Dagur


Dagur - 08.08.1991, Qupperneq 4

Dagur - 08.08.1991, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 8. ágúst 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SIMFAX: 96-27639 Enn hækka okur- vextir bankanna Viðskiptabankar og sparisjóðir hækkuðu nafnvexti verulega um síðustu mánaðamót og er það önnur vaxtahækkunin á aðeins tveimur mánuðum. Vextir, sem voru vissulega okurvextir áður en þessi síðasta hækkun kom til sögunnar, eru nú orðnir svo háir að yfir þá finnst ekkert nafnorð í íslenskri tungu. Brjál- æði og vitfirring eru þau orð sem helst koma upp í hugann. Eða er hægt að nefna 14-16% raunvexti á t.d. víxillánum bankanna öðru nafni? Fullyrða má að enginn, hvorki einstaklingar né fyrirtæki, hefur efni á að slá sér lán með slíkum kjörum. Enginn fjár- festing né atvinnurekstur stendur undir slíku. Bankakerfið hefur að þessu sinni farið langt yfir strikið í vaxtahækkunum sínum og var þó búið að toga og teygja þetta óskilgreinda strik ofar en góðu hófi gegnir. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra gagnrýndi vaxtahækkun bankanna sem kom til framkvæmda í byrjun júní. Um helgina gagnrýndi Davíð Oddsson forsætisráðherra síðan harðlega þessa seinni vaxta- hækkun bankanna á stuttum tíma. Við það tækifæri sagði hann m.a. að vaxtahækkunin væri „úr takt við raunveruleikann" og að vextir væru nú orðnir „miklu hærri en eðlilegt er." Þessi gagnrýni ráð- herranna er athyglisverð með tilliti til þess að þarna tala formaður og varaformaður þess flokks, sem hefur gengið harðast fram í því að tryggja bönkum og sparisjóðum fullt frelsi til vaxtaákvarðana. Þegar jafnvel frjálshyggjumönnunum er farið að ofbjóða vaxtaokur banka og sparisjóða er ekki nema von að meðaljóninn séu löngu orðinn orðlaus. Ekki er úr vegi að minna þessa ágætu ráðherra á að ákvörðun þeirra um að stórhækka vexti; fyrst á ríkisvíxlum, síðan á spariskírteinum ríkissjóðs og loks á ríkisvíxlum að nýju, átti stærstan þátt í að hleypa vaxtaskriðunni af stað. Þeir eiga því nokkra sök á hvernig málum er komið. Ef ekkert verður að gert mun vaxtaskriðan færa stóran hluta atvinnulífsins í kaf á skömmum tíma. Rekstur fjölmargra heimila mun fara sömu leið. Eignatilfærslan í þjóðfélaginu er hafin á nýjan leik og ný gjaldþrotahrina er skammt undan. Með síðustu vaxtahækkunum er það opinberlega staðfest að bankar og sparisjóðir hafa staðið sig langverst þeirra aðila sem áttu þátt í að gera þjóð- arsáttarsamningana svonefndu á síðasta ári. Ríkis- valdið hefur einnig brugðist þeim vonum sem við það voru bundnar, með því að hafa forgöngu að vaxtahækkununum. Bankar og sparisjóðir hafa fylgt í kjölfarið og gott betur í skjóli fullkomins frels- is til vaxtaákvarðana. Launþegar, verkalýðsfélög og bændur hafa á hinn bóginn staðið fyllilega við sinn hluta samningsins og vinnuveitendur einnig, að langmestu leyti. Þessum aðilum svíða svikin sárt. Þau verða geymd en ekki gleymd þegar geng- ið verður að samningaborðinu að nýju. BB. Eiturheraaður gegn sakleysingjum! Fimmtudaginn 25. júlí síðastlið- inn varð ég og fjölskylda mín fyr- ir óhuggulegri reynslu. Þessi dag- ur hafði reyndar allt til að bera til að verða hinn ánægjulegasti, ef örlögin hefðu ekki gripið inn í á hátt sem ég á erfitt með að sætta mig við. Það voru komnir til okkar gest- ir sem ætluðu að eiga með okkur notalega kvöldstund. Meðan á matarundirbúningi stóð var farið í stutta gönguferð út að norður- garðinum og niður í fjöruna norðan við garðinn. Með í ferð- inni var tíkin okkar Dalla, sem er íslenskur fjárhundur sem við erum búin að eiga í sjö ár. Eins og alltaf við þessar kringumstæð- ur var hún full af fjöri og lífsgleði og synti nokkrum sinnum úr flæðarmálinu á eftir spýtu sem hent var í sjóinn. Þegar haldið var upp úr fjörunni, urðum við vör við að Dalla fann eitthvað sem hún nagaði, án þess að sæist hvað það var. Þegar við komum heim tókum við fljótt eftir því að Dalla var ekki eðlileg og gat varla staðið í fæturna. Var þá strax haft sam- band við dýralækni. Þar sem öll einkenni bentu til þess að Dalla hefði fengið í sig svefnlyf sem notað er til að eyða vargfugli, var strax hafin meðferð áður en dýra- læknirinn kom á staðinn. Hófst nú barátta við að halda lífi í Döllu, sem stóð í 20 tíma, áður en yfir lauk. Döllu varð ekki bjargað. Er það okkur mikill harmur að sjá á eftir vini og félaga sem er búinn að vera sem einn úr fjöl- skyldunni frá því að við fengum hana fljótlega eftir að við fluttum hingað til Húsavíkur. Og eftir þessa reynslu hafa vaknað hjá okkur ýmsar spurn- ingar. Árni Sigurbjarnarson. Hverskonar lyf eru það sem gefin eru út fyrir að vera svefnlyf fyrir fugla, en reynast svo áhrifa- mikil að ekki var hægt að bjarga hundi á besta aldri, sem fyrir slysni hafði fengið í sig lyfið? Hvernig getur því verið háttað að eiturefni sem þetta er á víða- vangi, meira að segja innan bæjarmarkanna? I þessu tilfelli var það tíkin okkar sem varð fórnarlamb þessa eiturhernaðar. Tilhugsunin um hvað gæti gerst ef lítil börn væru að handfjatla svona efni, vekja með manni óhug. Hvað er það eiginlega sem réttlætir slíkan eiturhernað gegn umhverfinu? Oft heyrast og sjást fréttir af því í fjölmiðlum að mikill árang- ur hafi náðst við útrýmingu á vargfugli. Í dag virðist sá skiln- ingur vera lagður í orðið vargfugl að allir þeir fuglar sem geta gert sér mat úr einhverju af þeim sóðaskap sem við látum frá okk- ur út í umhverfið, sé vargfugl. En þar er eins og flestir vita af nógu að taka. Eitt dæmi um slíkan vargfugl er fýllinn sem hefur fjölgað sér gífurlega allt í kring- um landið og er farinn að verpa á ólíklegustu stöðum. Allt sem sá fugl hefur til saka unnið er að hann þrífur upp eitthvað af þeim þúsundum tonna af slógi sem fiskiskipaflotinn dreifir yfir fiski- miðin kringum landið. Viðbrögðin við þessari fjölgun fýlsins eru að hefja eiturhernað og drepa hann í þúsundatali í næsta nágrenni við helstu fisk- verkunarstöðvar í landinu þar sem hann gæti hugsanlega valdið salmonella sýkingu. Þegar til lengri tíma er litið er það spurning hvort við höfum efni á því að fara þessar svököll- uðu „ódýru" leiðir, þegar upp koma vandamál í sambandi við umgengni okkar við náttúruna. Er ekki hugsanlegt, að þegar upp er staðið sé hagstæðara að borga það sem það kostar að þrífa upp eftir sig? Að ráðast að orsökum vandans en ekki vera í eilífum hernaði gegn umhverfinu? Þessum aðferðum sem hér er lýst mætti líkja við það að við stæðum frammi fyrir því að öndunum á Búðaránni væri farið að fjölga úr hófi, þar sem bæjar- búar væru orðnir svo iðnir við að gefa þeim brauð. Úrræðin sem við hefðum til þess að fækka öndunum væru að eitra fyrir þær en jafnframt halda áfram að gefa þeim svo þær geti haldið áfram að fjölga sér aftur. Auðvitað er þetta fáránlegt dæmi en lýsir það kannski ekki aðeins hversu langt við eigum í land til að geta lifað í sátt við okkar nánasta umhverfi og þá auðlind sem landið og hafið eru, sem við eins og allir aðrir eiguni allt okkar undir. Eigum við að sætta okkur við eiturhernað af þessu tagi? Árni Sigurbjarnarson. Höfundur er skólastjóri á Húsavík. Grein þessi birtist í Víkurblaöinu á Húsavík 31. júlí sl. Enginn eiturheraaður gegn sak- leysingjum stundaður a Húsavík Ég vil byrja á að votta Árna Sigurbjarnarsyni og fjölskyldu hans samúð mína vegna dauða Döllu, sem varfallegur, íslenskur fjárhundur. Dauði hennar var án efa mjög sár. Fimmtudagskvöld- ið 25. júlí sl. hafði Árni samband við mig þar sem ég var á leið frá Þórshöfn til Raufarhafnar og spurði mig hvort verið gæti að ég hefði verið með svefnlyf í fjöru norðan hafnargarðs. Ég játaði því en sagði að það hefði verið síðastliðið haust, nánar tiltekið 28.-30. október 1990. Árni sagði mér að hundurinn sinn, Dalla, hafi étið eitthvað í fjörunni norð- an hafnargarðs og hún væri orðin máttlítil og óstöðug. Mér fannst lýsingin vera þess eðlis að umræddur hundur gæti hafa gleypt uppþornaða ælu frá varg- fugli sem innihélt svefnlyfið fenemal, en vissi ekki til þess að svo gæti verið. Ég talaði svo um það við Árna að fá dýralækni til að framkalla uppsölu hjá hundin- um og gefa vökva í æð ef um fenemal-áhrif væri að ræða. Ég get ekki fullyrt hvaða meðhöndl- un hundurinn fékk en um kl. 15.30 daginn eftir kom ég heim til Árna. Þá var hundurinn dáinn og harmaði ég það. Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur í fjölmiðlum vegna þessa máls, bæði í útvarpi og blöðum, vil ég upplýsa fólk um hvernig ég beiti fenemal- meðferð, þar sem framkvæma á eyðingu eða fækkun vargfugla, svo sem hrafna, svartbaks, silfur- máfs og sílamáfs. Þessir fuglar teljast ófriðaðir allt árið og ég og aðrir sem til þekkja, telja að hér sé ekki um sakleysingja að ræða. Ég byrja á því að velja stað þar Árni Logi Sigurbjörnsson. sem vargfuglinn hefur mikla við- veru. Ég gef honum nokkrar teg- undir úrgangs og ven vargfuglinn smám saman á þennan stað nokkra daga í röð. Síðan tilkynni ég heilbrigðisfulltrúa, dýralækni og lögreglu hér á svæðinu um staðinn og áætlaðan eyðingar- tíma. Ég blanda fenemali eða Feno- barbitali, eins og efnið heitir á lyfjamáli, í þann úrgang sem vargfuglinn borðar mest af. Hlut- föllin eru 1 á móti 10 eða 1 á móti 20 eftir eðli úrgangs og árstíma. Meðan á svæfingu stendur og allt þar til eyðingu er lokið, vakta ég umrætt svæði og aflífa þá varg- fugla, sem ekki hafa drukknað í svefni. Að þessu loknu er varg- fuglinn brenndur og svæðið hreinsað og gengið úr skugga um að æti eða æla verði ekki eftir á svæðinu. En þegar verið er að svæfa vargfugl að vetri til, er ekki hægt að tryggja með öllu að æla lendi ekki í snjó og frosti og þorni sem kallað er. Þegar það gerist frýs ætið og þornar í eins konar flögu en rotnar ekki á sama hátt og gerist við hita, t.d. að sumri. Lyfið Fenobarbital eða fene- mal er viðurkennt af Eiturefna- nefnd ríkisins, Náttúrufræði- stofnun og Heilbrigiðis- og holl- ustunefnd ríkisins. Þetta er svefnlyf og áhrif þess eru kvala- laus. Lyfið er m.a. notað sem geðlyf (sjá nánar í Lyfjabókinni, sem víða er til á heimilum). Á útivistarsvæðum og hafnar- svæði Húsvíkinga er enginn eiturefnahernaður stundaður og öllum óhætt að vera þar, bæði mönnum og dýrum. En Húsvík- ingar, sem ekki eru kunnugir úti- vistarsvæðum í bænum og ná- grenni hans, þurfa að gera sér grein fyrir því að fjaran norðan hafnargarðs getur ekki talist úti- vistarsvæði, því klóaklögnin frá stórum hluta bæjarins fossar fram úr bakkanum þar með tilheyr- andi úrgangi. Saur og eiturefni geta ekki talist heppileg á útivist- arsvæðum né heldur til að baða hunda í. Það er rétt hjá Árna að fýlar og stokkendur eru ekki vargfuglar en fýllinn er farinn að helga sér varpstöðvar sem ekki eru taldar æskilegar til þess arna, svo sem Ásbyrgi og víðar. Að lokum þetta, með fullri virðingu fyrir Döllu, þessum fallega, íslenska fjárhundi: Hvernig væri ástandið hér í Þing- eyjarsýslum ef þessir 9.000 hrafn- ar og um 45.000 svartbakar, sem ég hef eytt, væru enn hér til staðar? Hvað segðu bændur, fisk- verkunarfólk og eigendur æðar- varpslanda þá? Árni Logi Sigurbjörnsson. Höfundur er meindýraeyðir á Norður- landi eystra.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.