Dagur - 07.03.1991, Síða 5
Konur gegn körlum??
Kvennalistar eiga sér ríflega 80
ára sögu í íslenskum stjórnmál-
um. Konur buðu fyrst fram einar
í bæjarstjórnarkosningum í
Reykjavík árið 1908, en þá voru
þær nýorðnar kjörgengar ti!
sveitastjórna. Þá þegar töldu
konur jaetta bestu leiðina til að
komast í áhrifastöður og náðu
góðum árangri, fengu 4 konur í
bæjarstjórn. Konur buðu líka
sérstaklega fram til Alþingis 1922
og þá komst fyrsta konan á þing,
Ingibjörg H. Bjarnason.
Eftir það varð nokkurt hlé á
kvennaframboðum enda urðu
konur á Alþingi á árunum 1922-
1979, 57 ára tímabili, aðeins 12.
Upp úr 1970 reis upp ný
kvennahreyfing sem krafðist
jafnréttis á öllum sviðum. Minn-
isstæð er sú samstaða sem náðist
24. okt. 1975 er íslenskar konur
lögðu niður störf til að leggja
áherslu á mikilvægi vinnufram-
lags síns í samfélaginu. Minnis-
stæð ekki síst fyrir þau áhrif sem
hún hafði, atvinnulífið nánast
lamaðist þennan dag. Til þessar-
ar bylgju má einnig rekja að
fyrsta konan náði kosningu sem
forseti lýðveldisins. Upp úr þess-
um jarðvegi er Kvennalistinn
sprottinn.
Markmiðin
Kvennalistinn er stjórnmálaafl
sem vill breyta þjóðfélaginu og
setja virðingu fyrir lífi og sam-
ábyrgð í öndvegi. Konur þurfa að
eiga í reynd sömu möguleika og
karlar til starfs og áhrifa. Það
verður að meta hið besta úr
reynslu og menningu kvenna til
jafns við það besta úr reynslu og
menningu karla. Kjör kvenna
verða því aðeins bætt að störf
þeirra verði metin jafnt og störf
karla. Formleg völd kvenna
þurfa líka að aukast, enn eru
konur aðeins einn fimmti hluti
þingmanna, þar af eru þingmenn
Kvennalistans helmingur, og
hlutur kvenna í nefndum, stjórn-
um og ráðum á vegum ríkisins er
sáralítill, miklu minni en kyn-
systra okkar á hinum Norður-
löndunum. Það þarf að leggja
sérstaka áherslu á að bæta kjör
hinna lægst launuðu og tryggja
framtíð barnanna okkar. Við
viljum mannsæmandi lífskjör fyr-
ir hvern einasta Islending.
Leiðirnar
Það er alltaf vandi að velja leiðir
til að ná markmiðum sínum.
Astæðan fyrir því að konur velja
Fósturskóli íslands:
Boðið uppá dreift
og sveigjanlegt
fóstrunám
í ágúst nk. (u.þ.b. 12. ágúst)
hefst dreift og sveigjanlegt
fóstrunám.
Námið og inntökuskilyrði
verður sambærilegt við hefð-
bundið fóstrunám.
Náminu er dreift á 4 ár.
Námið er skipulagt sem hér
segir:
a) Staðbundið nám, verður í
húsakynnum Fósturskóla íslands
alls 12 vikur á ári, og fer fram í
ágúst, janúar og júní. Einnig
verður boðið upp á stutt nám-
skeið, fámenna nemendahópa í
heimahéraði nemenda eða næsta
nágrenni.
b) Fjarnám.
c) Verklegt nám.
Umsóknarfrestur auglýstur
síðar.
Nánari upplýsingar veittar í
síma: 91-83866 daglega kl. 13.00-
14.00 og 97-11757.
Elín Stephensen.
endurtekið þá leið að bjóða fram
sérstaka lista í kosningum til
sveitastjórna og Alþingis er sú að
þær telja að við núverandi
aðstæður náist markmiðin fyrr
með sérframboðum. Hefðbundnu
stjórnmálaflokkarnir eru skapað-
ir af körlum fyrir karla. Þess
vegna eiga konur þar erfiðar upp-
dráttar ef þær vilja raunverulega
komast í áhrifastöður.
Vinnur Kvennalistinn
gegn körlum?
Nei, síður en svo. Allar eigum
við föður og flestar maka og syni
og því fráleitt að vinna gegn
körlum. Hins vegar teljum við
nauðsynlegt að skapa konum
vettvang til að vinna að því að
jafna stöðu kynjanna í samfélag-
inu. Málið er nefnilega að karlar
eru búnir að koma sér þokkalega
fyrir en konur eiga það eftir.
Undanfarnar aldir hefur ekki
skapast jöfn staða karla og
kvenna í íslensku samfélagi og
því verða konur að taka sig til og
vinna að sínum málum. Það þýð-
ir ekki að við viljum skerða rétt
karla, við viljum einungis fá sama
rétt og þeir. Við viljum hafa áhrif
til jafns við karla, við viljum
sömu laun og karlar fyrir jafngild
störf. Til þess að þetta megi tak-
ast verða konur að vinna saman,
allar konur sem vilja jafnrétti í
raun, hvar í flokki sem þær ann-
ars standa. Kvennalistinn vinnur
með konum að jafnrétti.
Elín Stephensen.
Höfundur skipar 3. sæti framboðslista
Kvennalistans í Norðurlandskjördæmi
eystra í komandi alþingiskosningum.
Fimmtudagur 7. mars 1991 - DAGUR - 5
Sjálfsbjörg og
Akur íþróttafélag fatlaðra
Arshátíð
1991
Verður haldin að Hótel K.E.A. laugardaginn 16.
mars 1991 og hefst kl. 19.00
Dagskrá:
1. Boröhald.
2. Skemmtiatriði.
3. Dans Hljómsveitin Lexía leikur fyrir dansi.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir 13. mars tii Baldurs í síma
26888 milli kl. 12.30 og 16.30.
Nefndin.
8* til 15. mars
Teppi • Dúkar • Dreglar • Mottur
Langmoen parkeft úr beyki, eik
og aski • Spónaparkeft Plankelit
Allar flísar í versluninni
Tarket parket, valin eik og beyki
á kr. 3.050. fm stgr.
8. mars föstudagur 15. mars föstudagur
Kynning á flísum Kynning á flísum
frá Húsasmiðjunni. frá Tækjatækni.
Sölumenn frá Húsasmiðjunni á staðnum. Sölumenn frá Tækjatækni á staðnum.
■ ■
BYGGINGAVORUR
LÓNSBAKKA • IBT 96-30320, 96-30321, 96-30324