Dagur - 03.10.1990, Side 12

Dagur - 03.10.1990, Side 12
Húsavík: Riðuveikitilfelli staðfest - tillaga um niðurskurð Riðuveikitilfelli í þriggja vetra kind frá Húsavík var staðfest rétt fyrir helgina. í haust hefur Bárður Guðmundsson, dýra- læknir, sent 4-5 sýni til rann- sóknar en niðurstöður hafa verið neikvæðar þar til nú að riðuveiki var staðfest. Bárður sagði að við þessu mætti búast á næstu árum; að eitt og eitt tilfelli kæmi upp þar sem með- göngutími veikinnar væri það langur. Vonandi næðist þó fyr- ir veikina og það byggðist á því að bændur létu vita ef þeir teldu sig sjá grunsamleg ein- kenni á skepnum í hjörðum sínum. „Eigandinn þarf náttúrlega að skera niður kindur sínar, en þær eru um 20. Svo er komin tillaga frá Sauðfjárveikivörnum um það að allt fé á Húsavík verði skorið niður. Pað er verið að reyna að komast að samkomulagi við hina fjáreigendurna um að skera niður fé sitt haustið 1991,“ sagði Bárður. Fjáreigendurnir á Húsa- vík eru um 15 og munu eiga á þriðja hundrað fjár. Geitur þarf einnig að skera niður þegar riða er á ferðinni. „Það væri ákaflega æskilegt ef hægt væri að skera niður allt fé á Húsavík af því að riðuveikin er búin að vera hér síðan 1970, og enn hefur ekki tekist að uppræta hana. Þess vegna er þessi tillaga komin fram. Mikill samgangur hefur verið milli fjár á Húsavík og búið er að víxla fé á milli hjarða, því er talið að það gæti hjálpað til að útrýma riðunni að lóga öllu fénu í stað þess að elta eitt og eitt tilfelli í mörg ár,“ sagði Bárður, aðspurður um til- löguna. Skorið hefur verið niður hjá þrem fjáreigendum á Húsavík á síðustu árum, þar af einum þeirra tvisvar sinnum. Einnig var riða í Bakka, syðst á Tjörnesi, um 1970 og upp úr því fóru fjáreigendur á Húsavík að lóga fé sínu vegna riðu. Riðan hefur því verið við- loðandi á Húsavfk. Þar sem heilu hjarðirnar í sveitunum eru skorn- ar niður finnst Bárði eðlilegt að reynt sé að gera það sem hægt er á Húsavík til að stemma stigu við veikinni. Tillaga Sauðfjárveikivarna á eftir að fá nánari umfjöllun hjá Fjáreigendafélaginu á Húsavík, en sauðfjáreign Húsvíkinga hefur löngum verið þeim mikið tilfinn- ingamál. IM Hinn brasilíski heimsmeistari í jójó leikur listir sínar fyrir utan Borgarsöluna í gær við mikla uthygli ungra vegfar- enda. Mynd: KL Aðstoðarlæknar við FSA lögðu niður vinnu í gær og ræddu hagsmunamál sín: Lög um hvfldartíma og aðbúnað hafa verið þverbrotín um árabfl - segja aðstoðarlæknarnir m.a. í ályktun fundar þeirra „Við styðjum einróma kröfur Félags ungra lækna um endur- bætt vaktafyrirkomulag m.t.t. óhóflegs vinnuálags sem nú ríkir. Ennfremur um kjör, starfsaðstöðu og aðbúnað á vinnustað. Sérstaklega viljum við taka fram að við teljum lög um lágmarks hvíldartíma á sól- arhring, hvíld milli vakta og aðbúnað á vinnustað hafi verið Verklok við Blönduvirkjun: „Áhrifin bitna fyrst og fremst á A.-Húnavatnssýslu“ Nefnd sem komið var á lagg- irnar til að kanna hvað gerðist við lok framkvæmda við Blönduvirkjun hefur nú varp- að málinu frá sér. Þessi nefnd, sem var á kjördæmisvísu, segir í sínu lokaáliti að áhrif verk- loka við Blönduvirkjun muni fyrst og fremst bitna á A.- Húnavatnssýsla og því telji nefndin eðlilegt að framhaldið sé í höndum Austur-Húnvetn- inga og Lýtingsstaða- og Seylu- hrepps í Skagafirði. Nýlega tók héraðsráð A,- Húnavatnssýslu málið upp á fundi og þar var ákveðið að það beitti sér fyrir stofnun fram- kvæmdaráðs í atvinnumálum héraðsins sem fulltrúar frá skag- firsku hreppunum tveimur ættu einnig sæti í. Héraðsráðið hefur líka farið fram á fjárveitingu frá Byggðastofnun, fyrst og fremst til að greiða helming launakostnað- ar eins starfsmanns á móti sveit- arfélögunum í eitt ár. Þessi starfsmaður mun verða einskon- ar framkvæmdastjóri í verkinu og sjá um undirbúningsvinnu. Að sögn Valgarðs Hilmarsson- ar, formanns héraðsráðs A.- Húnavatnssýslu, var ákveðið að boða fljótlega til fundar á þessu svæði og ræða við sveitarfélögin um hvaða hugmyndir þau hafa í þessu sambandi. Málið er þvf komið í hendur héraðsnefndar, en álit sitt byggði kjördæmis- nefndin aðallega á starfsmanna- skiptingu við Blönduvirkjun þar sem mikill fjöldi A.-Húnvetninga vinnur. SBG þverbrotin um árabil í krafti nægilegs framboðs nýútskrif- aðra læknakandidata undan- farin ár. Nú er mál að þessi málefni verði tekin fyrir til leiðréttingar og úrbóta. Einnig er sjálfsögð krafa að gjald fyrir lækningaleyfi verði lækkað, en það hækkaði úr kr. 4.000 í kr. 50.000 sl. vetur.“ Svo segir m.a. í ályktun fundar aðstoðarlækna á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri í gær, en þeir lögðu niður vinnu og ræddu kjara- og önnur hags- munamál sín og fóru þar að dæmi kollega sinna í Félagi ungra lækna. Ályktun læknanna var afhent í gær stjórn FSA og yfir- læknum þar. Aðstoðarlæknar vilja með þessum aðgerðum vekja athygli á því sem þeir kalla óhóflegt vinnu- álag og heita á stjórnir spítalanna að koma til móts við kröfur þeirra um bætt kjör og leiðrétt- ingu á vaktafyrirkomulagi. Á fundi aðstoðarlæknanna við FSA kom fram að þeir væru fag- lega ánægðir með að vinna þar, þeim væri vel sinnt og nytu góðr- ar handleiðslu. Hins vegar hefði spítalinn ekki komið nægilega til móts við kröfur þeirra um launa- kjör og vaktafyrirkomulag o.fl. og ef ekki yrði úr bætt yrði erfitt að fá aðstoðarlækna til starfa við spítalann á næstu misserum. Fram kom hjá aðstoðarlæknun- um áhersla á að krafan um tíu tíma lágmarks hvíld lögum sam- kvæmt yrði höfð í heiðri. Þá var bent á að þrátt fyrir að aðstoðar- læknum væri gert að vinna nætur- vaktir á dagvinnukaupi væru byrjunarlaun þeirra einungis 82 þúsund, sem væru lægri laun en hjúkrunarfræðingar við spítalann nytu. Aðstoðarlæknar bentu á að oft kæmi fyrir að eftirfarandi grein Iaga frá 1980 væri ekki í heíðri höfð: „Á hverju sjö daga tímabili skulu starfsmenn fá a.m.k. einn vikulegan frídag, sem tengist beint samfelldum daglegum hvíldartíma.“ í lok ályktunar aðstoðarlækn- anna á FSA segir orðrétt: „Skort- ur er nú á aðstoðarlæknum við FSA, 7 kandidatar eru af 8 venju- lega og útlit fyrir fækkun í 4-5 Samtök jafnréttis og félagshyggju: Ákvörðiin um framboðsmálin tekin á rá Stefán Valgeirsson, þingmaður Samtaka jafnréttis og félags- hyggju, segir að á ráðstefnu sem haldin verði um næstu helgi verði væntanlega tekin ákvörðun um hvort samtökin bjóði fram í öllum kjördæmum landsins fyrir komandi alþing- iskosningar. Stefán vildi ekki gefa upp hvar ráðstefnan yrði, annað en það að ðstefiiu m lún yrði á Suðurlandi. „Það er mikil undiralda, margar áskoran- ir um framboð," sagði Stefán. Hann vildi ekki svara því beint hvort hann gæfi kost á sér til framboðs í Norðurlandskjör- dæmi eystra. „Ég hef verið í þessu í yfir 50 ár og korn fyrst nálægt framboðsmálum sem for- maður Félags ungra framsókn- armanna í Eyjafirði. Þá hafði ég n helgina það að meginmarkmiði að hver sá sem talið var að hefði mest fylgi ætti rétt á að fara fram og hann hefði líka skyldur við sína félaga. Þetta gildir jafnt fyrir fólk, hvort sem um er að ræða karla, konur, unga eða aldna. Ég býð ekki fram. Það verður fólkið sem býður fram og hvert kjör- dæmi ræður listanum þegar til kemur,“ sagði Stefán. óþh fljótlega. Við teljum að þetta vandamál sé að hluta til „heima- tilbúið“ því stjórn FSA hafi ekki tekið fullt tillit til ítrekaðra ábendinga kandidatsefna síðast- liðinn vetur um leiðir til úrbóta svo laða mætti aðstoðarlækna til starfa við spítalann í vetur. Við álítum að það sé ótvírætt hagur FSA og þeirra sem á þjónustu þess þurfa að halda að þessar stöður verði að fullu mannaðar." óþh Kaupþing Norðurlands: Selur Akur- eyrarbær hlut sinn? Til greina kemur að Akureyr- arbær selji 15 prósent hlut sinn í Kaupþingi Norðurlands hf. Þetta kom fram á bæjarstjórn- arfundi í gær, en Jón Hallur Pétursson, framkvæmdastjóri K.N., sagði í samtali við Dag að hann hefði ekki heyrt um þessa hugmynd áður. Gísli Bragi Hjartarson spurði Heimi Ingimarsson, formann atvinnumálanefndar Akureyrar, hvort hugmyndir hefðu komið fram um að selja umræddan eign- arhlut Akureyrarbæjar í K.N. Heimir kvað meirihluta bæjar- stjórnar þegar hafa fjallað um þetta mál. Það virðist þó stutt á veg komið. Hlutafé Kaupþings Norður- lands er þrjár milljónir króna. Það skiptist þannig að Akureyr- arbær á 15 af hundraði, eða 450 þúsund krónur að nafnverði, K.E.A. á jafnstóran hlut, sjö sparisjóði alls 15%, og Kaup- þing hf. í Reykjavík 55%. EHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.