Dagur - 28.09.1990, Side 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 28. september 1990
186. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
-—,^r
AKUREYRI
Skagaflörður:
Umferðarslysum fækkar
- meira um ölvunarakstur
Slysum sem tengjast umferðar-
óhöppum hefur fækkað mjög í
umdæmi lögreglunnar á Sauð-
árkróki það sem af er þessu ári
miðað við árið í fyrra. Hingað
til hafa aðeins níu manns slas-
ast í ár, en í fyrra á sama tíma
voru þeir orðnir tuttugu.
Kærum vegna ölvunaraksturs
Hólssandur enn ófær:
HólsQalla-
lömbum slátraö
á Húsavík
hefur aftur á móti fjölgað mikið
milli ára. Á sama tíma í fyrra
höfðu 29 einstaklingar verið
teknir, en í ár eru þeir orðnir 47.
Par af eru að vísu 19 tilfelli tengd
landsmóti hestamanna sem hald-
ið var á Vindheimamelum í
sumar.
Pegar síðan er litið á tölur um
tilkynnt umferðarohöpp er þó
nokkur aukning frá árinu í fyrra
og að sögn lögreglunnar telja þeir
hana stafa af því að menn háfi
lent illa út úr eigin skýrslugerð. Á
þessum tíma í fyrra hafði verið
tilkynnt um 46 umferðaróhöpp,
en í ár eru þau 61. Sú tala er
einnig mun stærri, ef litið er á
fækkun í slysum, en skylda ber til
að tilkynna umferðaróhapp ef
fólk slasast. SBG
Á kyrrum haustdegi við Búðará.
Fundur á vegum Háskólans á Akureyri um horfur í atvinnumálum:
Fyrirtæki kosti 2-3 nýjar stöður við Háskólann
Hætt er við að flest lömbin frá
Hólsfjöllum eigi eftir að bera
beinin í Sláturhúsi Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík í haust.
Hólssandur hefur verið ófær
síðan í áhlaupinu um daginn og
ekki hefur verið ákveðið hve-
nær vegurinn verður ruddur, á
meðan svo er er of langt að aka
fé frá Hólsfjöllum í sláturhús-
ið á Kópaskeri.
Bændur á Hólsfjöllum slátruðu
á Húsavík fyrr í vikunni og vænt-
anlega aftur á mánudag. Þó að
Hólssandur verði ekki opnaður er
það þó ekki nema 2-300 lömbum
fleira sem slátrað verður á Húsa-
vík, því til stóð að slátra hluta
fjárins frá Hólsfjöllum þar áður
en vegurinn lokaðist. í gær var
ekki ákveðið hvenær vegurinn
yfir Hóissand yrði ruddur en talið
var að víða væri mikill snjór á
honum.
Lokið var við að ryðja Öxar-
fjarðarheiði í gær en á henni var
töluvert mikill snjór á köflum. sér-
staklega austur á fjallinu. í gær
voru vegagerðarmenn að hefla
veginn í Öxarfirði og töldu þeir
veginn um Sléttu þokkalegan.
Vegagerðarmenn frá Húsavík
voru að hefla austur frá Gríms-
stöðum en undanfarna daga hafa
þeir verið að reyna að laga vegina
eftir áhlaupið, þá sem ekki er
búið að leggja bundið slitlag á og
eru því dýrir í rekstri. IM
í gær var haldinn fundur um
stööu og horfur í atvinnumál-
um á Norðurlandi á vegum
Háskólans á Akureyri. Grunn-
tónninn var spurningin um að
hvaða gagni Háskólinn á
Akureyri gæti orðið í fram-
þróun atvinnumála, á þeim
óvissutímum sem nú eru í
atvinnumálum á svæðinu.
Haraldur Bessason, háskóla-
rektor, gat þess við setningu
fundarins að hann ætti að vera
vettvangur eins konar „hugar-
flugs“ um leiðir í atvinnumálum.
Til fundarins var boðið stjórn-
endum fyrirtækja og öðrum sem
eru í mikium tengslum við at-
vinnulífið á einn eða annan hátt.
Framsöguerindi fluttu kennar-
Þrjátíu og fjórar fóstrur á dag-
heimilum og leikskólum á
Akureyri skrifuðu í þessari
viku undir bréf til bæjarráðs,
sem var afhent í gær. Efni
undirskriftalistans er á þá leið
ar við Háskólann. Smári Sigurðs-
son, lektor, fjallaði um innri og
ytri aðstæður fyrirtækja, sam-
keppni og þróun. Sigrún Magnús-
dóttir, bókavörður Háskólans,
kynnti upplýsingatækni og gagna-
banka sem nauðsynlegan þátt í
þróun og ákvarðanatöku fyrir
stjórnendur í atvinnurekstri.
Lilja Mósesdóttir, lektor í rekstr-
arhagfræði, fjallaði um atvinnu-
stig, samspil atvinnurekstrar og
vinnumarkaðar. Jón Þórðarson,
forstöðumaður sjávarútvegs-
deildar, kynnti upplýsingar frá
Byggðastofnun um atvinnuþróun
á landinu. Margrét Tómasdóttir,
forstöðumaður heilbrigðisdeild-
ar, fjallaði um heilsugæslu í þétt-
býli og dreifbýli og þörfina á nýj-
að styðja tillögu félagsmála-
ráðs um að leikskólahúsið á
Iðavöllum verði rifið, og nýtt
hús byggt í staðinn.
Fóstrurnar eru mótfallnar því
að gert verði við gamla Iðavalla-
um störfum á því sviði á lands-
byggðinni. Stefán G. Jónsson,
forstöðumaður rekstrardeildar
Háskólans, ræddi um áhrif stofn-
unarinnar í peningalegu og at-
vinnulegu tilliti fyrir Akureyri og
Eyj afj arðarsvæðið.
Eftir framsöguerindin voru
fjörugar og gagnlegar umræður.
Hólmsteinn Hólmsteinsson gerði
að tillögu sinni að fyrirtæki við
Eyjafjörð kostuðu sameiginlega
tvær til þrjár stöður við Háskól-
ann, og myndu þeir starfsmenn
vinna að sérstökum verkefnum í
þágu atvinnulífs á svæðinu. Var
gerður góður rómur að þessari
tillögu, ekki síst af háskólamönn-
húsið. Dagur hefur fregnað að
sjónarmið fóstranna sé að
skynsamlegast sé að rífa
umræddan leikskóla, þar sem
hann sé úr sér genginn og ónýtur.
Félagsmálaráð fjallaði á sínum
tíma um þetta mál, en dagvistar-
deildin heyrir undir það.
um að matvælaframleiðsla ætti
eftir að gegna mun þýðingar-
meira hlutverki í heiminum þeg-
ar fram líða stundir, og ætti
Norðurland bjarta framtíð á
þeim vettvangi. Bjartsýni virtist
ríkja um góða framtíðarmögu-
leika í atvinnulífinu, og lögðu
margir áherslu á eflingu Háskól-
ans, og samvinnu hans við fyrir-
tæki til að svo mætti verða. EHB
Húnaþing:
Lömbin góð
og flokkast vel
- 15,5 kg meðalvigt
Húnvetnsk lömb virðast vera
með besta móti í ár. Meðalvigt-
in hjá Sláturhúsi Kaupfélags V.-
Húnvetninga á Hvammstanga
þegar um 7000 lömbum hafði
verið slátrað var 15,5 kg og 15
kg hjá Sölufélagi A.-Húnvetn-
inga á Blönduósi. Lömbin
flokkast vel að mati manna,
sérstaklega á Hvammstanga.
Gísli Garðarsson, sláturhús-
stjóri á Blönduósi, sagði að
lömbin flokkuðust vel, en þó færi
töluvert í DIB, fituflokkinn.
um.
Fundarmenn voru sammála
34 fóstrur senda bæjarráði Akureyrar undirskriftalista:
Iðavellir rifiiir og nýtt hús byggt
Hreyfmg komin á gervigrasvallarmál á Akureyri:
Velli fimdinn staður fyrir 1. nóv.
Hreyfing er nú komin á
umræður um byggingu gervi-
grasvallar á Akureyri en nú I
vikunni skipaði íþrótta- og
tómstundaráð Akureyrarbæjar
nefnd sem skila á tillögum um
staðsetningu, uppbyggingu og
rekstur slíks vallar fyrir 1.
nóvember næstkomandi.
Nefndina munu skipa tveir
fulltrúar úr ráðinu en KA og
Þór munu eiga hvort sinn full-
trúa í nefndinni.
Gunnar Jónsson, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, segir
að samþykkt hafi verið tillaga
Þórarins Sveinssonar um þetta
efni þar sem segir að skipa skuli
nefnd sem skili „raunhæfum til-
lögum um gervigrasvöll fyrir 1.
nóvember," eins og segir í þess-
ari samþykkt.
Gunnar segist túlka það svo að
í þessari nefnd verði ákveðið
hvar gervigrasvelli verði valinn
staður í bænum, hvernig staðið
skuli að uppbyggingu hans og
rekstri. Starf nefndarinnar muni
byggjast á skýrslu sem gerð hefur
verið um mögulega staði fyrir
slíkan völl á Akureyri.
„Þetta gervigrasvallarmál var
ekki rætt mikið í íþróttaráði en
menn tóku mjög jákvætt í þetta
mál. Ég held að allir séu sammála
um nauðsyn þess að völlur sem
þessi komi upp en spurningin
snýst fyrst og fremst um forgang.
En með þessu munu línur í mál-
inu væntanlega skýrast mjög,“
segir Gunnar. JOH
Fóstrurnar benda á að ekkert
dagheimili er á stóru svæði í
bænum, þ.e. í allri byggðinni fyr-
ir neðan Mýrarveg. Fyrir utan
þetta vanti mjög tilfinnanlega
fleiri dagheimilispláss. Á Iðavöll-
um telja þær best að láta reisa
hús, sem væri bæði dagheimili og
leikskóli, skipt til helminga. Nýtt
hús sé forsenda þess að unnt
verði að tvískipta rekstrinum á
þennan hátt. „Þarna vantar dag-
heimilisaðstöðu, því hún er
hvorki fyrir hendi á Brekkunni, í
Innbænum né á Oddeyri. Sérhver
Akureyringur sem fylgist með
þessum málum sér að þetta er
það sem vantar," sagði ein fóstr-
an í samtali við Dag. EHB
„Þetta er heldur vænna en í
fyrra, þó er ekki alveg að marka
það vegna þess að ekki er kom-
inn alveg einn hringur á svæðinu.
Eftir jafnmörg lömb í fyrra var
meðalvigtin 14,3 kg, en það var
úr öðrum hreppum,“ sagði Gísli.
Á Hvammstanga er lógað bæði
hjá kaupfélaginu og Ferskum
afurðum. Einn daginn hjá slátur-
húsi kaupfélagsins fór meðalvigt-
in í 16,5 kg og voru það lömb af
Vatnsnesi og Vesturafrétt að
sögn Eggerts Levy.
Engar tölur voru til um meðal-
vigtina hjá Ferskum afurðum, þó
taldi sláturhússtjórinn að lömbin
væru heldur í betri kantinum.
SBG