Dagur - 06.12.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 06.12.1990, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 6. desember 1990 - DAGUR - 5 Jólasteikin er komin á tilboði sem þú getur ekki hafnað Bayonneskinka áður kr. 1389 nú kr. 1251. Úrb. svínakambur áður kr. 1330 nú kr. 1197. Einnig þessa viku kindabjúgu áður kr. 618 nú kr. 494. Höfum einnig gott úrval af jólavörum s.s. konfekt, kerti, servíettur, dagatöl, jólakort, merkispjöld, jólapappír og ýmislegt fleira. Erum farin að taka pantanir í laufabrauð og rjúpur Bændur munið bláu nótumar Kiman í jólaskapi - sími 25655 Opið virka daga kl. 9-22 laugardaga og sunnudaga kl. 10-22 Björgunarskóli LHS: Þúsundasti nemandinn á árinu Björgunarskóli Landssambands hjálparsveita skáta heldur um 90 námskeið af ýinsu tagi á þessu ári. Áætlað er að nemendur verði uin 1.500 talsins. Fyrir nokkru var haldið 6 daga framhaldsnám- skeið í skyndihjálp á ísafirði. Pátttakendur voru 12 og meðal þeirra var þúsundasti nemandi Björgunarskólans á þessu ári. Myndin sýnir þúsundasta nem- andann, Einar Snorra Magnús- son, úr Hjálparsveit skáta ísa- firði, en hann fékk bók að gjöf frá skólanum. Með honum á myndinni eru aðalleiðbeinendur á námskeiðinu, þeir Snorri Her- ntannsson til vinstri og Thor B. Eggertsson til hægri. Um tilfærslu ríkisstarf- semi til landsbyggðar Þegar eftir að lokið var við Norðurlandsáætlun í atvinnumál- um var á vegum Fjórðungssam- bands Norðlendinga hugað að leiðum til að efla þjónustustarf- semi á Norðurlandi. í upphafi einkenndist þetta einkum af ábendingum um til- færslu ýmiss konar þjónustustarf- semi, sem tengdist sveitarfé- lögunum. Á síðari stigum var ljóst að nauðsynlegt væri að stuðla að uppbyggingu húsnæðis, sem væri ætlað þjónustustarfsemi s.s. stjórnsýslu, velferðarþjón- ustu og ýmiss konar þjónustu við almenning. Á þessum árum vai það nánast bannorð, að Byggða- sjóður lánaði fé til uppbyggingar þjónustuhúsnæðis úti á landi. Af þessurn ástæðum samþykkti Fjórðungssamband Norðlend- inga að stofna sérstakan sjóð, sem fjármagnaði byggingar þjón- ustu- og stjórnsýslumiðstöðva. Sjóður þessi skyldi hafa tekjur, sem lágt gjald af umsetningu banka og tryggingafélaga. Engin fékkst til að sinna þessari hug- mynd á sinni tíð. Byggðaþróunaráætlun um uppbyggingu þjónustumiðstöðva Fyrir atfylgi Fjórðungssambands Norðlendinga féllst Framkvæmda- stofnun ríkisins á að gera úttekt og áætlun um byggingu mið- stöðva í þéttbýli, sem gætu gegnt þrískiptu hlutverki að vera versl- unarmiðstöðvar, samskiptamið- stöðvar á sviði breytilegrar þjón- ustustarfsemi og stjórnsýsluað- stöðu fyrir deildir frá ríkisstarf- semi, og ennfremur skrifstofu- aðstaða sveitarfélaga. Pessar hugmyndir voru aldrei fullunnar hjá Framkvæmdastofnun. Við mannabreytingar í stofnuninni féll þessi vinna niður. Þær frum- hugmyndir sem fyrir lágu voru nánast stæling á slíkum mið- stöðvum samkvæmt skipulags- hugmyndum borgarhverfa og voru því ekki nægilega staðfærð- ar við þær aðstæður, sein fyrir eru á Norðurlandi. Leitað til Lána- sjóðs sveitarfélaga Þegar sýnt var að ekki var að Áskell Einarsson. vænta stuðnings hjá Byggðasjóði var leitað til Lánasjóðs sveitarfé- laga m.a. vegna þess að í flestum tilvikum er um þjónustuhúsnæði sveitarfélaga að ræða þegar ráðist er í þjónustumiðstöðvar. For- maður sambandsins og fram- kvæmdastjóri áttu um þetta efni viðræður m.a. vegna Dalvíkur- bæjar við formann og fram- kvæmdastjóra Lánasjóðsins. Eftirtekja þeirra viðræðna var í stórum dráttum sú að verkefni sjóðsins voru talin ærin fyrir, þótt þessu verkefni væri ekki bætt ofan á allt saman. Útibú frá sýslumannsembættunum I umsögn sinni um frumvarp um aðskilnað umboðsstjórnar og dómsvalds í héraði lagði fjórð- ungsstjórn mikla áherslu á að umboðsskrifstofum frá sýslu- mannsembættum væri fjölgað og þeim falið ýmiss konar almenn þjónusta nauðsynleg fyrir daglegt líf íbúanna. Þetta á einkum við svæði sem ekki eru á heimasvæði sýsluskrifstofu. Meginatriði varðandi tilfærsiu ríkisstarfsemi Það er Ijóst að um 90% nýrra starfa á höfuðborgarsvæðinu bæt- ast við í þjónustugreinum. Af þessu má draga þá ályktun að stærstur hluti þess fólks, sem hverfur af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins leiti til þessara greina, en þær eru í mestri aukningu á höfuðborgar- svæðinu. Spurningin er því sú hvort hægt verði að auka fjölda starfa í þjónustugreinum umfram það sem nú er úti á landi. Aukning starfa í þjónustu- greinum, einkum í opinbera geir- anum þarf að vera meiri úti á landi, en á höfuðborgarsvæðinu til þess að jöfnuður aukist. Leiðir að þessu marki geta ver- ið þessar: 1. Efling þeirrar opinberu þjónustu, sem fyrir er og til- færsla verkefna út á land, með auknu forræði. 2. Tilfærsla starfsþátta og stofnana til ákveðinna staða. 3. Staðarval nýrra stofnana, úti á landi. 4. Útibú frá stofnunum, sem annast þjónustu við íbúana og atvinnureksturinn. 5. Samstarf stofnana og starfs- deilda er heyra undir sama ráðuneyti um svæðisskrif- stofur, þannig að saman fari þjónustuútibú hliðstæðra málaflokka. 6. Efling sjálfstæðrar starfsemi á menningarsviði og almennri velferðarþjónustu fyrir til- tekin svæði. 7. Samstaða tveggja landshluta um vissa þjónustustarfsemi, sem er ofviða öðru þeirra. 8. Aðgerðir vegna staðarvals stofnana, sem eru utan ríkis- geirans. 9. Sjálfstæðari ákvarðanataka útibúa ríkisbanka og sér- stakur fjárstuðningur við fjárfestingarfélög í lands- hlutunum. 10. Uppbygging stjórnsýslu- og þjónustumiðstöðva, með að- stoðarþjónustu og möguleik- um til samreksturs um hús- næði og búnað. Áskell Einursson. Höfundur er framkvæmdastjóri Fjórð- ungssambands Norölendinga. Lögmannshlíðarkirkjugarður! LEIÐALÝSING Hjálparsveit skáta er með leiðalýsingu eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntunum í síma 24752 til 10. des. Verð á krossi er 1000 kr. Þeir sem ætla að hætta tilkynni það í sama síma. Munurinn er augljós! Herradeild Matvöruverslunin Kimart Hafnarstræti 20

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.