Dagur - 03.10.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 3. október 1990
fþróttir
KA mætir CSKA Sofia í Búlgaríu í dag Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu:
Róður KA verður án efa mjög þungur
- forráðamenn búlgarska liðsins hafa lofað að minnsta kosti þremur mörkum í dag
Knattspyrnulið KA kom til
Búlgaríu á mánudagskvöldið.
Liðið leikur þar í dag seinni
leik sinn í Evrópukeppni
meistaraliða en andstæðing-
arnir eru búlgörsku meistar-
arnir í CSKA Sofia. Eins og
flestum er kunnugt fór fyrri
leikur liðanna fram á Akureyr-
arvelli fyrir hálfum mánuði og
lauk honum með sigri KA-
manna 1:0.
Með KA-liðinu í för eru
nokkrir stjórnarmenn í knatt-
spyrnudeildinni, formaður
félagsins, læknir og tveir frétta-
menn, samtals 26 manns. Ferða-
lagið var bæði langt og strangt,
tók samtals 10 klst. með milli-
lendingum í Kaupmannahöfn og
Búdapest. Hópurinn tók því
rólega fyrsta kvöldið en í gær-
Guðjón Þórðarson þjálfari KA:
„Spflum varlega
tfl að byija með‘
Guðjón Þórðarson þjálfari KA
sagði í samtali við blaðamann
Dags, að hann væri nokkuð
viss um að þjálfari CSKA
myndi reyna að brjóta upp leik
liðs síns og spila öðruvísi
leikaðferð en á íslandi. „Eg
geri mér þó ekki alveg grein
fyrir því til hvaða ráða hann
grípur og er því í nokkurri
óvissu.“
„Við munum spila mjög var-
lega til að byrja með og spila
frekar aftarlega á vellinum. Einn-
ig munum við leggja áherslu á að
Guðjón Þórðarson.
halda boltanum, þeir eru óþolin-
móðir og það gafst því mjög vel
síðast að stríða þeim svolítið
heima á íslandi. Við munum að
sjálfsögðu reyna að sækja að
marki Búlgaranna þegar færi gefst
en með varúð.“
Guðjón sagði að leikurinn á
Akureyri gæfi ekki rétta mynd af
styrkleika liðsins. „Það hefur ein-
kennt gengi þessa liðs í Evrópu-
keppninni í gegnum tíðina, að
það hefur tapað á útivelli en síð-
an tekið jafnvel mjög sterk lið og
rúllað þeim upp á heimavelli
sínum.
„Ég hef nokkrar áhyggjur af hit-
anum hér og óttast að þreyta geti
farið að há leikmönnum mínum
þegar líður á leikinn. Leikmenn
CSKA eru mjög snöggir og send-
ingar þeirra eru mjög nákvæmar.
Þeir hlaupa mikið án bolta og
það getur reynst erfitt fyrir okkur
að fylgja þeim eftir. En við mun-
um reyna halda leiknum niðri.“
Aðspurður um möguleika KA
í dag sagði Guðjón að ef hann
eigi að vera heiðarlegur, telji
hann möguleika liðsins ekki
mikla. „Það er mest um vert fyrir
okkur að fá ekki slæma útreið hér
í dag. Það hafa mörg sterk lið
fengið slæman skell hér í gegnum
tíðina og verði úrslitin í dag
þokkaleg, getum við vel við
unað,“ sagði Guðjón Þórðarson.
Halldór Halldórsson:
„Eigum eftir að liggja í vöm“
,Ég held að þetta hljóti að
erða allt annað lið sem mætir
il leiks í dag því ég trúi ekki að
leir séu ekki betri en þeir
ýndu á Akureyri,“ sagði Hall-
lór Halldórsson í samtali við
)ag.
„Þeir hafa örugglega vanmetið
ikkur rosalega í þeim leik. Þeir
oru slakir í fyrri hálfleiknum en
lokkuð sprækir í þeim síðari. Ég
lef trú á því að við eigum eftir að
iggja dálítið í vörn en við verð-
im bara að sjá hvernig þetta
iróast.
Þeir eru ekkert sérlega fljótir
ftur og það er aldrei að vita
ivað gerist ef þeir Kjartan og Jón
jrétar verða sprækir frammi."
Halldór Halldórsson.
morgun hófst dagskráin, ef svo
má segja, með léttri æfingu á æf-
ingasvæði CSKA. í gærkvöld var
svo æft á Arnia leikvanginum þar
sem leikurinn fer fram í dag.
Það er ekki gott að segja
hversu miklir möguleikar KA-
manna eru á að komast áfram í
keppninni. Margir telja það sjálf-
sagt nánast útilokað en það voru
heldur ekki margir sem spáðu
KA-mönnum sigri á Akureyri.
KA-menn hafa eins marks for-
skot þegar leikurinn hefst í dag
og nái þeir að skora hér getur það
skipt miklu máli, því mörk skor-
uð á útivelli hafa tvöfalt vægi ef
markatala verður jöfn eftir tvo
leiki. En það þarf ekki að fara í
grafgötur með það að leikurinn í
dag verður mjög erfiður.
Þrátt fyrir að CSKA-liðið hafi
ekki náð sér á strik á Fróni, er
það skipað atvinnumönnum sem
tóku ósigrinum illa, enda var það
haft eftir forráðamönnum liðsins
í gær að búið væri að lofa að
minnsta kosti þremur mörkum í
dag. Fjölmiðlar hér brugðust
einnig hart við og töldu það
hneyksli að tapa fyrir áhuga-
mönnum og mikil pressa er frá
stuðningsmönnum liðsins að
meistararnir standi fyrir sínu í
dag.
Það eru einkum tvennt sem má
búast við að geri KA-mönnum
erfitt um vik. í fyrsta lagi er
völlurinn stærri en þeir eiga að
venjast og ljóst að af þeim sökum
verður erfiðara að brjóta niður
spil CSKA-liðsins. í öðru lagi er
veðurfarið all frábrugðið því sem
verið hefur á íslandi upp á síð-
kastið. Þegar þetta er skrifað er
23ja stiga hiti og sólskin í Sofiu
og er búist við svipuðu hitastigi
þegar leikurinn fer fram. Þetta
veldur KA-mönnum nokkrum
erfiðleikum og þrátt fyrir að
æfingarnar tvær hafi verið
stuttar, voru menn bæði þreyttir
og sveittir þegar þeim lauk.
En þrátt fyrir allt eru KA-
menn sperrtir og allir staðráðnir í
því að berjast til síðasta blóð-
dropa. Þeir eiga möguleika og
eins og allir vita getur allt gerst í
knattspyrnu. - Og nú er bara að
bíða og vona að starfsmenn
Akureyrarvallar fái ástæðu til
þess að taka fram mörkin á nýjan
leik en víst er að þeir eru tilbúnir
til þess.
Hvað gera
Ormarr Örlygsson:
„Þeir mæta mun ákveðnaif
„Ég á nú ekki von á að við ger-
um miklar rósir í dag en við
eigum þó möguleika því við
erum marki yfir úr fyrri leikn-
um,“ sagði Ormarr Orlygsson í
samtali við Dag.
„Þessi Austur-Evrópulið spila
yfirleitt allt öðruvísi á heimavelli
og þess vegna gefur fyrri leikur-
inn ekki rétta mynd af því hvern-
ig leikurinn í dag mun spilast.
Þeir verða miklu ákveðnari og
koma örugglega til með að spila
mun betur en þeir gerðu á ís-
landi, enda fannst mér þeir ekk-
ert sérstakir í þeim leik.
í liðinu eru margir sterkir leik-
menn og þeir voru á tímabili í
seinni hálfleik í fyrri leiknum
nærri búnir að brjóta okkur
niður.“
Sigmundur Þórisson formaður KA:
„Strákamir spili með hjartanu“
„Ég vona að við fáum svipaðan
leik og á Akureyri. Áhangend-
ur KA voru afskaplega ánægð-
ir með leikinn og sigurinn var
mikil lyftistöng fyrir félagið,“
sagði Sigmundur Þórisson for-
maður KA í samtali við Dag.
„Ég vona að strákarnir spili
með hjartanu og verði afslappað-
ir í leiknum. Við eigum alltaf ein-
hverja möguleika gegn þessu liði
en ég tel varla raunhæft að reikna
með sigri.“
S
Punktar frá
Búlgaríu
• Guðjón Þórðarson þjálfari
KA stjórnar sínum mönnum
líklega í síðasta skipti í dag.
Það mun ákveðið að Guðjón
verði ekki með liðið næsta
keppnistímabil. Guðjón sagðist
hins vegar gera allt til þess að
bæta við tveimur leikjum með
því að ná fram hagstæðum úr-
slitum í dag og koma KA áfram
í keppninni.
• Nokkur lið á íslandi hafa haft
samband við Guðjón og óskað
eftir viðræðum við hann um
þjálfun en hann neitar að gefa
upp hváð lið eru hér á ferðinni
og segist reyndar ekki hafa gef-
ið sér neinn tíma til þess að
ræða við önnur lið.
• Byrjunarlið KA í dag er skip-
að sömu leikmönnum og hófu
fyrri leikinn gegn CSKA Sofia á
Akureyri. Haukur Bragason er
í markinu en aðrir leikmenn eru
Steingrímur Birgisson, Halldór
Halldórsson, Halldór Kristins-
son, Ormarr Örlygsson, Gauti
Laxdal, Heimir Guðjónsson,
Hafsteinn Jakobsson, Bjarni
Jónsson, Jón Grétar Jónsson og
Kjartan Einarsson.
• Þórður Guðjónsson hinn
ungi og efnilegi leikmaður KA
lcikur ekki með liðiuu í dag,
þess í stað leikur hann með
landsliði íslands skipuðu leik-
mönnurn 18 ára og yngri í Belg-
íu.
• Erlingur Kristjánsson fyrir-
liði er einnig fjarri góðu gamni
en hann þjálfar handknattleiks-
lið félagsins og sá sér af þeim
sökum ekki fært að fara með til
Búlgaríu.
• Bjarni Jónsson er sem fyrr
fyrirliði KA t fjarveru Erlings.
• Útvarpsmaðurinn Kristján
Sigurjónsson er nteð KA í
Búlgaríu. Kristján er cins og
kunnugt er mikill áhugamaður
unt tónlist og fór því til Kaup-
mannahafnar degi fyrr til þess
að geta litið í hljómplötuvcrsl-
anir. Hann hefði þó getað spar-
að sér þá fyrirhöfn, því verslan-
irnar ollu honum miklum von-
brigðum og hann hafði aðeins
tvær hljómplötur í farteskinu er
hann hitti hópinn á Kastrup-
flugvelli í fyrradag.
• Vöruskortur er mjög alvar-
legur í Sofiuborg um þessar
mundir og hefur verið tekin upp
skömmtun á ýmsum nauö-
synjavörum af þeim sökum. Að
sögn fararstjóra hópsins er ein
helsta ástæðan fyrir þessu,
stjórnmálaleg togstreita á milli
landsbyggðar og höfuðborgar.
Sósíalistaflokkurinn, sem áður
hét Kommúnistaflokkurinn,
fékk slæma útkomu í höfuð-
borginni í kosningum sem
haldnar voru fyrir nokkru. Sá
flokkur nýtur liins vegar enn
mikils fylgis í smábæjum og
sveitum og nú reynir lands-
byggðarfólkið að þvinga höfuð-
borgarbúa til hlýðni nteð því að
neita að selja þangað nauö-
synjavörur. Vissulega forvitni-
legt ástand, ef skýringin stenst,
ekki síst ef ísland er haft til
samanburðar.
• Sökum vöruskorts og alvar-
legs ástands í þjóðmálum lands-
ins hefur drcgið verulega úr
íþróttaáhuga almennings. Þetta
sést bæði á aðsókn að íþrótta-
leikjum og eins á umfjöllum
fjölmiðla um íþróttir.
• Af þessum sökunt er vart
búist við flciri en 10 þúsund
áhorfendum á leikinn í dag. En
það mun þó þykja býsna gott
miðað við aðsókn að leikjum
upp á síðkastið. Þess má geta aö
leikvangurinn tekur 35 þúsund
manns.