Dagur - 16.10.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 16.10.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 16. október 1990 Gluggað í fjárlagafrumvarpið: Ríkissjóður verður áfram rekinn með halla reiknað með 1% kaupmáttaraukningu I fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1991 er reiknað með 3,7 milljarða króna halla á rekstr- arreikningi ríkissjóðs eða sem svarar til 1% af landsfram- ieiðslu. Áætlað er að í ár verði halli á rekstri ríkissjóðs um 5,3 milljarðar króna, eða helmingi minni en var árið 1988. Heildartekjur ríkissjóðs eru áætlaðar um 99,6 milljarðar króna á næsta ári eða 7,5% hærri en á yfirstandandi ári. Almennt verðlag hækkar milli þessara ára um 7% þannig að tekjur ríkis- sjóðs haldast nær óbreyttar að raungildi. Hvað tekjur varðar er reiknað með að vaxandi þjóðarútgjöld skili sér í auknum tekjum til ríkisins. Reiknað er með að álagning sérstaks trygginga- iðgjalds í stað launaskatts og ýmissa launatengdra gjalda skili ríkissjóði nokkrum viðbótartekj- um. Aftur á móti er gert ráð fyrir minni tekjum af virðisaukaskatti og jöfnunargjaldi en í ár. Hlutfall heildartekna ríkissjóðs af lands- framleiðslu verður 27,4% sant- Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki: 28 milljónir króna til byggingar bóknámshúss Til nýframkvæmda við fram- haldsskóla á Norðurlandi ver ríkissjóður á næsta ári um 60 milljónum króna, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Af þess- ari upphæð fær Fjölbrauta- skólinn á Sauðárkróki 28 millj- ónir til byggingar bóknáms- húss en fékk í fyrra um 5 millj- ónir til þessa vcrkcfnis. Samkvæmt yfirliti í fjárlaga- frumvarpinu fær Fjölbrautaskól- inn á Sauðárkróki einnig 7 millj- ónir króna til uppgjörs vegna heimavistar við skólann. Þá fær Verkmenntaskólinn á Akureyri 15 milljónir króna tii byggingar 5. og 6. áfanga skólans. Framhaldsskólinn á Laugum fær 2,5 milljónir vegna mötuneytis skólans og Fram- haldsskólinn á Húsavík fær nú 7 milljónir króna til byggingar kennsluhúsnæðis. JOH kvæmt frumvarpinu. Utgjöld ríkissjóðs á árinu eru áætluð um 103 milljarðar króna, sem er 6% hækkun í krónutölu frá árinu í ár. Um 40% af þessari upphæð fara til svokallaðrar sam- neyslu, þ.e. launa- og rekstrar- kostnaðar ríkissjóðs. Þá fara um 40% til ýmissa tilfærslna s.s. bótagreiðslna almannatrygginga- kerfisins, framlaga úr ríkissjóði til sjóða og atvinnuvega og niður- greiðslna á búvörum. Þá er búist við að enn verði dregið úr fram- lögum til fjárfestinga ríkissjóðs sem dregið hefur úr á síðustu árum, skv. frumvarpinu. Ljóst er að ríkissjóður þarf á næsta ári á umtalsverðu lánsfé að halda. í heild þarf um 12 millj- arða króna og þar af fara 3,7 millj- arðar til að fjármagna rekstrar- halla ríkissjóðs, 6,9 ntilljarðar til afborgana af eldri lánum og rúm- lega 1 milljarður fer í lánveiting- ar. Um forsendur frumvarpsins segir að gert sé ráð fyrir að laun í landinu hækki svipað og verðlag á næsta ári. Heildartekjur eru taldar aukast meira, meðal ann- ars vegna fjölgunar á vinnumark- aði og að teknu tilliti til þessa atr- iða og óbreyttrar skattbyrði frá 1990 er því spáð að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann aukist um 1% árið 1991. JÓH Háskólinn á Akureyri: Hækkun á rekstrarframlagi um 35% bóta á vinriustöðu kennara. Heildarframlag ríkissjóðs til Háskólans á Akureyri nemur á næsta ári tæpum 130 milljón- um króna, samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu. Þá er bæði átt við rckstrarframlög, framlög til bóka- og tækjakaupa og framlag til breytinga á hús- næði. Samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu fengi skólinn 98,5 nrilljónir króna í rekstrarframlag sem er Rekstrarútgjöld menntamála- ráðuneytisins hækka um einn milljarð króna á næsta ári frá því sem nú er. Skýringin er fyrst og fremst aukin umsvif í rekstri skóla í landinu. Á móti þessum kostnaðarauka kemur niðurskurður á framlagi til Lánasjóðs íslenskra náms- manna um 240 milljónir króna. Framlög til framhaldsskóla hækka um 15% eða 400 milljónir króna. Þessa hækkun má að mestu rekja til fjölgunar nemenda og nýrra laga um fram- um 35% hækkun milli ára. Gert er ráð fyrir áframhaldandi eflingu á skólastarfi og að útgjöld aukist vegna nýrra árganga í námi sem bætast við, einkum í sjávar- útvegsdeild. Frantlög til kaupa á bókum, tækjum og búnaði eru 16 milljónir króna og til að ljúka við breytingar á leiguhúsnæði skól- ans við Glerárgötu 26 er ætluð 13,1 ntilljón króna. Loks eru ætl- aðar 2 milljónir króna til endur- haldsskóla. Hluti af auknum rekstrargjöld- um framhaldsskóla, eða um 20 milljónir króna, er vegna sjávar- útvegsbrautar við Verkmennta- skólann á Akureyri en hún er rekin á Dalvík. Til reksturs Verkmenntaskól- ans á Akureyri ver ríkissjóður um 168 milljónum króna á næsta ári, 35 milljónum til reksturs Framhaldsskólans á Húsavík, 71 milljón til reksturs Fjölbrauta- skólans á Sauðárkróki og 99 milljónum til rekstur Mennta- skólans á Akureyri. JÓH JÓH Einangrunarstöðin í Hrísey: Rfldsframlag hækkað talsvert Auknum fjármunum verður á næsta ári varið af hálfu ríkis- sjóðs til Einangrunarstöðvar- innar í Hrísey samkvæmt frumvarpi til fjárlaga. Bæði er aukið talsvert við rekstrar- framlag til stöðvarinnar svo og lagt fram fé til áframhaldandi byggingar einangrunarstöðar fyrir gæludýr. Heildarframlag til reksturs stöðvarinnar verður tæpar 5 millj- ónir króna á árinu 1991, verði fjárlögin samþykkt í núverandi mynd. Þetta er tæplega 2 milljón- um hærra rekstrarframlag en í fyrra og er hækkað „til samræmis við raunveruleg rekstrarútgjöld stöðvarinnar," eins og segir í frumvarpinu. Þá verður 1,5 milljónum króna veitl til' byggingar einangrun- arstöðvar fyrir gæludýr. Ráðgert er að leita til Stofnlánadeildar landbúnaðarins um lán til að ljúka byggingunni. JÓH Menntamál: Aukinn kostnaður við skóla - framlög til framhaldsskóla hækka um 15% fréttir Lögregludagurinn á Akureyri: 2000 maims í heimsókn Dagur lögreglunnar var á sunnudaginn. Þá notuðu marg- ir tækifærið til að skoða starfs- aðstöðu lögreglumanna, bún- að og annað sem starfínu við- kemur, um land allt. Á Akur- eyri munu um tvö þúsund manns hafa heimsótt lögreglu- stöðina, en allir starfandi lög- reglumcnn bæjarins, 31 tals- ins, voru við vinnu þennan dag, margir í sjálfhoðavinnu. Ólafur Ásgeirsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn, sagði í samtali við Dag að lögregludagurinn hefði heppnast ákaflega vel, a.rn.k. frá sjónarhorni Iögreglu- manna. Fjöldi fólks hefði komið á stöðina, auk margra barna, til að skoða húsakynni, tæki og búnað. Margir höfðu greinilega ekki gert sér réttar hugmyndir um lögreglustöðina, t.d. hversu hreinlegir fangaklefar eru. „Margir halda að klefarnir séu skítugir og óvistlegir, en þeir eru alltaf nýmálaðir og þrifalegir, og þannig viljum við halda þeim,“ segir Ólafur. Yngsta kynslóðin undi sér vel við bíla og bifhjól lögreglunnar. Um 400 myndir voru teknar af börnum á lögreglubifhjóli, og mega börnin sækja þær í dag. Margir notuðu tækifærið til að spyrja um lögreglumannsstarfið, og voru nemar úr lögregluskólan- um á staðnum til að svara spurn- ingum. Lögreglumenn á Akureyri undirbjuggu daginn vel, og skil- aði sú vinna sér með ágætum. „Við höfðum gaman af þessu og ég varð ekki var við annað en að fólkið væri ánægt,“ sagði Ólafur Ásgeirsson. EHB Húsavík: Gestkvæmt á lögreglustöðinni „Þetta gekk mjög vel að okkar mati og hér komu feikilega margir gestir, það var fullt hús hjá okkur frá tvö eftir hádegi og til að ganga sjö,“ sagði Þröstur Brynjólfsson, yfirlög- regluþjónn á Húsavík, aðspurður hvernig til hefði tekist með að hafa lögreglu- stöðina á Húsavík opna fyrir gesti á sunnudaginn. Miklu fleiri heimsóttu lög- reglustöðina en Þröstur hafði reiknað með. Fólkinu var sýnd lögreglustöðin, aðstaöa. bílar og tæki. Lögreglumenn spjölluðu við gesti og buðu fullorðnum upp á kaffi, en unga fólkinu gos og sælgæti. Þröstur sagði að lög- reglumenn væru mjög ánægðir rhcö daginn. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.