Dagur - 22.09.1990, Page 6

Dagur - 22.09.1990, Page 6
6 - DAGUR - Laugardagur 22. september 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON. RITSTJ.FULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON. UMSJ.MAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON. BLADAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (iþr.),_______ SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSM.: KRISTJÁN LOGASON. PRÓFARKAL.: SVAVAR OTTESEN. ÚTLITSH.: RÍKARÐUR B. JÓNASSON. AUGLÝSINGASTJ.: FRlMANN FRÍMANNSSON. DREIFINGARSTJ.: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791. FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL. PRENTUN: DAGSPRENT HF. Á síðasta áratug voru gefnar úr 13.238 bækur og bæklingar á íslandi eða 1203 rit að meðal- tali á ári. Þessar upplýsingar komu fram í erindi Hildar G. Eyþórsdóttur, bókasafnsfræð- ings á Landsbókasafni, á ráð- stefnu um bókfræði í nútíð og framtíð sem haldin var á veg- um Háskólans á Akureyri á fimmtudag og föstudag. Á ráð- stefnunni var fjallað um bók- fræðina sem fræðigrein. Á hvern hátt hún geti í framtíð- inni þjónað hlutverki sínu og miðlað upplýsingum um efni bóka og annarra ritverka á sem gleggstan og aðgengilegastan hátt. Undirstaða þess er áð víð- tækar upplýsingar liggi fyrir um efni bóka í aðgengilegu formi, sem síðan er hægt að miðla til notenda eftir þeim leiðum er tækni á hverjum tíma býður. í erindi Hildar G. Eyþórsdóttur kom einnig fram að miklar upplýsingar eru til um bækur hér á landi. Um fjöru- tíu bókaskrár eru til á vegum Landsbókasafns. Þær innihalda upplýsingar um allt prentað mál sem gefið hefur verið út á Bókaþjóðin íslandi frá árinu 1534 til nútím- ans auk mikils fróðleiks um erlend ritverk, bæði þýddra og á erlendum tungum. Bókin er elsta aðferð manna til að varðveita heimildir. Til- vera hennar er í raun jafngömul kunnáttunni að tjá hugsanir sínar í rituðu máli. Ljóst er að bókin mun áfram eiga erindi til manna. Þótt við lifum á tölvu- öld og tímum geisladiska er ekkert sem bendir til að hin aldagamla varðveisluaðferð ritmálsins verði leyst af hólmi. Ný tækni mun fremur auðvelda flutning og framsetningu þeirra upplýsinga, sem bækur hafa að geyma en taka við hlut- verki þeirra í einu og öllu. Yfirstandandi ár er tileinkað lestri. Með yfirskriftinni „ár læsis" er minnt á nauðsyn lestr- arkunnáttu í heiminum. Okkur íslendingum getur virst að þessi yfirskrift og áróður eigi lítið erindi til okkar. Víst erum og ár lœsis við betur á vegi stödd í þessu efni en margar aðrar þjóðir. í mörgum löndum hefur lestrar- kunnátta aldrei náð að verða eign allra. Menn telja sig einnig merkja að í sumum ríkjum hins vestræna heims fari lestrar- kunnáttu hrakandi og hafa verulegar áhyggjur af. Ástæður þess geta verið margvíslegar en trúlega eiga aðrar aðferðir til birtingar upplýsinga nokk- urn þátt í að fólk leggur ekki lengur á sig að læra ritmálið. Slíkt hlýtur að teljast mikil afturför á þeim tímum þegar áhersla er lögð á aukna mennt- un á sem flestum sviðum. Þótt íslendingar hafi ávallt verið bókhneigðir megum við ekki sofna á verðinum. Mynd- miðlar hafa aukin áhrif í okkar heimkynnum eins og annarra. Aðstæður margra barna í yfir- vinnusamfélaginu eru þess eðl- is að hætta er á misbresti hvað námsárangur varðar. Margir foreldrar hafa ekki sömu tök á því og fyrr að fylgjast með námi barna sinna. Óvíst er einnig hvort skólakerfið er nægilega búið undir að mæta þessari þróun. Ófullnægjandi húsnæðis- aðstæður og lág laun kennara setja skólastarfi grunnskól- anna, undirbúningsskólans, takmörk sem illa verður komist framhjá án þess að verja meira fé til skólastarfs. Þótt oft sé kvartað undan kostnaði við að halda samneyslunni uppi er víst að góð undirstöðumenntun þjóðarinnar á þess kost að skyla sér aftur í aukinni afurð af störfum fólks. íslendingar hafa alla tíð verið bókaþjóð. Þeir fluttu ritmál með sér til landsins og hafa síð- an þróað það gegnum aldir. Nú gefum við út bók eða prentað ritverk á um tvö hundruð íbúa að meðaltali á ári. Okkur ætti því að reynast auðvelt að nýta bókfræðilegar upplýsingar til að koma þekkingu á framfæri. Okkur ætti einnig að veitast létt að viðhalda almennu læsi í landinu ef við gætum þess að vaka á verðinum. ÞI Goðin í fýlu Þau fóru í fýlu blessuð goðin síðastliðið laugardags- kvöld. Nokkurn veginn á sama tíma og sveitar- stjórnarmennirnir á Suðurnesjum voru uppteknir af því að rífast út af skiptingu álgróðans fyrirsjáan- lega, eða ef til vill nýbyrjaðir að bergja á hinum hefðbundna lokakokkteil, tók jörðin allt í einu að skjálfa undir fótum þeirra. Mikil mildi að þeir skyldu ekki vera þarna staddir Atlansálarnir, því að öllum líkindum hefðu þeir flújð lafhræddir norður í Eyjafjörð, ef ekki lengra, þekkjandi ekki þessi býsn. Enda hefur markaðsskrifstofa iðnaðarráðu- neytisins og aðrir áhugamenn um álverið á Keilis- nesi vitanlega látið hjá líða að skýra ókunnugum útlendingunum frá því að jörð geti skolfið á Reykjanesi og eldfjöll jafnvel gosið, þótt það hafi auðvitað verið rækilega útskýrt fyrir þeim, að hafís geti lokað Eyjafirði í einhverjar vikur svona einu sinni á öld eða svo. Siðaskipti í rauninni getur maður nú varla láð blessuðum goð- unum þó að þau séu svolítið fúl þessa dagana. Að sönnu er varla hægt að tala um það að þjóðin sé öll sem einn maður að taka upp opinber trúarbrögð eins og menn gerðu þarna á Þingvöllum í þá gömlu, góðu daga, en þó verður að segjast að við erum nú að upplifa eins konar siðaskipti. Menn eru sem óðast að hætta að trúa á „sauðkindina og heilaga jómfrú“, og í staðinn er komin trúin á álbræðslur og evrópsk efnahagsbandalög. Eiginlega hefði mátt ætla að blessuð goðin myndu allt að því hlæja að þessum álfarsa öllum, svo fyndinn sem hann eiginlega er að mörgu leyti, þótt líklega sé samt öllu réttara að tala um einhvers konar harmskop í þessu sambandi. Það verður að teljast fáránlegt hvernig þeir, að því er ætla mætti hinir ábyrgustu menn, hafa leikið þann leik svo mánuðum skiptir; að draga heilu byggðarlögin og íbúa þeirra á asnaeyrunum, og ætla svo að kóróna fíflaganginn með því að bjóða þessum sömu byggð- arlögum náðarsamlegast að hjálpa þeim um ein- hverja aura svo eitthvað megi lækka rándýra hita- veitutaxtana. En þá er að sjálfsögðu búið að sjá til þess að fólkið á stöðunum yfirhöfuð hafi enga pen- inga til að greiða þessa lágu hitaveitureikninga með, það er að segja það fólk sem ekki er farið burt til flatra lendna hins nýja siðar. Samstöðulaust flangs Þeir voru margir sem á dögunum hneyksluðust mik- ið yfir meintu flangsi Reykjavíkurdætra utan í ítölsku dátana, flangs sem sjálfsagt má að einhverju leyti að minnsta kosti rekja til þeirrar bláköldu staðreyndar hversu óskaplega hallærislegir íslenskir karlmenn eru oft á tíðum, að minnsta kosti við fyrstu kynni. Hitt er svo minna talað um af þessum hinum sömu hneykslunarhellum, en það er það sem við getum kallað „fínt flangs" kaupsýslumanna, verktaka og jafnvel stjórnmálanna, utan í útlend- inga sem eiga dálítinn eyri, manna sem í dag mynda það sem við getum kallað „aðdáunarklúbb" Keil- isnessins. Og þessi klúbbur er fyrirfcrðarmikill í fjölmiðluin allra landsmanna um þessar mundir. Og einmitt þetta einkennir svo mjög öll okkar samskipti við útlendinga. Ómarkvisst flangs í veikri von um einhverja brauðmola af nægtaborðum alvörulandanna. Óg það sem verra er. Þetta flangs er algjörlega samstöðulaust. Dæmi um þetta er að íslensku sjónvarpsstöðvarnar skuli jafnvel yfir- bjóða hvor aðra á efniskaupstefnum erlendis, í stað þess að senda á þær sameiginlegar sendinefndir með hagsmuni beggja að leiðarljósi. Á hinn bóginn hafði svo Hugskotið spurnir af ferðamanni einum erlendum hér í sumar sem hló sig máttlausan að þeirri makalausu áráttu mörlandans að vera sífellt Reynir Antonsson skrifar að undirbjóða hver annan þegar um þjónustu við útlendinga er að ræða. Og svo tala menn vitaskuld fjálglega um ferðaþjónustu sem mikla atvinnugrein og arðvænlega. Vörðurnar Stundum getur þetta flangs tekið á sig dálítið skondnar myndir. Tökum sem dæmi þennan sér- kennilega misskilning, að það þurfi að setja vörður byggðar úr álverum á veginn sem flestir útlendingar aka um fyrstan hér á landi, þó svo að það tíðkist sumstaðar erlendis að velja stóriðjuverum stað meðfram flugvallarvegum. Vitanlega veit það hvert mannsbarn við Eyjafjörð að það voru ekki útlendingarnir sem völdu Keilisnesið, heldur var það valið einfaldlega vegna þess að of miklir pólitískir, og þó einkanlega efnahagslegir, hags- munir of voldugra manna voru í húfi til þess að önnur staðsetning kæmi nokkurn tímann til greina. En áhugamenn um álver eða aðra stóriðju við Eyjafjörð þurfa líklega ekkert að örvænta. Svo kaldhæðnislega kann meira að segja að fara, að álverið á Keilisnesinu flýti fyrir byggingu álvers eða einhvers enn meira mengunarvaldandi stóriðjuvers við fjörðinn. En ekki er nú víst að það verði Eyfirð- ingar sem við þær muni vinna. Öllu líklegra er að þar muni starfa láglaunavinnuafl, sennilega frá nýfrjálsri Austur-Evrópu, innan þessa Evrópu- bandalags sem við munum örugglega verða gengin í innan áratugar ef fer sem horfir. Þar munu menn framkvæma byggðastefnuna á eigin forsendum þar sem við gerðum það ekki á okkar. Álver mun rísa við hvern fjörð og hverja vík, enda spánverskir togarar löngu búnir að þurrka burt það sem eftir er af þorskinum. Sérvitringar sem enn kunna íslensku munu sitja í Reykjavík og lesa af disklingum sögurnar af því þegar goðin fóru í fýlu eitt laugar- dagskvöld í september fyrir löngu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.