Dagur - 26.10.1990, Page 11
íþróttir
Föstudagur 26. október 1990 - DAGUR - 11
F
Knattspyrna:
Sigurður Lárusson þjálfar
Þórsara næstu þrjú árin
- rætt við Kostic um að leika áfram með liðinu
Sigurður Lárusson þjálfar
knattspyrnulið Þórs næstu
þrjú árin. Frá þessu var geng-
ið í fyrrakvöld en samningur
verður undirritaður um helg-
ina.
Sigurður Arnórsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Þórs,
segir að það hafi ekki tíðkast
hjá deildinni að gera þetta langa
samninga. „Nú á að hugsa til
lengri tíma og þetta veitir
mönnum ákveðinn vinnufrið,
jafnt leikmönnum sem þjálf-
ara.“
Sigurður sagði að ekki væri
ljóst hvað Luka Kostic gerði
næsta sumar. Það yrði rætt við
hann um að leika áfram með
liðinu og væri ekki vitað betur
Sigurður Lárusson.
en hann hefði áhuga á því.
„Mér líst mjög vel á þetta.
Maður getur unnið öðruvísi að
þjálfuninni með þetta langan
samning, þarf ekki að vera í
þessari skorpuþjálfun og getur
hugsað lengra en til 6-7 mán-
aða,“ sagði Sigurður Lárusson.
Hann sagði að stefnan yrði tek-
in á að koma liðinu strax aftur
upp. „Það verður bara að fara
með bros á vör í þetta og hafa
gaman af. Þetta verður hins
vegar erfiður róður. Deildin
verður sterk, ekki síst af því að
Skaginn fór niður. En félagið á
nóg af ungum og efnilegum
leikmönnum og framtíðin ætti
að vera björt,“ sagði Sigurður
Lárusson.
Arctic Open golfmótið:
Fyrirspumum að utan
til GA linnir ekki
- Japanar vilja sérstakt mót
Að sögn Gísla Braga Hjartar-
sonar, framkvæmdastjóra
Golfldúbbs Akureyrar, linnir
ekki fyrirspurnum frá útlönd-
um um Arctic Open golfmótið.
„Nú síðast voru Japanir að
spyrjast fyrir um mótið og
spurðu reyndar hvort ekki væri
hægt að setja á sérstakt mót
fyrir þá, helgina eftir Arctic
Open. Við ætlum að skoða
þetta en þarna er verið að tala
um 30-70 inanns,“ sagði Gísli
Bragi.
Þessa dagana er verið að leggja
síðustu hönd á gerð kynningar-
bæklings fyrir Arctic Open. Þá
fer David Barnwell til Bandaríkj-
anna í nóvember að kynna
mótið. Gísli Bragi sagði að ekki
værið búið að staðfesta neinar
pantanir en fyrirspurnir væru að
koma alls staðar úr heiminum,
t.d. frá Bandaríkjunum, Kanada
og Bretlandi, og vonuðust menn
til að metþátttaka yrði næsta ár.
Akureyrskir kylfingar hafa nú
tekið gleði sína á ný eftir að útlit
var fyrir að golfvertíðinni væri
lokið á þessu ári. Jaðarsvöllurinn
er opinn og þar spila menn enn á
sumargrínum. Framkvæmdir
standa yfir á vellinum og er m.a.
verið að búa til ný grín og nýja
teiga auk þess að gera klárt fyrir
veturinn.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Hvað gerir Þór gegn KR?
- Tindastóll-ÍR á Króknum
Um helgina eiga bæöi Þór og
Tindastóll heimaleik í úrvals-
deildinni í körfuknattleik.
Þórsarar fá íslandsmeistara
KR í heimsókn í íþróttahöllina
á Akureyri og Tindastóll tekur
á móti ÍR-ingum á Sauðár-
króki. Báðir leikirnir fara fram
á sunnudagskvöldið og hefjast
kl. 20.
KR og ÍR eru bæði í A-riðli en
um helgina hefst fyrri umferð þar
sem leikið verður milli riðla. Það
er ljóst að Þórsarar munu eiga
við ramman reip að draga. KR-
ingar eru núverandi íslandsmeist-
arar en mæta með nokkuð breytt
lið frá því á síðasta keppnistíma-
bili. Þeir misstu Sovétmanninn
Kovtoum og Birgi Mikaelsson sem
fengu í staðinn Jonathan Bow,
Björn Steffensen og Ólaf Guð-
mundsson. Landsliðsmaðurinn
Páll Kolbeinsson stýrir svo skút-
unni. En Þórsarar hafa sýnt og
sannað að þeir geta bitið frá sér
og ætla sér áreiðanlega sigur á
sunnudagskvöldið.
Tindastólsliðið ætti að eiga
sigurinn vísan gegn ÍR á Sauðár-
króki. Liðið hefur unnið alla sína
leiki til þessa en ÍR-ingar hafa
hins vegar átt erfitt uppdráttar og
ekki enn unnið leik. Það hefur
misst Björn Steffensen og Björn
Leósson en mætir til leiks með
Bandaríkjamanninn Douglas
Shouse sem er nýgenginn til liðs
við það. Dagur setur hiklaust
einn á þennan leik.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Stefón úr leik
— fyrsta beina útsendingin um helgina
Þau undur og stórmerki gerðust í síðustu viku að Stefán Thor-
arensen, ókrýndur getraunakóngur Dags, beið lægri hlut í get-
raunaleiknum og er því úr leik. Það var Brynjar Davíðsson sem
sló hann út, hlaut 6 rétta gegn 4 réttum Stefáns. Stefán tók þátt
16 sinnum og er það met sem verður tæplega slegið á næst-
unni. Hafi hann þökk fyrir þátttökuna.
Brynjar tekur nú við og skorar á félaga sinn, Kristján
Kristjánsson. Spár þeirra fara hér á eftir.
Nú um helgina áformar Sjónvarpið að hefja beinar útsending-
ar frá ensku knattspyrnunni. Á morgun er það leikur Nottingham
Forest og Tottenham sem háður verður á City Ground, heima-
velli Forest. Guðni Bergsson hefur leikið töluvert með Totten-
ham í vetur og verður hugsanlega með en spurningin er hvort
Þorvaldur Örlygsson fari ekki að fá tækifærið langþráða. Það
kemur í Ijós kl. 14 á morgun.
Brynjar:
Kristján:
Arsenal-Sunderland 1
Aston Villa-Leeds 1
C. Palace-Wimbledon 1
Liverpool-Chelsea 1
Luton-Everton 2
Nott. Forest-Tottenham 2
Q.P.R.-Norwich X
Sheff. Utd.-Coventry 2
Southampton-Derby 1
Barnsley-Swindon X
Millwall-Sheff. Wed. 2
Oldham-Notts County 1
Arsenal-Sunderland 1
Aston Villa-Leeds 2
C. Palace-Wimbledon 1
Liverpool-Chelsea 1
Luton-Everton X
Nott. Forest-Tottenham 2
Q.P.R.-Nonvich X
Sheff. Utd.-Coventry X
Southampton-Derby 1
Barnsley-Swindon 1
Millwall-Sheff. Wed. X
Oldham-Notts County 2
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
KSÍ:
B-stigs þjálf-
aranámskeið
um aðra helgi
Fræðslunefnd KSÍ gengst fyrir
B-stigs þjálfaranámskeiði helg-
ina 2.-4. nóvember. Rétt til
þátttöku hafa þeir sem setið
hafa A-stigs námskeið en eitt
slíkt fer einmitt fram nú um
helgina.
Námskeiðið um aðra helgi
verður bæði bóklegt og verklegt.
Fjöldi fyrirlesara og þjálfara mun
leiðbeina þátttakendum. Þátt-
tökugjald er kr. 7500 með gögn-
um og fæði. Þeir sem hafa áhuga
snúi sér til skrifstofu KSÍ, sími
91-84444.
Borðtennis:
Stórmót á
Grenivík
Um helgina fer fram stórmót í
borðtennis á Grenivík. Mótið
kallast Pepsí-mót Magna og
eru 88 keppendur skráðir til
leiks.
Keppendur koma flestir af
Eyjafjarðarsvæðinu en einnig
koma um 10 manns að sunnan. A
morgun verður aldursflokkamót
þar sem keppt verður í 5 aldurs-
flokkum karla og kvenna. Á
sunnudag verður svo punktamót
fyrir 2. flokk karla og 1. flokk
kvenna.
Þetta er fyrsta stóra mótið sem
haldið er á Grenivík en það fer
fram í stofum Grenivíkurskóla.
Það er Sanitas sem gefur öll verð-
laun.
KA-völlurinn:
Fólk vantar
í þökulagningu
Eins og fólk hefur tekið eftir hafa
nokkrar framkvæmdir verið í
gangi á KA-vellinum síðustu
vikur. Nú er verið að leggja síð-
ustu hönd á þökulagningu sem
staðið hefur yfir að undanförnu
og eru KA-menn hvattir til að
mæta á morgun og leggja hönd á
plóginn en þá er stefnt að því að
ljúka verkinu. Hafist verður
handa kl. 10 í fyrramálið.
Tekst Jóhanni Sigurðssyni og félögum í Þór að leggja meistara KR?
Yngri flokkarnir:
Blakið og handboltinn
af stað um helgina
Húsavík og Akureyri og þá
tekur 2. flokkur KA þátt í 1.
umferð í handknattleiknum
sem fram fer á Seltjarnarncsi.
1. umferð í 2. og 3. flokki karla
fer fram í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og eiga KA-menn lið í báð-
um flokkum. Keppni hefst kl. 20
í kvöld og verður fram haldið kl.
13 á morgun. Sömu flokkar
kvenna leiða saman hesta sína á
Húsavík. KA verður þar með tvö
lið í 3. flokki og eitt í 2. flokki og
Völsungur á einnig lið í báðum
flokkum. Keppni hefst kl. 10 í
fyrramálið og kl. 9.15 á sunnu-
dagsmorgun.
2. flokkur KA leikur í 2. deild
í handboltanum og tekur þátt í 1.
umferð. Hún hefst á morgun og
lýkur á sunnudag. Auk KA taka
þátt Haukar, KR, ÍR og Grótta.
Ekki verða fleiri lið af Norður-
landi með í ár.
Um helgina hefst keppni á
Islandsmótum yngri flokka í
blaki og handknattleik. 1.
umferð í blaki 2. og 3. flokks
karla og kvenna fer fram á
Úrvalsdeildin:
Snæfell-Þór
verður nyrðra
Leikur Snæfells og Þórs í úrvals-
deildinni í körfuknattleik, sem
vera átti í Stykkishólmi fimmtu-
daginn 1. nóvember, verður á
Akureyri sama dag kl. 19.30.
Ástæðan er að íþróttahúsið í
Stykkishólmi verður ekki tilbúið
1. nóvember eins og vonir stóðu
til.