Dagur - 03.10.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 3. október 1990
„Góður skóli kemur öllum nem-
endum sínum til nokkurs þroska“
- brot úr skólasetningarræðu Tryggva Gíslasonar, skólameistara Menntaskólans á Akureyri, við setningu skólans sl. sunnudag
Á þessum fagra haustdegi er enn
að hefjast nýtt starfsár Mennta-
skólans á Akureyri, hið eitt
hundraðasta og ellefta, ef miðað
er við endurreisn hins forna stól-
skóla á Hólum í Hjaltadal en hið
sextugasta og fyrsta ef miðað er
við lög um menntaskóla á Akur-
eyri sem staðfest voru hinn 19da
maí 1930.
Pá um vorið þótti efni til að
gera sér dagamun. „Þetta var
mikið hátíðarár, og ráðherrar
landsins áttu annríki í vændum á
þúsund ára afmælishátíð alþingis
á Þingvöllum. Nokkur jarteikn
þótti að tveir af þremur ráðherr-
um landsins voru gamlir nemend-
ur skólans,“ Jónas Jónsson frá
Hriflu og Einar Árnason frá Eyr-
arlandi, eins og Gísli Jónsson
menntaskólakennari nefnir í
Sögu Menntaskólans á Akureyri.
Um haustið hóf kennslu við
hinn nýja menntaskóla á Akur-
eyri ungur kennari, sem þá um
sumarið hafði komið heim frá
námi í Kaupmannahöfn: Stein-
dór Steindórsson sem kennir sig
við Hlaðir í Hörgárdal, þótt
fæddur sé á sjálfu höfuðbólinu
Möðruvöllum, þar sem móðir
hans, Kristín Jónsdóttir, var
ráðskona. Steindór Steindórsson
frá Hlöðum, fyrrum skólameist-
ari, er hér á meðal okkar í dag.
Er það mér mikið ánægjuefni.
Steindór er orðinn elstur allra
skólameistara og það sem meira
er: Hann man alla skólameistara
sem verið hafa við skólann frá
upphafi, árið 1880 og til þessa
dags, því að hann man Jón
Hjaltalín frá því hann kom í
heimsókn í Gamla skóla með
móður sinni barn að aldri.
Steindór sat sem nemandi í
skólanum undir stjórn Stefáns
Stefánssonar skólameistara, 1920
til 1922, að hann tók gagnfræða-
próf, hann hóf kennslu hjá Sigurði
skólameistara 1930, sat undir
stjórn Þórarins skólameistara
Björnssonar 1947 til 1966, að
hann varð sjálfur skólameistari til
ársins 1972, þegar hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
{ september 1943 réðst Árni
Friðgeirsson að skólanum sem
ráðsmaður mötuneytis. Árni
Friðgeirsson starfar enn við skól-
ann í hlutastarfi og hefur því ver-
ið við skólann í 47 ár. Hefur eng-
inn starfsmaður verið lengur við
skólann en hann - en einn jafn-
lengi, Jónas Snæbjörnsson smíða-
kennari.
Hvort tveggja þetta ásamt með
öðru finnst mér sýna hversu gott
er að starfa við Menntaskólann á
Akureyri - og hvers.' mikið
mannalán skólinn hefur.
Gott er enn að minnast liðinn-
ar tíðar og gamalla daga, en þó
má ekki gleyma sér við liðna tíð,
því lífið heldur áfram ógnarhratt.
í Menntaskólanum á Akureyri
mætist fortíð og framtíð. Skólinn
vill halda í heiðri gamla minn-
ingu, gamlar venjur og góða siði,
vill muna fortíð sína, - en skólinn
vill líka horfa fram á veginn, búa
í haginn fyrir framtíðina, enda á
skólinn að vinna fyrir framtíðina,
framtíðin er tími okkar og
nemenda okkar - þeirra er fram-
tíðin. En skólinn byggir á göml-
um merg og kennarar búa yfir
reynslu fortíðarinnar. Því er það
að hér mætist fortíð og framtíð.
í annað skipti er Menntaskól-
inn á Akureyri settur annars
staðar en á Sal. Haustið 1955
setti Þórarinn skólameistari
Björnsson skóla í kirkjunni að
Möðruvöllum í Hörgárdal í
tilefni af 75 ára afmæli Möðru-
vallaskóla. Það var annað árið
mitt hér í skóla.
Ástæðan til þess að skóli er
ekki lengur settur á Sal eru hús-
þrengsli, því ógerningur er að
koma fyrir með góðu öllum sem
við skólasetningu eiga og vilja
vera. Salur Menntaskólans, há-
tíðarsalur skólans, er 120 m:, og
þar er þröngt 400 manns. Salur
átti upphaflega að vera sam-
komusalur 100 manna skóla.
Fyrsta árið í gamla skólahúsinu,
skólaárið 1904 til 1905, voru
nemendur 68. Þá rúmuðust allir
nemendur á Miðsal einum. Nú
eru nemendur 600 og starfsmenn
nær 70. Hátíðarsalur er því löngu
of lítill orðinn.
Nemendur næsta skólaár verða
590. Er það heldur fleira en síð-
asta ár. Aðsókn að skólanum er
enn mikil, þótt nýir framhalds-
skólar hafi risið víða um land síð-
asta áratug, þar á meðal fjórir á
Norðurlandi - enda fjölgar sífellt
því fólki á aldrinum 16 ára til tví-
tugs sem stundar nám í fram-
haldsskólum. Nú stunda um 80%
af 16 ára aldursárgangi nám í
framhaldsskólum á Norðurlandi
eystra en á Reykjavíkursvæðinu
um 95%. Ef þróunin verður hin
sama á Norðurlandi eystra og í
Reykjavík, sem líklegt má
teljast, fjölgar nemendur hér enn
á næstu árum.
Nýnemar á fyrsta ári eru 190, í
öðrum bekk eru 159, 128 í þriðja
bekk og í fjórða bekk skólans eru
nemendur 113. Stúlkur í
skólanum eru 352 eða nær 60%
og piltar 239. Þetta hlutfall hefur
haldist lítið breytt síðustu ár.
Frá 1962 til 1970 voru stúlkur
liðlega þriðjungur nemenda.
1972 urðu stúlkur 42% nemenda
og síðan hafa þær sótt á jafnt og
þétt. Skólaárið 1977 til 1978 urðu
stúlkur fleiri piltum - eða 52%.
Til gamans má geta þess að
haustið 1930. þegar í skólanum
var bæði gagnfræðadeild og
menntadeild, voru reglulegir
nemendur samtals 181, 151 piltur
og 30 stúlkur og stúlkur því
aðeins rúm 16%.
Góður skóli
í Ólafs sögu helga í Heimskringlu
segir frá Erlingi Skjálgssyni sem
var „vitur maður og kappsamur
og segir Snorri, að Erlingur hafi
verið göfugastur allra lendra
manna í Noregi. Erlingur
Skjálgsson hafði jafnan með sér
níu tugi frjálsra manna og þrjá
tugi þræla og um fram annað
man. Hann ætlaði þrælum sínum
dagsverk og gaf þeim stundir síð-
an og lof til að hver, er sér vildi
vinna um rökkur eða um nætur,
hann gaf þeim akurlönd að sá sér
korni og færa ávöxtinn til fjár sér.
Hann lagði á hvern þeirra verð
og lausn. Leystu margir sig in
fyrstu misseri eða önnur, en allir
þeir, er nokkur þrifnaður var
-'fir, leystu sig á þremur vetrum.
Með því fé keypti Erlingur sér
annað man en leysingjum sínum
vísaði hann sumum í síldfiski en
sumum til annarra féfanga. Sum-
ir ruddu markir og gerðu þar bú
í. Öllum kom hann til nokkurs
þroska.“
Því nefni ég þessa sögu af
Erlingi Skjálgssyni að oft velta
menn því fyrir sér hvað sé góður
skóli, hvað skólastofnun þurfi að
uppfylla til að geta kallast góður
skóli. Góður skóli getur ef til vill
verið margt. Eitt svarið við þess-
ari spurningu er þó að góður
skóli er sá skóli sem kemur öllum
nemendum sínum til nokkurs
þroska. Það svar vildi ég gjarna
gefa, þegar spurt er hvað sé góð-
ur skóli.
En þar með er ekki allt sagt því
einföld spurning krefst oft flók-
ins svars. Góður skóli gerir líka
kröfur - eða ætlar nemendum
sínum dagsverk, eins og Erlingur
Skjálgsson, og sumir nemendur
verða að vinna um rökkur og
jafnvel um nætur, eins og þrælar
Erling Skjálgssonar. En þeir sem
nokkur þrifnaður er í - nokkur
dugur er í - leysa sig á fjórum
vetrum, ljúka námi sem opnar
leiðir og sýn til margra átta. Og
það er gott að geta valið. Sá á ef
til vill kvölina sem á völina - en
verra er þó að geta ekki valið. En
góðir nemendur. Ég vona að
unnt sé að bjóða ykkur góðan
skóla. Þið eigið kröfu á að skól-
inn sé góður. En það er ekki nóg
að gera kröfu um góðan skóla
heldur verðið þið líka að gera
kröfur til sjálfra ykkar. Það er
gömul saga - gömul sannindi.
Húsnæðismál
Árið 1967 gerði Skarphéðinn
Jóhannsson arkitekt áætlun um
byggingar við Menntaskólann á
Akureyri. Átti að reisa þrjú hús á
lóð skólans, um 4500 m2 kennslu-
rými og íþróttahús um 1000 m2
eða samtals um 5500 m2 alls. Haf-
ist var handa um smíði fyrsta
hússins þá um haustið og það tek-
ið í notkun 1969. Það hús er
raungreinahús skólans, Möðru-
vellir, eins og það er kallað.
Síðan hefur ekki verið byggt
við Menntaskólann á Akureyri.
Um hríð tók Fjórðungssjúkra-
húsið allt framkvæmdafé ríkis-
sjóðs, íþróttahöll var reist á árun-
um 1975 til ’80 og frá 1980 hefur
Verkmenntaskólinn verið reistur
af miklunt stórhug. Og nú kallar
óskabarn okkar, Háskólinn á
Akureyri. Hin gamla skólastofn-
un staðarins, Menntaskólinn á
Akureyri, hefur orðið að bíða.
Það var heldur ekki óeðlilegt eða
ósanngjarnt að Menntaskólinn
biði. Þótt við búum þröngt eru
hús skólans góð og í þeim er góð-
ur andi, sem líka skiptir máli.
En nú er liðið 21 ár frá því
Möðruvellir voru teknir í
notkun, nemendum hefur
fjölgað, allt aðrar kröfur eru
gerðar til húsnæðis, hinar stofn-
anirnar hafa fengið það sem þeim
ber um sinn og nú er að mínum
dómi röðin komin að Mennta-
skólanum. Aðsókn að skóianum
er enn mikil og fyrirsjáanlegt að
skólinn vex þótt nýir skólar rísi.
Röðin er því komin að Mennta-
skólanum á Akureyri. Skóla-
nefnd samþykkti á fundi sínum
18. þ.m. að þegar yrði hafist
handa um að gera áætlun um
húsnæðisþörf skólans. Sú áætlun
og frumtillögur að því hvernig og
hvar byggja má á lóð skólans eiga
að liggja fyrir í nóvember. Verð-
ur þá leitað eftir að fá teiknaðar
viðbyggingar við skólann. Til
greina kæmi að efna til hugmynda-
samkeppni um hús Menntaskól-
ans og lóð, en lóð skólans má nú
segja að sé orðin einn samfelldur
skrúðgarður Fengist hefur
hönnunarfé til að teikna hús fyrir
Menntaskólann á Akureyri og
stendur skólanefnd einhuga að
þessu og ráðuneyti og bæjaryfir-
völd hafa sýnt málinu áhuga og
skilning. Er það von mín að inn-
an þriggja ára verði orðnar stór-
felldar endurbætur á húsakosti
skólans.
Skólanefnd
í samræmi við ný lög um fram-
haldsskóla hefur menntamála-
ráðherra skipað skólanefnd við
Menntaskólann á Akureyri. í
skólanefnd sitja sjö fulltrúar:
tveir fulltrúar starfsmanna, einn
fulltrúi nemenda, þrír fulltrúar
hlutaðeigandi sveitarfélaga og
einn skipaður af ráðherra án til-
nefningar. „Skólanefnd skal
stuðla að því að skólinn þróist
þannig að hann hafi sem mest
gildi fyrir skólasvæðið og sem
mest tengsl við aðra starfsemi
sem þar fer fram, einkum á sviði
menningar- og atvinnulífs."
Öll erum við börn okkar tíma.
Áður bjuggu menn við einveldi,
menntað einveldi þegar best lét,
eða fámennisstjórn, þar sem orð
hins æðsta voru lög. Sá tími er
liðinn. Nú búa menn við lýðræði í
okkar heimshluta og valddreif-
ingu sem stöðugt verður aukin.
Ég lít á skipun skólanefndar við
Menntaskólann á Akureyri sem
hluta af þessari æskilegu þróun.
Gott er að eiga góða að og með
tilkomu skólanefndar verður
auðveldara að vinna skólanum
gagn.
Starfsfólk
í vetur starfa við skólann 42
kennarar. Þar af eru aðeins sex
stundakennarar. Hafa aldrei
fleiri kennarar í fullu starfi starf-
að við skólann - og er það von-
andi góðs viti. Auk þess starfa
við skólann þrír starfsmenn í
skrifstofu, bókavörður, umsjón-
armaður húsa og húsbóndi í
heimavist og tveir fastráðnir iðn-
aðarmenn. Þar að auki er fyrir
mötuneyti skólans bryti mötu-
neytis ásamt fimm öðrum starfs-
mönnum og í þvottahúsi eru tveir
starfsmenn og að lokum 12 starfs-
menn við ræstingar. Starfsmenn
skólans eru því í vetur um 70
talsins.
Gott er hverri stofnun að hafa
góða starfsmenn. Menntaskólinn
á Akureyri hefur haft mannalán
alla tíð. Það er mikils virði. Góð-
ur skóli er góður fyrir góða starfs-
menn og þá ekki síst góða
kennara. Það ættu allir að geta
gert sér ljóst - og skilið. Það sem
mjög stendur íslendingum fyrir
þrifum er óvarlegt tal og dóm-
girni. Ef til vill veldur því
óstöðug veðrátta. Kennarar hafa
hlotið þungan dóm hjá almenn-
ingi fyrir kröfugirni sína og óbil-
girni. Fjármálaráðherra talar um
að hækka þurfi laun flugumferð-
arstjóra vegna öryggis landsins.
Ekkert eitt atriði í landshögum
okkar hefur þó meiri áhrif á
öryggi okkar í heiminum en góð
menntun og þá ekki síst góðir
skólar. Góðir skólar fást ekki
nema til séu góðir kennarar og
góðir kennarar fást ekki nema
kjör séu góð og skilningur ríki á
högum þeirra. Auðvitað eiga allir
að hafa að þörfum sínum. En
þegar samskipti þjóða eru að
breytast, eins og þau eru nú að
breytast, ekki bara með tilkomu
Evrópubandalagsins heldur með
því víðtæka samstarfi og sam-
vinnu þjóða sem nú tekur víð,
þurfum við íslendingar að Halda
vöku okkar, skilja vitjunartírha
okkar, ekki bara tala um svart og
hvítt eða annaðhvort eða. Lífið
hefur mörg tilbrigði og heimur-
inn skiptist ekki bara í svart og
hvítt. Við þurfum að læra jafn-
vægislist orðræðunnar, umræða
okkar er stundum of hvöss og
köld, eins og norðanáttin, og
umfram allt má þetta ekki enda
með þeirri tortryggni og andúð -
að ég segi ekki hatri - sem fram
kemur gegn skólamenntun og
menntafólki og menningu.
íslendingar eru aðeins til fyrir
tungu sína og menningu. Ef þetta
tvennt glatast, glatast íslensk
þjóð. Þjóðir koma og fara og
þjóðir líða undir lok og þjóðir
rísaupp að nýju, þegar þjóð-
menning þeirra fær að blómstra,
eins og við höfum séð dæmi um
síðustu misseri. Ef við hins vegar
glötum þjóðlegri menningu okk-
ar erum við öll. Til að varðveita
menningu okkar þurfum við góða
skóla. Skólamenntun er ekki allt
og til er önnur menntun en skóla-
menntun og jafnvel rís sú mennt-
un enn hærra en skólamenntunin
- og á ég þar við sjálfsmenntun
og sjálfsaga hvers og eins. En ef
við viljum halda áfram eins og
við höfum gert sem frjáls þjóð í
frjálsu landi verðum að efla skóla
okkar og skólamenntunina og
búa kennurum betri kjör og auka
virðing skólamenntunar í raun.
Orð til nýnema
Góðir nýnemar.
Öll byrjun er erfið - og það er
erfitt að velja sér leið í lífinu,
velja sér lífsbraut - eða velja sér
námsbraut. Það er líka erfitt að
skipta um starf og skipta um stað.
Nú hafið þið skipt um starf og þið
hafið skipt um stað og þið eruð
að byrja nám ykkar í nýjum
skóla. Skyldunámi ykkar í grunn-
skóla er lokið og þið hafið valið
að stunda nám í menntaskóla,
Menntaskólanum á Akureyri.
Þið hafið valið þetta sjálf.
„Sá á kvölina sem á völina,“
segir máltækið. Það eru orð að
sönnu. En sá sem ekki á völina,
sá sem ekki getur valið, á enn
stærri kvöl því það er enn verra
að eiga engra kosta völ. Mann-
frelsi skal maður setja ofar öllu
öðru. Það að geta valið - verið
frjáls - er dýrmætara en allt/flest
annað. Næst á eftir kærleikanum
held ég frelsið sé mest um vert.
Kærleikur, frelsi, jafnrétti og
bræðralag. Þessi orð vil ég biðja
ykkur, nýnemar góðir, að geyma
með ykkur. Þetta eru ekki innan-
tóm orð.
Þið hafið valið - og þið hafið
að mínum dómi valið vel. Við
erum það sem við veljum að
vera. „Hver er sinnar gæfu
smiður“, sagði Epíkúr hinn
grfski. Þetta er auðvitað einfald-
ur sannleikur, einfaldaður veru-
leiki, einföldun hluta - en satt
engu að síður. Og þið hafið valið
og þið eruð - og verið - það sem
þið veljið að vera.
Ég vil að lokum nefna að
Menntaskólinn á Akureyri er
bóknámsskóli og þið stundið hér
bóklegt nám, ekki starfsnám,
sem veitir starfsréttindi. Þið öðl-
ist því engin starfsréttindi með
námi ykkar hér í skóla. Það er
líka löngu liðin tíð að stúdentar
gangi í öll störf. Meðan lífið var
einfalt, var þetta hægt. Nú er lífið
fíókið, við lifum ekki á upplýs-
ingaröld heldur í upplýsinga- eða
auglýsingasamfélagi sem krefst
sérmenntunar og sérhæfni. Flest
er líka betra en áður, þrátt fyrir
allt. En daglegt líf okkar er
flókið.
En ykkur, ungu nemendúr,
opnast nýjar leiðir. Þið getið
valið, Menntaskólinn veitir
nefnilega mikla möguleika, opn-
ar ótal dyr og héðan er hægt að
halda margar leiðir; í hinn unga
háskóla á Akureyri, suður til
Reykjavíkur til náms, eins og
algengast hefur verið, - ellegar út
í hinn stóra heim því stúdents-
próf hefur veitt íslenskum náms-
mönnum inngöngu í alla háskóla
í Evrópu og Ameríku og raunar
annars staðar í heiminum - og
gott stúdentspróf opnar allar
leiðir.
Ég vona raunar að leið ykkar
eigi einhvern tíma eftir að liggja
út í hinn stóra heim. „Heimskt er
heimaalið barn“ og „dælt er
heima hvat“ - allt er svo auðvelt
heima - segir í Hávamálum - og
við íslendingar eigum svo margt
ólært. En þótt leið ykkar eigi eftir
að liggja út í hinn stóra heim og
burtu frá íslandi vona ég jafn-
framt að leið ykkar eigi eftir að
liggja heim aftur og þið eigið ekki
eftir að sitja í öngum ykkar er-
lendis. Skáld okkar hafa sagt svo
margt viturlegt um þennan þátt í
mannssálinni, um föðurlandið og
móðurmálið og heimþrána:
„Römm er sú taug/er rekka dreg-
ur/föðurtúna til,“ segir Svein-
björn Egilsson. „Sárt er að sitja
heima/en sárara að komast ei
heim,“ segir Örn Arnarson.
Heima er best og „ísland er
land þitt/og ávallt þú geymir/
ísland í huga þér hvar sem þú
ferð.“ ísland þarfnast alls síns og
allra sinna - ekki síður nú og í
framtíðinni en hingað til.
Góðir nemendur.
Leitið góðrar menntunar,
varðveitið mannfrelsi og vinnið
gagn.
Ég óska þess að lokum að starf
skólans megi verða giftudrjúgt á
nýju skólaári.
Menntaskólinn á Akureyri er
settur í hundraðasta og ellefta
skipti.
Miðvikudagur 3. október 1990 - DAGUR - 7
Oseyt i 4, Auðbrekku 2, Skeifunni 13, Q
Akureyri Kopavotji Reykjavik
St RÚMFATA
i
i
TEAM -85