Dagur - 06.12.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 06.12.1990, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 6. desember 1990 - DAGUR - 13 Minning: ■j' Aðalbjörg Jónasdóttir Fædd 24. október 1941 - Dáin 16. nóvember 1990 Síðdegis fimmtudaginn 22. nóvember fór fram minningarat- höfn í Húsavíkurkirkju. Þetta fagra guðshús var þéttsetið fólki. Blóm og kransar jjöktu kistu og altarisbrík. Athöfnin var látlaus en fögur og eftirminnileg. Hér var kvödd Aðalbjörg Jón- asdóttir, frá Brúarlandi í Þistil- firði, nú síðast húsmóðir í Tún- götu 7 á Húsavík. Jarðarför hennar var gerð frá Skeggjastaða- kirkju í Bakkafirði laugardaginn 24. nóvember. Foreldrar Aðalbjargar þau Jónas Aðalsteinsson frá Hamri og Anna Guðrún Jóhannesdóttir frá Gunnarsstöðum byggðu nýbýlið Brúarland milli bæjanna árið 1945 og hafa þau heiðurs- hjón búið þar síðan. Þetta eru austustu bæirnir í Þistilfirði, Gunnarsstaðir við sjóinn en Brúarland og Hvammur inn með Hafralónsánni sem skiptir Sauða- nes- og Svalbarðshreppum. Aðalbjörg var elst 6 barna þeirra, fædd á Gunnarstöðum 24. október 1941, hún var því ekki orðin fimmtíu ára þegar hún andaðist 16. nóvember eftir að hafa barist við óvæginn og miskunnarlausan sjúkdóm í nær- fellt ár, án þess að bogna eða brotna. Hafði notið frábærrar umönnunar sinnar nánustu og starfsfólks sjúkrahússins á Húsa- vík þar til yfir lauk. Aðalbjörg var fyrsta barna- barn þeirra hjóna Aðalbjargar Vilhjálmsdóttur og Jóhannesar Árnasonar á Gunnarstöðum en börn þeirra eru 8 og öll á lífi. Aðalbjörg var látin fyrir tveimur árum og lítil ljóshærð stúlka sem fékk nafn ömmu sinnar, var kærkominn sólargeisli er skamm- degi fór að. Hún fæddist síðla nætur og dagurinn sem rann var bjartur og fagur sólskinsdagur. Það var stoltur tindilfættur 11 ára móðurbróðir sem hraðaði för fram í Hvamm tjl að segja föð- urnum tíðindin. Móar og mýrar skörtuðu sínu fegursta, og sólin aðeins að lækka þegar Jónas reiddi mig á hjólinu sínu heim í Gunnarsstaði. Aðalbjörg átti gott atlæti í uppvextinum, naut umhyggju og kærleiks foreldra Landsbréf hf.: Ilefja sölu Heimsbréfa Landsbréf hf. hafa hafið sölu Heimsbréfa sem eru hlutdeildar- skírteini Hcintsbréfadeildar Landssjóðs hf. Markmið með sölu Heimsbréfa er að ná góðri ávöxtun og dreifa áhættu með því að fjárfesta eignum sjóðsins í erl- endum verðbréfum. Landsbréf hf. hafa gengið til samstarfs við Barclays de Zoete Wedd (BZW), verðbréfafyrir- tæki hins breska Barclaysbanka, sem einn fárra banka í heiminum í dag hefur hlotið bestu einkunn (AAA) sem útgefandi verðbréfa. Samkvæmt samstarfssamningn- um sem undirritaður var þriðju- daginn 27. nóvember sl., mun BZW vera fáðgefandi og taka ákvarðanir varðandi kaup og sölu erlendra verðbréfa. BZW sem er þekkt fyrir vand- aðar og viðamiklar rannsóknir á erlendum verðbréfamörkuðum hefur skrifstofur víða um lönd, m.a. í London, Tókíó og New York - stærstu fjármálamið- stöðvum heims. Með samstarfi sínu við BZW vonast Landsbréf hf. til að eigendum Heimsbréfa verði skilað sem bestum mögu- legum árangri miðað við fjárfest- ingarstefnu Heimsbréfadeildar og alþjóðlegar aðstæður á hverj- um tíma. Sala Heimsbréfa fer fram hjá Landsbréfum hf. Suðurlands- braut 24, svo og öllum afgreiðslu- stöðum Landsbanka íslands, þ.m.t. Samvinnubankanum, um íand allt. Umboðsmenn Landsbréfa hf. á Akureyri eru: Odc’ný Friðriks- dóttir og Þórður Harðarson í LÍ á Akureyri og útibc Samvinnu- banka fslands, Svalbarðseyri. þótt auður væri ekki í garði frum- býlinga sem eignuðust sex börn. Auk þess varð eitt barnið fyrir slysi og dvaldi um tíma á sjúkra- húsi í Ameríku. Aðalbjörg var fljót að læra vísur og lög, lærði að spila á orgel, og seinna harmon- iku, gekk vel í barnaskóla, var heilbrigður og hress krakki. Haustið 1958 fer hún í Héraðs- skólann á Laugarvatni, en hættir þar um miðjan vetur og á fyrsta barn sitt vorið eftir með unnusta sínum og síðar eiginmanni Jóni Höjgaard Marinóssyni frá Bakka í Bakkafirði. Er síðar einn vetur í Húsmæðraskólanum á Hallorms- stað. Eftir það setjast þau að á Bakkafirði, eignast þrjú börn, byggja sér hús, voru hamingju- söm og til þeirra var gott að koma. Jón stundaði hvaða vinnu sem til féll, var eftirsóttur í vinnu fjölhæfur og duglegur. Aðalbjörg vann í kaupfélagsbúðinni á staðnum í mörg ár. Þannig voru þau hjón virkir þátttakendur í mannlífinu á Bakkafirði í meira en tuttugu ár. Þar ólust börnin upp, það voru góð ár. Börn þeirra eru: Anna Guðrún, sambýlismaður Jónas Arnmundarson, og þeirra sonur Arnmundur. Hún er búsett í Reykjavík. Hafliði, sambýlis- kona Klara Valgerður Sigurðar- dóttir og sonur Jón. Marinó, sambýliskona Ólöf Kristín Arn- mundardóttir og sonur Jón Höj- gaard. Sonur Marinós og Jennýar Ragnarsdóttur er Kristófer. Þeir brasður eru búsettir á Bakkafirði. Árið 1979 veikist Jón maður Aðalbjargar og deyr eftir erfið veikindi 18. janúar 1981. Hann var harmaður af þeim er þekktu enda velliðinn heiðursmaður. Árið 1984 flytur Aðalbjörg til Húsavíkur og trúlofast Sigtryggi Sigurjónssyni húsasmíðameist- ara, og heimili þeirra var síðan í Túngötu 7. Með þessum fátæklegu orðum vil ég minnast frænku minnar, þakka samverustundirnar, góða vináttu og tryggð. Það er mín vissa að á ströndinni hinum meg- in biðu hennar vinir. þar var gott að koma. Guð blessi okkur öllum minninguna um hana. Aðstandendum vottum við hjónin innilega samúð. Árni Jóhannesson. AKUREYRARB/tR Umhverfisdeild LOKAÐ „Menningar- heimsókn“ til Skagaljarðar Á morgun föstudaginn 7. des- ember veröa tónleikar akur- eyrskra hljómsveita í félags- heimilinu Bifröst á Sauðár- króki. Hefjast leikar um kl. 21.00 og standa í 3 tíma. Hljómsveitirnar hafa að undanförnu staðið að sameigin- legu tónleikahaldi og stefna inn- an tíðar á Húsavík og seint í des- ember í Sjallann á Akureyri. Sveitirnar eru: Exit, Skurk, ló Dust, Hrafnar, Norðanpiltar og Helgi og hljóðfæraleikararnir. Vegna útfarar Brynjólfs Helgasonar verður skrifstofur og áhaldahús, Umhverfisdeild- ar lokaðar frá hádegi föstudagsins 7. desember. Umhverfisstjóri. Móðir okkar, RÓSFRÍÐUR SIGTRYGGSDÓTTIR, Samkomugerði II, lést að Kristnesspítala mánudaginn 3. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börnin. L LANDSVIRKJUN ÚTBOÐ Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í efni og smíði háspennulínumastra úr stáli í 220 kV Búrfellslínu 3 (Sandskeið-Hamranes) í samræmi við útboðsgögn BFL-11. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 3.000,-. Um er að ræða ca. 366 tonn af stáli að meðtöldum boltum, róm og skífum. Heitgalvanhúða skal allt stálið. Verklok, sem miðast við FCA, þ.e. stálið komið á flutningstæki við verksmiðju, eru 1. júní 1991. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa- leitisbraut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en mánu- daginn 21. janúar 1991 kl. 12.00, en tilboðin verða opnuð þar þann dag kl. 13.30 að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska. Reykjavík, 4. desember 1990. Endurskoðun og reikningsskil hf. Ritari Óska eftir að ráða ritara í hálft starf. Vinnutími frá 8-12. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn- leg. Reynsla í notkun tölva og ritvinnslu góður kostur. Skriflegar umsóknir sendist fyrir 12. desember nk. Endurskoðun og reikningsskil m. Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri. Þtö gerfö betri mtarkaup ÍKEA NETTO Sykur 2 kg.................117 kr. Flórsykur 500 gr........... 62 kr. Púðursykur 200 gr.......... 62 kr. Juvel hveiti 2 kg ........ 65 kr. Kornax hveiti 2 kg......... 83 kr. Flóru kakó 400 gr..........186 kr. Flóru kókósmjöl 500 gr... 95 kr. Akra smjörlíki 4 stk.......375 kr. Jólahangikjötið komið Athugid opið virka daga frá kl. 13.00-18.30. Laugardaginn 8. desember frá kl. 10.00-18.00. Kynnist NETTÓ-verdi KEANETTÓ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.