Dagur - 26.06.1991, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 26. júní 1991
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 100 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Dagsprent hf. gert að
almennmgshlutafélagí
Á aðalfundi Dagsprents hf. sem haldinn var í
síðustu viku, var að tillögu stjórnar fyrirtækis-
ins samþykkt að aflétta öllum hömlum á með-
ferð hlutafjár í fyrirtækinu. Með þessari breyt-
ingu er öllum sem áhuga hafa heimilt að
kaupa hlutafé í fyrirtækinu og er þar með
stefnt að því að gera Dagsprent hf. að
almenningshlutafélagi.
Svo sem kunnugt er stendur hlutafélagið
Dagsprent að útgáfu Dags og rekstur alhliða
prentsmiðju á Akureyri, sem m.a. prentar
blaðið. Afkoma fyrirtækisins síðustu tvö árin
hefur verið þokkaleg. Árið 1989 var rekstur-
inn „rétt ofan við núllið“, eins og stundum er
sagt en í fyrra varð um 6 milljóna króna hagn-
aður af rekstri fyrirtækisins. Þetta verður að
teljast mjög góður árangur því árið 1988 varð
20 milljóna króna tap af rekstri fyrirtækisins
og mjög óvænlega horfði, m.a. vegna mikilla
fjárfestinga þess og fjármagnskostnaðar af
þeim sökum. Með samstilltu átaki tókst
stjórn og starfsfólki fyrirtækisins að komast
yfir þessa erfiðleika og snúa vörn í sókn.
Þessari sókn á nú að halda áfram og efla og
treysta fyrirtækið enn frekar í sessi.
Kannanir hafa sýnt að Dagur er í stöðugri
sókn á fjölmiðlamarkaðinum. Staða blaðsins
er afar sterk á Norðurlandi eystra og blaðinu
vex stöðugt ásmegin á Norðurlandi vestra.
Það er einnig eftirtektarvert að Dagur hefur
sótt mjög í sig veðrið á landsvísu. Samkvæmt
nýlegri könnun sem Gallup á íslandi gerði fyr-
ir Samband íslenskra auglýsingastofa er Dag-
ur nú í fjórða sæti yfir mest lesnu dagblöð
landsins. Blaðið hefur skotið bæði Þjóðviljan-
um og Alþýðublaðinu aftur fyrir sig og nálg-
ast Tímann óðfluga að útbreiðslu, ef marka
má niðurstöður könnunarinnar.
Dagur hefur alla burði til að vinna fleiri
sigra og þjóna lesendum sínum betur en
nokkru sinni fyrr. Þess vegna er nú almenn-
ingi gefinn kostur á að kaupa hlut í fyrirtæk-
inu og leggja þannig sitt lóð á vogarskálina til
að þetta megi takast sem allra best. Vonandi
verða viðtökur almennings góðar, ekki síst
þess fólks sem á landsbyggðinni býr. Dagur
hefur ávallt kappkostað að vera málsvari
landsbyggðarinnar og mun verða það áfram.
Það er ekki vanþörf á að láta rödd þess fólks
sem þar býr heyrast betur en nokkru sinni
fyrr. BB.
Grcinarhöfundur kvartar yfir umgengni og slysahættu
í þessu umhverfi. Á innfelldu myndinni sést hvar verið
er að vinna við timbur innan bárujárnsgirðingarinnar
sem vitnað er til í greininni.
Ekki er allt sem sýnist
- slysagildrur og mengun
Það er mikið rætt þessa dagana
um fallegt umhverfi og hvarvetna
sér maður börn og unglinga vinna
að fegrun bæjarins, gróðursetja
plöntur, slá bletti, hreinsa upp
allskonar rusl svo til sóma er fyrir
bæjarfélagið. Fjölmiðlar sjá um
að koma þessum fréttum á fram-
færi, svo og það fólk sem stendur
fyrir og stjórnar þessum verkefn-
um. En það virðast fáir hafa
áhuga á því sem ábótavant er, í
það minnsta heyrist ekki mikið í
þeim hópi, þó svo að hann sé
býsna stór. Það er eins og fólk
veigri sér við að tala um það sem
miður fer til þess að styggja nú
engan, heldur byrgir inni gremju
yfir tillitsleysi og slóðaskap þeirra
er hlut eiga að máli.
Hér í blaðinu gefur að líta
mynd nokkurra rótgróinna fyrir-
tækja sem eru þannig staðsett að
þau liggja að lóðarmörkum
fjölda íbúða. Rætt hefur verið
við stjórnendur og eigendur fyrir-
tækjanna og þeir beðnir um að
laga þannig til að fólki sé bjóð-
andi hvað útlit snertir og eins á
það bent að þarna sé stórkostleg
slysahætta fyrir börn sem sækja á
þessa ruslahauga og eru að leika
sér uppi á skúrum og timbur-
stöflum beggja megin egghvassr-
ar bárujárnsgirðingar. Ég vil ekki
hugsa þá hugsun til enda ef barn
félli niður á girðinguna. Fyrir
þessum hlutum virðast stjórnend-
ur og eigendur fyrirtækjanna
gjörsamlega sljóir og vonandi eru
þeir menn til að taka á sig
ábyrgðina ef slys verður.
Burtséð frá sóðaskapnum virð-
ist þeim mönnum sem þarna
vinna gjörsamlega ókunnugt um
að fólk búi í húsunum þarna í
kring. Verið er með hávaða á öll-
um tímum sólarhrings og oft að
þarflausu, að því er virðist, og þá
ekki síst snemma morguns á frí-
dögum, svona rétt til að láta fólk-
ið vita að allt sé í lagi og kominn
tími fyrir íbúana að vakna - en
slíka hugulssemi kunna ekki allir
að meta.
Annað er það, sem við er
þarna búum og fleiri - svo sem
þekkt fyrirtæki í matvælaiðnaði
og verslun er selur tilbúinn mat
höfum mátt þola gegnum tíðina-
en það er hið dæmalausa eiturský
sem leggur frá Kaffibrennslu
Akureyrar með tilheyrandi
óhreinindum og óhollustu. Petta
mengar svo loft í íbúðum að vit-
að er um fólk sem hefur orðið að
yfirgefa heimili sín þegar verst
lætur vegna óþæginda í öndunar-
færum. Eins veit ég um fólk sem
hefur ætlað að kaupa sér í svang-
inn í verslun þeirri er selur tilbú-
inn mat þarna í nágrenninu en
snúið frá vegna brækju frá Kaffi-
brennslunni. Petta hefur verið
rætt við heilbrigðisfulltrúa Akur-
eyrarbæjar og tók hann erindinu
vel eins og samviskusamra
embættismanna er siður. En því
miður var ekkert hægt að gera
formsins vegna. Þó veit ég að
rætt var við þá aðila er hlut áttu
að máli á sínum tíma. Nú er
kominn nýr forstjóri að Kaffi-
brennslu Akureyrar og vonandi
lagfærir hann hlutina svo að við-
unandi verði - því slíkt er ekki
mikið mál, að mínu áliti, ef vilji
er fyrir hendi. Einnig finnst mér
furðulegt að sum þeirra fyrir-
tækja sem ég hef rætt um hér að
framan skuli tengjast stórfyrir-
tæki sem oft úthlutar styrkjum til
menningar og lista svo ekki fer
framhjá neinum, og vildi ég óska
að þeir tækju nú til í kringum
sjálfa sig áður en næsta styrkveit-
ing fer fram.
Jón S. Arnason,
Sólvölluni 17, Akureyri.
Á myndinni sést Auðun Benediktsson, forseti Kiwanisklúbbsins Faxa á Kópaskeri, með viðurkenningarskjöld
handa Lundarskóla í Öxarfirði. Skólinn var algjörlega reyklaus veturinn 1990-1991 og er þá um að ræða bæði
ncmendur, kennara og annað starfsfólk. Kiwanisklúbbarnir eru þjónustuklúbbar allra stétta og lcitast við að vera
samfélaginu til fyrirmyndar.