Dagur


Dagur - 26.10.1990, Qupperneq 1

Dagur - 26.10.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, föstudagur 26. október 1990 206. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Frágangur lóðar við Glerárskóla: Kostnaður fór fram úr áætlun „Ótíðarkaflinn og snjórinn fyrr í haust setti strik í reikn- inginn, en nú njótum við veðurblíðunnar dag eftir dag og það kemur sér vel,“ sagði Stefán Stefánsson, bæjarverk- fræðingur á Akureyri, þegar blaðamaður Dags ræddi við hann um verklegar fram- kvæmdir á vegum bæjarins nú á haustdögum og fyrstu dögum vetrar. Að sögn Stefáns eru bæjar- starfsmenn að ljúka framkvæmd- um við lóð Glerárskóla. Fjár- hagsáætlun gerði ráð fyrir 12 miljónunt króna til verksins, en hún hefur ekki staðist. Að áætlun stóðst ekki er fyrst og fremst um að kenna að kostnaður við jarð- vegsskipti undir bílastæðinu fór fram úr áætlun, en fyrri jarðvegs- skipti svöruðu ekki þeim kröfum sem gerðar eru í dag. Jafnframt var framkvæmt meira en til stóð í upphafi. Ekki liggur fyrir hver kostnaðurinn er, en reikningar verða teknir saman á næstu dögum, þegar þeir verða komnir inn. „Ef áætlanir eru vel unnar í ÓlafsQörður: Einn elsti bátur flotans tekinn á land í gær var tekinn á land í Ólafsfirði Ármann ÓF-38, 64 ára gamall eikarbátur, sein valinn verður staáur í bænum sem safngrip. Þessi bátur var gerður út frá Ólafsfirði allt þar til fyrir um tveimur árum þegar hann var tekinn úr umferð, þá eitthvert elsta fiskiskip flotans. Hópur áhugamanna í Ólafsfirði hefur nú tekið sig saman um varðveislu þessa skips sem á að baki sér íangan og glæstan kafla í útgerðarsögu Óiafsfjarðar. Óskar t>ór Sigurbjörnsson, einn þeirra áhugamanna sem að þessu máli vinnur, segir að frá Ólafsfiröi hafi þessi bátur verið gerður út frá um 1960 þar til fyrir tveimur árum. Bát- urinn er 22 tonn að stærð, byggður á Akrancsi árið 1926 og lengdur árið 1935. „Þetta er happafleyta og merkilegt skip. Bæði er hann merkilegur fyrir lag sitt sem nú er sjaldséð og aldurinn," segir Óskar. Hann segir að nú í vetur verði bátnum valinn staður í bænum og hann búinn sem safngripur þannig að hann geti staðið sem minnisvarði um útgerð í Ólafsfi rði fyrr á tímum. „Við höfum ekki verið með söfn af neinu tagi og höf- um sofið alltof lengi á verðin- um í þeim málum,“ segir Óskar. JÖH upphafi, þá á ekki að vera erfitt að halda þeim. Að vísu geta allt- af komið upp óvænt atvik sem breyta málum. Á umliðnum árum hefur verðbólgan gert okk- ur erfitt fyrir, en svo er ekki í dag. Frágangur og aðkoma að sund- lauginni í Glerárhverfi verður væntanlega á framkvæmdaáætlun næsta árs. Hvað viðkemur fram- kvæmdurn á lóðum við skóla, þá er frágangur lóðar við Lundar- skóla næstur á dagskrá. Fram- kvæmdir eru þegar hafnar, en minna verður gert á þessu ári en til stóð. Fjármagn vantar vegna þess að farið var fram úr áætlun við Glerárskóla,“ sagði Stefán Stefánsson, bæjarverkfræðingur á Akureyri. ój „Já, hann er skjólgóður Skodinn." Mynd: Golli Kynningarfundum um stöðu lífeyrismála á Norðurlandi lokið: Boðað til ráðsteftiu og aukaþings um sameiningarmál 3. nóvember nk. - greinilegur vilji til sameiningar, segir formaður Lífeyrisnefndar AN I framhaldi af kynningarfund- um svokallaðrar Lífeyrisnefnd- ar Alþýðusambands Norður- lands á Kópaskeri, Blönduósi og Akureyri í þessum mánuði hefur verið boðað til ráðstefnu um lífeyrismálin á Akureyri 3. nóvember nk. og aukaþings A.N. að henni lokinni þann sama dag. Á ráðstefnunni flytja framsöguerindi Benedikt Davíðsson, formaður Sam- bands almennra lífeyrissjóða, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI og Hallgrímur Snorrason, hag- stofustjóri. Fyrr í þessum mánuði efndi Lífeyrisnefnd AN til þriggja kynningarfunda á stöðu lífeyris- mála á Norðurlandi, en eins og kunnugt er hafa komið fram hug- myndir um að sameiningu lífeyr- issjóðanna í einn stóran lífeyris- sjóð fyrir allt Norðurland. Fund- ina sóttu stjórnarmenn verka- lýðsfélaganna og lífeyrissjóð- anna. Kári Arnór Karlsson, for- maður nefndarinnar, segir að fram hafi komið vilji á fundum Starfsmenn sjúkrahúsa á landsbyggðinni verða ríkisstarfsmenn um áramót: Starfsmömmm FSA sagt upp um mánaðamótin - starfsfólki jafnframt boðinn nýr ráðningarsamningur 1 Öllu starfsfólki Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, um 600 manns, verður nú um mán- aðamótin sagt upp störfum og jafnframt gefinn kostur á endurráðningu á sömu kjörum og áður. Þetta er gert vegna þess að nú um áramótin yfir- tekur ríkissjóður rekstur sjúkrahússins, sem og annarra sjúkrastofnana utan Reykja- víkur. Við endurráðningu munu því starfsmenn fara á launaskrá hjá ríkissjóði. Starfsfólki á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri hafa nú verið kynnt þessi áform, jafnframt sem nánar hefur verið útskýrt hvað gerist við þessar breytingar. Árið 1989 varð breyting á verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga og í framhaldi af því voru samþykkt ný lög um heilbrigðisþjónustu síðastliðið vor en samkvæmt þeim verða starfsmenn við sjúkrahús utan Reykjavíkur ríkisstarfsmenn um næstu ára- mót. Ingi Björnsson, framkvæmda- stjóri FSA, segir að á mörgum sjúkrahúsanna hafi starfsfólki verið sagt upp um síðustu mán- aðamót en forsvarsmenn FSA hafi óskað eftir nánari upplýsing- um frá heilbrigðisráðuneyti um þetta mál. Þær hafi nú fengist. Ingi segir að hvorki réttindi né kjör starfsfólks muni skerðast við þetta. Breytingar verði engar fyrr en þá mögulega í næstu kjara- samningum starfsfólks en þá verður ríkissjóður viðsemjand- inn. Ingi segir að starfsfólk hafi sýnt þessum aðgerðum skilning en þó sé uggur í mörgum, bæði starfs- fólki og stjórnendum, um að í framtíðinni verði erfiðleikum bundið að fá starfsfólk til starfa við þessar stofnanir út á landi ef samningamál muni breytast veru- lega frá því sem verið hefur við bæjarfélögin. JÓH Siglfirðingur hf.: Skipin tUbúin tÚ veiða Bæöi skip Siglfirðings hf. á Siglufiröi hafa undanfarið ver- ið í slipp, þar sem gert hefur verið við og þau yfirfarin, en skipin eru væntanleg til heima- hafnar um helgina. Frystitogarinn Siglfirðingur SI var í slipp í Bretlandi, nánar til tekið í Hull. Togarinn kemur til Siglufjarðar á sunnudaginn. Báturinn Hafsteinn SI var í slipp í Stykkishólmi, eftir að hafa verið lengi á lúðuveiðum. Haf- steinn verður gerður klár á síld- veiðar eftir að hann kemur til heimahafnar. EHB fyrir sameiningu sjóðanna í einn sjóð, einkum hafi fulltrúar hinna smærri sjóða lýst áhuga á henni. Þrjár meginástæður liggja til grundvallar áhuga manna á sam- einingu. í fyrsta lagi aö minnka rekstrarkostnað, í öðru lagi hafa stóru lífeyrissjóðirnir sýnt betri ávöxtun og í þriðja lagi sjá menn meiri áhættudreifingu í einum sterkum lífeyrissjóði en mörgum smáum og fátækum. Á ráðstefnuna á Akureyri 3. nóvember eru boðaðir stjórnar- menn verkalýðsfélaga á svæðinu, stjórnarmenn lífeyrissjóðanna, atvinnurekendur, þingmenn og fulltrúar peningastofnana á Norðurlandi. Þá er ráðstefnan opin öllu áhugafólki um þessi mál. Rétt til setu á aukaþingi AN 3. nóvember nk. hafa þeir sem kjörnir voru til setu á síðasta þing Alþýðusambandsins. „Ástæðan fyrir því að boðað er til þessarar ráðstefnu er að okkur þótti þetta mál varða mun fleiri en eru innan Alþýðusambands Norðurlands. Þess vegna væri æskilegt að gefa fólki kost á að kynna sér það á opinni ráðstefnu. Aukaþinginu er ætlað að fjalla um álit lífeyrisnefndarinnar og taka ákvörðun um það af eða á hvort sameiningarskrefið verður stigið. Samþykki aukaþingið að sameina sjóðina mun Alþýðu-' sambandið væntanlega senda erindi til aðildarfélaganna þar sem þau eru beðin að svara því hvort þau hafi áhuga fyrir sam- einingu," sagði Kári Arnór. Hann sagði að yrði jákvæð niðurstaða í þessu máli fyrir t.d. febrúar á næsta ári gæti hugsan- lega tekið til starfa einn samein- aður lífeyrissjóður fyrir allt Norðurland í byrjun árs 1992. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.