefur verið fenginn til að semja sérstaklega fyrir þetta tækifæri introitus að messunni. Kór Akureyrarkirkju syngur tónlist eftir Jakob Tryggva- son, fyrrverandi organista kirkj- unnar, og fl. Pá mun Margrét Bóasdóttir, sópran, syngja ein- söng og hópur blásara tekur þátt í messunni. í desember verður að venju efnt til aðventukvölds og þar flyt- ur Kór Akureyrarkirkju tónlist tengda aðventu og jóíum. Eftir áramót verða hafnar æfingar fyrir þátttöku kórsins í kirkjulistaviku í lok apríl, sem nú verður haldin í annað skipti. Fyrsta kirkjulistavikan, sem haldin var fyrir tveim árum, tókst rnjög vel og var fjölsótt. Á kirkju- listaviku í ár flytur Kór Akureyr- arkirkju Missa Brevis í C-dúr eft- ir Wolfgang Amadeus Mozart. Auk þess syngur kórinn aðra efnisskrá, sem verður byggð upp á verkum eftir Mendelsohn og Cesar Franck og íslensk tónskáld. Pá mun hluti Kórs Akureyrarkirkju taka þátt í upp- færslu Leikfélags Akureyrar á Skrúðsbóndanum, leikverki Björgvins Guðmundssonar, en í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. í Skrúðsbóndanum, sem verður færður upp í Akureyrar- kirkju undir leikstjórn Jóns St. Kristjánssonar, er tónlist fyrir blandaðan kór og karlakór. Að aflokinni kirkjulistaviku í vor er fyrirhuguð tónleikaferð Kórs Akureyrarkirkju til Akra- ness og Reykjavt'kur. Efnisskráin verður bæði af veraldlegum og trúarlegum toga. Kór Akureyrarkirkju hefur haft æfingaaðstöðu í kapellu kirkjunnar, en eins og áður segir flytur hann með æfingar í tónlist- arsal safnaðarheimilisins, eftir að það verður formlega tekið í notk- un í nóvember. Safnaðarheimilið gefur og þann möguleika að skipta kórnum upp á æfingum ef á þarf að haldá. Kór Akureyrarkirkju tekur þátt í messutn og guðsþjónustum í Akureyrarkirkju. Hann syngur allur við stærri athafnir, t.d. hátíðarguðsþjónustur, en til söngs við reglulegar messur á sunnudögum er kórnum skipt upp í þrjá smærri kóra, sem skiptast á að leiða messusöng. I vetur verða æfingar hjá Kór Akureyrarkirkju á þriðjudags- kvöldum í kapellu kirkjunnar og síðar í safnaðarheimili. Margrét Bóasdóttir, sópransöngkona, sér um raddþjálfun. Stefnt er að því að hafa 40-45 manns í kórnum í vetur og því er unnt að bæta við góðu söngfólki, einkum vantar þó í karlaraddir. Upplýsingar gefa Björn Steinar Sólbergsson, stjórnandi kórsins, í hs. 25642 og Lovísa Jónsdóttir, formaður kórsins, í hs. 24294. Hluti af Kór Akureyrarkirkju söng í ágúst sl. ásamt Kór Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur Missa Brevis eftir ungverska tónskáldið Kodály í Skálholti. Þessi mynd var tekin af félögum í Kór Akureyrarkirkju í Skálholti. |f| Sölufólk lHi óskast til að selja blað og merki Sjálfsbjargar laug- ardaginn 22. september. Komið að Bjargi neðri hæð kl. 10.00-12.00 fyrir hádegi. ★ Góö sölulaun. Nánari uppl. á skrifstofu félagsins í síma 26888, kl. 12.30-16.30. Akureyringar og nágrannar! Vinsamlega takið vel á móti sölufólki okkar og styðjið gott málefni. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Akureyri og nágrennis. MYNDLISTASKOLINN Á AKUREYRI Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri 3. október til 21. janúar. Barna- og unglinganámskeið Teiknun og málun. 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 6-8 ára. Tvisvar í viku. 4. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku. 5. fl. 9-10 ára. Einu sinni í viku. 6. fl. 11-12 ára: Einu sinni í viku. Málun og litameðferð fyrir unglinga. Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku. Framhaldsnámskeið. Einu sinni í viku. Kvöldnámskeið fyrir fullorðna Teiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Módelteiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Málun og litameðferð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Auglýsingagerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Skrift og leturgerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958. Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga. Skólastjóri. Fimmtudag: K.C, JOTIGS Föstudagog laugardag:K.C. JoiWS Og ChvÍS MolOTWy Laugardag: TÓTllÍStJrá 75m85. Upplifið unglingsárin aftur Bíóbarinn það nýjasta frá London og L.A. Sími 24199 Frí heimsendingarþjónusta Enginn aðgangseyrir

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.