Dagur


Dagur - 30.05.1991, Qupperneq 9

Dagur - 30.05.1991, Qupperneq 9
Fimmtudagur 30. maí 1991 - DAGUR - 9 Afmæliskveðja: Sæmundur Hermannsson Meðal viðburða er sjötugsafmæli Sæmundar Hermannssonar, sjúkrahússtjóra frá Ysta-Mói í Fljótum Leiðir okkar Sæmundar lágu saman fyrr á árum á safnaðar- fundum framsóknarmanna í Reykjavík, en báðir töldumst við til þess pólitíska safnaðar. Orð fór af Hermanni í Ysta-Mói í Fljótum og sonum hans, langt út fyrir Skagafjörð. Með Hermanni Jónssyni á Ysta-Mói kom nýr kraftur í fram- sóknarmenn austan vatna, sem var upphaf veldissólar framsókn- ar í Skagafirði. Hermann var upphafsmaður þess, að Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, var kallaður til forystu fyrir Skagfirðinga og hjá framsóknarmönnum síðar meir. Synir hans stóðu fyrir miklu pólitísku búi. Sæmundur var jafnan fremstur þeirra, eftir að hann sneri heim í hérað sitt. Hann gegndi veigamiklu hlut- verki á Sauðárkróki um að sætta framsóknarmenn, sem höfðu skipt sér í tvo arma, m.a. vegna skiptra meininga um val á sýslu- manni fyrir Skagfirðinga. Pað var gæfuspor hjá Jóhanni Salberg Guðmundssyni, sýslu- manni Skagfirðinga, að kalla Sæmund til forystu um rekstur sjúkrastofnana í Skagafirði. Husbyggj- endur Frárennslisrör PVC (rauö) 100 og 150 mm ásamt til- heyrandi tengistykkjum. Drenrör 100 mm PVC. Gólfniðurföll og vatnslás- ar úr plasti í mörgum gerðum. flLJlPiriPfc Verslið viti LrjiiiXa,asmann- DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI (96)22360 - frá Ysta-Mói - Pessu starfi hefur Sæmundur gegnt með reisn um þrjátíu ára skeið. Það var einmitt á þessum vett- vangi, sem leiðir okkar Sæmund- ar lágu aftur saman. Svo atvikað- ist á bæjarstjóraárum mínum á Húsavík, að ég gegndi for- mennsku í stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur. Að fordæmi Skag- firðinga ákváðum við að reisa sjúkrahús á Húsavík, að hætti þeirra meistara er skópu héraðs- sjúkrahús á Sauðárkróki, sem af bar í landinu. Svo hagaði til, að eftir að ég hætti bæjarstjórastörfum á Húsa- vík, réðist ég sem framkvæmda- stjóri sjúkrahússins á Húsavík. Margt bar að í því starfi, sem mér var áður ókunnugt um. Við það að verða starfsbróðir Sæmundar jukust kynni okkar og samband okkar varð gagnkvæmt. Báðir vorum við hugsjóna- menn um byggðamál. Það var að höfðu samráði við Sæmund Her- mannsson, að ég lagði í það að sækja um það starf, sem ég hefi gegnt um tuttugu ára skeið. Lið- sinni Sæmundar vó þann bagga- mun, sem þurfti til vinna tiltrú hinna bestu manna í Skagafirði. Þetta hefur reynst mér notadjúgt veganesti í starfi mínu enn í dag. Svo hefur atvikast að við Sæmundur búum sitt hvoru meg- in við Tröllaskagann. Það hefur valdið því að brautir okkar hafa ekki legið saman. Tröllaskaginn hefur verið okkur mikið torleiði. Sæmundur er meiri Skagfirð- ingur, en flestir samhéraðsmenn hans, sem eiga ættir sínar að rekja í beinan karllegg í Skaga- firði, allt til landnámstíðar. Safnaðarforysta framsóknar- manna á Sauðárkróki hefur á stundum ekki metið hæfileika Sæmundar að verðleikum. Ekkert af þessu hefur aftrað Sæmundi. Hann er sami trausti kletturinn, sem ekkert fær bifað. Andi þeirra frænda frá Ysta- Mói mun svífa yfir vötnunum á Sauðárkróki. Þeirra er framtíðin. Sæmundur var grjótpállinn, sem braut landið. Unga kynslóðin frá Ysta-Mói nýtur uppskerunnar. Áskell Einarsson. Ferðafélag Akureyrar, Strandgötu 23. Gönguferð í Gæsadal laugardaginn 1. júní kl. 10.00. Upplýsingar á skrifstofunni föstu- daginn 31. maí milli kl. 18.00-19.00, sími 22720. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10. > Flóamarkaður, föstudag- inn 31. maí kl. 10.00- 12.00 og 14.00-17.00. Komið og gerið góð kaup. Sofn Náttúrugripasafnið á Akureyri, Hafnarstræti 81, sími 22983. Sýningarsalurinn er opinn á sunnu- dögum kl. 13.00-16.00. Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri Strandgötu 37 b • P.O. Box 41, Akureyri • 96-27677 Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 6. júní kl. 20.30 í húsi félagsins Strandgötu 37. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Stjórnin. ER AFENGI VANDAMAL í ÞINNI FJÖLSKYLDU? AL-ANON fyrir ættingja og vini alkóhólista. FBA - Fullorðin börn aikóhóiista. I þessum samtökum getur þú: * Bætt ástandid innan fjöl- * Hitt aöra sem glima við skyldunnar. sams konar vandamál. * Byggt upp sjállstraust þitt. * Öðlast von i stað örvænt- ingar. Fundarstaður: AA húslð, Strandgötu 21, Akurvyrl, slml 22373. Al-Anon deildir halda fundi á mánudögum kl. 21.00, miðvikudögum kl. 21.00 og laugardögum kl. 14.00. FBA, Fullorðin böm alkóhólista, A halda fundi á þriðjudagskvöldum kl. 21.00. Nýtt fólk boðlð vclkomið. A Jk Samkomur Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10. > Fimmtudaginn 30. maí kl. 20.30, Biblía og bæn hjá Línu og Eyvindi, Norðurgötu 58. Akureyrarprestakail. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag fimmtudag kl. 17.15 í Akureyrar- kirkju. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. Athugið Ylinningarspjöld Styrktarsjóðs Kristnesspítala fást í Bókvali og á ikrifstofu Kristnesspítala. Minningarsjóður Þórarins Björns- sonar. Minningarspjöld fást í Bókvali og á skrifstofu Menntaskólans. vlinningaspjöld Zontaklúbbs Akur- eyrar (Eyjusjóður) fást hjá: Hannyrðaverslun Önnu Maríu og í Blómabúðinni Akri. Minningarkort Björgunarsveitar- innar Ægis, Grenivík fást í Bókvali, Útibúi KEA, Grenivík, og hjá Pétri Axelssyni, Grenimel, Grenivík. Minningarkort Sjálfsbjargar Akur- eyri fást hjá eftirtöldum aðilum: Bókabúð Jónasar, Bókvali, Akri, Kaupangi, Blómahúsinu Glerárgötu 28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1. Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól- borgar, selur minningarspjöld til stuðnings málefna þroskaheftra. Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð og Blómahúsinu við Glerárgötu. Minningaspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá: Pedró- myndum, Hafnarstræti 98, Hönnu Stefánsdóttur, Víðilundi 24 og Guðrúnu Hörgdal, Skarðshlíð 17. Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöldum stöðum: Hjá Ásrúnu Skarðshlíð 16a, Rammagerðinni Langholti 13, Judith Langholti 14, í Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð, versluninni Bókval, Bókabúð Jónasar, Akri Kaupangi, Blóma- húsinu Glerárgötu og hjá kirkju- verði Glerárkirkju. AKUREYRARB/ÍR Reiðskóli að Hamraborgum LETTIB x Reiöskóli Hestamannafélagsins Léttis og íþrótta- og tómstundaráös, fyrir börn á aldrinum 8-14 ára, hefst 18. júlí að Hamraborgum. Lengd hvers námskeiðs er tvær vikur. Haldin veröa þrjú námskeið: 18.-29. júní, 1.-12. júlí og 15.-26. júlí. Framhaldsflokkar verða fyrir hádegi og byrjendaflokkar eftir hádegi. Námskeiðsgjald kr. 4.000,- Kennari verður Haukur Sigfússon. Upplýsingar og innritun á skrifstofu íþrótta- og tómstundaráðs, Strandgötu 19 B, sími 22722. íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar. Sjávarútvegsdeildin Dalvík Við Sjávarútvegsdeildina á Dalvík er kennt til 1. og 2. stigs stýrimannaprófs og til prófs fiskiðnaðar- manna. Umsóknarfrestur um skólavist er til 15. júní nk. Inntökuskilyrði um nám í stýrimannadeild sam- kvæmt nýútgefinni og eldri reglugerðum um stýri- mannaskóla. Inntökuskilyrði um nám i fiskvinnsludeild samkvæmt reglugerð um fiskiðnaðarnám. Ódýr heimavist og mötuneyti á staðnum Upplýsingar í símum 61383, 61085, 61380 og 61162. vegna jarðarfarar föstudaginn 31. maí. BSV Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri. Innilegt þakklæti til þeirra mörgu sem glöddu mig á 100 ára afmæli mínu, 25. maí s.l. Guð blessi ykkur öll. MARGRÉT JÚLÍUSDÓTTIR, frá Munkaþverá. Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ALFREÐ ARNLJÓTSSON, Skipagötu 6, Akureyri, lést á heimili sínu 26. maí. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 4. júní kl. 13.30. Rannveig Alfreðsdóttir, Vilhelm Guðmundsson, Björk Vilhelmsdóttir, Einar Viðarsson, Alfa Vilhelmsdóttir, Atli Rúnarsson og barnabörn. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GUÐFINNU GUÐMUNDSDÓTTUR, frá Finnbogastöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hjúkrunarheimilinu Seli fyrir einstaka elskusemi og umönnun síðustu æviárin og sveitunga hennar fyrir vináttu og virðingu á kveðjustund. Hulda Þórarinsdóttir, Halldór Arason, Gyða Þ. Halldórsdóttir, Ari Halldórsson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.