Dagur - 21.11.1990, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 21. nóvember 1990
Tillaga Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar:
Öll aukning í ríkisgeiranum næstu
10 ár verði á landsbyggðinni
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
varaþingmaður, flutti tillögu á
flokksþingi Framsóknarflokks-
ins um að öll aukning í opin-
berri þjónustu næstu tíu árin
yrði á landsbyggðinni. TiIIaga
þessi hefur vakið mikla
athygli.
Jóhannes Geir sagði í spjalli
við Dag að ástæðan fyrir þessari
afstöðu sinni væru nýlegar upp-
lýsingar frá Byggðastofnun um
skiptingu nýrra starfa á árunum
1984 til ’88 milli landsvæða.
„Hér yrði um grundvallar-
ákvörðun að ræða, sem fylgja
þyrfti eftir með lagasetningu.
Ríkiskerfið myndi síðan aðlaga
sig að þessu á næstu árum.
Kveikjan er upplýsingar frá
Byggðastofnun, en þar er greint
frá þeirri staðreynd að 83 af
hundraði nýrra starfa frá ’84 til
’88 eru á höfuðborgarsvæðinu, en
hér er að langmestu leyti um
þjónustustörf að ræða. Af þeim
er stór hluti þjónusta á vegum
ríkisins, og það er þáttur sem
Alþingi og ríkisvald eiga að geta
stýrt út á land,“ segir Jóhannes
Geir.
Ef þetta nær fram að ganga er
um eina virkustu byggðaaðgerð
Sklpting nýrra starfa 1984-1988 milli landssvæða
6% LandsbyggO aO ööru leyti
NorOurland 6%
SuOurnes 5%
Ileimild: RyggOaslofnun
83% HöfuOborgarsvæOi
að ræða sem hugsanleg er í dag,
að mati Jóhannesar Geirs. Hann
bendir á að afkoma grundvallar-
atvinnuveganna víða um land sé
að batna verulega og fæturnir að
komast undir ýmsan rekstur sem
áður gekk illa, þótt nokkur dæmi
séu óleyst enn. t>ó sjá menn ekki
að fólki muni fjölga mikið í
núverandi greinum á landsbyggð-
inni, jafnvel þótt farið yrði í frek-
ari fullvinnslu. „Ef við ætlum að
sporna við frekari flutningi fólks
frá landsbyggðinni til Reykjavík-
ursvæðisins verðum við að taka á
þjónustugreinunum. Ég get nefnt
tvö dæmi sem ég hef margoft rætt
um, að efla Háskólann á Akur-
eyri og sjá til þess að Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri yrði fal-
ið stærra hlutverk í landsþjón-
ustu, í kjölfar uppstokkunar í
heilbrigðiskerfinu. Það er ekki
lengra fyrir sjúklinga frá mörgum
byggðarlögum að fara til Akur-
eyrar en til Reykjavíkur, til að fá
viðeigandi þjónustu. Ýmsar
ríkisstofnanir þurfa hugsanlega
að vaxa á næstu árum, og þá er
best að sú viðbót verði á lands-
byggðinni," segir Jóhannes Geir
Sigurgeirsson. EHB
Rás 1 í dag:
Þáttur um ljóðskáldið
Braga Siguijónsson
Fjallað verður um Ijóðskáldið
Braga Sigurjónsson í þætti á
Rás 1 í dag og hefst hann kl.
15.03. Bragi fagnaði 80 ára
afmæli sínu 9. nóvember sl. og
þótti vel við hæfi að gera Ijóða-
gerð hans skil á þessum tíma-
mótum.
Kristján Sigurjónsson hefur
umsjón með þættinum sem er
klukkustundar langur. Að sögn
Kristjáns verður ljóðagerð Braga
BYGGINGAVÖRUDEILD
FÉLAGSMANNA-
AFSLÁTTUR Á
BYGGINGAVÖRUM
Við bjóðum félagsmönnum KEA
eftirtalda vöruflokka með 10% afslætti:
Blöndunartæki
Handverkfæri
Málningu frá Sjöfn
En 15% afslátt fá félagsmenn
á eftirfarandi vöruflokkum:
Gólfteppum
Gólfdúkum
Dreglum
Mottum
Langmoen parketti (beiki, eik og ask)
Plankelit spónaplötuparketti
HAGNÝTÐ YKKUR FÉLAGSMANNAAFSLÁTTINN!
Byggingavörur
Lónsbakka • © 30321,30326,30320
þungamiðjan í þættinum. Gísli
Jónsson fyrrverandi mennta-
skólakennari, Símon Jón
Jóhannsson kennari í Hafnarfirði
og séra Bolli Gústavsson í
Laufási munu fjalla um ljóð-
skáldið Braga Sigurjónsson.
Þá verður lesið úr ljóðum
skáldsins og upplesarar verða
þau Þröstur Asmundsson og
Steinunn Sigurðardóttir. SS
Bragi Sigurjónsson.
Árskógsströnd:
Bflvelta og
útafakstur
en engin slys
Erilsamt var hjá lögreglunni á
Dalvík um síðustu helgi og sl.
mánudag. I þrígang var til-
kynnt um útafakstur á Ólafs-
fjarðarvegi. í öllum tilvikum
má kenna mikilli hálku um. Þá
var einn ökumaður stöðvaður,
grunaður um ölvun við akstur.
Skömmu fyrir miðnætti sl.
laugardag var tilkynnt um bíl-
veltu skammt norðan við afleggj-
arann niður á Hauganes. Þrír
voru í bílnum, en þeir sluppu all-
ir ómeiddir. Fullvíst má telja að
megi þakka það bílbeltunum.
Klukkan fjögur aðfaranótt
sunnudags fór annar bíll út af, rétt
sunnan við Fagraskóg. Auk öku-
manns voru fjórir í btlnum og
sluppu þeir sömuleiðis ónteiddir.
Tæpri klukkustund síðar
stöðvaði lögreglan á Dalvík
ökumann á Arskógsströnd grun-
aðan um ölvun við akstur.
Síðastliðinn mánudag var síð-
an enn ein útafkeyrslan á Ólafs-
fjarðarvegi, skammt norðan við
Fagraskóg. Ökumaður var einn í
bílnum og slapp hann án meiðsla.
óþh
fréttir
Akureyri:'
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráði hefur borist
erindi frá bæjarstjórninni í
Runavik í Færeyjum, þar sem
leitað er eftir vinabæjasant-
bandi við Akureyri og hefur
ráðið falið menningarfulltrúa
að afla frekari upplýsinga um
hugsanlegt vinabæjasamband.
■ Bæjarráð hefur lagt til við
bæjarstjórn að stefnt verði að
því á næsta ári að koma upp
merkingum utan dyra við/eða
á sem flestum stofnunum
bæjarins. Þar sent ekki eru
merkingar fyrir, verði miðað
við þá útlitshönnun sem gerð
hefur verið. Það sama veröi
einnig gert hjá stofnunum sem
þegar eru merktar þegar
endurnýjunar er þörf.
■ Meirihluti bæjarráðs legg-
ur til að útsvarsprósenta í
staðgreiðslu opinberra gjalda
á árinu 1991 verði 7,2% af
útsvarsstofni.
■ Bygginganefnd hefur tekið
jákvætt í erindi frá Sigmundi
Þórissyni, þar sem hann fyrir
hönd KA sækir um samþykki
á tillögutcikningum af íþrótta-
húsi eftir Guömund Heiðreks-
son.
■ Á fundi skólanefndar
nýiega, kom m.a. frant að
skólanefnd og skólastjórar
grunnskólanna á Akureyri
telji að stefna beri að Lista-
hátíð barna í Norðurlands-
umdæmi eystra og beina því til
menntamálaráðuncytis að fjár-
munir til barnamenningarátaks
verði m.a. nýttir í þetta verk-
efni.
■ Bæjarlögmaður. Hreinn
Pálsson, kynnti á fundi skóla-
nefndar nýlega, samning ntilli
bæjarins og VÍS unt slysa-
tryggingu skólabarna. Teknar
hafa verið saman stuttar leið-
beiningar um hvernig fara
skuli meö mál í slysatilfellum.
■ Skólancfnd hefur sam-
þykkt eftirfarandi tillögu:
„Skólanefnd leggur til aö þeg-
ar verði hafinn undirbúningur
að frantkvæmdum við 3. áfanga
Síöuskóla. Þessi áfangi verði
svipaður 1. áfanga skólans og
rúnti a.m.k. 6 kennslustofur.
Jafnframt verði settur á fót
samstarfshópur unt þetta verk-
efni, scm í sitji skólastjóri
Síðuskóla, skólafulltrúi og
fulltrúi úr skólanefnd.“
■ Félagsinálaráö hefur sam-
þykkt að veita Náttúrulækn-
ingafélagi Akureyrar styrk að
upphæð kr. 500.000.-.
■ Atvinnumálanefnd hcfur
samþykkt að veröa við erindi
frá Bifreiðastöð Norðurlands
hf. um styrk að upphæð kr.
1.500.000.- til rcksturs upplýs-
ingamiðstöðvar ferðamanna.
■ Atvinnumálanefnd sam-
þykkti cftirfarandi tillögu á
fundi sínum nýlega: „Atvinnu-
málanefnd felur starfsmönn-
um sínum að kanna ntöguleika
á því aö stofnað veröi fyrirtæki
sent sjái um sölu á öllum fiski
og fiskafurðunt frá Eyjafirði,
eða jafnvel af stærra svæði á
Norðurlandi."
■ Á fundi umhverfisnefndar
nýlega, kont fram að gistinæt-
ur á tjaldstæðunum á Akur-
eyri árið 1990 voru 18.265 og
hafa aldrei verið fleiri.