Dagur - 20.09.1990, Blaðsíða 14

Dagur - 20.09.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 20. september 1990 Pústþjónusta Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðin sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri. Skemmtiklúbburinn Lrf og fjör Góðir félagar Frá tökustað hjá Höfða Cirkus Dansskemmtun veröur haldin í Bláhvammi, Skipagötu 14, 4. hæö, laugardaginn 22. sept. kl. 22.00-03.00. Húsiö opnað kl. 21.30. Hljómsveit Bigga Mar sér um fjörið. Mætum vel og stundvíslega og tökum meö okkur félagsskírteini. Þeir félagar sem ætla sér aö endurnýja skírteinin en eru ekki búnir aö því vinsamlegast hafiö samband við Möggu í síma 23286, Þórodd í síma 21620 og Hönnu í síma 21178 sem allra fyrst. Viö munum ekki endurnýja skírteini á skemmtunum. Þess vegna er nauðsynlegt að þiö hafið samband við okkur fyrir 22. sept. Stjórnin. Filmað í Skagafirði: Atriði í „Böm náttúrunnar“ tekið upp með aðstoð heimamanna Kvikmyndatökulið var statt í Skagafirði um síðustu helgi við tökur á atriði i myndinni „Börn náttúrunnar“ eftir þá Friðrik Þór Friðriksson og Einar Má Guðmundsson. M.a var upphafsatriði myndarinnar tekið upp í lítilli rétt, ekki langt frá bænum Höfða sem er skammt fyrir utan Hofsós. íslenska kvikmyndasamsteyp- an framleiðir myndina og fékk m.a. styrk úr Kvikmyndasjóði til verksins. Aðalhlutverkin eru í höndum Gísla Halldórssonar og Sigríðar Hagalín, en fjöldi ann- arra þekktra leikara er í mynd- inni og má þar nefna Egil Ólafs- son, Baldvin Halldórsson, Tinnu Gunnlaugsdóttur og Rúrik Har- aldsson. „Myndin fjallar um gamlan bónda sem bregður búi og fer til Reykjavíkur til að heimsækja dóttur sína, en lendir síðan á elli- heimili. Á því hittir hann æskuvinkonu sína og saman ákveða þau að vitja átthaganna,“ sagði Friðrik Þór. Að sögn Friðriks hafa tökur staðið yfir í fimm vikur, allt frá Reykjavík og vestur að Aðalvík á Ströndum og hafa veður verið misjöfn á þeim tíma. Hann sagðist reikna með mánuði til viðbótar í tökur og síðan yrðu þrír mánuðir í klipp- ingu og tveir í hljóðsetningu. „Meðgöngutíminn frá því að byrjað er að taka er svipaður og hefur oft verið líkt við það að ganga með barn. Við reiknum samt með að flýta henni eins og hægt er, en ef við náum ekki að frumsýna á þessum vetri má búast við frumsýningu haustið ’91. Áætlaður kostnaður er að rjúka upp úr öllu og er kominn í svona 50-60 milljónir,“ sagði Friðrik í slyddunni í Skagafirði á sl. hrollköldum mánudags- morgni, eftir að hópatriði með nokkrum skagfirskum kindum og leikurum ásamt Gísla hafði tekist fyrir rest. SBG Espanía sýnir í Íþrottahöllinni á Akureyri laugardag og sunnudag. Sýningar báða dagana kl. 15.00 og 20.00. Miðasala opin frá kl. 10.00 báða dagana. Loftfimleikar ★ Trúðar ★ Akrópatik Töfrabrögð ★ Jafvægislistir ★ Tarantúlla risakóngulær og margt, margt fleira. Skemmtun fyriralla fjölskylduna. —y „Allt fæst viðgert og endurbætt“ - segir Ingólfur Guðmundsson, yfirvélstjóri á Kaldbak EA 301 „Það sem hér vantar er gott Ijós, komdu niður skarfur,“ sagði viðgerðarmaðurinn um borð í Kaldbaki EA, hvar hann var að vinnu sinni undir stálgóifi í vélarúminu og Ijós- myndarinn fór niður með myndavél og flass. Viðhald á öllum þáttum tækja og vélbúnaðar er mjög gott sem og á öllu hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf., að sögn Ingólfs Guðmundssonar, yfirvélstjóra á Kaldbaki EA 301. „Nú er unnið að lagfæringum á olíuleiðslum, en inniveran er nýtt sem best er á kosið. Allt fæst við- gert og endurbætt sem beðið er um, enda er álagið á tækjum og mönnum mikið. Nú á eftir tökum við olíu og fyllum allt sem hægt er að fylla af þeirri ódýru, en ný olía er að koma til landsins á næstu dögum frá Hollandi á nýju og hærra verði. Atburðirnir við Persaflóa eru farnir að segja til sín. Já, að mörgu þarf að hyggja í stuttri inniveru,“ sagði Ingólfur, yfirvélstjóri. ój

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.