Dagur - 06.12.1990, Blaðsíða 15
íþróttir
Fimmtudagur 6. desember 1990 - DAGUR - 15
J
Tölulegar upplýsingar um úrvalsdeildina:
Stólarnir og Ivan áberandi
Ivan Jonas er nn stigahæstur í úrvalsdeildinni.
Mynd: Golli
Maraþonboðsundið:
Keflvíkingar hættir við
- byrjað kl. 8 á laugardaginn
Tindastóli frá Sauðárkróki
kemur mikið við sögu þegar
skoðaðar eru tölulegar upplýs-
ingar um úrvalsdeildina í
körfuknattleik eftir fyrstu 13
umferðirnar. Liðið er í efsta
sæti deildarinnar, hefur skorað
flest stig og hefur besta nýtingu
á skotum bæði innan og utan
teigs. Þá hefur það hirt flest
varnarfráköst allra liða. Að
auki hefur það innanborðs
þann mann sem einna mest
kemur við sögu þegar litið er á
tölulegar upplýsingar um ein-
staklinga, Tékkann Ivan
Jonas.
Tindastólsliðið er í efsta sæti
deildarinnar með 22 stig og hefur
jafnframt skorað flest stig, 1294.
Það hefur bestu nýtingu á víta-
skotum, hefur skorað úr 252 af
336 sem er 75% nýting. Þórsarar
hafa skorað úr 200 skotum af 300
sem er 66% nýting.
Stólarnir hafa einnig besta nýt-
ingu á skotum innan teigs, hafa
hitt úr 339 af 433 sem er 78%
nýting. Þórsarar koma næstir,
279 af 413, eða 67%. Tindastóll
hefur einnig besta nýtingu á skot-
um utan teigs, 86 af 194 eða 44%.
Þór er í 4. sæti með 40% nýtingu.
Loks hafa Stólarnir hirt flest
varnarfrákost eða að meðaltali
29,4 í leik. Þórsarar hafa að með-
Um síðustu helgi fór fram
árlegt desembermót íþróttafé-
lagsins Akurs í boccia. Mótið
fór fram á Bjargi á Akureyri
og var keppt í þremur flokk-
um.
Sigurvegari í unglingaflokki
varð Rut Sverrisdóttir, Helga
Helgadóttir varð önnur og Jón
Stefánsson þriðji.
ÍF:
Ólafur íþrótta-
maður ársins
Stjórn íþróttasambands fatl-
aðra hefur útnefnt Ólaf Eiríks-
son, sundmann, íþróttamann
ársins 1990.
Ólafur er 17 ára en hann hóf
sundferil sinn árið 1984 hjá
íþróttafélagi fatlaðra í Reykja-
vík. Hann hefur unnið til fjölda
verðlauna á mótum erlendis og á
íslandi og glæsilegasta árangri
sínum náði hann á Heimsleikum
fatlaðra í Assen í Hollandi í sum-
ar en þar setti hann 3 heimsmet.
Handknattleikur:
Fram-KA-
14. desember
Leik Fram og KA, sem fram átti
að fara í fyrrakvöld, var frestað
þar sem ekki var flugfært milli
Akureyrar og Reykjavíkur.
Hann hefur verið settur á föstu-
daginn 14. desember kl. 20.
altali hirt 24,3 varnarfráköst í
leik.
Bæði Þór og Tindastóll hafa
37% nýtingu á þriggja stiga
skotum. Tindastóll hefur hirt
10,5 sóknarfráköst að meðaltali í
leik og Þórsarar 7,2. Tindastóll
tapar bolta að meðaltali 15,7
sinnum í leik en Þórsarar 13,5
sinnum, og Tindastóll stelúr
bolta að meðaltali 7,5 sinnum í
leik og Þórsarar 10,4 sinnum.
Ivan atkvæðamikill
Þegar litið er á tölur um einstakl-
inga eru Stólarnir oft ofarlega á
blaði, ekki síst vegna framgöngu
Ivans Jonas. Hann er nú stiga-
hæstur í deildinni með 372 stig
eða 28,6 að meðaltali í leik.
Cedric Evans, Þór, er í 4. sæti
með 312 stig. Ivan hefur skorað
úr fleiri skotum innan teigs en
Torfi Magnússon, landsliðs-
þjálfari íslands í körfuknatt-
leik, hefur valið liðið sem tek-
ur þátt i Evrópuleikum smá-
í meistaraflokki sigraði Elvar
Thorarensen, bróðir hans Stefán
Thorarensen varð annar og Sig-
urrós Karlsdóttir þriðja.
í öldungaflokki, 60 ára og
eldri, sigraði Stella Sigurgeirs-
dóttir, Björn Magnússon varð
annar og Tryggvi Gunnarsson
þriðji.
í þessari viku stendur yfir des-
embermót Akurs í borðtennis en
þar er keppt í opnum flokki.
Mótinu lýkur um helgina.
nokkur annar, 114 af 134 sent
þýðir að hann hefur einnig besta
nýtingu úr þessum skotum eða
85,7%. Félagi hans Pétur Guð-
mundsson kemur næstur, hefur
skorað úr 99 skotum af 119 sem
er 83,19% nýting. Ivan hefur
einnig næst besta nýtingu úr skot-
um utan teigs, hefur hitt úr 29 af
56 eða 51,79%. Þá hefur hann
hlotið næst flestar villur eða 3,9
að meðaltali í leik.
Cedric Evans, Þór, hefur hirt
næst flest fráköst, 30 sóknarfrá-
köst og 134 varnarfráköst eða
12,9 að meðaltali í leik. Konráð
Óskarsson, Þór, hefur þriðju
bestu nýtingu á þriggja stiga
skotum, 40,58%, og Valur Ingi-
mundarson, Tindastól, hefur átt
næst flestar stoðsendingar, 54
eða 4,1 að meðaltali í leik. Jón
Örn Guðmundsson, Þór, er
skammt undan með 4 að meðal-
tali í leik.
þjóða sem fram fara í Wales
12.-17. desember. Tveir leik-
menn úr Tindastól eru í liðinu,
þeir Valur Ingimundarson og
Pétur Guðmundsson.
Aðrir leikmenn eru:
Jón Kr. Gíslason ÍBK
Pálmar Sigurðsson Haukum
Guðmundur Bragason UMFG
Teitur Örlygsson UMFN
Ivar Ásgrímsson Haukum
Sigurður Ingimundarson ÍBK
Magnús Matthíasson Val
Jóhannes Sveinsson ÍR
Friðrik Ragnarsson UMFN
Jón Arnar Ingvarsson Haukum
Valur Ingimundarson hefur
leikið langflesta landsleiki eða
102. Fyrirliðinn Jón Kr. Gíslason
kemur næstur með 77 leiki. Pétur
Guðmundsson er aldursforseti
liðsins, 32 ára gamall.
íslenska liðið leikur í B-riðli
með Wales, Kýpur og Möltu. í
A-riðli leika írland, Lúxemborg,
Gíbraltar og San Marinó. Liðið
heldur utan 11. desember.
Keflvíkingar hafa skorist úr
leik í maraþonboðsundinu sem
fram átti að fara samtímis á
þremur stöðum um næstu helgi.
Keppnin stendur því milli
tveggja félaga, Óðins á Akur-
eyri og Vestra á ísafírði.
Fyrir nokkru skoraði Vestri á
Óðin og Sundfélag Suðurnesja að
efna til maraþonboðsunds á
þremur stöðum á landinu sam-
tímis og tóku félögin áskoruninni
en SFS hefur nú dregið sig til
baka. Hin félögin láta hins vegar
engan bilbug á sér finna og verð-
ur byrjað að synda kl. 8 nk. laug-
ardagsmorgun. 16 manna sveit,
auk varamanna, frá hvoru félagi
sér um sundið og verður synt í 24
klukkustundir. Má búast við að
lagðir verði 90-100 km að baki.
Keppnin felst í að synda sem
lengst á þessum tiltekna tíma og
safna um leið sent mestum áheit-
um. Listi verður látinn liggja
frammi í Sundlaug Akureyrar
þar sem fólk getur skráð áheit en
eftir lokun í sundlauginni, frá kl.
17 á laugardag og til kl. 8 á sunnu-
dagsmorgun, verður tekið á móti
áheitum í síma 23260.
IÞROTTAVORUR
I'HÆSTA
GÆÐAFLOKKI
• LÚFFUR
• SOKKAR
• INNISKÓR
• STUTTBUXUR
• SUNDFATNAÐUR
• SKAUTAR
• BOLTAR O.FL.
• SKIÐAGALLAR
• ÚLPUR
• GALLAR
• SKÓR
• TÖSKUR
• BOLIR
• HÚFUR
I ÞROTTAVORUVERSLUN
Strandgötu 6, sími 27771.
CtniA Iró U Q on.io QQ U. mnrrl L/1
Boccia:
Arlegt desembermót
Akurs um síðustu helgi
Valur og Pétur í landsliðið
- sem fer á smáþjóðaleikana