Dagur - 28.09.1990, Side 9
Fösfudagur 28. sepfember 1990 - DAGUR - 9
Okkur langar til að minnast elsku
ömmu okkar, Guðrúnar Stefaníu
Steingrímsdóttur, eða ömmu á
Ásgarðsvegi eins og við systkinin
kölluðum hana. Það er ætíð erfitt
að horfast í augu við það að
persónur sem alltaf hafa verið
hluti af lífi manns séu nú horfnar
á braut. En minningin um ömmu
og þær mörgu góðu stundir sem
við áttum saman á Ásgarðsvegin-
um gera söknuðinn léttbærari.
Amma var lífsglöð og kær-
leiksrík kona sem þótti ákaflega
vænt um alla þá sem urðu á vegi
hennar. Þessir eiginleikar hennar
komu vel fram í þeirri ástúð og
umhyggju sem hún sýndi okkur
barnabörnunum og við komurn
mjög gjarnan í heimsókn til
hennar. Það var sama á hvaða
tíma sólarhringsins okkur bar að
garði, hún hafði alltaf tíma fyrir
okkur. Alltaf var heitt á könn-
unni í eldhúsinu við Búðarána og
ósjaldan gaukaði hún að okkur
súkkulaðimola í kveðjuskyni. En
yndislegast var þó að vera í návist
ömmu þegar góð tónlist heyrðist
í útvarpinu. Þá færðist yfir andlit
hennar mikið gleðibros og augun
ljómuðu. Svo fór hún að slá takt-
inn og syngja með af svo mikilli
innlifun að maður gat ekki annað
en hrifist með. Þannig kenndi
amma okkur að skynja tónlistina
sem kraft til að láta sér líða vel og
sjá björtu hliðarnar á lífinu - og
það er ómetanleg gjöf.
Elsku afi, pabbi, frændur og
frænkur, guð styrki ykkur í sorg-
inni.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem) ,
I
Árni, Magga, Silli
og Anna Rúna.
OLAFSFIRÐINGAR
Áætlunarflugið til Reykjavíkur hefst mánudaginn
1. október
MÁN. MIÐ. FÖS. ÓFJ-REK 10.35-11.35
MÁN. MIÐ. FÖS. REK-ÓFJ 12.00-13.50*
*UM AKUREYRI
fluqfélaq
norðurlands hf-
SÍMAR 62120 Á ÓLAFSFIRÐI, 22000 Á AKUREYRI
Merkisafmæli mæðgna.
Dalrós Jónasdóttir, Hvammi, Húsa-
vík er áttræð í dag, hún er fædd 28.
sept. 1910 í Móbergi á Húsavík.
Dalrós er ekkja Þórðar Friðbjarnar-
sonar og áttu þau tíu börn, níu
þeirra eru á lífi, þar af sex búsett á
Húsavík.
Sólveig, yngsta dóttir Þórðar og
Dalrósar er fertug í dag.
Dalrós tekur á móti gestum í Félags-
heimili Húsavíkur frá kl. 17. í dag.
Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól-
borgar, selur minningarspjöld til
stuðnings málefna þroskaheftra.
Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð
og Blómahúsinu við Glerárgötu.
Kaupvangskirkja.
Messa 30. september kl. 21.00.
Sóknarprestur.
Glerárkirkja.
Barnastarfið hefst á sunnudaginn kl.
11.00.
Krakkar fjölmennið og takið for-
eldranna með.
Guðsþjónusta sunnudagskvöld kl.
21.00.
Guðsþjónusta í Hlíð kl. 16.00.
Pétur Þórarinsson.
Akureyrarprestakall.
Messað verður í kapellu Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 11.00.
Væntanlega síðasta morgunmessan.
Sálmar: 453, 51, 194, 365, 420.
B.S.
Messað verður á Dvalarheimilinu
Hlíð n.k. sunnudag kl. 16.00.
Sér Pétur Þórarinsson prédikar og
þjónar fyrir altari.
Möðruvallaprestakall:
Sameiginleg fjölskyldu guðsþjón-
usta fyrir allt prestakallið verður í
Möðruvallakirkju n.k. sunnudag 30.
sept. kl. 11.00 f.h.
Ath! Breyttan messutíma.
Þessi guðsþjónusta rnarkar upphaf
vetrarstarfsins.
Sungnir verða söngvar við allara
hæfi.
Sóknarprestur.
Gjöf til Akureyrarkirkju kr. 5.000.-
frá hjónunum Magnúsi Tryggvasyni
og Valborgu Jónsdóttur.
Þeim hjónum eru færðar bestu
þakkir.
Allar gjafir koma sér mjög vel þegar
unnið er að lokafrágangi Safnaðar-
heimilisins og miklar endurbætur
eru gerðar á Akureyrarkirkju.
Birgir Snæbjörnsson.
Minningarkort Hjarta- og æðavernd-
arfélagsins eru seld í Bókvali og
Bókabúð Jónasar.
Minningarspjöld Landssamtaka
Hjartasjúklinga fæst í öllum bóka-
búðum á Akureyri.
Minningarspjöld Hjálparsveitar
Skáta Akureyri fást í Bókval og
Blómabúðinni Akur Kaupangi.
Minningarspjöld Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá:
Pedromyndum Hafnarstræti 98, Sig-
ríði Freysteinsdóttur Þingvallastræti
28, Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi
24 og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð
17.
□ Huld 59901017 IV/V Fjhst.
O.A. Samtökin.
Fundir alla mánudaga kl. 20.30 í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Kristniboðsfélag kvenna, hefur fund
laugard. 29. sept. kl. 15.00 að Víði-
lundi 20 hjá Ingileif.
Skúli Svavarsson kristniboði, segir
okkur frá starfinu hér heima og úti á
heiðingjaakrinum.
Kvenfélag Akureyrarkirkju.
Haustfundurinn verður á Hótel
Norðurlandi, Hlóðum, fimmtudag-
inn 4. október kl. 20.00.
Borðum kínverskan mat.
Skemmtum okkur og ræðum fjöl-
breytt vetrarstarf.
Nauðsynlegt að láta vita um þátt-
töku fyrir mánudagskvöldið 1. okt-
óber í síma 23007 (Arnheiður), eða
í sínta 22518 (Ingibjörg).
Stjórnin.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást
í Bókvali og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Minningarkort Sjálfsbjargar Akur-
eyri fást hjá eftirtöldum aðilum:
Bókabúð Jónasar, Bókvali, Akri,
Kaupangi. Blómahúsinu Glerárgötu
28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1.
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju
fást í Bókabúð Jónasar.
KFUM og KFUK,
''l'c Sunnuhlíð,
Sunnudaginn 30. sept-
ember.
Almenn samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Skúli Svavarsson.
Tekið á móti gjöfum til kristniboðs-
ins.
Allir hjartanlega velkomnir.
§Hjálpræðisherinn,
Hvannavöllum 10.
G Föstudagur 28. sept. kl.
20.30, æskulýður.
Sunnudagur 30. sept. kl. 11.00,
helgunarsamkoma, kl. 13.30,
sunnudagaskóli, kl. 19.30, bæn, kl.
20.00, fagnaðarsamkoma fyrir Brit
Sóvikhagen.
Mánudagur 1. okt. kl. 16.00, heim-
ilsambandið.
Þriðjudagur 2. okt. kl. 17.30, yngri-
liðsmannafundur, kl. 20.30, hjálp-
arflokkur.
Fimmtudagur 4. okt. kl. 20.30,
Biblía og bæn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
SJÓNARHŒÐ
' // HAFNARSTRÆTI 63
Laugardagur 29. sept.: Laugardags-
fundur fyrir 6-12 ára á Sjónarhæð
kl. 13.30. Unglingafundur kl. 20.00.
Verið öll velkomin.
Ástirningar, munið að mæta!
Sunnudagur 30. sept.: Sunnudaga-
skóli í Lundarskóla kl. 13.30. Allir
krakkar velkomnir.
Almenn samkoma á Sjónarhæð kl.
17.00.
Allir velkomnir.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Brekkugata 3, efsta h., Akureyri, tal-
inn eigandi Pálmi Björnsson, mið-
vikud. 3. okt., ’90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hri., Bæjarsjóður
Akureyrar, Óskar Magnússon hdl.,
Benedikt Ólafsson hdl., Bygginga-
sjóður ríkisins, Sveinn Skúlason
hdl. og Ævar Guðmundsson hdl.
Kaupangur v/Mýrarveg s-hluti,
þingl. eigandi Verslunarmiðstöðin
h.f., talinn eigandi Rafak h.f., mið-
vikud. 3. okt., ’90, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Hreinn
Pálsson hdl., Ásgeir Thoroddsen
hdl., Björn Jónsson hdl., Bæjarsjóð-
ur Akureyrar, Gunnar Sólnes hrl.,
Gjaldskil s.f., Öskar Magnússon
hdl. og Jóhannes Albert Sævars-
son.
Skarðshlíð 22 e, Akureyri, þingl.
eigandi Jóhanna Valgeirsdóttir,
miðvikud. 3. okt., '90, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Ólafur Gústafsson hrl.
Viðjulundur 2 a, nyðri hl„ Akureyri,
þingl. eigandi Halldór Hauksson,
miðvikud. 3. okt., '90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Óskar Magnús-
son hdl, Reynir Karlsson hdl. og
Fjárheimtan h.f.
Ægisgata 13, Akureyri, þingl. eig-
andi Sveinar Rósantsson, mið-
vikud. 3. okt., '90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Benedikt Ólafs-
son hdl. og Ólafur Birgir Árnason
hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu.
ÁhugafólK
um byggingarlist
halldóra Arnardóttir, listfræðingur, flytur
fyrirlestur um endurbyggt hverfi í London, í
háshólanum á Ahureyri, 5tofu 24, n.h. laug-
ardag 29. sept. hl. 14.00.
Erindið var loharitgerð halldóru við háshól-
ann í Essex.
Allir velkomnir.
Háskólinn á Akureyri.
Arkitektafélag Tslands.
Starfsmenn KEA
Dregið hefur verið í happdrætti Smjörlíkisgerðar,
Brauðgerðar og Kjötiðnaðarstöðvar.
1. vinningur, ferð til Reykjavíkur, kom á miða nr. 1073
2. -5. vinningur, vörur frá afmælisbörnunum, komu á
miða nr. 781,682,1239 og 365.
Vinningshafar eru vinsamlega beðnir um að gefa sig
fram, fyrir 10. október, við einhvern af eftirfarandi:
Áskel Þórisson, sími 30-318, Jörund Traustason, sími
30-312 eða Halldór Bachmann, sími 30-458.
Afmælisnefnd.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða starfskraft til almennra skrif-
stofustarfa á fasteignasölu.
Góð vélritunar- og íslenskukunnátta æskileg.
Framtíðarstarf.
Umsóknir sendist:
Lögmannsstofunni hf.,
Brekkugötu 4, 600 Akureyri.
Heilræði
Varúð!
Geymið lyf þar sem
börn ná ekki til