Dagur - 16.10.1990, Page 11

Dagur - 16.10.1990, Page 11
Þriðjudagur 16. október 1990 - DAGUR - 11 Leikkonan Cher í rusli - rokkarinn ungi sparkaði henni Eftir þennan ruddaskap hefur Cher grátið við öxl gamla elsk- hugans, Rob Camilletti. „Cher hefur aldrei verið svona illa á sig komin andlega," sagði náinn vinur hennar. „Hún hefur grátið stanslaust frá því hinn þrí- tugi Riehie sleit sambandinu. Hún hvorki borðar né sefur og rambar á barmi taugaáfalls. Richie kom við viðkvæmasta blett hennar, aldurinn. Nú líður henni eins og gamalli ömmu þótt hún sé í raun ein kynþokkafyllsta konan í heiminum.“ Þessar sömu heimildir herma að Cher standi tímunum saman fyrir framan spegil, jafnvel nakin, og leiti að ellimörkum á líkama sínum. Víst er að margir karlmenn vildu verða vitni að þessari naflaskoðun, en það er nú önnur saga. Richie var búinn að fá nóg. Sagan segir að þau hafi rifist heiftarlega á veitingahúsi kvöldið sem sambandið fór út um þúfur. Cher vildi hafa það huggulegt og rómantískt en rokkarinn, sem er gítarleikari Bon Jovi, vildi rasa út og fara í villt partí. Hann sagðist vera búinn að fá nóg af Cher, hún væri nógu gömul til að vera mamma hans, nú vildi hann svalla dálítið með yngri konurn. Þannig fór um sjóferð þá og síðan hefur gamli kærastinn reynt að hugga Cher. bað virðist ekki hafa heppnast því hún er enn langt niðri og þráir bara Richie Sambora. Haft er eftir umboðsmanni Cher að hann hefði ekki vitað að sambandið við Sambora væri á enda. Hins vegar ef svo væri þá hefði Cher ábyggilega sparkað Richie, ekki öfugt. Þessi sami umboðsmaður kveður það af og frá að leikkonan þjáist af þung- lyndi. Pá eru báðar hliðar málsins komnar fram, eins og í áreiðan- legum blaðagreinum, og látum við hér staðar numið. Hin ágæta leikkona, Cher, er nú alveg í rusli eftir að rokkarinn ungi, Richie Sambora, sagði henni upp. Vinir hennar eru hræddir um að hún sé að því komin að fá taugaáfall. Sambora sparkaði hinni 44ra ára gömlu Cher með þessum óvægnu orðum: „Ég vil ekki vera hlekkjaður við gamla kerlingu." Richie Sambora, þrítugur rokkari, sleit sambandinu við Cher og kallaði hana gamla kerlingu. Cher hefur leitað huggunar hjá gamla kærast- anum, Rob Camilletti, sem sést með henni á litlu myndinni. Hattahátíð á Húsavík: Konur með kaJlalausa skemmtun Hattahátíðin, sem Soroptimista- klúbbur Húsavíkur og nágrennis frestaði vegna veðurs og færðar í vor, verður haldin á Hótel Húsa- vík laugardagskvöldið 3. nóv. nk. Konur á Norðurlandi eru því beðnar að taka kvöldið frá til þessara nota. Hattahátíðin nefnist svo því aðeins konur fá aðgang og mega þær koma með hvað sem þeim dettur í hug á höfðinu, til viðbót- ar hárinu, t.d. hatta eða húfur, hverskonar höfuðföt eða hár- skraut. Engum karlmanni verður hleypt inn á samkomuna sem á að standa til miðnættis. Klúbbur- inn mun ekki standa fyrir dans- leik eftir hátíðina. Boðið verður upp á margvísleg skemmtiatriði, bæði menningarleg og skemmti- leg og á borð verður borinn léttur kvöldverður. Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur verður veislustjóri, eins og tvö undanfarin ár, er klúbburinn hefur staðið fyrir svonefndri Gellugleði. IM Útfararskreytiiigar Kransar—krossar — kistuskreytingar Sjáum um alla skreytingu í kirlgu. AKURW Kaupangi • Akureyri Símar 24800 og 24830 Aðalfundur Foreldra- og kennarafélags Barnaskóla Akureyrar verður haldinn í skólanum fimmtudaginn 18. okt- óber næstkomandi kl. 20.15. Venjuleg aðalfundarstörf. Einnig verður greint frá námsferð kennara til Hollands og Belgíu s.l. vor og fjallað um þróunar- verkefni sem unnið er að í skólanum. Foreldrar og kennarar eru hvattir til að fjölmenna og eiga saman ánægjulega kvöldstund á aðalfundi og í tilefni þess að nú eru 60 ár síðan starfsemi skólans hófst á þessum stað. Stjórnin. Menntamálaráðuneytið. Laus staða Laus er til umsóknar staða sérfræðings i íslenskri mál- fræði við Islenska málstöð. Verkefni einkum á sviði hagnýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og fræðsla og ritstjórnarstörf. Til sérfræðings verðg gerðar sams konar kröfur um menntun og til lektors í íslenskri málfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf umsækjenda, ritsmiðarog rannsóknir, svo og námsfer- il og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 9. nóvember n.k. Menntamálaráðuneytið, 11. október 1990. Vinningstölur laugardaginn 13. okt. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 2.299.118.- 2. aTÆ 4 99.653.- 3. 4af 5 158 4.351.- 4. 3af 5 4732 339.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.989.336.- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.