Dagur - 16.10.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 16.10.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16. október 1990 - DAGUR - 5 Nokkur orð vegna bréfs Erlu Magnúsdóttur til ýmissa ráðamanna í Ólafsfirði: í hvers þágu er þetta bréf skrifað? Undirritaður var mjög í vafa um hvort hann ætti yfirleitt að svara einhverju bréfi Erlu Magnúsdótt- ur til ýmissa ráðamanna í Ólafs- firði. Ég taldi bréfið skrifað i slíkum tón aö það svaraði sér sjálft. En þarsem undirritaður er þar sérstaklega tilgreindur og far- ið um hann stórum orðum, sé ég mig tilneyddan til að setja nokk- ur orð á blað. Ég ætla ekki í opinberar rit- deilur. né tel ég svona maj eigi yfirleitt heima í dagblöðum og mun því hafa þessi orð sem þau fyrstu og jafnframt þau síðustu frá undirrituðum um þetta mál á síðum dagblaða. Undirritaður hefur ekki lagt það í vana sinn að búa til gróu- sögur eða breiða þær út, enda tel ég þær í flestum tilfellum hreinan uppspuna. Ég vorkenni þeim sem fyrir svona sögunt verða, en að taka á sögunum og rckja þær til Bjarni Kr. Grínisson. uppruna síns, er jafn vonlaust og finna upptök norðaustan storms. En þetta tel ég að Erla sé að reyna að gera. Hún lendir því miður í því sama og riddarinn hugumstóri, að berjast við vind- myllur. Bréf Erlu nú í dag er eins og uppvakning á gömlum draug. Pví ef Erla varð fyrir óverðskuldaðri umræðu í sumar, þá magnast sú umræða nú og verður eins og uppvakningurinn, illu verri að kveða niður aftur. Pví spyr ég í hvers þágu er þetta bréf skrifað? Ég vil hins vegar benda Erlu á, eins og ég reyndar gerði í viðtöl- um við hana í sumar, að líta í eig- in barm, þaö sakaði ekki, því ég tel það hverjum og einum holla lexíu að horfa gagnrýnum augunt í eigin barm um leið og aðrir eru gagnrýndir. Ef þetta er siðlaust og ef þetta eru þessar móttökur, sem hún lýsir í bréfinu, að hún hafi fengið hjá undirrituðum, þá er það langt ofar mínum skiln- ingi. Undirritaður taldi sig ekki ókurteisan heldur þvert á móti og undirritaður taldi sig ekki hafa láti falla orð sem væru særandi eða meiðandi í garð Erlu. baö er eitt að koma í viðtal og fá þar móttökur og svo annað hvort er- indið fær þá afgrciöslu sem við- mælandi óskar el'tir. Ég er hjartanlega sammála Erlu um að hver og einn eigi að ráða sínum vinnustað. Við búum í frjálsu landi til allrar hamingju og ráðum sjáll' hvar við búum og hvar við vinnum. líka í ÓÍafs- firði. Ég heid að fleiri orð um málið á þessum vettvangi séu óþörf. Bjarni Kr. Grímsson. Höluiulur cr bicjarsljóri í Ólal’sfirói. ' . ________- ------ Glettin skemmtun um saklausan sveitapilt \endir í hinum I fstórborgina er komt5. Frumsýning laugardaginn 20. okt. BorSapantanir a sala daglega 22.9T0. 96-22770 og 96 Hópafsláttur. Kynnir: R°aa jngntfsdottir^ ^rason.^9^^^^ 5!íSsdó«r Rónar Pór Petursson o9 P _ Bann við rjúpnaveiði Öll rjúpnaveiði er bönnuð í eftirtöldum eignarlöndum Hálshrepps í S-Þingeyjarsýslu: Flateyjardal, Bleiksmýrardal, Hjaltadal og Timbur- valladal. Sveitarstjórn. Fjölþjóðlegt gjafavöruúival Spánskar glervörur - Belgískar steinstyttur - ítalskar stálvörur - íslenskar glervörur - Enskur kristall. Gjafavörur við öll tækifæri. Opið laugardaga og sunnudaga í Hafnarstræti kl. 9-16 og 10-14 i Sunnuhlíð laugard. kl. 10-18. Póstsendum. Næg bílastæði. Blómabúðin Laufás Sími 24250 Blómleg búð. Námskeið í taumálun hefst fimmtudaginn 18. október, kl. 20.00. 3ja kvölda námskeið. Öll gögn á staðnum. Væntanlegir þátttakendur tilkynni sig til Baldurs í síma 26888 milli kl. 12.30 og 16.30. Takmarkaður fjöldi. Félagsmálanefnd. Menntamálaráðuneytið Styrkir til háskólanáms í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi. 1. Norsk stjómvöld bjóða fram styrk handa íslenskum stúdent eða kandídat til háskólanáms í Noregi námsárið 1991-92. Styrktímabilið erníu mánuðirfrá 1. september 1991. Til greina kemur að skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur um 4.100 n.kr. á mánuði. Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og hafa stundað háskólanám í a.m.k. 2 ár. 2. Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlendum námsmönnum til að stunda nám í Svíþjóð námsárið 1991-92. Styrkir þessir eru boðnir fram í mörgum löndum og eru öðru fremur ætlaðir til náms sem eingöngu er unnt að leggja stund á í Svíþjóð. Styrkfjárhæðin er 5.760 s.kr. á mánuði, námsárið, þ.e. í 9 mánuði. Til greina kemur að styrkur verði veittur í allt að þrjú ár. 3. Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslensk- um stjórnvöldum að boðir séu fram eftirtaldir styrkir handa íslendingum til náms og rannsóknastarfa í Þýskalandi á námsárinu 1991-92. a) Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. b) Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1991. Umsækjenur skulu vera komnir nokkuð áleiðis í háskólanámi og leggja stund á nám í öðrum greinum en þýsku. Einnig þurfa þeir að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu. c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa um allt að fjögurra mánaða skeið. Nánari upplýsingar um styrkina fást í menntmálaráðu- neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknir um sænsku styrkina skulu sendar til Svenska Institutet, box 7434-S-103 91 Stockholm, og lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknareyðublöð fram til I. desember n.k. Sérstök eyðublöð um aðra ofangreinda styrki fást í menntamálaráðuneytinu og skal skila umsóknum þangað, fyrir 15. nóvember um þýsku styrkina, en 1. desember um norska styrkinn. Menntamálaráðuneytið, II. október 1990.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.