Dagur - 16.10.1990, Síða 7
Þriðjudagur 16. október 1990 - DAGUR - 7
Þorvaldur í leik með Forest.
Knattspyrna:
Grindvíkmgar falast
eftir Siguróla
- en hann er
Grindvíkingar hafa haft sain-
band við Siguróla Kristjáns-
son, knattspyrnumann í Þór,
og beðið hann að leika með
Grindavíkurliðinu í 2. deild í
suinar. „Jú, þeir eru búnir að
hafa samband en cg er ekkert
farinn að velta þessu fyrir mér
og veit ekki hvað ég geri,“
sagði Siguróli í samtali við
Dag.
enn óákveðinn
Siguróli lék með Grindavíkur-
liðinu í fyrra en gekk aftur til liðs
við Þórsara fyrir síðasta keppn-
istímabil. Hann sagði allt óráðið
með næsta sumar. „Ég er nú
búinn að heyra þessar sögur sjálf-
ur og ég veit ekkert hvaðan þær
koma. En ef ég væri jafn ákveð-
inn og þcir sem eru að segja
sögurnar þá væri gaman að
þessu,“ sagði Siguróli Kristjáns-
son.
Handknattleikur, 1. deild:
Óvæntur stórsigur KA
á Stjömunni í Garðabæ
Verður Siguróli áfram í Þórsbún-
ingnum?
Andrés Magnússon skoraði 3 mörk fyrir KA-menn.
Mynd: KL
- „Vona að við leikum af eðlilegri getu hér eftir,“
segir Pétur Bjarnason
KA-menn stöðvuðu sigurgöngu
Stjörnunnar í VÍS-keppninni í
handknattleik með stórsigri í
Garðabæ á laugardag, 29:20.
Staðan í hléi var 13:11 KA í
vil. Eftir slakan leik gegn FH í
síðustu viku rifu KA-menn sig
upp og börðust cins og Ijón og
virtist það koma Stjörnuliðinu
nokkuð í opna skjöldu.
Stjarnan byrjaði leikinn reynd-
ar betur og komst í 3:0. KA-
menn skoruðu fyrsta markið eftir
Þorvaldi gengur vel
með varaliði Forest
- hefur skorað §ögur mörk í tveimur síðustu leikjum
Eins og komið hefur fram hef-
ur Þorvaldur Örlygsson enn
ekki fengið tækifæri með aðal-
liði Forest síðan keppnistíma-
bilið á Englandi hófst í haust.
Honum hefur hins vegar geng-
ið vel í leikjum með varaliðinu
að undanförnu og hefur skorað
fjögur mörk í tveimur síðustu
leikjum.
Eins og kom fram í viðtali við
Þorvald í síðustu viku skoraði
hann tvö mörk í leik varaliðsins
gegn Sunderland fyrir skömmu.
Næst var leikið gegn Hudders-
field og þar skoraði Þorvaldur
aftur tvívegis í 5:2 sigri Forest.
„Ég sé ekki að liðinu verði breytt
um næstu helgi en maður hlýtur
að fara að banka á dyrnar ef
maður heldur áfram að skora. Ég
er tilbúinn í slaginn og bíð þolin-
móður eftir mínu tækifæri," sagði
Þorvaldur en hann var í stuttri
heimsókn á Akureyri yfir helgina
þar sem ekkert var leikið í ensku
1. deildinni vegna landsleiks
Englands og Pólverja sem fram
fer á morgun.
7 mínútur en komust æ betur inn
í leikinn eftir því sem leið á fyrri
hálfleik og þegar 6 mínútur voru
til hlés jafnaði Erlingur Krist-
jánsson, 8:8. KA átti góðan
endasprett og náði tveggja marka
forystu áður en flautað var til
hlés. Fyrri hálfleikur cinkenndist
af ntikilli baráttu og oft óþarfa
hörku leikmanna beggja liða.
Ekki bætti léleg frammstaða
dómaranna úr skák.
Liðin mættu bctur þenkjandi
til leiks í seinni hálfleik, einkum
KA-menn. Þeir náðu strax yfir-
höndinni, vörnin var sterk, Axel
varði nánast allt í markinu og
sóknarleikurinn var beittur. Eftir
Pétur Hjarnasnn fyrirliöi KA, átti
mjög góðan leik í Garðabæ.
15 mínútur var staðan 23:17 fyrir
KA og enn jókst munurinn og
varð mestur 9 mörk. Lokatölurn-
ar urðu sem fyrr segir 29:20.
Það var öðru t'remur sterk liðs-
heild KA sem skóp þennan sigur.
Vert er að geta Axels Stefánsson-
ar sem varði 19 skot, Erlings
Kristjánssonar, sem hélt Sigurði
Bjarnasyni í skefjum, og Péturs
Bjarnasonar og Hans Guðmunds-
sonar sem áttu sennilega sinn
besta leik til þessa.
Lið Stjörnunnar var ekki sann-
færandi að þessu sinni og átti í
heild slakan dag. Skástir voru
Brynjar Kvaran í markinu og
Magnús Sigurðsson en aðrir léku
langt undir getu.
Pétur Bjarnason, fyrirliði KA,
var að vonum ánægður með leik
sinna manna. „Liðsheildin spilaði
vel og hlutirnir gengu upp. Við
erum búnir að véra þungir í síð-
ustu leikjum og vorum lélegir á
móti FH en ég vona að við leik-
um af eðlilegri getu hér eftir.
Deildin er jafnari núna og allir
geta unnið alla. Mig grunar að
Stjörnumenn hafi vanmetið okk-
ur en þeir munu ekki gera það í
bikarnum," sagði Pétur.
Mörk Stjörnunnar: Magnús Sigurðsson
8/2, Hafsteinn Bragason 4, Skúli Gunn-
stcinsson 4, Siguröur Bjarnason 2, Hilm-
ar Hjaltason 1, Sigurður Guðmundsson
1.
Mörk KA: Hans Guðmundsson 8, Pétur
Bjarnason 7. Sigurpáll Árni Aðalsteins-
son 5/1, Erlingur Kristjánsson 5, Andrés
Magnússon 3, Guðmundur Guðmunds-
son 1.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Árni
Sverrisson og höfðu þeir lítil sem engin
tök á leiknum. -bjb