Dagur


Dagur - 30.05.1991, Qupperneq 11

Dagur - 30.05.1991, Qupperneq 11
íþróttir Fimmtudagur 30. maí 1991 - DAGUR - 11 r- Knattspyrna: 2. flokkur KA skartar þremur landslidsmömuun í sumar Þrír ungir knattspyrnumenn úr KA hafa að undanförnu verið í sviðsljósinu með yngri lands- liðunum. Eggert Sigmundsson og Bjarki Bragason eru nýlega komnir frá Tékkóslóvakíu þar sem þeir léku á ætingamóti með U-18 ára landsliðinu og ívar Bjarklind var með U-16 ára landsliðinu í Sviss þar sem úrslitakeppni Evrópumóts drengjalandsliða fór fram fyrir skömmu. Piltarnir verða allir 17 ára á árinu og eru því á yngra árinu í 2. flokki. Markvörðurinn Eggert er þeirra reyndastur í landsliðs- mennskunni, var á sínum tíma valinn í drengjalandsliðið og lék 7 leiki með því en var valinn í U- 18 ára liðið í fyrra og lék þá tvo leiki. Bjarki var valinn í U-18 ára liðið í vor og er það í fyrsta sinn sem hann er valinn í landslið og sama á við um Ivar Bjarklind sem var valinn í drengjalandsliðið í vetur. Hann fór með liðinu til Sviss eins og fyrr segir auk þess sem farið var í æfingaferð til Möltu um páskana. U-18 ára liðið tók nýlega þátt í æfingamóti í Tékkóslóvakíu. Þar sigraði liðið Malasíu 3:0 en tapaði 1:2 fyrir Rúmenum, 0:1 fyrir Grikkjum og 1:2 fyrir Slóvökum. Liðið kom einnig við í Austurríki og sigraði Austurrík- ismenn 1:0. Eggert og Bjarki léku báðir í ferðinni, Eggert skipti nokkurn veginn jafnt við Friðrik. Por- steinsson úr Fram og Bjarki spil- aði einn heilan leik og kom inná í tveimur. Sömu sögu er ekki að segja af ívari með drengjalands- liðinu. Hann meiddist á síðustu æfingu fyrir ferðina en fór engu að síður út í von um að hann myndi jafna sig. Það gekk þó hægar fyrir sig en búist hafði ver- ið við og svo fór að hann spilaði aðeins síðustu 10 mínúturnar gegn Sovétmönnum í síðasta leiknum. Hann tapaðist 0:2, leikurinn gegn Spánverjum tap- aðist einnig en liðið sigraði hins vegar Júgóslava í fyrsta leik. Þeir félagar eru allir á því að gengi liðanna tveggja hafi verið viðunandi í þessum tveimur síð- ustu verkefnum. „Menn voru alveg sáttir við árangurinn í Sviss þótt við vonuðum fyrirfram að hann yrði betri. Aðalatriðið var að forðast skelli eins og öll lands- liðin hafa fengið og það tókst. Mér fannst hins vegar ömurlegt að geta ekki spilað meira,“ sagði ívar. Hann er ekki lengur gjald- gengur í drengjalandsliðið en segist setja stefnuna ótrauður á U-18 ára liðið. Eggert og Bjarki voru einnig sáttir við árangur U-18 ára liðsins. „Við erum að ná þessum þjóðum. Prátt fyrir að úrslitin hafi verið heldur óhagstæð voru allir leikirnir mjög jafnir og bilið er greinilega mikið að minnka þrátt fyrir að það hverfi sennilega aldrei.“ 2. flokkur KA skartar þremur landsliðsmönnum í sumar en lið- ið leikur í 2. deild. „2. flokkurinn er að koma sterkur upp enda héldu allir áfram sem komu upp úr 3. flokki en það hefur ekki gerst í mörg ár. Við erum hóflega bjartsýnir, erum reyndar með öll- um sterkustu liðunum í riðli en stefnum að sjálfsögðu á að fara upp,“ sögðu strákarnir. Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu: Völsungur haföi betur í viðureign 3. deildarliðanna - Dalvík, Reynir og Kormákur áfram í fyrrakvöld fóru fram 18 leikir í Mjólkurbikarkeppninni í knattspyrnu. Fjórir af þeim fóru fram á Norðurlandi, Dal- víkingar sigruðu Hvöt 2:1 á Blönduósi, Reynir sigraði UMSE-b 4:3 á Árskógsströnd, Völsungur sigraði Magna 3:1 á Húsavík og Kormákur lagði Neista 2:0 á Hvammstanga. Fyrri hálfleikur á Blönduósi var býsna opinn og fjörugur og bæði lið fengu ágætis marktæki- færi. Hvatarmenn voru betri aðil- inn og Bjarni Gaukur Sigurðsson skoraði fyrir liðið eftir 30 mínút- ur. Dalvíkingar voru einnig nálægt því að skora og áttu m.a. skot í stöng. í seinni hálfleik hugðust Hvat- armenn halda fengnum hlut og lögðust í vörn en Dalvíkingar hresstust mikið og sóttu af kappi. Pað bar árangur, Örvar Eiríks- son jafnaði metin eftir 20 mínút- ur og skömmu fyrir leikslok skor- aði Vopnfirðingurinn Gísli Davíðsson sigurmark Dalvík- inga. Fjörugt á Árskógsströnd Viðureign Reynis og UMSE-b var sérlega fjörug og höfðu bæði markverðir liðanna og dómari leiksins í ýmsu að snúast enda mikið skorað og leikið af karl- mennsku og stundum rúmlega það. Leikmenn UMSE-b byrjuðu með miklu offorsi og náðu foryst- unni eftir aðeins eina mínútu með marki Gísla Úlfarssonar. Tveimur mínútum síðar jafnaði Garðar Níelsson fyrir Reynis- menn eftir fyrirgjöf frá Siguróla Kristjánssyni og þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar kom Júlíus Guðmundsson Reynis- mönnum yfir. Leikurinn var í járnum eftir þetta fram að hléi, bæði lið fengu ágætis færi til að bæta við mörkum og náðu Reyn- ismenn að nýta eitt þeirra þegar Garðar bætti sínu öðru marki við eftir 30 mínútna leik. Seinni hálfleikur byrjaði einnig með látum, UMSE-b sótti strax að marki Reynismanna sem máttu m.a. bjarga á línu. En boltinn fór ekki inn heldur geyst- ust Reynismenn í skyndisókn sem endaði með að dæmd var vítaspyrna á UMSE-b sem Garð- ar skoraði örugglega úr. Reynis- menn voru síðan mun meira með boltann en sköpuðu sér engin teljandi færi. í lokin færðust leik- menn UMSE-b allir í aukana og Ólafur Torfason náði að minnka muninn eftir laglega sendingu Arnars Kristinssonar. Á loka- mínútunni fékk þessi sami Ólafur að líta rauða spjaldið fyrir brot. UMSE-b liðið var nokkuð jafnt en mest bar á Gísla Úlfars- syni. Hjá Reyni voru Siguróli Kristjánsson og Heimir Bragason yfirburðamenn. Unnar með þrennu á Húsavík Völsungar voru frískir í upphafi gegn Magna og skoruðu tvö mörk með stuttu millibili. í bæði skiptin var Unnar Jónsson á ferð- inni, í fyrra skiptið fékk hann sendingu inn fyrir vörn Magna og skoraði af öryggi og skömmu seinna skoraði hann með skalla af stuttu færi eftir að ísak Oddgeirsson, markvörður Magna, missti af boltanum. Leikurinn jafnaðist nokkuð eftir þetta og skömmu fyrir hlé minnk- aði Reimar Helgason, fyrirliði Magna, muninn af stuttu færi eft- ir hornspyrnu. Seinni hálfleikur var í jafnvægi en Unnar náði engu að síður að bæta við sínu þriðja marki fyrir Völsung þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu fyrir mark Magna. Leikurinn fór fram á grasvelli þeirra Húsvíkinga í mjög góðu veðri og við ágætar aðstæður. Völlurinn hefur tekið mjög vel við sér og segja fróðir að hann sé mun betri en síðustu ár. Sanngjarn sigur Kormáks Kormákur vann nokkuð sann- gjarnan og öruggan sigur á Neista á grjóthörðum malarvellinum á Hvammstanga. Kormáksmenn voru mun sterkari í upphafi og Rúnar Guðmundsson náði for- ystunni fyrir þá eftir 15 mínútur. Um miðjan fyrri hálfleikinn fóru Neistamenn að bíta frá sér en þegar jöfnunarmarkið virtist í uppsiglingu skoraði Albert Jóns- son annað mark Kormáks og þar með voru úrslitin ráðin. Seinni hálfleikur einkenndist af miðju- þófi, bæði lið fengu reyndar þokkaleg færi sem öll fóru for- görðum og verður ekki annað sagt en að úrslitin hafi verið sanngjörn. Úrslit í öðrum leikjum urðu þessi: Leiknir R.-Haukar 0:2 Afturelding-Grótta 1:5 Stokkseyri-TBR 4:2 Reynir S.-Grindavík 0:7 ÍR-ÍBK frestað til 6/6 Skallagrímur-Bolungarvík 2:3 ÍK-Víkingur Ól. 2:1 Þróttur R.-Snæfell 5:1 Árvakur-Selfoss 3:2 Sindri-Leiknir F. 2:1 Þróttur N.-Höttur 2:1 Huginn-Valur Rf. 5:1 Austri E.-Einherji 2:3 Njarðvík-Fylkir 1:4 Landsliðsmennirnir þrír, f.v.: fvar Bjarklind, Eggert Sigmundsson og Bjarki Bragason. Mynrf: jiib Einnar kylfu keppni á Króknum: Öm Sölvi sigraði Um síðustu helgi fór fram einnar kylfu keppni á Hlíðar- endavelli á Sauðárkóki. Keppt var í karla-, kvenna- og ungl- ingaflokki, með og án forgjaf- ar, og voru keppendur milli 20 og 30 talsins. í karlaflokki án forgjafar sigr- aði Örn Sölvi Halldórsson, Gunnar Andri Gunnarsson varð annar og Einar Einarsson þriðji. í keppni með forgjöf sigraði Ein- ar Einarsson, Kári Valgarðsson varð annar og Gunnar Þ. Guð- jónsson þriðji. í kvennaflokki sigraði Val- gerður Sverrisdóttir í keppni án forgjafar, Sólrún Steindórsdóttir varð önnur og Svanborg Guð- jónsdóttir þriðja. Þessar þrjár röðuðu sér eins í efstu sætin í keppni með forgjöf. I unglingaflokki röðuðu efstu menn sér einnig eins í keppni með og án forgjafar. Sigurvegari varð Halldór Halldórsson, annar varð Guðjón B. Gunnarsson og þriðji Þorsteinn Jónsson. Á sunnudaginn fer fram hjóna- og parakeppni á Sauðárkróki. Er körlunum þá ætlað að slá úti á brautunum en konurnar sjá um púttin. Sundlaug Glerárskóld' Sumaropnunartími laugarinnar fyrir al- menning verður alla virka daga kl. 07.00- 20.30 nema miðvikudaga þá er opið kl. 07.00-17.00 og um helgar kl. 09.00-14.00. Ath. 4. júní-28. júní verður laugin lokuð alla virka daga kl. 09.00-12.00 vegna sundnámskeiða. Skjaldbökurnar komnar 4 Sendum í póstkröfu, PRRIS sími: 27744- . „,*1 , V • Hafnarstræti 96, Leikfangamarkaöurinn Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.