Dagur - 03.01.1991, Side 10

Dagur - 03.01.1991, Side 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 3. janúar 1991 Óheppni Man. Utd. gegn Aston Villa - Sheff. Utd. stóð lengi í Arsenaf - slakt gengi Tottenham Peter Reid og lærisveinar hjá Man. City unnu góðan sigur gegn Nott. For. Ensku liðin léku síðustu leiki sína á árinu 1990 á iaugardag- inn ef frá er talinn toppleikur umferðarinnar, leikur Crystal Palace gegn Liverpool sem fram fór á sunnudeginum. Lít- um þá nánar á leiki laugar- dagsins í 1. deild. Arsenal vann 4:1 sigur á heima- velli gegn botnliði Sheffield Utd., en lengi leit þó út fyrir óvænt úrslit í leiknum. Ian Bryson náði forystunni fyrir Sheffield Utd. á 25. mín. og aðeins góð mark- varsla David Seaman í marki Arsenal kom í veg fyrir að Sheff- ield bætti við tveim til þrem mörkunt gegn slakri vörn Arsenal í upphafi. Arsenal náði að jafna á 50 mín. en Lee Dixon skoraði úr vítaspyrnu eftir brot á Perry Groves og liðið náði öllum völd- um í Ieiknum. Sjálfsmark Paul Beesley kom Arsenal yfir er hann varð fyrir fastri fyrirgjöf Nigel Winterburn og tveim mín. síðar bætti Michael Thomas við þriðja marki Arsenal. Lokaorðið átti síðan Alan Smith með fjórða marki Arsenal 5 mín. fyrir leiks- lok. Með sigrinum minnkaði Arsenal forskot Liverpool í eitt stig, en Liverpool átti sunnudags- leikinni inni. Leeds Utd. fékk hina harð- Úrslit 1. deild Arsenal-Sheffield Utd. 4:1 Coventry-Norwich 2:0 Everton-Derby 2:0 Leeds Utd.-VVimbledon 3:0 Luton-Chelsca 2:0 Manchester Utd.-Aston Villa 1:1 Nottingham For.-Manchester City 1:3 Q.P.R.-Sunderland 3:2 Southampton-Tottenhain 3:0 Crystal Palace-Liverpool 1:0 2. deild Blackburn-Oxford 1:3 Brighton-Leicester frestað Bristol City-Middlesbrough 3:0 Hull City-Barnsley 1:2 Ipswich-Charlton 4:4 Millwall-Oldham 0:0 Newcastle-Notts County 0:2 Plymouth-Bristol Rovers 2:2 Sheffield Wcd.-Portsmouth 2:1 Watford-Swindon 2:2 W.B.A.-Wolves 1:1 West Ham-Port Vale 0:0 Úrslit á nýársdag. 1. deild Aston Villa-Crystal Palace 2:0 Chelsea-Everton 1:2 Derby-Coventry 1:1 Liverpool-Leeds Utd. 3:0 Manchester City-Arsenal 0:1 Sheffield Utd.-Q.P.R. 1:0 Sunderland-Southampton 1:0 Tottenham-Manchester Utd. 1:2 Wimbledon-Luton 2:0 2. deild Barnsley-Bristol City 2:0 Bristol Rovers-West Ham 0:1 Charlton-Blackburn 0:0 Leicester-W.B.A. 2:1 Middlesbrough-Sheflield Wed. 0:2 Nolts County-Brighton 2:1 Oldham-Newcastle 1:1 Oxford-lpswich 2:1 Port Vale-Millwall 0:2 Portsmouth-Hull City 5:1 Swindon-Plymouth 1:1 Wolves-Watford 0:0 skeyttu leikmenn Wimbledon í heimsókn og gerði út um leikinn í fyrri hálfleik með mjög góðum leik. Lee Chapman skoraði fyrsta mark Leeds Utd. á 10 mín. með góðu skoti eftir að hafa snúið af sér varnarmenn Wimbledon. Gary Speed bætti öðru marki liðsins við 5 mín. síðar er hann tók langa markspyrnu frá John Lukic á brjóstið og renndi sér í gegnum vörn Wimbledon. Mel Sterland bætti þriðja markinu við á síðustu mín. fyrri hálfleiks er hann skallaði inn hornspyrnu Gordon Strachan. Petta var fjórða mark bakvarðarins í fimm síðustu leikjum. Leeds Utd. slak- aði á í síðari hálfleik og Wimble- don átti tvívegis skot í stöng, en sigur liðsins var ekki í hættu. Tottenham tapaði illa á útivelli gegn Southampton og vörn liðs- ins sem Guðni Bergsson lék í var lek. Paul Gascoigne lék ekki með Tottenham í leiknum og munar um minna, en sigur Southampton öruggur. Liðið hafði yfir í hálf- leik 1:0 eftir mark Matthew Le Tissier. Um miðjan síðari hálf- leik skoraði Rodney Wallace annað mark Southampton með viðstöðulausu skoti og Le Tissier bætti öðru marki sínu við skömmu síðar og gulltryggði sig- ur Southampton. Peir Paul Stew- art og Gary Lineker misnotuðu tvö góð færi hvor hjá Tottenham og liðið var ekki sannfærandi í leiknum. Jafnteflisleikur Man. Utd. gegn Aston Villa var sýndur í sjónvarpinu og voru bæði mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Steve Bruce náði forystunni fyrir Utd. fneð marki úr vítaspyrnu eftir brot Ian Ormondroyd á Dennis Irwin, en jöfnunarmark Villa var sjálfsmark Gary Pallister sem stýrði sendingu Ormondroyd í eigið mark. Utd. átti síðari hálf- leikinn, en Nigel Spink mark- vörður Villa og miðvörðurinn Paul McGrath sem áður lék með Utd. komu í veg fyrir mörk. Heppnin var einnig með Villa, liðið bjargaði á línu og Paul Ince átti einnig skot í stöngina á marki Villa. Crystal Palace fékk meistara Liverpool í heimsókn á sunnu- dag í leik sem var sjónvarpað á Englandi. Lengi hefur litið út fyrir að Liverpool verði titil sinn án teljandi erfiðleika, en úrslitin í þessum leik hafa hleypt spennu í 1. deildina. Leikmenn Crystal Palace mættu mjög ákveðnir til leiks og sýndu meisturunum enga virð- ingu. Sigurmark Palace og eina mark leiksins kom 3 mín. fyrir lok fyrri hálfleiks. Ian Wright komast þá upp að endamörkum, lék á Gary Gillespie áður en hann sendi fyrir markið þar sem Mark Bright afgreiddi boltann í netið. Liverpool jók sóknarþungann í síðari hálfleik og báðir bakverð- irnir léku mjög framarlega. Nigel Martyn markvörður Palace varð þrívegis að taka á honum stóra sínum og verja mjög vel, en síð- an urðu leikmenn Liverpool örvæntingarfullir þegar á leikinn Luton náði að sigra Chelsea í leik sem bauð upp á mikið af marktækifærum sem flest voru misnotuð. En það voru leikmenn Luton sem að lokum tókst að nýta tvö af sínum færum og sigra. Lars Elstrup náði að koma bolt- anum í mark Chelsea eftir mikla baráttu við varnarmann og leið og þeir Steve Nicol og Steve Staunton voru báðir bókaðir. Liverpool var síðan heppið undir lokin að sleppa við vítaspyrnu er Glenn Hysen braut á Ian Wright í teignum, en dómarinn sleppti augljósri vítaspyrnu. Þ.L.A. Mark Bright skoraði mark Palace gegn Liverpool sem endaði gamla árið með tapi. Kingsley Black bætti því síðara við er vörn Chelsea mistókst að hreinsa frá marki sínu. Sigur Luton var þó verðskuldaður í leiknum. Nottingham For. fékk skell á heimavelli er liðið tapaði 3:1 gegn Man. City. Forest var 2:1 undir í hálfleik. Miðherjinn hávaxni Niall Quinn skoraði bæði mörk City, en Tommy Gaynor skoraði fyrir Forest. Leikmenn Forest sóttu stíft í síðari hálfleik óg reyndu allt til að jafna leikinn, en City beitti skyndisóknum. Úr einni slíkri náði Wayne Clarke að bæta þriðja marki City við með skalla er 20 mín. voru til leiks- loka. Peter Reid ög Gary Meg- son réðu mestu á miðjunni fyrir City og lögðu grunninn að verð- skulduðum sigri liðsins. Leikur Q.P.R. gegn Sunder- land hafði upp á allt að bjóða sem gerir leiki skemmtilega, fimm mörk, þrjár vítaspyrnur og miklar sviptingar. í fyrri hálfleik náði Danny Maddix forystu fyrir Q.P.R., en áður hafði liðið mis- notað vítaspyrnu. Colin Pascoe náði að jafna fyrir Sunderland fyrir hlé. í síðari hálfleik náði Kevin Ball forystu fyrir Sunder- land með marki úr vítaspyrnu, en vítaspyrna Roy Wegerle jafnaði metin fyrir Q.P.R. 2:2. Sigur- mark Q.P.R. skoraði síðan Mark Falco 10 mín. fyrir leikslok, en þetta var 100. leikur hans fyrir Q.P.R. Coverttry lék mjög vel í síðari hálfleik gegn Norwich og tryggði sér góðan sigur. Norwich var betra liðið í markalausum fyrri hálfleik, en leikmenn Coventry komu mjög ákveðnir til leiks í þeim síðari. David Speedie kom boltanum í mark Norwich strax eftir hlé, en markið var dæmt af. Skömmu síðar braut John Polston á honum í teignum og Brian Borrows skoraði úr vítaspyrn- unni. Tveim mín. síðar bætti Speedie síðara marki Coventry við eftir góða sendingu frá bak- verðinum Paul Edwards og sigur- inn var í höfn. Howard Kendall virðist vera að leiða Everton á rétta braut, en það var þó ekki fyrr en seint í leiknum sem tvö mörk liðsins gerðu útaf við Derby. Mark Wright átti stórleik í vörninni hjá Derby og þeir Dean Saunders og Jason Kavanagh voru óheppnir að skora ekki úr góðum færunt fyrir Derby og mistök þeirra urðu liðinu dýrkeypt. Þegar aðeins 7 mín. voru til leiksloka missti Markvörður Derby Martin Taylor frá sér boltann eftir skalla frá Kevin Sheedy og varamaðurinn Mike Newell var réttur maður á réttum stað og sendi boltann í netið. Fjórurn mín. síðar sendi Neil McDonald boltann fyrir mark Derby og Pat Nevin afgreiddi sendinguna í markið hjá Derby. 2. deild Efstu liðin í 2. deild, West Ham og Oldham gerðu bæði ntarka- laust jafntefli í sínuin leikjum, en Sheffield Wed. nýtti sér tækifær- ið til að minnka forskot þeirra með 2:1 sigri á Portsmouth. David Hirst skoraði bæði mörk Sheffield í leiknum. Þ.L.A. Staðan 1. deild Liverpool 20 15-3- 2 41:16 48 Arsenal 21 14-7- 0 41:10 47 Crystal Palace 21 12-6- 3 31:20 42 Leeds Utd. 21 11-6- 4 36:21 39 Manchester Utd 21 10-6- 5 31:2235 Tottenham 21 9-6- 6 34:27 33 Manchester City 20 7-8- 5 30:28 29 Chclsea 21 8-5- 8 33:38 29 Wimbledon 21 7-7- 7 31:30 28 Norwich 20 8-2-10 24:33 26 Everton 21 6-6- 9 24:25 24 Nottingham For 19 6-6- 7 27:2924 Aston Villa 20 5-8- 7 20:20 23 Luton 21 6-5-10 23:32 23 Southampton 21 6-4-1129:37 22 Coventry 21 5-6-10 21:25 21 Sunderland 21 4-6-1124:32 18 Derby 20 4-6-10 18:35 18 Q.P.R. 21 4-5-12 26:39 17 Sheffield Utd. 20 3-4-1313:3613 2.deild West Ham 25 15- 9- 1 36:13 54 Oldham 24 14- 7- 3 48:25 49 Sheffield Wcd. 24 12-10- 2 48:27 46 Notts County 24 12- 6- 6 37:28 42 Middlesbrongh 24 12- 4- 8 37:24 40 Barnsley 24 9- 9- 6 34:24 36 Millwall 24 9- 8- 7 35:29 35 Bristol City 23 10- 4- 9 37:35 34 Wolves 24 8-11- 5 37:28 32 Bristol Rovers 23 8- 7- 8 29:28 31 Brighton 22 9- 4- 9 32:40 31 Port Vale 24 8- 5-11 32:35 29 Swindon 25 6-11- 8 32:36 29 Ipswich 25 6-11- 8 33:40 29 Newcastle 23 6- 9- 8 24:27 27 W.B.A. 25 6- 9-10 29:33 27 Oxford 24 6- 9- 9 39:45 27 Charlton 24 6- 8-10 31:35 26 Blackburn 25 7- 5-13 26:35 26 Leiccster 23 7- 5-1132:48 26 Portsmouth 25 6- 7-12 31:41 25 Plymouth 25 5- 9-1129:40 25 Watford 25 5- 9-11 22:31 24 Hull City 25 5- 7-13 39:61 22 C. Palace lagði Liverpool að velli

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.